Tíminn - 08.10.1983, Síða 1

Tíminn - 08.10.1983, Síða 1
Starfar íslenska hljómsveitin næsta vetur? - Sjá baksfðu Bla 1 ð 1 Tvö blöð í dag Helgin 8.-9. október 1983 233. tölublað - 67. árgangur Síðumúla 15-Pósthólf 370Reykjavík-Ritstjóm86300—Auglýsingar 18300— Afgreidsla og áskrift 86300 - Kvöldsimar 86387 og 86306 Kvikmyndahúsaeigendur snúast til varnar: HOFÐfl 2-300 LOGBANNS- MflL GE6N VÍDEOLEIGUM! ■ Milli 2-300 lögbannsmál eru í undirbúningi af hálfu fyrirtækja með mvndbandarétt á hendur myndbandaleigum, vegna dreif- ingar og leigu á ólöglegum mynd- böndum. Þessar málshöfðanir koma í kjölfar þess að ríkissak- sóknari sá ekki ástæðu til að- gerða vegna kæru Félags ís- lenskra kvikmyndahúsaeigenda á hendur myndbandaleigum sem orðið höfðu uppvísar að því að leigja út ólögleg myndbönd. Mjög mikið er nú um að ólögleg myndbönd séu í umferð hérlend- is og samkvæmt áreiðanlegum heimildum hafa stórmyndir á borð við Sophie’s Choice og Gandhi bæði veríð til leigu í myndbandaleigum og sýndar í myndbandakerfum á höfuðborg- arsvæðinu. „Þessi kæra sem ríkissaksókn- ari vísaði frá hefur leitt af sér mikinn hlátur hjá viðkomandi myndbandaleigum og almenn- ingi, því hið opinbera gerir ekk- crt í þessu þó um sé að ræða augljóst brot“, sagði Friðbert Pálsson forstjóri Háskólabíós og varaformaður Félags íslenskra kvikmyndahúsaeigenda í samtali við Tímann. „Vegna þesSá mun Háskólabíó setja í gang 40-50 málshöfðanir og önnur fyrirtæki með vídeórétt munu fylgja í kjölfarið. Þessar málshöfðanir taka sinn tíma, en löggjafarvald- ið kallar þetta yfir sig.“ Friðbert var spurður um hvað ylli því að forráðamenn mynd- bandaleiga og dreifingarkerfa tækju þá áhættu að hafa myndir á boðstólum á borð við Sophie’s Choicc sem vitað er að eru ólöglegar. „Það getur verið vitn- eskjan um að löggjafarvaldið nennir ekki að standa í þessu“, sagði Friðbert. Friðbert sagði að frumvarp að nýjum höfundarlögum hefði vcr- ið samið undir forsæti Gauks Jörundssonar, lagaprófessors, en það hafi sofnað ofan í skúffu í fyrravor. - GSH. Gömul fallbyssukúla frá árinu 1869: FANNST ViÐ VEGAGERD í KÓPAVOGI — Þjódminjasafnið hefur áhuga á kúlunni ■ Gömul fallbyssukúla, merkt ártalinu 1869, fannst í sandi sem sanddæluskip hafði dælt upp við Laugames. Kúlan fannst þegar sandurinn var notaður í fyllingu í götu í Kópavogi í gær og var lögreglunni í Kópavogi gert viðvart. Kúlan er hol að innan og enn eru púðurleifar í opi á henni. henni. Tíminn hafði samband við Þór Magnússon þjóðminjavörð og spurði hann um hvaðan þessi kúla gæti verið upprunninn. Þór sagðist ekki hafa enn athugað kúluna og því ekki sagt um það með vissu en giskað á að hún væri frá herskipi sem komið hefði við í Reykjavík á síðustu öld. Henni hefði líklega verið fleygt fyrir borð. Vafalaust gætu sérfræðingar sagt um frá hvaða landi hún væri. Þór sagði að Þjóðminjasafnið myndi örugglega taka kúluna og geyma hana því ekki væri til mikið af stríðsminjum í safninu. Aðeins væru til nokkrar ryðgað- ar kúlur og fallbyssur og kúlan myndi fara í það safn. ■ Sæmundur Guðmundsson varðstjóri og Valdimar Jónsson aðstoðaryfirlögregluþjónn í Kópavogi, athuga fallbyssukúl- una sem fannst í sandhlassi í Kópavogi í gær. Kennarafundir í 12 skólum í Reykjavlk: SKORA Á RÁÐKERRA AD SKIPA ÁSLAUGU ■ í gær voru haldnir kennara- I Kennarafélags Reykjavíkur. I að slíkir fundir yrðu haldnir til I hún verðskuldar," eins og sagði fundir í fjölmörgum skólum Stjórn Kennarafélagsins hvatti að sýna Áslaugu Brynjólfsdóttur í ályktuninni. höfuðborgarinnar að áskorun | til þess á fundi sínum í fyrradag | stuðning og „þann trúnað sem | Kennarafundir í eftirtöldum skólum sendu frá sér ályktanir þar sem skorað er á menntamála- ráðherra að skipa Áslaugu þegar í stað í embætti fræðslustjóra. Breiðholtsskóla, Breiðagerðis- skóla, Ölduselsskóla, Hlíða- skóla, Árbæjarskóla, Fossvogs- skóla, Lauganesskóla, Skóla ísaks Jónssonar, Laugalækjar- skóla, Seljaskóla, Álftamýrar- skóla og Hólabrekkuskóla. -JGK íslendinga- sögur í dönskum skólum! ■ Mcnntamálaráðherra Dan- merkur, Bertcl Ha'arder, hefur lagt til að dönskum mennta- skólanemum verði gefinn kost- ur á að lcsa íslenskar forn- sögur, á ísiensku, í stað þess að lesa ræður Ciceros á latínu. Tillaga ráðherrans kom fram á þingi danskra • menntaskóla- kcnnara fyrir skömmu. „Mér finnst það skjóta skökku við, að gefa dönskunt ungmennum kost á að læra sígildar bókmenntir frá hinum og þessum löndum, en bjóða ekki upp á neina kennslu t norræpum fornbókmenntum,” sagði Bcrtel Haarder í samtali við Politiken eftir umrædda ráðstefnu. Þegar hefur verið ákveðið að hefja kennslu á ísletjskum fombókmenntum í einum dönskum menntaskóla í til- raunaskyni. -Sjó Bíomiðinn í 80 krónur 5 ■ Verðlagsráð hefur heimil- að 6.7% verðhækkun á að- göngumiðum að kvikmynda- húsum, sem þýðir að miðinn hækkar úr 75 krónum í 80 krónur. Þá hefur ráðið heimil- að 4% hækkun á útseldri vinnu iðnaðarmanna, 4,7 til 5,2% á þorski og ýsu á neytendamark- aði í Reykjavík og nágrenni, 2,8% hækkun á far- og farm- gjöldum í innanlandsflug Flug- leiða og L3% hækkun á smjör- líki, sem þýðir að kílóið selst á 58.30 í stað 57.50. -Sjó Undirskriffa- listar laun- þegasamtak- anna afhentir á mánudag: Hvatt til þögulla mótmæla ■ N.k. mánudag við setningu alþingis verða undirskriftalist- ar launþegasamtakanna, /sem verið hafi í gangi að undan- förnu afhentir forsætisráðherra og fulltrúa Alþingis. Jafnfrantt hvetja launþegasamtökin fólk innan sinna raða til þögulla mótmæla á þeim tífna sem afhendingin fer fram cða kl. 15.00. Tekið verður á móti undir- skriftalistum fram á sunnudag á skrifstofum ASÍ og BSRB en þær verða opnar á morgun og stmnudag kl. 9.00-lþ.00. -JGK

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.