Tíminn - 26.10.1983, Qupperneq 10

Tíminn - 26.10.1983, Qupperneq 10
10_____ fþróttir MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 1983 „Vörnin góð alian tímann“ - sagði Bogdan Kowalczyk ■ „Vörnin var góð i'fyrri hálflciknum, og.reyndar alian leikinn“, sagði Bogdan Kowaiczyk landsliðsþjálfari eftirJeikinn í gær,f samtali við Tímann. „Þetta( hvað ieikmennirnir leika framarlega cr vörn sem leikin er nú um alia Evrópu. En við höfum æft of lítið saman, og það sást vel á sóknarleiknum. Sumir lcikmennirnir skilja ekki alveg alltaf hvað er að gerast, ekki endilega bara þeirsem komu seinast frá Þýskalandi, alveg eins hinir, því það er líka erfitt fyrir þá að fá þrjá nýja menn í liðið.“ „Ég vil taka fram, að Kristján Arason lék alls ekki illa í leiknum, þó hann skoraði ekki mikið", svaraöi Bogdan |>eirri spurningu blaðamanns hvers vegna Siguröur Sveinsson hefði ekki fengið að spreyta sig meira, úr því Kristján var ekki afgerandi. Hann bætti við: „Kristján opnaði til dæmis oftast fyrir Alfreð. þegar Alfreð skoraði, og gaf frábærar sendingar inn á línuna. Sigurður lék ckki meira aðallega vcgna þess, hve lítinn tíma hann hefur haft mcð liðinu.“ „Munurinn á þessum liðum er sá“, sagði Bogdan, „aðTékkaræfa lOsinnum í viku og við getum ráðið við þá í 30 mínútur í dag. Eftir ákveðinn tíma getum við staöist þeim snúning, en ckki nú eftir vikuæfingar.-1 „Liöið vantar æfingu, Tékkarnir eru það sterkir", sagði Siguröur Sveinsson cftir leikinn. „Það var klaufalegt að láta þá jgsa okkur þarna í fyrri hálfleik, þá skoruðu þeir fjögur ntörk í röð.“ Þegar Sigurður var spuröur hvort hann hefði ekki viljað fá meiri tíma á vellinum sagði hann: „Jú, en það er Bogdan scm ræður“. „Þetta er betur samæft liö, þess vegna vinna þeir. Þcir léku skynsamlega, en þetta eru engar stjörnur, sagði Kristján Arason fyrirliði éftir leikinn. -SÖE Leikurinn í kvöld ■ Leikurinn í kvöld hefst klukkan 19.30. Spurninginerbarahvort strákarn- ir ná að hefna sín. Til þess þurfa þeir stuðning. Áfram ísland. -SÖE Hörkukeppni tT’IíÍHji^ - '”-33 ■ Tékkneski markvörðurinn Hirner ver hjá Þorgils Óttari snemma í leiknum í gær. Þama hefði mátt verða mark, Þorgils Óttar var kominn í gegn eftir stórgóða sendingu Kristjáns Arasonar, sem sést á myndinni, en það varð ekki. Alltof oft létu íslensku strákarnir verja hjá sér slík dauðafæri. -SÖE/Tímamynd Ámi Sæberg Alian Simonsen, nú í Hummel ■ íþrótta- og fataframleiðslufyrirtækið Puma hefur stefnt danska knattspyrnu- manninum Allan Simonsen fyrir samn- ingsbrot, og heimtar af honum hálfa milljón danskra króna í skaðabætur, cn það nemur um tveimur og hálfri milljón íslenskra króna. Forsaga málsins er sú, að Allan Sim- Sá stutti skipti um skó: á haustmóti i Puma heimtar - hjá Júdósambandi Islands ■ Haustmót JSÍ var haldið í íþrótta- húsi Kennaraháskólans á laugardaginn 22. október sl. og var keppt í fjórum þyngdarflokkum karla. Kcppni var jöfn og spennandi í þeim öllum. Úrslit einstakra flokka uröu þessi.: 65 kg. flokkur 1. Gunnar Jónasson Gerplu 2. Sigmundur Bjarnason UMFK 3. Kristján Svanbcrgsson UMFK 71 kg. flokkur - 1. Halldór Guöbjörnsson J.R. 2. Karl Erlingsson Ármanni 3.-4. Rögnvaldur Guðmunds., Gerplu 3.-4. Karel Halldórsson Ármanni 83 kgrflokkur 1. Gísli Wium Ármanni 2. Magnús Hauksson UMFK 3. Sævar Kristjánsson Gerplu Plús 83 kg. flokkur 1. Arnar Marteinsson Ármanni 2. Kristján Valdemarsson Ármanni 3. Jón Egilsson J.R. skaðabaetur af Simonsen! — eftir að Allan gerði nýjan samning við Hummel onsen hefur alla tíð verið á samningi við Pumafyrirtækið, frá því hann gerðist atvinnumaður í knattspyrnu og hóf að leika í V-Þýskalandi fyrir um 10 árum. En allt í einu, fyrir Evrópuleikinn gegn Englendingum á dögunum, kúventi Allan, og samdi við Hummel-fyrirtækið, sem reyndar réði hann í vinnu einnig, frá og með næstu áramótum. Allan hafði þetta um málssóknina að segja í dönskum blöðum: „Ég hef ekkert að óttast, samningur minn við Puma rann út hinn 30. júní síðastliðinn, og ég hef aldrei skrifað undir neitt, eða samið um neitt við Puma sem segir að ég geti ekki skipt um fyrirtæki varðandi slíka auglýsingasamninga." -SÖE Nú eru Danirmjög spenntir Vinni þeir Ungverja íkvöld, komast þeir f úrslit ■ Danir eru hcldur belur spenntir þcssa dagana. í kvöld leikur landsliö þeirra í knattspymu við Ungverja í Ungvcrjalandi, og ef danska liðiö, sem hefur vakið mikla hrifningu í Evrópu- keppni landsliða, sigrar, eru Danir komnir í úrslit Evrópukeppninnar i Frakklandi. - Eða eins og Danir orða það sjálfir: „Þá getum við oröiö Evrópumeistarar." Lciknum verður sjónvarpað beint til Danmerkur, þúsundir Danir eru komn- ir til Búdapest til að fylgjast með leiknum, og dagblöð þeirra Dana eru sneisafull af vangaveltum uni leikinn. Sepp Piontek landsliðsþjálfari Dana segist ekki geta annað en látiö liðið leika sóknarleik. „Liðið sem ég hef valið í leikinn, býður hreinlega ekki upp á það," segir Piontek. Kollcgi Piontvks Ungverjalands mcgin, Gyogy Mezey, á allt undir leiknum gegn Dönum. Hann er talinn mega taka pokann sinn ef Ungverjar tapa. Þá hefur Mc/ey látið hafa eftir sér i vcstrænuin hlöðum, að hjarta hans slái meira fyrir Englendinga en Dani, og hann voni að Englendingar komist úr riðlinum i úrslitin í Frakk- landi, frekar en Danir. „Mér finnst Englendingar betri", sagði hann eftir tapið (0-3) gegn Englendingum um daginn í Búdapest. Það er því allt á móti Dönum, Ungverjar töpuðu síð- asta heimaleik, Mezey á starf sitt undir sigri, og leikmennirnir heiður sinn, og þar að auki heldur hann með Englend- ingum. Þriðji maðurinn af stétt landsliðs- þjálfara sem hér verður vitnað í, Bobby Robson Englandi, segir að þrátt fyrir sigurinn á Ungverjum á dögunum, reikni hann með Dönum i Frakklandi, möguleikar Englendinga séu of knappir, og Danir of góðir til að enskar óskir rætist í því efni. Hvort Danir slógu þessu ekki upp. Það urðu Dönum vonbrigði, er þaö kom á hreint, að ekki færu nema þúsund nianns frá Danmörku til Búda- pest til að sjá leikinn i kvöld, það fóru nefnilcga 10 þúsund á Wembley um daginn og studdu vel sína menn. En Danir verða með augun á leik- vanginum í Búdapest í dag. -SÖE MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 1983 — umsjón: Samúel Örn Erlingsson HEILDARSVIP VANTADI ÍSLENSKA LANDSUÐIÐ — Tékkar sigruðu 21-17 í Laugardalshöll í gær ■ Það var helst heildarsvipurinn sem vantaði á íslenska liðið í leik þess við Tékka í gærkvöld í handknattleik, en Tékkar sigruöu íslendinga 21-17 í fremur daufum leik. Tékkneska liðið var aldrei sannfærandi, en það sem kom þeim á sigurbraut var heildarsvipur liðsins, liðið vann sem heild, meðan íslenska liðið var á köflum skelflng sundurlaust. Ef frá er skilið að Alfreð Gíslason átti stórleik framan af, og Einar Þorvarðarson lék mjög vel í markinu, var íslenska liðið ósköp dauft. íslendingar byrjuðu leikinn vel. Al- freð Gíslason skoraði fyrsta markið ófeiminn, laumaði sér í gegn og vippaði yfir Hirner markvörð. En Hirner lét ekki að sér hæða, í næstu sókn varði hann hjá Jakobi Sigurðssyni í hraðaupp- hlaupi, og það gaf tóninn á því sem verða vildi. Hirner varði grimmt, og alltof oft þegar menn áttu ekkert eftir nema komast framhjá honum einum. íslendingar höfðu frumkvæðið framan af fyrri hálfleik, léku góðan varnarleik, og skoruðu ávallt á undan. Þeir höfðu yfir 3-1, 6-4, 7-5, 8-6 og 9-7, en þá kom slæmur kafli. Tékkarnir náðu að keyra hraðann upp, íslendingar gerðu mistök, og Tékkar skoruðu hvert markið á fætur öðru, breyttu stöðunni í 9-11. Kristján náði að lagastöðuna fyrir leikhlé, 10-11. í síðari hálfleik jöfnuðu íslendingar 11-11, og jafnt var >12-12. Voru þar þrumufleygar Alfreðs Gíslasonar. Þá kom annar slæmur kafli, og Tékkar komust í 12-16. íslendingar klóruðu í bakkann af og til, en Tékkarnir tóku alltaf viðeigandi spretti. Fór svo að staðan var 21-16 þegar síðustu sekúnd- urnar voru að líða, en íslendingar náðu að skora eitt mark á síðustu sekúndunni, klassískt mark Bjarna Guðmundssonar 17-21. Leikur íslenska liðsins var ekki sann- færandi. Alltof oft varði Hirner skot sem skotið var í dauðafæri. Alltof oft tapaði liðið boltanum klaufalega. Og alltof oft létu menn reka sig útaf, fyrir brot sem hægt hefði verið að komast hjá. En jákvæðir punktar voru líka til. Alfreð Gíslason lék stórvel, líklega aldrei betur í landsleik hvað sóknina varðar. Þá sýndi Einar Þorvarðarson og sannaði að hann er yfirburðamarkvörður hér. - Kristján Arason olli dálitlum vonbrigðum, en líkast til vegna þess að svo miklar kröfur eru til hans gerðar. Hann skoraði lítið, lék félaga sína vel uppi, en gerði sig sekan um slæm mistök einnig. Mistök Bogdans voru þau að láta ekki Sigurð Sveinsson leysa hann af öðru hvoru.,Það er synd að svo góður leikmað- ur sem Sigurður sitji á bekknum allt nema eina mínútu af leik. Þorgils Óttar Mathiesen stóð sig vel á iínunni, en Jóhannes Stefánsson má taka sig á. Hornamennirnir tveir stóðu vel fyrir sínu, Bjarni gamalreyndur, og Jakob efnilegur. En skrýtið þó hjá Bogdan að hafa engan þriðja hornamann til að geta hlaupið undir bagga með ■ Jóhannes Atlason fyrrum landsliðsþjálfari er einn þeirra þjálfara sem halda munu um stjórnvölinn hjá 1. deildarliðunum næsta sumar. Hér sést Jóhannes sitja á bekknum með mönnum sínum fyrir nokkrum árum. Innlendir knattspyrnuþjálfarar: ■ Nú virðist allar líkur á að eingöngu innlendir þjálfarar verði að störfum næsta ár í fyrstu deild karla í knatt- spyrnu. Sjö lið hafa ráðið sér þjálfara, og þau þrjú sem eftir eru virðast öll á höttunum eftir innlendum þjálfurum. Eins og sagt var frá í Tímanum í gær, er á hreinu að Þorsteinn Ólafsson þjálfar Þórsliðið, og Björn Árnason Víking. Ásgeir Elíasson verður áfram hjá Þrótti. og Magnús Jónatansson hjá Breiðabliki, að því er Tíminn kemst næst. Hólmbert Friðjónsson verður áfram með KR, og Hörður Helgason með Skagamenn. Jó- hannes Atlason fyrrverandi landsliðs- þjálfari þjálfar Fram. KA virðist á höttunum eftir innlendum þjálfara, ef marka má áhuga þeirra á Þorsteini Ólafssyni, og heyrst hefur að annaðhvort Sigurður Dagsson eða Ingi Björn Al- bertsson muni þjálfa Valsliðiö. Þjálfi Sigurður það ekki, er talið líklegt að Ingi Björn fái það verkefni, en þjálfi Sigurður Valsliðið er talið líklegt að FH ráði Inga Björn. Líkur eru taldar á, að Haukur Helgason unglingalandsliðsþjálfari taki við liði Keflvíkinga. - SÖE nýliðanum. Páll Ólafsson lék þokkalega í leiknum, en Sigurður Gunnarsson fékk fá tækifæri, enda Alfreð lítt stöðvandi. Varnarmaðurinn Steinar Birgisson lék vel í vörn, en missti tvisvar boltann til Tékka í þeim þremur sóknum sem hann tók þátt í. Vonandi er Bogdan á réttri leið, það kemur betur í Ijós í kvöld. Það er þó víst, að íslenska liðið getur vel unnið þessa Tékka, ef vel er haldið á spilunum, og sóknarleikurinn smellur saman. Mörkin: Alfreð 7, Páll 3, Bjarni 3, Kristján 3(1), Óttar 1. Tékkó: Brest- ovansky 6, Bartek 5, Novak 3, Toma 3, Papiernik 2, Barton 2, Vít 1. Dómarar voru danskir, og höfðu góð tök á leiknum, en létu Tékkana komast upp með seinagang í sókn. -SÖE ■ Laugardalshöllin var full af fólki í gær, en oftar hefði nú mátt heyrast til fjöldans hvetja landann. Úr því er hægt að bæta í kvöld. Tímamynd Árni Sæberg Úr frjálsíþróttaheiminum: Svífur Jianhua yfir 2,40 hástökks- múrinn Kínverjar vona að þeir verði á OL í sumar ■ Fyrir skömmu var heimsmetið í hástökki karla bætt. Það gerði Kínverji, Zhu Jianhua að nafni. Vinurinn stökk 2,38 mctra, og bætti heimsmetið um einn sentimetra. Nú búast margir við að þessi knái Kínverji verði fyrstur manna til að stökkva yfir 2,40 metra í hástökki. I hvert sinn sem heimsmetið er bætt í hástökki. verður mörgum í heiminum að orði, nú hlýtur að vera komið að því að ekki sé hægt að stökkva hærra. En alltaf hefur einhver bætt við, og svo verður áreiðanlega enn um sinn. Við tilkomu Fosbury stílsins, sem heimsfrægð náði árið 1968, varð mikil framþróun í hástökki. Af og til hafa komið fram menn, sem líklegir hafa þótt til heimsafreka, en misjafnt orðið úr. Þannig héldu menn að Kínverjinn Zhu Jianhua yrði ekki til stórræðanna framar, þegar hann olli vonbrigðum hástökks- unncnda á HM í Helsinki meö því að stökkva aðeins 2,29 metra og fá brons- vcrðlaun. Þá átti Kínverjinn heimsmet- ið, og það var 2,37 metrar. Nú nýlega sýndi Jianhua að hann cr ckki aldeilis hættur stórræðum, heldur bætti hcims- metið um sentimetra á móti í heimaborg sinni, Shanghai, fyrir framan 40 úsund áhorfendur. Spurninginerbara sú, hvort hinn tvítugi Kínvcrji, sem er 1,93 metrar á hæð og ótrúlega grannur, ’gerir rósir annarsstaðar á hnettinum en í Austur- löndum. Ef hann gerir það. er ekki ólíklegt að hann vinni gullið í Los Angeles næsta sumar, og setji jafnvel heimsmet upp á 2,40 mctra. - SÖE molar ÞAÐ ERU EKKI ALLTAF JÓLIN HÉR HELDUR... ■ Það hefur mikið verið talað um slæma framkoijui vallargesta víða um heim í knattspyrnunni, bæði gagnvart leikvöngunum og dómúrum. Það er.þó víst, að hiti fylgir víða íþróttum, og svo cru um körfuknattleikinn hér heima á Fróni. Oft er hcitt í kolunum á Suöur- nesjum, þegar körfubolti er annarsveg- ar, og kemst slíkt helst í hámæli ef um utan vallaratburði er að ræða. Að loknum leik Njarðvíkinga og Kefl- víkinga á föstudaginn var vildi einn áhangenda Njarðvíkurliðsins ræða við þjálfara Keflavíkurliðsins, Brad Miley, um leikinn. Fór hann í því skyni í gagngerða heimsókn Jil Mileys síðar um kvöidið, og bankaði upp á. Ekki vildi Miley hleypa kappanum inn, enda var gesturinn vel við skál, og lítt árennilcgur. Brást gesturinn hinn vcrsti við, braut upp hurð og óð inn. Þjálfarinn var ekki ánægður með þessa ' gestakurteisi, tók gestinn og sneri hann niðtu. Hélt Miley gestinum síðan i heljargreipum sínum meðan hann hringdi á lögregluna, sent kom að vörmu • spori. Það var hjákátleg tilviljun, að lögreglu- maðurinn senukom tii að færa gestinn í geymslur lögreglunnar, var enginn annar en Þorsteinn Bjarnason landsliðsmark- vörður í fótbolta og aðalstigaskorari Keflvíkinga í körfuboltanum... - SÖE AÐVERA FEIMINN VIÐ MYNDAVÉLAR... ■ Margir frægir nienn, íþróttamenn sem aðrir, cru hræddir við myndavélar, ekki síst við það að myndirnar sé teknar í þeim tilgangi að sýna á ■þeim verri hliðina. Margir hafa reynt að komast hjá . myndatökum af þessum sökum. mcð misjöfnum árangri. Myndavélafeimni tvcggja landsliðsmanna Uruguay í knatt- spyrnu eftir 0-2 tapleik gegn Chile í Suður-Ameríku meistarakeppninni gekk þó fúlllangt á dögunum. Varnarmaðurinn Oliveira, nýbúinn að slá tönn úr munni Chilc-leikmannsins Arruaza, haföi grun um að Ijósmyndari nokkur, sem hann mætti á leiöinni útaf vellinum, hefði náð a"ð fcsta hægri hand- ar „húkk" Itans á filmu, og réðist því á hann. Annar kátur æringi, Alfreco de los Santos eyddi nóttinni í fangelsi eftir að hafa laipið í köku ljósmyndara, nokkr- um sckúndum eftir að flauta dómarans gall til leiksloka. ! - ' -SÖE PIONTEK VAR EINUM OF FUÓTUR ■ Sepp Piontek, landsliðsþjálfari Dana vill hafa allt sitt á þurru. Á þriðjudag í síðustu viku, er hann var að leggja síðustu hönd á landsliðsvalið, setti hann út úr landsliðinu miðjuleikmanninn sterka, Frank Arnesen hjá Áhderlecht í Belgíu. Arnesen átti við meiðsli að stríða, og var ekki ljóst hvort hann yrði klár úslaginn í kvöld við Ungverja. Sagði Piontek, að hann vildi frekar setja Arncscn úi en velja hann og vita pkki hvort hann entist í 90 minútur. Þó sagði hann Arnesen pottþéttan mann í lands- lið sitt þegar hann væri alhcill og í toppformi., Daginn eftir, á miðvikudag lék Arne- sen með Anderlecht gegn Banik Ostrava frá Tekkóslóvakíu, var aðalspraúta liðs- ins í leiknum, og skoraði sjálfur annað markið. Arnesen lék allar 90 mínúturn- ar. - En þá var Piontek búinn að velja 16 menn og tilkynna þá... - SÖE

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.