Tíminn - 30.09.1983, Síða 20

Tíminn - 30.09.1983, Síða 20
Opiö virka daga 9-19 Laugardaga 10-16 H HEDD Skemrnuveg' ?C Kopavogi Simar (91)7 75 51 & 7 80 30 Varahlutir Mikiö úrval Sendum um land allt Abyrgö á öllu Kaupum nylega bíla til nlðurrifs 5AMVINNU TRYGGINGAR &ANDVAKA ARMULA3 SIMI 81411 .£% T* .x: .1 Hamarshöfða 1 abriel HÖGGDEYFAR y QJvarahlutir s,”"1 S’tmtmi Ritstjorn 86300 - Augiysingar 18300 - Afgreidsla og askrift 86300 - Kvoidsimar 86387 og 8C306 Föstudagur 30. september 1983 Hallgrfmur Ingi Hallgrímsson, árásarmadurinn í Þverholtsmálinu: HÆSTIRÉITUR STAÐFESTI 10 ARA FANGELSISDÚMINN ■ Hæstiréttur staðfesti í gær dóm undirréttar yfir Hallgrími Inga Hallgrímssyni, að hann yrði látinn sæta 10 ára fangelsi fyrir líkamsárás á 15 ára gamla stúlku í desember 1981. Ríkissaksókn- ari hafði, fyrir hönd ákæruvalds- ins, krafist að refsing ákærða yrði ákveðin ekki undir 12 ára fangelsi. í dómi Hxstaréttar seg- ir ennfremur að gæsluvarð- haldsvist ákærða frá 6. desember 1981 skuli koma til frádráttar en hann greiði allan sakarkostnað, þar með talin 15.000 króna saksóknarlaun og 15.000 króna málsvamarlaun. í dómi Hæstaréttar segir m.a. að fallast beri á það mat héraðs- dómara að varhugavert sé að telja að með ákærða hafi búið sá ásetningur að verða stúlkunni að bana eða að málið hefði horft þannig við ákærða að líkamsár- ásin myndi hafa dauða í för með sér. Þvíerstaðfesturhéraðsdóm- ur um sýknu fyrir brot á 211. grein sbr. 20. gr. almennra hegn- ingarlaga. Staðfesta beri sakfell- ingu samkvæmt 218. grein, svo og varðandi 220. grein 1. mgr. almennra hegningarlaga. Samkvæmt framburði ákærða og vegsummerkja samkvæmt vettvangskönnun, þykir sannað að ákærði hafi reynt að hafa mök við stúlkuna að óvilja hennar, og atferli ákærða hefði því varðað við 194. greiri, sbr. 20. grein almennra hegningarlaga. Einnig þykir sannað að ákærði hafi gerst sekur um brot á 244. grein almennra hegningarlaga þegar hann stal úri af stúlkunni. Þá segir í dómnum að við ákvörðun refsingar beri að líta til þess að ákærði gerðist sekur um stórfellda og stórháskalega líkamsárás þar sem beitt var hættulegu verkfæri gegn við- kvæmum líkamshlutum. Hann skildi stúlkuna eftir á afviknum stað á vetrarkvöldi, klæðalitla, mjög særða og rænulausa. Ráð- stafanir sem hann gerði til að sjúkralið yrði kvatt á vettvang voru ónógar og ekki gekk hann úr skugga urn hvort þær hefðu komið að haldi. Við refsiákvörð- un ber að taka tillit til sakferlis hans. Þykir refsing hans með vísan til þessa og 77. gr. al- mennra hegningarlaga hæfilega ákveðin í hinum áfrýjaða dómi. Málið dæmdu hæstaréttar- dómararnir Magnús Þ. Torfa- son, Ármann Snævarr, Björn Sveinbjörnsson, Guðmundur Jónsson og Sigurgeir Jónsson. -GSH AUKA ÞARF NKV URGREIDSLUR UM 20 MILU. KR. — ef koma á f veg fyrir að búvöruverð hækki um meira en 4% á morgun ■ Nú er gengið út frá því að búvöruverð muni hækka um 4 til 5% um mánaðamótin, en þó gæti svo farið að búvöruverð hækkaði eitthvað minna, ef ákveðið svigrúm gefst til þess að auka niðurgreiðslur, og er talið, samkvæmt heimildum Tímans aðþurfi u.þ.b. 20milljónirkróna í auknar niðurgreiðslur, til þess að búvöruverð almennt hækki ekki meira en um 4%. Nýtt kjöt mun þó hækka tals- vert meira, eða í kringum 15%, en þar inní kemur allur slátur- kostnaður frá því í fyrra, en sá kostnaður kemur ekki inn nema einu sinni á ári, sem er ástæða þess að nýtt kjöt hækkar svo miklu meira en aðrar landbúnað- arafurðir. -AB Ök í veg fyrir pilt á reiðhjóli ■ Sautján ára gamall piltur á reiðhjóli varð fyrir bíl í Bogahlíð í gærmorgun. Pilturinn fótbrotn- aði og meiddist á höfði við óhappið og var fluttur á slysa- deild þar sem hann liggur enn. Að sögn lögreglu voru bæði bíllinn og reiðhjólið á leið norður Bogahlíð. Bíllinn tók síðan vinstri beygju inn á Stiga- hlíð og fór um leið í veg fyrir piltinn á reiðhjólinu. -GSH <T.T.T,7Í,1 ■ Maður var fluttur á slysadeíld eftir árekstur tveggja bfla á mótum Höfðatúns og Hátúns í gxr. Maðurinn fékk skurð á vanga en ekki var vitað til að um alvarleg meiðsl væri að rseða. Að sögn lögreglunnar ók annar bfllinn, sendibfll, norður Höfðatún, en hinn, lítill Fíatbfll, vestur Hátún. Bflamir rákust síðan saman á gatnamótunum og var ökumaður litla bflsins fluttur á slysadeild eins og áður sagði, Fíatinn er talinn ónýtur eftir óhappið. -GSH HM ■ bridge: Svfar gefa eftir ■ Svíar virðast vera að gefa eftir í undankeppni Heims- meistaramótsins í bridge. í gær misstu þeir þriðja sætið í hend- ur Nýsjáiendinga eftir að hafa tapað fyrir ítölum í 8. umferð. 14-16. B-sveit Amertku eykur cnn forskot sitt og er nú nokkuð örugg með annað undanúrslitasætið. Önnur úrslit í 8. umferð voru þau að Ameríka vann Jamaica, 24-6, Brasilía vann Pakistan, 17-13 og Nýja Sjá- land vann Indónesíu 20-10. Að loknum 8 umferðum eru Ameríkanar efstir mcð 175 stig og Pakistanir í öðru sæti mcð 143 stig, Nýsjálendingar eru komnir í 3. sæti með 124 stig og Svíar eru í 4. sæti með 119.5. ítalir eru aðeins að sækja sig og eru í 5. sæti með 113 stig, Brasilíumenn í 6. með 105 stig, lndónesar í 7. með 86 stig og Jamaicamenn reka lest- ina með 84 stig. Pakistanir hafa skipað sér í hóp bestu bridgeþjóða heims og því kænti ekki á óvart að þcir næðu hinu undanúrslita- sætinu. Lið þéirra nú er skipað sömu spilurum og náðu öðru sæti á síðasta Heimsmeistara- mótinu en þá töpuðu þeir fyrir Ameríkönum í úrslitaleik. -GSH dropar Mænir augum angurblítt... ■ Lesendur Tímans virðast vera ljóðelskir mcð afbrigðum, og hafa drcngilega tekið við áskorun um að botna vísu- helming sem birtur var sem myndatexti í miðvikudagsblað- inu. Þó ekki sé það meiningin að gera Dropa að neinum vísnaþætti, þá geta þeir ekki stiUt sig um að birta hér tvær úrlausnir sem báðar eiga það sameiginlegt að vísunni hefur verið snúið við og fyrri helm- ingurinn gerður að botni. Guðmundur A. Finnboga- son á Hrafnistu vill hafa vísuna svona: Hundurinn með hárið sítt, hnakkan vill oss bjóða. Mænir augum angurblítt, upp á dranginn góða. Hin vísan.mun samansett af Þorsteini Thorarensen borg- arfógeta að því er heimildir Dropa scgja og hljóðar svona: Röltir út á tanga títt tíkin svanga lóða, Mænir augum angurblítt, upp á dranginn góða. Utanfararnefnd ■ I Dropum var spurt í upp- hafi vikunnar, hvort ráðuneyt- isstjórar þeir sem sagt hafa sig úr utanfararnefnd hafi verið erlendis í opinberum erinda- gerðum þegar reynt var að ná til þeirra til að fá upplýsingar um utanfarir opinberra starfsmanna. Upplýst er að Hallgrímur Dalberg ráðuneytisstjóri var erlendis á fundi Norrænu em- bxttismannanefndarinnar til að ganga frá dagskrá fundar sem haldinn verður í Reykja- vík í næsta mánuði, þar sem fjallað verður um sameiginleg- an vinnumarkað á Norður- löndum. Allur kostnaður vegna farar ráðuneytisstjórans er greiddur af Norðurianda- ráði. Krummi . . . ... heyrir að aðeins tveir mögu- leikar séu fyrir hendi til að komast létt í gegnum tilveruna. Annar er sá að trúa öllu, en hinn að trúa engu. j báðum tilfellum sleppa menn við að hugsa sjálfir.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.