Tíminn - 08.10.1983, Qupperneq 2

Tíminn - 08.10.1983, Qupperneq 2
LAUGARDAGUR 8. OKTOBER 1983 fréttir Krakkar úr Breiðholtsskóla unnu vel í umferdarvikurmi: FLEIRI GENGU YFIR fl RAUÐU UÓSIEN GRÆNU — samkvæmt einni könnun þeirra í miðbænum ■ Það var mikið um að vera í Breið- holtsskóla í gærmorgun í tilefni þess að umferðarviku í Reykjavík er að Ijúka. Nemendur skólans fóru meðal annars í kröfugöngu um hverfið og báru spjöld með áletrunum cins og : Beltin geta bjargað lífí; Fleiri gangbrautir; Ölvunar- akstur dauðans akstur; Ekki hjóia í umferðinni. Að göngunni lokinni var safnast saman á íþróttavellinum þar sem Lúðrasveit Arbæjar og Breiðholts lék og nemendur, kennarar og foreldrar spreyttu sig í reiðhjólaakstri. Nemendur Breiðholtsskóla tóku virk- an þátt í starfsemi umferðarvikunnar og að sögn Jens Sumarliðasonar kennara og skipuleggjara vikunnar voru gerðar ýms- ar kannanir á umferð bæjarins, meðal annars á notkun bílbelta, barnastóla í bílum, löghlýðni vegfarenda og umferð- arþunga. í gær var síðan sérstök dagskrá í skólanum þar sem m.a. tveir fatlaðir unglingar, sem báðir höfóu lent í bílslys- um, skýrðu frá reynslu sinni, sýndar voru kvikmyndir og fleira: Jens sagði að nemendur skólans hefðu sýnt þessu starfi mikinn áhuga og sér hcfði komið á óvart hvað eldri nemendur hefðu verið áhugasamir. Tíminn tók nokkra nemendur 9. bekkjar Breiðholtsskóla tali en þau höfðu gert ýmsar kannanir á umferðar- menningu Reykvíkinga. Þau tóku sér meðal annars stöðu við umferðarljós í Lækjargötu og á Hlemmi og töldu veg- farendur sem gengu yfir götuna á einum klukkutíma. í einni könnun á Lækjar- torgi kom í ljós að 80 vegfarendur gengu yfir götuna móti rauðu Ijósi en 95 á grænu. A Hlemmi gengu 97 vegfarendur yfir á rauðu Ijósi en 80 á grænu, og þessar niðurstöður tala sínu máli. Þá voru einnig gerð könnun á bílaum- ferð í öllu Neðra-Breiðholti. Þetta kannanir verða seinna notaðar til að gera kort yfir umferðarþunga í Breiðholtinu. ■ Ekki gat Hermann Qaldursson, 10 ára gamall nemandi Breiðholtsskóla, sagt blaðamanni hvað áletrunin á kröfuspjaldinu hans þýddi, þar sem hann hafði ekki búið spjaldið til sjálfur. (Tímamyndir GE) ■ Jens Sumarliðason ■ Það mátti sjá ýmis slagorð á kröfuspjöldum nemenda Breiðholtsskóla sem fóru í kröfugöngu um Amarbakkann í gær til að leggja áherslu á bætta umferðarmenningu. Ragnar Júlíusson, borgarfulltrúi og skólastjóri á borgarstjórnarfundi: Sakar fræðslustjóra um vanrækslu í starfi — fáheyrð framkoma gagnvart embættismanni sögðu fulltrúar minnihlutans ■ Mál fræðslustjórans í Reykjavík, sein gerð hafa verið að umtalsefni hér i blaðinu undanfarna daga komu til um- ræðu með óvæntum hætti á borgar- stjórnarfundi í fyrrakvöld. Til umræðu kom forskóladeild fyrir 5 ára börn í Álftamýrarskóla sem tók til starfa í haust án þess að formlegt samþykki menntamálaráðuneytisins lægi fyrir. Gerður Steinþórsdóttir borgarfulltrúi spurðist fyrir um það hverju þctta sætti. Ragnar Júlíusson skólastjóri við Alfta- niýrarskóla, borgarfulltrúi og fræðslu- fulltrúi kom þá í ræðustól og lýsti því yfir að þetta væri sök fræðslustjórans, As- laugar Brynjólfsdóttur, sem ekki hefði fylgt eftir ályktun fræðsluráðs frá í fyrra um málið, sem samþykkt var á síðasta vetri með 5 atkvæðum gegn tveim. Ragnar Júlíusson sagði að þetta væri til marks um að fræðslustjórinn hefði gerst sekur um vanrækslu í starfi sínu. Hefði hún í bréfi sínu til ráðuneytis aðeins skýrt frá afgreiðslu fræðsluráðs á málinu en ekki farið fram á samþykki ráöuneyt- isins. Vitnaði hann til annars bréfs fræðslustjórans til ráðuneytisins, þar sem hann hefði fylgst eftir samþykkt fræðsluráðs með ósk um staðfestingu menntamálaráðuneytisins. Fulltrúar minnihlutaflokkanna brugð- ust harkalega við ummælum Ragnar í garð fræðslustjórans, en Markús Örn Antonsson formaður fræðsluráðs og forseti borgarstjórnar studdi sjónarmið hans. Guðrún Ágústsdóttir, Gerður Steinþórsdóttir og Adda Bára Sigfús- dóttir töldu fáheyrt að ráðist væri á embættismann úr ræðustól borgarstjórn- ar og töldu að forseta hefði borið að víta málflutning Ragnars. Jafnframt sögðu þær það skyldu borgarstjóra að halda uppi vörnum fyrir embættismenn ef á þá væri ráðist en borgarstjóri, Davíð Odds- son tók ekki til máls við umræðuna. Áslaug Brynjólfsdóttir fræðslustjóri sagðist í gær hafa þá vinnureglu að þegar ágreiningur yrði um mál í fræðsluráði skýrði hún ráðuneytinu hlutlaust frá afgreiðslu þess, en þegar ráðið sam- þykkti mál samhljóða óskaði hún eftir stuðningi ráðuneytisins. Jafnframt gerði hún-ráðunevtinu grein fyrir kostnaði sem breytingum fylgdu og hverra brevt- inga væri þörf ef hrinda ætti tilteknum ákvörðunum í framkvæmd. Varðandi forskóladeildina við Álftamýrarskóla sagði Áslaug að hún hefði ítrekað gengið eftir samþykki menntamálaráðuneytis- ins við hana. Hún hefði hins vegar ekki getað hrint stofnun hennar í framkvæmd án samþykkist ráðuneytisins, slíkt hefði mátt flokka undir .embættisglöp, enda bæri ráðuneytið kostnaðinn eitt. eða að hálfu ef litið er á deildina sem tilraun- adeild. - JGK.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.