Tíminn - 26.10.1983, Page 20
Opið virka daga
9-19
Laugardaga 10-16
HEDDk
Skemmuvegí 20 Kopavogi
Simar (91)7 75 51 & 7 80 30
Varahlutir
Mikið úrval
Sendum um land allt
Ábyrgð á öllu
Kaupum nýlega
bíla til niöurrifs
SAMVINNU
TRYGGINGAR
&ANDVAKA
ÁRMULA3 SIMI 81411
^ ___—abriel
H HÖGGDEYFAR
y -Glvarahlutir . Sími 36510.
^tTtSÍUtl Ritstjorn 86300 - Augiysingar 18300- Afgreiðsla og askríft 86300 - Kvoldsimar 86387 og 86306
IVtidvikudagur 26. oktober 1983
Vöruskiptajöfnuður landsmanna:
HAGSTÆÐUR UM189 MIUJ-
ÓNIR KRÓNA í SEPTEMBER
' ■ Útflutningur landsmanna I milljónir til að jöfnuður næðist í | Fyrstu níu mánuðina í fyrra I meðalgengi erlends gjaldeyris I Unnar. Hallinn núna er þvi um
var um 189 milljónum króna utanríkisverslun fyrstu níu mán- var innflutningurinn um 2,4 mill- hefur hækkað á tímabilinu 15% af því sem var á sama
verðmætari en innflutningur í uði ársins, en innflutningurinn jörðum verðmætari en útflutn- um 99,9%. Þannig var hallinn tímabili í fyrra.
september síðastliðnum. Þó. var verðmætari en útflutningur- ingurinn. Við samanburð milli. fyrstu níu mánuðina í fyrra 4,8
vantaði í lok mánaðarins 725,3 | inn sem því nemur. I áranna verður að hafa í huga að | milljónirmiðaðviðnúvirðikrón- | -Sjó.
Litla kaffi-
stofan:
■ Starfskona í Litlu kaffistof-
unni við Sandskeið fékk raflost
þegar raftæki þar leiddi út í
gærdag. Hún var flutt í sjúkra-
hús en að sögn lögreglunnar á
Selfossi munu eftirköst raf-
lostsins ekki hafa verið alvar-
leg, og konan hefði jafnað sig
að mestu.
Menntamálaráðuneytið afsalar sér
hluta lódar Sjómannaskólans án
þess að láta skólayf irvöld vita:
FENGUM EKKEE VITA FYRR EN iT AD FAR-
IÐ VAR AD BY( IGJA”
— segir Gudjón Ármann Eyjólfsson,
skólastjóri Stýrimannaskólans
■ „Það alvarlegasta við þetta
mál er það skeytingarleysi sem
skólanum er sýnt. Við fengum
ekkert um þessa ráðstöfun að
vita fyrr en farið var að byggja á
lóðinni, sem við vissum ekki
betur en væri okkar eign,“ sagði
Guðjón Ármann Eyjólfsson,
skólastjóri Stýrimannaskólans, í
samtali við Tímann.
Lóðin sem hér um ræðir er við
Skipholt, neðan við hús Sjó-
mannaskólans íReykjavík. Fyrir
skömmu hófust á henni fram-
kvæmdir við byggingu skrifstofu-
húss fyrir verkakvennafélagið
Framsókn og á næstunni hefjast
framkvæmdir við fleiri byggingar
á lóðinni.
„Það var fyrrverandi mennta-
málaráðherra, Ingvar Gíslason,
sem afsalaði lóðinni til borgar-
innar. Síðan eru liðin tvö ár og
við, sem stjórnum þessum
skólum, vissum ekkert fyrr en
farið var að byggja á lóðinni.
Ráðuneytið hirti ekki einu sinni
um að tilkynna okkur að eignum
skólans hefði verið ráðstafað.
Hvað þá að við værum spurðir
álits,“ sagði Guðjón Ármann.
Hann sagði að fyrir 40 árum
hefði Sjómannaskólinn fengið að
gjöf mjög stóra lóð, sem náði allt
frá skólahúsinu niður að Suður-
landsbraut. Eðlilega hefði stór
hluti lóðarinnar verið nýttur fyrir
þarfir borgarinnar en hins vegar
væri nú svo komið að aðeins brot
af þessu landi væri eftir. „Við
sjáum fram á að þurfa pláss
undir nýbyggingar við skólann.
Ég veit að það fást ekki fjárveit-
ingar núna eða á næsta ári. En
það er margt sem nauðsynlega
vantar ef skólinn á ekki að
dragast aftur úr. Ég nefni sund-
laug, aðstöðu til tilrauna ýmiss
konar og þjálfunar, bókasafn og
heimavist. Þessi lóð hefði hentað
okkur mjög vel,“ sagði Guðjón
Ármann.
Tíminn spurðist fyrir um þetta
mál hjá Hákoni Torfasyni, deild-
arstjóra byggingardeildar
menntamálaráðuneytisins.
Hann vildi ekkert um það segja.
—Sjó
Ungmeyjarnar binda sig ekki við eina bnu í hártísku.
Tímamynd Róbert
Mjög hátt verð á loðnuafuröum
■ Verð á loðnuafurðum á heims-
markaði er mjög hátt um þessar
mundir, hærra en það hefur verið
um margra ára skeið. Nú fást um
átta dollarar fyrir hverja próteinein-
ingu af loðnumjöli, en í fyrra fengust
aðeins rúmir 5,3 dollarar fyrir ein-
inguna. Sömu sögu er að segja af
lýsinu. Tonnið selst nú á um 430
doUara á móti rúmum 300 doUurum
í fyrra.
„Það eru margar samverkandi
ástæður til þess að verðið er hátt
núna. Ég get nefnt sem dæmi að nú
eru engar veiðar á ansjósu við
strendur Perú og Chile þannig að
þeirra stóra framlag er ekki á mark-
aðnum eins og er. Einnig hefur verið
minni framleiðsla á jurtaolíu í heim-
inum, sérstaklega í Bandaríkjunum,
og margt fleira kemur þarna til,“
sagði Kristinn Baldursson, aðstoð-
arframkvæmdastjóri Síldarverk-,
smiðja ríkisins, þegar hann var
spurður hverju mætti þakka hátt
heimsmarkaðsverð á loðnuafurðum.
Síðast þegar loðna var veidd hér
við land, á vetrarvertíð 1982, fengust
tæpir sjö dollarar fyrir proteinein-
ingu af loðnumjöii og tæpir 400
dollarar fyrir tonnið af lýsi.
-Sjó
dropar
Vinn í
allan dag
■ Tveir menn unnu saman á
skrifstofu. Klukkan var orðin
tólf. Annar stjakaði við félaga
sínum, sem hafði falUð í sætan
blund fram á borðið.
„Vaknaðu, það er kominn
tími til að fara í mat.“
- Hinn hreyfði sig aðeins og
umlaði: „Ég hef engan tíma.
Ég vinn í aUan dag.“
Þótt við sé-
um hrifin...
■ Þessi er fengin að láni úr
Samúei: „Sálfræðingar eru
sjálfir snargeggjaðir", sagði
náungi einn við annan á bam-
um í Óðali.
„Hvers vegna segirðu
það?“, spurði hinn.
„Ég er búinn að ganga til
sálfræðings í háift ár, og nú
segir hann að ég sé ástfanginn
af regnhlífinni minni.“
„Já, þetta bendir til þess að
sálfræðingurinn sé eitthvað
skrítinn.“
„Já, því þótt við séum hrifin
hvort af öðru, þá er ekki hægt
að kaUa það ást.“
Guðlegur
hrollur!
■ Það setti guðlegan hroll að
ýmsum þegar tUlaga kom fram
um það á Kirkjuþingi að HaU-
grímskirkja gæti orðið sú tón-
listarhöll sem tónlistarunnend-
ur sækjast eftir. Að vísu komu
engin andmæU og Kirkjuþing
beindi því tii Kirkjuráðs að
setja nefnd tíl viðræðna við
tónlistarmenn um máiið. En
máUð er það að tónlistarmenn
eru ekki aðeins að leita eftir
konscrtsal heldur húsi þar sem
þeir geta haft heimUi sitt ef svo
má segja, geymt tæki og stund-
að æfíngar. Það yrði því lítið
pláss eftir handa kirkjunni ef
af yrði...
Krummi . . .
... leggur til að byggð verði svo
sem ein hæð oná kirkjuna, þá
færðist andinn nær almætt-