Tíminn - 08.10.1983, Síða 11
LAUGARDAGUR 8. OKTOBER 1983
Porsteinn Páll fóf léttilega í úrslit, sigraði
örugglega í sínum leikjum, m.a, Víði
Bragason ÍA í undanúrslitum 15-2 og
15-8. Broddi þurfti að hafa svipað fyrir,.
sigraði örugglega í öllum sínurn leikjum
að úrslitum, m.a. Hrólf Jónsson Val í
undanúrslitum 15-9 og 15-1. Hrólfurhafði
staðið sig mjög vel, sigrað Þórhall Ingason
ÍA í annarri umferð í miklum baráttuleik,
10- 15, 17-14 og 15-5, en Þórhallur hafði
sigrað Sigfús Ægi Árnason TBR í svipuð-
um hörkuleik í fyrstu umferð. - Þorsteinn
Páll varð svo sterkari en Broddi í úrslita-
leiknum, 12-15,15-5 og 15-12.
Þórdís Edwald vann mikinn yfirburða-
sigur í einliðaleik kvenna, sigraði auðveld-
lega í öllum leikjunum, og í úrslitaleiknum
vann hún Kristínu Magnusdóttur TBR
11- 1 og.l 1-2. Þórdís er greinilega á mikilli
uppleið, því Kristín hefur verið nær ósigr-
andi undanfarin ár.
Víðir Bragason ÍA og Sigfús Ægir
Ámason TBR sigruðu í tvíliðaleik karla.
Þeir sigruðu Brodda Kristjánsson og Þor-
stein Hængsson í hörkuúrslitaleik, 14-17,
15-12 og 15-12. Þarna virðist samvinnan
hafa tekið fram einstaklingsframtakinu.
í tvíliðaleik karla sigruðu Kristínarnar
tvær, Magnúsdóttir ög Kristjánsdóttir úr
TBR, örugglega Ingu Kjartansdóttur og
Þórdísi Edwald 15-8 og 15-6.
í tvenndarleik sigruðu Þorsteinn og
Kristín Magnúsdóttir í fjörugum úrslita-
leik þau Brodda og Ingu Kjartansdóttur
18-15 og 15-12. Á mótinu kom vel í Ijós
góður árangur mikils uppbyggingarstarfs
á Akranesi í badmintoníþróttinni, og er
þar nú starfað af miklum krafti undirstórn
hins nýja og mikilhæfa indverska þjálfara
sefn ráðinn hefur verið!
-aó/SOL
■ Þorsteinn Páll Hængsson TBR varð
stxrsti sigurvegarinn á Atlamótinu í bad-
minton, sem haldið var um síðustu helgi á
Akranesi. Atlamótið er haldið árlega til
minningar um Atla Þór Helgason, fyrrum
stjórnarmann í Badmintonfélagi Akra-
ness. Mótið er ævinlega sterkt, þar mxta
allir sterkustu badmintonleikarar
landsins, og á því varð engin breyting nú.
Þorsteinn Páll kom á óvart í mótinu,
sigraði Brodda Kristjánsson TBR, sem
hefur verið í nokkrum sérflokki í einliða-
leik karla undanfarin ár. Þorsteinn sigraði
einnig í tvenndarleik ásamt Kristínu
Magnúsdóttur TBR, en hún sigraði í
tvíliðaleik kvcnna ásamt Kristínu Krist-
jánsdóttur TBR, Þórdís Edwald TBR,
sigraði í einliðaleik kvenna.
Keppendur í meistaraflokki karla voru
16, 8 frá ÍA, 7 frá TBR og einn frá Val.
Frá Þórði Pálssyni í Keflavík
Keflvíkingar hrifsuðu til sín sigurinn í
leik þeirra við ÍR-inga í „Ijónagryfjunni
í Keflavík í gærkvöld, í fyrsta leik
úrvalsdeildarinnar í körfuknattleik. Það
var Björn Víkingur Skúlason, sem Kefl-
víkingar gátu þakkað sigurinn, hann stal
boltanum þegar 25 sekúndur voru eftir,
og ÍR-ingar höfðu hann, með eitt stig
yfír 73-72. Björn var fljótur fram, og
skoraði 74-73. Lokasekúndurnar tifuðu,
Keflvíkingar náðu boltanum á síðustu
sekúndunum af ÍR-ingum aftur, brotið á
Birni, og hann bætti við tveimur stigum
eftir að leiktíminn var útrunninn, úr
vítaköstum. Leikurinn var óhemju jafn,
Keflvíkingar þrjú stig yfir í leikhléi, en
jafnt að loknum venjulegum leiktíma,
68-68.
ÍR-ingar byrjuðu vel og leiddu fram í
miðjan fyrri hálfleik með þetta 4-8
stigum. Um miðjan hálfleikinn jafnaði
landsliðsmarkvörðurinn Þorsteinn
Bjarnason fyrir Keflavík 23-23, og var
þá kátt hjá „ljónum", en um 500 áhorf-
endur voru á leiknum. Síðan var jafnt á
flestum tölum, og 37-34 Keflavík í hag í
hálfleik.
Atlamótid í badminton:
ÞORSTEINN SKELLTI BRODDA
L
Verðlaunahafar á Atlamótinu, ásamt þjálfurum ÍA, sá er lndverji og lengst til vinstri
á myndinni, og TBR, sá cr Kínverji og er við hlið lians, og allir eru í verðlaununum frá
Akraprjón.
Öruggur
Framsigur
■ Fram sigraði Val örugglega í fyrstu
deild kvenna í handknattleik í fyrrakvöld
15-8 í Laugardalshöll. Eftir að liðin höfðu
liðið af stað á fremur rólegan hátt, og
skorað tvö fyrstu mörkin hvort, sigu
Framstúlkurnar framúr og staðan var 6-3
í hálfleik. Áfram haldið í síðari hálfleik,
og úrslitin urðu 15-8.
Handbolti um helgina:
■ í dag er einn leikur í fyrstu deild
kvenna í handbolta, Akranes og ÍR keppa
á Akranesi kl. 14. í annarri deild karla: ÍR
og Fram í Seljaskóla kl. 14. í þriðju deild
karla: á Akranesi kl. 15.15 ÍA og Skalla-
grímur, og Keflavík og Ögri í Keflavík
kl. 14. í annarri deild kvenna: Haukarog
HK í Hafnarfirði kl. 14. og Þrótturog ÍBK
í Seljaskóla klukkan 15.15.
Á morgun eru tveir leikir í fyrstu deild
karla, Víkingur og Þróttur kl. 15.15 í
Seljaskóla, og Valur og Haukar á sama stað
kl. 16.30. í fyrstu deild kvenna: kl. 14 í
Seljaskóla, Víkingur og Fylkir. §ÖE
Guðríður Guðjónsdóttir var atkvæða-
mest Framstúlknanna, skoraði 7 mörk.þar
af 3 úr vítum. Sigrún Blomsterberg skor-
aði 3, Oddný Sigsteinsdóttir 1, Þóra
Gunnarsdóttir 1, Rannveig Birgisdóttir 1
og Margrét Blöndal 1. Mörkin dreifðust
jafnt hjá Val, Erna Lúðvíksdóttir, Stein-
unn Einarsdóttir, Soffía Hreiðarsdóttir og
Karen Guðnadóttir skoruðu 2 mörk hver.
- Hetjur þessa leiks voru þó markverðirn-
ir, Jóhanna Pálsdóttir Val og Kolbrún
Jóahannsdóttir Fram, þær vörðu báðar af
snilld. - GB/SÖE
2. deild karla í handbolta:
Þórarar enn
á sigurbraut
Þorbergur með 13 - Breiðablik
vann Gróttu - HK vann Reyni
■ Þórarar úr Vestmannaeyjum með
Þorberg Aðalsteinsson landsliðsmann í
fremstu víglínu standa nú einir efstir í
annari deild karla í handknattieik, með 8
stig eftir fjóra leiki, eftir öruggan sigur á
Fylki 28-17 í Eyjum í gær. Þórbergur
Aðalsteinsson fór á kostum í gær, skoraði
alls 13 mörk og dreif sína menn áfram, en
hann þjálfar liðið ásamt því að spila með.
Það voru góð úrslit fyrir Þór, að Breiða-
blik sigraði Gróttu á Seltjarnarnesi í gær,
því Þór hafði áður sigrað Breiðablik.
Breiðablik sigraði 21-18, og HK vann
Reyni í Sandgerði 28-17.
Þorbergur Aðalsteinsson sprakk veru-
lega út í leik Þórara í gær við Fylki. Eftir
að liðin höfðu farið rólega af stað, sigu
Þórarar framúr, og Þorbergur var eins og
fallbyssa. 14-8 Þór í hag í hálfleik, og
28-17 að lokum. Þorbergur skoraði 13,
Karl Jónsson 4 og Sigbjörn Óskarsson 4
mörk, aðrir minna. Flest mörk Fylkis-
manna skoraði Magnús Sigurðsson 5, en
Kristinn Sigurðsson, Einar Einarsson og
Jón Leví skoruðu 3 mörk hver.
Á Seltjarnarnesi var jafnt, og mikið
barist. Grótta komst í 4-1, er Breiðablik
náði að jafna, og síðan var jafnt á flestum
tölum þar til Breiðablik knúði fram sigur
í lokin. Þar var 11-11 í hálfleik, og 21-18
að lokum.
HK vann öruggan sigur í Sandgerði. Þar
lauk 28-17. Einar Sveinsson var atkvæða-
mestur Kópavogsmanna, skoraði 9 mörk,
en Daníel Einarsson skoraði mest fyrir
Reyni, 7 mörk. Þá skoraði þjálfarinn,
Guðmundur Árni Stefánsson 5.
- SÖE.
Körfubotti um helgina
■ Á morgun eru tveir leikir í úrvalsdeild-
inni í körfuknattleik. Haukar-Njarðvík í
Hafnarfirði Id. 14. og Valur og KR í
íþróttahúsi Seljaskóla Idukkan 20.00.
Strax á eftir er eini kvennakörfubolta-
leikur helgarinnar, ÍR og Njarðvík, kl.
21.30.
Tveir leikir eru í fyrstu deild karta í dag,
Fram og ÍS í Hagaskóla kl. 14. og UMFL
og Skallagrímur á Selfossi á sama tíma.
-SÖE
■ Þorsteinn Hængsson, sigurvegari í
einliðaleik karla og tvenndarleik á
Atlamótinu.
í síðari hálfleik tóku Keflvíkingar
heldur frumkvæðið fram í miðjan hálf-
ieikinn, en þá skoruðu ÍR-ingar tíu stig
í röð og breyttu stöðunni í 54-50 úr
44-50. Keflvíkingar náðu að jafna á ný
og að leikslokum var jafnt 68-68. I
framlengingunni var hart barist, Gylfi
Þorkelsson kom ÍR-ingum í 70-68, Pétur
Jónsson jafnaði, Stefán Kristjánsson
kom ÍR í 72-70 með einkar fallegri
kröfu, en Jón Kr. Gíslason jafnaði.
Hreinn Þorkelsson skoraði eitt stig úr
vítakasti, ÍR-ingar höfðu boltann, og
Björn tók við eins og áður er sagt.
Leikurinn var flausturskenndur á
köflum, mikið lá á, en góðir kaflar komu
inn á milli. Jón Kr. Gíslason var yfir-
burðamaður í liði Keflvíkinga, og munar
þar mikið um Axel Nikulásson, sem nú
stundar nám í Bandaríkjunum. Bræð-
urnir Hreinn og Gylfi Þorkelssynir bestir
ÍR-inga.
Stigin: Keflavík: Þorsteinn Bjarna 19,
Jón Kr. 17, Björn Víkingur 13, Sigurður
Ingimundarson 6 og aðrir minna. ÍR:
Gylfi Þorkelsson 23, Hreinn 18, Bene-
dikt Ingþórsson 12, Hjörtur Oddsson 6,
Stefán, Bragi Reynisson og Ragnar
Torfa 4 hver. - TÓP/SÖE.
■ Hreinn Þorkelsson og bróðir hans Gylfi voru sterkastir ÍR-inga i slagnum við
Keflvíkinga í gærkvöldi, en það dugði ekki til. Keflvíkingar stálu bolta og sigri á
lokasekúndunum.
-SÖE
Fyrsti leikur úrvalsdeildarinnar í körfubolta:
KEFLAVÍK VANN
f UÓNAGRYFJUNNI
LAUGARDAGUR 8. OKTOBER 1983
11
TISElSnjM Twecot/Ó
CfBR*Ct SWÖNtNCSRÉTr
VÐ ALÞINGISHÚSIÐ
MÁNUDAGINN KL.15
MÆTUM ÖLL
MUNIÐ
BSRB
LMRR
fcfel
rri
UNDIRSKRIFTASÖFNUNINA
>(0^SÍ
*jww®bke
Starfsmannafélag
ríkisstofnana