Tíminn - 07.01.1984, Side 2
2
LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 1984
fréttir
■ Búið er aft grafa grunn og steypa sökkla að hluta við hina nýju viðbyggingu við Öskjuhlíðarskóla, en
nú eru allar líkur á að framkvæmdum verði frestað að sinni.
- G.E.
ÉS*#,
1ÍÉÉÍ1
mm
■ Sá áfangi Öskjuhlíðarskóla sem verið hefur í notkun undanfarin ár er hannaður fyrir 80 nemendur, en
nemendur eru samt iðulega 120-140. Kennsla hefur því farið fram í hverju skúmaskoti sem fundist hefur.
Hér má sjá Jóhönnu Kristjánsdóttur skólastjóra með nokkrum nemenda sinna.
Fyrirhugud frestun á framkvæmdum viðbyggingar Oskjuhlldarskóla:
„AKAFIEGA UNDARLEGT OG KEM-
UR OKKUR ÞVÍ í OPNA SKJÖLDU”
— segir Jóhanna Kristjánsdóttir, skólastjóri, sem
vonast til aö framkvæmdum verði haldið áfram
■ Svo virðist sem yfirlýsing Alexanders
Stefánssonar félagsmálaráðherra hér í
Tímanum fyrr í vikunni þess efnis að
framkvæmdum við Öskjuhlíðarskóla
yrði frcstað, hafí komið forráðamönnum
Öskjuhlíðarskólans gjörsamlega í opna
skjöldu, því samkvæmt því sem Jóhanna
Kristjánsdóttir skólastjóri Öskjuhlíðar-
skóla sagði í samtali við Tímann í gær,
þá kom fregn þessi slarfsmönnum öllum
við skólann mjög á óvart, og sagðist hún
reyndar draga í efa að rétt væri.
„Við vorum samankomin hér 60
manna starfslið skólans á fundi í vik-
unni,“ sagði Jóhanna, „og það var alveg
Ijóst, af því sem kom fram á fundinum,
að starfsfólk skólans var afskaplega
slcgið og undrandi. Við ræddum þetta
mikið, og það kom fram að margir töldu
að þetta hlyti að vera rangt eftir ráðherr-
anum haft. Við teljum að það geti ekki
verið, að búið sé að taka ákvörðun sem
þcssa, því samkvæmt lögum ætti stjórn-
arnefnd um málefni fatlaðra að úthluta
úr framkvæmdasjóði, og við vitum ekki
betur en að þessi stjórnarnefnd hafi ekki
komið saman ennþá.“
„Pað kcmur okkur því í opna skjöldu,
og okkur finnst það vægast sagt ákaflega
undarlegt, cf það er búið að taka ákvörð-
un um það hvernig fé úr þessum sjóði
verður varið, áður cn stjórnarnefndin
hefur komið saman til fundar," sagði
Jóhanna og bætti við: „í öðru lagi þá
liggur það fyrir að stjórn framkvæmda-
sjóðsins er búin að heimila útboð og
framkvæmdireru hafnar. í þessari heim-
ild er jafnframt raunverulega tryggt að
sjóðurinn muni veita fé til þess að
viðbyggingin verði steypt upp, og verktak-
ar starfa hér á fullum hraða, til þess að
geta staðið við sinn hluta af þessum
samningi. Okkur finnst því ótrúlegt að
hægt sé að hætta við verk á þessu stigi og
leggjum því ekki trúnað á að það verði
gert.“
Aðspurð um aðstæður til kennslu í
Öskjuhlíðarskóla, sagði Jóhanna m.a.
„Ég held að fólk geri sér ekki grein fyrir
því hversu slæm aðstaðan er hér í
þessum skóla. Við erum hér með mjög
mörg fötluð börn í hjólastólum, og hér
er m.a. ekki lyfta. Við höfum starfað við
þessar aðstæður í eitthvað á níunda ár
og alltaf hefur verið reiknað með því að
þetta bráðabirgðaástand myndi nú
breytast til batnaðar. Þegar við loksins
sáum fram á að svo yrði þegar fram-
kvæmdir við viðbygginguna voru hafnar
þá var það mikill léttir. Ég gerði mér
grein fyrir því, þegar þetta kom upp,
hvað myndi gerast hér í skólanum, ef
það er rétt að hér verði stöðvaðar þessar
framkvæmdir - ég óttast að þeir sem
hafa starfað hér meira af vilja en mætti,
í von um betri aðstæður, þeir hreinlega
missi móðinn og gefist upp."
Jóhanna sagði að Öskjuhlíðarskóli,
sá áfangi sem hefur verið í notkun
undanfarin ár, væri hannaður fyrir 80
nemendur, en nemendur væru iðulega
120 til 140. Kennsla hefði farið fram í svo
til hverju skúmaskoti, svo sem glugga-
lausum kompum, til þess að veita þjón-
ustu sem mikil þörf væri á. Sagði hún í
því sambandi að ekkert barn hæfi nám
við Öskjuhlíðarskólann, án þess það
hefði verið þaulkannað að það gæti ekki
fengið kennslu við sitt hæfi annars
staðar. Sagðist hún telja að það myndi
hafa ófyrirsjáanlegar og alvarlegar af-
leiðingar, ef þær framkvæmdir sem nú
standa yfir varðandi viðbyggingu Öskju-
hlíðarskóla yrðu stöðvaðar. -AB
Tónleikar
Musica Nova á
mánudags-
kvöld:
f minningu
Antons
Webern
■ Hinn 3. desembcr s.l. voru liðin HX)
ár frá fæðingu Antons Webcrn, eins
nresta álniíavalds í tónsmíðum á 20.
öld. Webern fæddist í Vínarborg og
starfaði þar mestan hluta ævinnar sem
tónskáld. hljómsveitarstjóri og kenn-
ari.
Musica Nova minnist aldarafmælis
þessa tónlistarjöfurs á mánudagskvöld
kl. 20.30. í Norræna húsinu. Þar verða
flutt'verk frá ýmsum tímabilum í ævi
hans, Sex bagatellur fyrir strengja-
kvartett, Fjögur verk fyrir fiðlu og píanó
Þrjú smálög fyrir selló og píanó, Til-
brigði fyrir píanó, Fimm sönglög óp.4
og kvartett fyrir fiðlu, klarinett, saxó-
fón og píanó. Flytjendur verða Þór-
hallur Birgisson. Kathlecn Bearden,
Helga Þórarinsdóttir, Nóra Korn-
blueh, Snorri Sigfús Birgisson, Guð-
ríður Sigurðardóttir, Rut Magnússon,
Jónas lngimuritlarson, Óskar Ingólfs-
son, Vilhjálmur Guðjónsson og Svana
Vfkingsdóttir.
- JGK.
Leiðrétting
■ Vegna fréttar í Tímunum í gær,
þar sem sagt var frá konu scm situr í 8
daga fangelsi fyrir hundahald í Reykja-
vík, skal tekið fram að hún dvelur í
Hegningarhúsinu við Skólavörðustíg
en ekki í Síðumtilafangelsinu eins og
sagt var í fréttinni.
GSH
NIGERIUMENN
GREIÐA AF UM-
■ ■
SOMDU
ARLÁNI
■ „Það er engin staðfesting komin frá
Nígeríumönnum um greiðslur. önnur en
sú að allur heimurinn hefur hlustað á boð
skap nýrra ráðamanna í Nígeríu um að þeir
muni standa við allar skuldbindingar,"
sagði Bragi Eiríksson hjá Skreiðarsam-
laginu í samtali við Tímann í gær.
Bragi sagði jafnframt: „Greiðslan sem
kom til í gær, var bara greiðsla á
umsömdu láni, afborgun og vextir, sem
SKREIÐ-
SÍNU
Scðlabankinn í Nígeríu tók hjá ýmsum
bankastofnunum í heiminum, bæði ís-
lenskum og öðrum."
Bragi sagði skreiðarsamlagsmenn
ekkert vera uggandi um hag sinn, þótt
bylting hefði farið fram í Nígeríu. „Við
höfum áður skipt við herstjórn, og það
gekk allf vel,“ sagði Bragi, „og við
óskum bara eftir að halda viðskiptum
áfram, sem ég vona að verði.“
- AB.
■ Kammersveit Reykjavíkur heldur tónleika í hinni nýju Áskirkju í Reykjavík á
morgun kl. 17.00. Á efnisskránni er hið vinsæla verk Vivaldis, Árstíðirnar. Uppselt
er á tónleikana sem hefjast kl. 17.00. Einleikshlutverkin á fiðlur verða í höndum
þeirra Helgu Hauksdóttur, Unnar Mariu Ingólfsdóttur, Þórhalls Birgissonarog Rutar
Ingólfsdóttur.
Kennaraháskóli íslands:
IBM gefur skólanum 5 tölvur
■ IBM-fyrirtækið á íslandi hcfur fært
Kennaraháskóla íslands að gjöf 5 tölvur
af gerðinni IBM Personal Computer,
ásamt ýmsum tilheyrandi vél- og hug-
búnaði. Verðmæti gjafarinnar er 1,3
milljónir króna, samkvæmt frétt frá
Kennaraháskólanum.
1 gjafabréfi, sem Gunnar M. Hansson
forstjóri IBM afhenti um áramótin, segir
m.a.: „Tölvurnar verði notaðar til þeirra
kennslu-og þróunarverkefna sem Kenn-
araháskólinn telur réttast og hagkvæm-
ast á hverjum tíma“. í bréfinu er enn-
fremur tekið fram að gjöfin sé afhent
skilyrðis- og kvaðalaust af hálfu IBM.
Hinar nýju tölvur eru fyrsta verulega
skrefið til tölvuvæðingar KHÍ, en rektor
gat þess að menntamálaráðuneytið hefði
lýst yfir fullum stuðningi við áframhald-
andi uppbyggingu og þróun á þessu sviði.
Rektor þakkaði gefendum hina rausn-
arlegu gjöf fyrir hönd skólans. Kvað
hana tvímælalaust verða til að gjörbreyta
möguleikum KHÍ til að veita kennara-
efnum og starfandi kennurum í landinu
fræðslu um notkun tölva í skólastarfi og
skapa bætta aðstöðu til að sinna öðrum
verkelnum sem KHI og stoínunum á
hans vegum sé skylt að rækja samkvæmt
lögum og reglugerð. Kvaðst rektor
mundi gera það sem í st'nu valdi stæði til
að vonir gefenda um öfluga starfsemi
skólans á næstu árum til að gegna sem
best hlutverki sínu að þessu leyti mættu
rætast.
Eggjaframleiðendur:
Eigendur 43% varp-
hæna í landinu
gengu útaf
■ Stjórn Sambands eggjaframleið-
enda harmar útgöngu 18 fundarmanna
á aðalfundi félagsins hinn 29. desem-
ber s.l., en tekur fram að hún telji vart
hægt að tala um klofning í félaginu,
enn sem komið er, þar scm aðeins liggi
fyrir úrsögn tveggja félagsmanna.
Þetta kemur m.a. fram i frcttatilkynn-
ingu nýkjörinnar stjórnar sem kom
saman til fundar þann 3. janúar s.l. Á
þeim fundi var Þorsteinn Sigmundsson
fundi
kjörinn formaður og Jón Gíslason
varaformaður.
Þá kemur fram að þeir 18 sem út
gengu af aðalfundi eiga 11 starfandi
hænsnabú með samtals um 126 þús.
varphænum, samkvæmt opinberum
skýrslunt. Sé þar um að ræða rúm 43%
af varphænum í landinu, því sömu
skýrslur telji alls um 292 þús. varphæn-
ur á öllu landinu.
- HEI.