Tíminn - 26.10.1983, Blaðsíða 4
MIÐVIKUDAGUR 26. OKTOBER 1983
BÍLAPERUR
ÓDÝR GÆÐAVARA FRÁ
MIKIÐ ÚRVAL
ALLAR STÆRÐIR
Hitablásarar 2 st.
fyrir hitaveitu, til sölu. Upp-
lýsingar í síma 32101.
HEILDSALA - SMASALA
IhIHEKLAHF
1 * " | L. .1 u )■ tvt ■)' 170 172 Simi 21240
OLAFSFJARÐARKAUPSTAÐUR
rrn
Auglýsing
Hér meö er auglýst til umsóknar aöstaöa í
Iðngörðum Ólafsfjaröar.
Nánari upplýsingar veitir bæjarstjóri á skrifstofu
sinni aö Kirkjuvegi 12, Ólafsfirði og í síma (96)
62214.
Umsóknarfrestur er til 1. desember 1983
Ólafsfirði 21. október 1983,
Bæjarstjórinn
Sláttuvélaþjónusta
Gerum viö flestar geröir sláttuvéla, dælur
og aöra smámótora.
Fljót og góó þjónusta.
VVÉLIN S.F. Súöavogi 18 sínni 85128
Pósthólf 4290—124 —Reykjavik
+
Maöurinn minn
Leifur Grímsson,
Álfheimum 13,
andaðist 25. okt.
Hertha E. Grímsson.
Minningarathöfn eiginmanns míns, fööur, tengdafööur og afa
Arnþórs Árnasonar
frá Garði,
Sogavegi 28
veröur í Fossvogskirkju fimmtudaginn 27. okt. kl. 15. Jarðsett veröur
frá Skútustaöakirkju laugardaginn 29. okt. kl. 14.
Helga L. Jónsdóttir
Árni Arnþórsson
Ásrún Arnþórsdóttir
Helga Arnþórsdóttir
og fjölskyldur.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem vottuöu okkur samúö og vinarhug
við andlát og útför
Ólafíu Árnadóttur
Laugarnesvegi 72
Brynjólfur H. Þorsteinsson og fjölskyldur
Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og jaröarför
eiginmanns, sonar, fööur, tengdafööur og afa
Helga Þorgrímssonar
Sólvöllum 2
Breiðdalsvík
Sigrún Björgvinsdóttir Oddný Erlendsdóttir
Stefanía Helgadóttir Einar Ingólfsson
Þorgeir Helgason Ragnheiöur Hjartardóttir
Gerður Helgadóttir
Helga Rut Einarsdóttir Sigrún Erna Þorgeirsdóttir '
fréttir
Rússar kaupa
40 þús. kassa
af gaffalbitum
■ Samkomulag hefur tekist viö fulltrúa
Prodintorg í Moskvu af hálfu Sölustofn-
un lagmetis, um sölu S.L. á 40 þúsund
kössum af gaffalhitum, og skal afhenda
þá fyrir 1. desember nk.
Varan er framleidd hjá K. Jónssyni &
Co hf. á Akureyri og Þormóði ramma/
Siglósíld á Siglufiröi og er þar með séð
fyrir því hráefni, sem verksmiðjurnar
hafa yfir að ráða á árinu. Auk gaffalbit-
anna hefur Prodingtorg keypt talsvert
magn af niðursloðinni þorskalifur og er
heildarverðmæti útflutts lagmctis til
þeirra á þessu ári um þrjár og hálf
milljón dollara.
-AB
Ferdabók
I Sl. föstudag var undirritaður í Reykjavík gafTalbitasamningur milli Sölustofnunar
lagmetis og Prodingtorg í Moskvu. Fulltrúar beggja fyrirtækjanna og viðskiptaráðu-
neytisins eru hér samankomnir el'tir undirritun.
Mannabreytingar
hjá Flugleiöum
■ Mannabreytingar vcrða hjá Flug-
leiðum bráðlega þegar Kristinn Hall-
dórsson verkfræðingur tekur við starfi
forstöðumanns viðhalds og verkfræði-
deildar Flugleiða af Kristjáni Friðjóns-
syni sem gegnt hefur því starfi frá árinu
1980.
Kristján Friðjónsson hefur nú ákveðið
að ráða sig til starfa hjá sænsku fyrirtæki.
Hann lauk sveinsprófi í flugvirkjun 1966
og prófi í rafeindaverkfræði 1970. Hann
starfaði sem kerfisverkfræðingur hjá
Flugfclagi íslands 1970-80 þar til hann
tók við forstöðumannsstarfinu.
Kristinn Halldórsson lauk prófi í
flugvélaverkfræði frá tækniháskólanum
í Stokkhólmi 1974 og starfaði hjá Cargo-
lux á árununr frá 1974-1982 en hann hóf
störf í verkfræðideild Flugleiða 1982.
-GSH
Páls-
sonar
komin
ut á ný
■ Ferðabók Sveins Pálssonar 1-11,
Dagbækur og ritgerðir 1791-1797 er
nýkomin út hjá bókaforlaginu Örn og
Örlygur. Hún var fyrst gefin út 1945 í
þýðingu þeirra Jóns Eyþórssonar. Pálma
Hannessonar og Steindórs Steindórsson-
ar frá Hlöðum. Þeir Jón og Pálmi eru nú
báðir látnir, en í þessari nýju útgáfu
gerir Steindór Steindórsson grein fyrir
sögu þýðingarinnar og minnist samþýð-
enda sinna í eftirmála við bókina.
Haraldur Jónsson kennari og hrepp-
stjóri í Gröf á Snæfellsnesi skrifaði á
sínum tíma orð og stafrétt upp hand-
rit Sveins sem var skrifað á dönsku.
Haraldur hóf þetta verk þegar hánn var
nemandi í Kennaraskólanum og lauk
því síðan í ígripum um 1930. Handrit
hans notuðu síðan þeir Jón, Pálmi og
Steindór, er þeir þýddu verkið.
Ferðabókin er prentuð í Prentsmiðj-
unni Odda h.f. Sigurþór Jakobsson
hannaði titilsíður, bókarspjöld og öskju.
Samhliða almennu útgáfunni voru gefin
út 97 tölusett og árituð eintök af bókinni.
-JGK
Kirkjuþing:
Skorar á íslerad-
inga að vinna aö
friði f heiminum
■ „Kirkjuþing 1983 skorar á íslendinga
og allar þjóðir heims að vinna að friði í
heimi, stöðvun vígbúnaðarkapphlaups
Samband ungra framsóknarmanna er samefnari fyrír fjölmörg félög ungra
framsóknarmanna, sem starfa víðsvegar um landið. Öll hafa þau áhuga á að
fjölga félagsmönnum, enda við margt að starfa. Vilt þú vera með? Ef svo er
þá þarftu ekki annað en að rita nafn og heimilsfang á þennan miða, klippa
hann út úr blaðinu og senda til SUF, Rauðarárstíg 18, 105 Reykjavík.
Framkvæmdastjóri SUF mun sjá um að koma þér í samband við næsta FUF
félag.
Heimili:
Sími:
Sendist til: Samband ungra framsóknarmanna, Rauðarárstig 18,105 Reykja-
vík.
— Friðarálykt-
unin
samþykkt
einum rómi
og útrýmingu gjöreyðingarvopna".
Þannig hljóðar upphaf ályktunar um
friðarmál,. sem samþykkt var einum
rómi á Kirkjuþingi í gær. í framhaldinu
segir svo: „Þingið beinir því til stjórn-
málaflokkanna og ríkisstjórnarinnar að
fylgja þessu máli eftir bæði innanlands
sem á alþjóðavettvangi. Þingið lýsir
samstöðu með þeim samtökum sem
vinna að friði, frelsi og mannréttindum,
á þeim grundvelli sem Kristur boðar, og
brýnir fyrir fslendingum að meta það
frelsi sem þjóðin býr við og nýta það til
að skapa réttlátari heim. þar sem almenn
afvopnun verður liður í þeirri nýskipan
efnahagsmála að lífsgæðum verði jafnað
meðal jarðarbarna allra".
Helstu breytingar á þessari ályktun og
þeim tiilögum sem lagðar voru fram í
upphafi þings eru þær að sleppt er
tilvísun t.il alheimsráðstefnunnar „Líf
og friður" sem haldin var í Uppsölum í
Svíþjóð á útmánuðum síðustu.
-BK