Tíminn - 26.10.1983, Page 2

Tíminn - 26.10.1983, Page 2
MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 1983 Fjárfestingar- og lánsfjáráætlun: Samdráttur á flestum svid- um nema í íbúdabyggingum ■ Fjárfestingar og lánsfjáráætlun fyrir árið 1984 hefur verið lögð fram. Megin- stefna áætlunarinnar er að stilla fjárfest- ingu hins opinbera og annarra aðila í það hóf sem samrýmst getur viðunandi jafn- vægi í viðskiptum við önnur lönd og áframhaidandi hjöðnun verðbólgu á næsta ári. Ákvarðanir um fjárfestingar- stefnuna mótast einnig af viðleitni til þess að beina fjárfestingu í arðbærar framkvæmdir, sem best munu tryggja atvinnu manna til frambúðar. lafnframt er þess gætt að tefla ekki atvinnuástandi í tvísýnu á næsta ári með of harkalegum samdrætti. Erlendar lántökur verða tak- markaðar svo sem kostur er á og mark- miðið er að erlendar skuldir hækki ekki í hlutfalli við þjóðarframleiðslu árið 1984. Samdráttar gætir víða en aðallega í opinberum framkvæmdum og fjárfesting atvinnuveganna mun dragast saman. Gcrt er ráð fyrir að íbúðarhúsabyggingar verði óbreyttar frá fyrra ári. En þótt fjármunamyndunin sé talin dragast sam- an um sem svarar 6.3% miðað við þetta ár, verður nær ailur samdrátturinn í stórframkvæmdum og innfluttum skipum og flugvélum. Önnur fjármuna- myndun er aðeins talin dragast saman um 1.2%. Hvað atvinnuvegum viðvíkur er áætl- að að fjárfesting þeirra dragist saman um 6.2%. Framkvæmdir í landbúnaði verði 10% minni en í ár og fjármuna- myndun í fiskveiðum á að dragast saman um 22% og munar þar mestu um að innflutningur skipa og nýsmíði verður í lágmarki. Fjárfesting fiskvinnslufyrir- tækja er talin munu dragast saman um 5%. Ekki ervitað um neinar framkvæmdir við álverksmiðjuna á næsta ári og ekki er gert ráð fyrir framkvæmdum. við kísiljárnverksmiðjuna í Reyðarfirði en á næsta ári hefst bygging steinullarverk- smiðju á Sauðárkróki. Þá er gert ráð fyrir að fjárfesting í verslunar- og skrifstofu- húsnæði minnki um 5% svo og hótel- byggingar og fjárfesting í ýmsum vélum og tækjum er áætlað að verði 5% minni en í ár. íbúðabyggingar verða samt eins mikl- ar á næsta ári og í ár. Þótt þjóðartekjur og ráðstöfunartekjur einstaklinga hafi dregist saman verður miklu fé varið til íbúðarbygginga, en ákveðið hefur verið að auka lánveitingar til þeirra til muna á næsta ári. Um atvinnuhorfur segir m.a. að horf- ur séu á að nokkuð dragi úr eftirspurn á vinnumarkaði almennt og fjárfestingar- spáin bendir til að umsvif í bygginga- starfsemi og mannvirkjagerð minnki heldur meira. Atvinnuástand ætti þó að geta haldist þolanlegt ef ekki kemur til nein óvænt truflun í atvinnustarfsemi í landinu. Enn sem komið er hefur ekkert komið fram sem bendir til að atvinna sé ónóg. I þessu sambandi er þess að gæta, að svo mikil umskipti sem orðið hafa að undanförnu í þjóðarbúskapnum, hljóta að valda breytingum á vinnumarkaði, sem ekki er auðvelt að meta fyrirfram. Lítill vafi leikur á því, að á undanförnum árum hefur ríkt umfram eftirspurn á vinnumarkaði. Ætla má að nú stefni í rétta átt til jafnvægis. Ríkisstjórnin Ieggur mikla áhersiu á atvinnuöryggi og mun'fylgjast vandlega með þróun framboðs og eftirspurnar á vinnumarkaði um land allt og þannig að unnt sé að bregðast í tæka tíð, og á réttan hátt, við breytingum sem verða kunna á atvinnumarkaði. Heildarsamtala fjárfestingar og láns- fjáráætlunar eru rúmir 12 milljarðar kr. Innlenda féð í niðurstöðutölum eru 4.395 millj. kr. en erlend lán ívið meira eða 4.501 millj. kr. Mest munar um lán sem tekin eru hjá lífeyrissjóðunum, en þau eru samtals 2.400 millj. kr. en treyst er á að þeir láni sem svarar 55% af innlendu lánsfjárþörfinni. Er m.a. svo ráð fyrir gert að þeir geti útvegað um 1 milljarð í byggingarsjóðina. 16% verði af framlögum ríkis til fjárfestingarlána- sjóða og atvinnuleysistryggingarsjóðs, svo og af eigin fé fjárfestingarlánasjóða og af skyldusparnaði. Þess er vænst að afgangurinn, um 29% af innlenda láns- fjármagninu, komi frá almennum lána- markaði, er byggir á frjálsum sparnaði í mynd banka og verðbréfaviðskipta. Nýting lánsfjárins er í stórum dráttum þannig, að opinberir aðilar taka til sinna nota um 42%, íbúðareigendur um 34% og til ráðstöfunar í fjárfestingu atvinnu- vega verða um 24%. Hér er aðeins stiklað á stóru enda fjárfestingar og lánsfjáráætlun mikið plagg með margskyns töflum og pró- sentuútreikningum, en hún ber þess merki eins og fjárlögin að nokkur sam- dráttur verður á flestum sviðum þjóðlífs- ins á næsta ári. -OÓ Leikhusveislur í Þjóðleikhúsinu Ljósaskoðun lýkur á mánudaginn ■ Ljósasköðun bifreiða lýkur mánu- daginn 31. október. í frétt frá Umfcrð- arráði er bent á aö Ijósabúnaður getur bilað og vanstillst á skömmum tfma. Pertir dofna við notkun og getur Ijós- magn þeirra rýrnað um allt aö helming. Minnt er á að notkun ökuljósa ér ckki síður fyrir þá scm verða á vegi bílstjóra og því cr mikilvægt að ökuljós séu rétt stillt svo þau blindi ekki eða trufli þá sem á móti korna. I fréttinni segir einnig að þar sctn nú fari svartasta skammdegið í hönd og alla veðra sé von þurfi allir að leggja sitt að mörkum til að auka öryggi í umferðinni. Fátt hefur meiri áhrif þar að lútandi en almenn ökuljósanotkun og að fólk beri endurskinsmerki. Athygli er vakin á að n.k. miðviku- dagskvöld 26. októbervcrðursýnd kvik- mynd frá Umferðarráði i sjónvarpinu. Myndin hcitir Akstur í ntyrkri og verður á dagskrá kl. 20.30. -GSH ■ Þjóðleikhúsið hyggst nú brydda upp á þeirri nýjung að gcfa kost á „Leikhús- veislu" á föstudags- og laugardagskvöld- um. 1 því fclst að hópar sem í eru 10 manns cða flciri, gcta fyrir citt gjald fengið máltíð í Lcikhúskjallaranum, leiksýningu á stórasviði Þjóðleikhússins, eftirrétt í hléi og dansleik í kjallaranum á eftir. Vcrðið á þessum pakka er krónur 550 á mann. Gera verður ráð fyrir að pöntun sé gerð með minnst þriggja dága fyrirvara. Hópar utan af landi, sem vilja nýta sér þessi kjör, eiga ennfremur kost á afslætti á ferðum, hvort heldur farið er með sérleyfishöfum, flugi (Arnartlugi eða Fluglciðum), Herjólfi eða Akraborgauk afsláttar á hótelgistingu í Rcykjavík. Er þar með mögulegt að ciga upplyftingar- hclgi í höfuðborginni með verulegum afslætti á öllum helstu útgjaldaliðum. Aö nokkru er gcrt ráð fyrir að þetta tilboð komi í stað Kjallarakvöldanna sem matargestum í Leikhúskjallaranum hefur verið boðið upp á undanfarna vetur cn að auki til hagræðingar fyrir þá scm koma langt að og hafa til þess þurft að sérpanta allt það sem nú stcndur til boða í cinum og sama pakkanum. -GSH Bæjarstjórn Siglufjardar fær opiö bréf vegna afgreiðslu á máli veitustjórans: „Persónulegt ágreiningsmál afgreitt hrátt” ■ „Eftir uð hafa fylgst með gangi þessa máls, þá dregur það ekki úr skoðun minni að persúnulegar og púlitískar ástæður komi frain og liggi annars vt. fyrir í þeim útrúlcgu vinnubrögðum sem' hér hafa verið viðhöfð", segir m.a. í brcfi opnu sem Bergþúr Atlason loft- skeytamaður ritar - Bæjarstjúrn Siglu- fjarðar út af ineðferð bæjarstjúrnar á máli Sverris Sveinssonar rafvcitustjúra, en honum var gert að greiða til baka reikninga fyrir yfírvinnu og nefnd var sett á laggirnar til að meta hvort dúms- rannsúkn væri réttmæt. 1 bréfi Rergþórs segir ennfremur: „Persónulegt ágreiningsmál er afgreitt hrátt, birt í opnui r fundargerðum, þar sem bókanir eru óvægnar, ærumeiðandi og nánast í æsifréttastíl." Ennfremur: „Á fundi bæjarstjórnar. 22. september má lesa tillögu 4 frá Jóni Dýrfjörð, Kolbeini Friðbjarnarsyni og Sigurði Hlöðverssyni. í þeirri tillögu má lesa uppáskrift (upp á yfirvinnureikninga - innsk. BK) fv. bæjarstjóra - Nafn- greindur, fv. formanns veitunefndar - ■ fljalti Jún Sveinsson mun hafa yfirumsjún með gerð útvarpsauglýsinga hjá Sýn hf. Með honum á myndinni er Gísli B. Björnsson Tímamynd: Ami Sæberg Sýn h.f. hefur gerð auglýsinga fyrir útvarp Nafngreindur, og núverandi formanns veitunefndar - Ekkert nafn. Hvað segir þetta mönnum um pólitískt ívaf með tilliti til frekari dreifingar á fundargerðum til annarra fjölmiðia. Hver og einn getur síðan getið sér til um ástæður þess að fundargerðum er nú dreift til annarra fjölmiðla frekar en endranær". Og að lokum segir Bergþór: „Afgreiðsla þessa máls mælir eindreg- ið á móti hugmynd minni um lýðræði og almennt réttarfar þess. Að velta manni upp úr slíku ágreiningsmáli þar sem undanfarandi eðlileg málsmeðferð er ógengin gerir enginn nema sá sem ekki sér æru hans, fjölskyldu og aðra ástvini. Einnig er ótrúlegt að pólitískur og persónulegur andstæðingur geti átt svona nokkuð skilið. Eftir standa hræði- leg mistök þeirra bæjarfulltrúa sem hlut eiga að máli." Þess skal getið að bæjarfulltrúar Frant sóknarflokksins greiddu einir atkvæði á móti báðum þeim tillögum sem sam- þykktar voru í bæjarstjórninni og töldu að um pólitískar ofsóknir væri að ræða. ■ Sýn hf, sem urn niargra ára skeið hefur starfað við gerð auglýsingakvik- mynda fyrir sjónvarp, er nú að hefja gerð leikinna útvarpsauglýsinga fyrir Rás tvö, sem senn mun hefja útsend- ingar. Útvarpsauglýsingarnar eru með tali, tónlist og leikhljóðum. Sýn sér um (alla textagcrð, svo og hljóðsetningu'og hvers konar vinnslu auglýsiuganna og skilar þcinr síðan fullfrágengnum til flutnings í hljóðvarpi. „Hér er um að ræða nýjá auglvsinga- tækni hér á landi sem bæði kallar á ný vinnubrögð bg ný tæki því aðeins í fáum tilfellum er hægt að nota sömu hljóðupptökutæki og við sjónvarps- auglýsingagerð." sagði Gísli B. Björnsson þegar hann kynnti þennan nýja þátt í rekstri Sýnar t gær. Hann sagði að Ijóst væri að mikið yrði hlustað á Rás tvö, en þó væri margs að gæta fyrir auglýsendur. Til dæmis væri verð á auglýsingamínútu énn ekki ákveðið. „Það hefur flogið fyrir að miðað verði við hálft verð auglýsinga í sjónvarpi. en það tel ég of hátt. Rás tvö verður fyrst um sinn svæðisbundin og nær ekki til ailra landsmanna. Svo er þessi auglýsinga- máti nýr og óvissuþættirnir ntargir," sagði Gísli. Yfirumsjón með gerð útvarpsauglýs- inganna hefur Hjaiti Jór. Sveinsson, íslenskufræðingur, en hann hefur lengi lesið inn á sjónvarpsauglýsingar fyrir Sýn hf. -Sjú -RK

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.