Tíminn - 07.01.1984, Síða 3
I.AUGARDAGUR 7. JANÚAR 1984
fréttir
Ljóst að samkomulag næst ekki fyrir 1. apríl í álmálinu:
Agreiningur um mat a samkeppn-
ISAÐSTÚOU ALBRÆBSUI A fSLANDI
■ Fyrsti álviðræðufundurinn á árinu
fór fram hér í Reykjavík í gær og í
fyrradag, en samkvæmt heimildum Tím-
ans þá náðist enginn markverður árang-
ur á þessum fundi. Aðilar voru þó
sammála um að fundurinn hefði verið
gagnlegur og hafa þeir ákveðið nýjan
fund fyrir miðjan næsta mánuð.
Dr. Jóhannes Nordal, formaður samn-
inganefndar um stóriðju, sagði að lokn-
um fundinum við blaðamann Tímans:
„Það hefur ekkert gerst, þannig lagað.
Þetta hefur verið svona grunnvinna,
gagnasöfnun og samanburður á gögnum.
Við erum.í sjálfu sér sammáia um margt
sem skiptir máli varðandi staðreyndir,
auk þess sem.við erum sammála um að
verðtryggja beri raforkuverðið. Við
erum þó ekki reiðubúnir, hvorugur aðil-
inn til þess að leggja fram ákveðnar
tiilögur í því efni, enda koma margar
leiðir þar til greina.
Við höfum rætt orkumálin, verðlagn-
ingarmálin, skattamálin og verðtrygg-
ingar málið, en eins og ég sagði áðan, þá
náðist enginn einn endanlegur áfangi á
þessum fundi. Auðvitað vildum við Ijúka
samningaviðræðum fyrir 1. apríl, en ég
hef ekki trú á að það náist. Ég vona þó
að við verðum komnir þó nokkuð áleiðis
í apríl.“
Tíminn hefur heimildir fyrir því að
menn í samninganefndum beggja aðila
telji að á fundinum í Zúrich í næsta
mánuði kunni að draga til tíðinda,
jafnvel sverfa til stáls, en enginn við-
mælenda Tímans vildi staðfesta þetta í
samtölum í gær. Það sem einkum bar í
milli á fundinum í gær, samkvæmt heim-
ildum Tímans var í sambandi við mat á
samkeppnisaðstöðunni, en Alusuisse-
menn virðast vilja meina að hún sé mun
lakari, en fulltrúar samninganefndar um
stóriðju vilja meina.
RagnarS. Halldórsson, forstjóri ÍSAL
sagði í samtali við Tírnann í gær, er
blaðamaður spurði hann hvernig hefði
gengið á fundinum að hans mati: „Bara
alveg prýðilega - alveg eins og til stóð. “
Loks ræddi Tíminn stuttlega við dr.
Ernst, einn aðalforstjóra Alusuisse sem
nú er í forsvari fyrir fulltrua Alusuisse í
þessum viðræðum.
Dr. Ernst var fyrst spurður hvort hann
teldi þennan fund hafa verið árangurs-
ríkan. „Já, örugglega," svaraði dr.
Ernst. „Við höfum borið saman gögn
okkar, og komist að þeirri niðurstöðu í
meginatriðum, að við séum sammála um
gildi þeirra gagna sem herramennirnir
hér á fslandi hafa viðað að sér og þeirrg
gagna sem við höfum lagt fram. Það held
ég að sé þýðingarmikill áfangi fyrir
áframhaldið".
- Eruð þér þá bjartsýnn hvað áfrarn-
haldið varðar? „Já, mjög svo,“ svaraði
dr. ErnSt. „Það er enn langur v.egur
framundan, áður en samningar eru í
höfn, cn ég er bjartsýnn á að við náum
endanlegu samkomulagi á þessu ári.“
-AB
■ Dr. Jóhannes Nordal formaður
samninganefndar um stóriðju og Ragnar
Halldórsson forstjóri ÍSAL bera saman
bækur sínar í lok álviöræðnanna.
Tímamynd: Róbert.
Fjárhagsáætlun fyrir Reykjavlk samþykkt lítið breytt frá 1. umræðu:
ÚTSVflRSPRÓSENTAN VERÐUR 11%
— nær aliar breytingartillögur minnihlutans felldar
■ Borgarstjórnarfundur þar sem fjár-
hagsáætlun fyrir Reykjavíkurborg var til
síðari umræðu stóð frá kl. 17.00 á
fimmtudag til kl. rúmlega 09.00 í gær-
morgun. Þegar atkvæðagreiðslur voru
yfirstaðnar var ljóst að sáralitlar breyt-
ingar höfðu verið gerðar á frumvarpinu
eins og það lá fyrir eftir fyrstu umræðu.
Þó var ákveðin 10 milljón króna hærri
Skóla-
bílarnir
ekki
komist í
sveitina
■ Skólabörn í Gaulverja-
bæjarhreppi hafa fengiö fram-
lengingu á jólafríinu, þar sem
skólabílar hafa enn ekki komiö
í sveitina vegna óveðursins á
miðvikudaginn. Er nú áætlað
aö skólar hefjist n.k. mánudag
9. janúar, aö sögn Stefán$
Jasonarsonar í Vorsabæ.
Stefán sagöi veður hafa verið
snarvitlaust þar um sióðir. Sem
dæmi nefndi hann að frjótækn-
irinn varð að láta fyrirberast í
jeppa sínum á milli bæja í eina
3 klukkutíma s.l. miðvikudag,
þar sem hann sá ekki veginn
framundan. Fjórir bæir í Geng-
ishólahverfi urðu rafmagnslaus-
ir í nærri því sólarhring, sem
kom til af því að nokkrir staurar
brotnuðu í Holtslínunni. Að
öðru leyti sagði Stefán fólk í
Gaulverjabæjarhreppi hafa
sloppið furðu ve! við rafmagns-
leysi - aðeins hafi verið um smá
truflanir að ræða öðru hvoru.
-HEI
fjárveiting til BÚR en gert hafði verið
ráð fyrir og hækkað framlag til Æsku-
lýðsráðs og Félagsmálastofnunar vegna
aðgerða í fíkniefnamálum. Allar breyt-
ingatillögur minnihlutaflokkanna voru
felldar utan tillaga Alþýðubandalagsins
um ráðningu baðvarða (baðkvenna) við
þjónustuhúsnæði aldraðra við Norður-
brún 1, Furugerði 1 og Lönguhlíð 3. Þá
var samþykkt að hækka styrk til Taflfé-
■ „Samið hefur verið við fyrirtækið
Long John Silver's sem undanlarin ár
hefur verið langstærsti kaupandi þorsk-
flaka frá íslandi um þriðjungs aukningu
á sölu 5 Ib. þorskflaka næstu 15 mán-
uði,“ segir in.a. í frétt frá S.H. um
viðskipti Coldwater og Long John
Silver’s, og þar segir jafnframt: „Jafn-
framt hefur verið samið um 10 centa
lækkun á hvert enskt Ib. eða sem svarar
tæplega 6% frá gildandi verði. Gert er
ráð fyrir að þetta leiði til aukinnar sölu
til þessa fyrirtækis einnig á næsta ári.“
Tíminn rifjar í þessu sambandi upp
fréttir sínar frá því haustið 1983, þar sem
greint var frá því að Coldwater þrjóskað-
ist við að lækka verð á þorskflökum,
þegar lceland Seafood Corporation
lækkað fimmpunda flökin um 10 cent,
og varð þar með samkeppnihæfara á
Bandaríkjamarkaði. Jafnframt greindi
Tíminn frá því þá að ágreiningur væri
innan stjórnar Coldwater um verðlagn-
ingu þorsksins, og að margir stjórnar-
manna, að nú ekki sé talað um frysti-
húsaeigendur innan S.H. hafi viljað að
Coldwater lækkaði verð sín til þess að
lags Reykjavíkur vegna alþjóðaskák-
mótsins sem halda á í febrúar, úr 50
þúsund krónum í 160 þúsund krónur. A
móti þessari útgjaldaaukningu kemurað
áætlaðar afborganir af lánum verða 190
milljónir í stað 220 milljóna eins og gert
var upphaflega ráð fyrir í frumvarpinu
að fjárhagsáætlun og vaxtagjöld lækka
samsvarandi um úr 70.600 krónum í
64.600.
verða samkeppnishæfara. Þá greindi
Tíminn einnig frá því að bráðabirgða-
samkomulag hefði tekist innan stjórnar
S.H. og Coldwater að verð héldist
óbreytt til síðustu áramóta, og eftir það
mætti fara að huga að lækkun, hvað nú
hefur komið á daginn að gert var.
í frétt S.H. segir jafnframt að þessi
■ Skákþing Reykjavíkur 1984 hefst
n.k. sunnudag, 8. janúar og verður teflt
í félagsheimili Taflfélags Reykjavíkur
að Grensásvegi 46.
í aðalkeppninni sem hefst á sunnudag-
inn kl. 14.00 munu keppendur tefla
saman í einum flokki 11 umferðir eftir
Monradkerfi. Umferðir verða þrisvar í
viku, á sunnudögum kl. 14og á miðviku-
dögum og föstudögum kl. 19.30. Bið-
.skákadagar verða inn á milli.
Tillaga fulltrúa Framsóknarflokksins
um lækkun álagningarprósentu útsvars
úr 11% í 10% var fclld en fékk atkvæði
allra minnihlutaflokkanna. Álagningar-
hlutfall útsvara vcrður því 11% í borg-
inni næsta ár. Minnihlutaflokkarnir
fluttu fjölmargar tillögur ýmist til út-
gjaldaaukningar eða sparnaðar en þær
voru allar felldar sem fyrr segir.
JGK
samningur feli í sér sölu á 25 milljónum
punda (11320 smálestir) af þorskflökum
á umræddu 15 mánaða tímabili. 20
milljónir punda verði afhent á þessu ári,
en 5 milljónrr á fyrstu þremur mánuðunt
næsta árs. Loks segir að sala Coldwater
á 5 punda þorskflökum í Bandaríkjunum
á sl. ári hafi verið 15.5 milljónir pund.
-AB
Keppni í flokki 14 ára og yngri á
skákþingi Reykjavíkur hefst laugardag
14. janúar. Þar verða tefldar 9 umferðir
eftir Monradkerfi umhugsunartími 40
mínútur á skák fyrir hvern keppanda.
Keppt verður þrjá laugardaga, þrjár um-
ferðir í senn.
Lokaskráning í aðalkeppnina verður
laugardag 7. janúar kl. 14-18.
GSH
Yfirtöku
Nútfmans
á rekstri
Tímans
frestað
um 3
mánuði
■ „Ástæða þess að ákveðið var að
framkvæmdastjórn Framsóknar-
flokksins héldi áfram rekstri Timans
þar til 1. april var fyrst og fremst sú, ^ð
ekki hafði tekist að Ijúka stofnun fé-
lagsins fyrir áramót, og einnig vegna
þess að orðið hafði vart cinhvers kvíða
hjá starfsmönnunum vegna uppsagn-
anna,“ sagði Hákon Sigurgrímsson,
cinn stjórnarmanria í bráðabirgða-
stjóm Nútímans, er blaðamaður Tímans
spuröi hann hver orsök þess væri að
starfsmönnum Tímans var í gær sent
bréf frá framkvæmdastjórn Framsókn-
arflokksins, þar sem m.a~. segir:
„Framkvæmdastjórn Framsóknar-
flokksins, samþykkir að Framsóknar-
flokkurinn haldi áfrain útgáfu dag-
blaðsins Tímans til 1. apríl 1984. Ber
því flokkurinn alla ábyrgð á rekstri
blaðsins til þcss dags.“
Jafnframt sagði Hákon að allur vafi
hefði þar með verið tekinn af um það
að Framsóknarflokkurinn , myndi út
uppsagnarfrestinn standa við allar sín-
ar skuldbindingar gagnvart starfs-
mönnum blaðsins.
Hákon sagði að stefnt væri að því
að Ijúka framhaldsstofnfundi um miðja
næstu viku, og upp úr því færu línur
væntanlega að skýrast varðandi áfram-
haldandi ráðningar.
Er Hákon var spurður hvers vegna
þessi breyting hefði verið ákveðin svo
snögglega sem raun ber vitni, þar sem
Ijóst hefði verið þegar uppsagnarbréfin
voru rituð fyrir áramót að ekki hefði
tekist að Ijúka stofnun félagsins, svar-
aði hann: „Lögfræðileg spúrsmál lágu
ekki nægilega Ijós fyrir, þannig aðvið
nánari skoðun á málinu þá þótti þetta
nauðsynlegt."
-AB
Coldwater sölufyrirtæki SH í Bandaríkjunum:
LÆKKAR VERD Á WRSKFLÖKUM
0G EYKUR UM LEIÐ SÖLU SÍNA
Skákþing Reykjavík-
ur hefst á sunnudag