Tíminn - 07.01.1984, Qupperneq 5

Tíminn - 07.01.1984, Qupperneq 5
„Reagan er engin tepra!“ — sagði Rebecca og hélt sínu striki ■ Ekki reikna þeir með að Reagan forseti sé mjög veraldar- vanur, vinir hennar Rebeccu Holden, sem réðu henni eindreg- ið frá því að vera í uppáhalds- kjólnum sínum í boði, þar sem forsetahjónin áttu að vera heið- ursgestir. En Rebecca lét skoðanir vina sinna sem vind um eyrun þjóta og ekki hefur heyrst að forsetinn hafí hreyft neinum mótmælum. Rebecca Holden, ung stúlka frá Texas, hefur á skömmum tíma haslað sér völl meðal hinna frægu og ríku í Hollywood. Hún iauk háskólaprófi við North Tex- as State háskóiann með söng og píanóleik sem aðalfög. Þá lá leiðin til New York, þar sem hún lagði stund á nám í óperusöng og sígildri tónlist. En ekki var hún fyrr komin til heimsborgarinnar en umboðsmaður nokkur rak augun í hana og viidi endilega fá hana til að koma fram í sjón- varpsauglýsingum, þar biði hennar áreiðanlega skjótur frami. Og spádómur hans rættist svo sannarlega, bæði fljótt og vel. En Rebecca setti markið hátt. Hún sagði ekki skilið við tónlist- ina, þó að hún hefði næg verk- efni í fyrirsætustarfinu. Það varð því úr, að hún stofnaði og ferðað- ist um með sína eigin hljómsveit, sem flutti dreifbýlistónlist í þeim stíl, sem tíðkast í Texas. Ekki leið á löngu þar til leíðin lá til Hollywood og fljótfenginnar frægðar í sjónvarpsmyndum og m.a.s. aðalhlutverks í kvikmynd- inni Síðasta hetjan (The Last Hero), sem hlaut góða dóma og hefur verið sýnd víða um lönd. Þessi skjóti og góði frami Rebeccu leiddi til þess að henni var boðið að vera viðstödd boðið með forsetahjónunum, sem áður er getið. Til að vera sómasam- lega til fara, réði hún einn helsta kjólahönnuð Hollywood til að gera sér viðeigandi kjól. Útkom- ■ Rebecca Holden þykir með fegurri konum og bera föt sín með reisn. Samt þótti sumum fulUangt gengið þegar hún vildi vera í þessum kjól í návist Reag- ans forseta. an varð hinn umdeUdi kjóll, fleginn og með klauf í annarri hliðinni langt upp á mjöðm. Hann kostaði ekki nema S00 dollara (u.þ.b. 24.000 ísi. kr.) sem ekki þykir mikið verð fyrir slíka gersemi á þessum slóðum. I hann á nú hljóðfæri að verð- mæti um 1,5 milljón kr. og dugir ekki til“ sagði Sigurð- ur Snorrason skólastjóri Tónlistarskóla F.Í.H. í sam- tali við Tímann. „í lögum um tónlistar- skóla er gert ráð fyrir að þeir fái styrk til hljóðfæra- kaupa en þessi skóli hefur aldrei fengið neitt af þeim peningum og með tilliti til þess er þetta sérstaklega velkomin gjöf“ sagði Sig- urður. Það kom fram hjá honum að forráðamenn skólans hefðu ákveðið að leggja peninga í hljóðfærakaup' fyrir jazzdeild skólans, hún væri frekari á hljóðfæra- kost. „Við höfum einnig hugs- að okkur að koma okkur upp fullkomnu stúdíói og ég get hugsað mér að þetta verði svona einhverskonar vísir að sjóði til kaupa á tækjum í slíkt stúdíó“ sagði Sigurður. Hann sagði einnig að rekst- urinn hjá skólanum hefði gengíð mjög vel að undan- förnu...“ fyrikomulagið er þannig að ríkið og borg greiða laun kennara og skólastjóra en rekstrarfé sem eru skólagjöld, stendur undir öllum öðrum kostn- aði, það er hljóðfærakaup- um og daglegum rekstri." sagði hann. „Það má segja að fyrst á þessu skólári höfum við rek- ið skólann hallalaust. Nú eru 160 nemendur sem stunda nám við skólann. Skólinn skiptist í tvær deild- ir, það er almenna deild og jazzdeild sem er sú eina sinnar tegundar á landinu. Það má segja að jazzdeildin sé einna mest spennandi og hefur vakið einna mesta at' hygli" sagði Sigurður. Hjá honum kom fram að vinsælasta hljóðfærið, eða það sem flestir vilja læra á, er gítarinn, bæði jazz og rafgítar. Nú stendur yfir fjórða starfsár skólans en hann hef- ur aðsetur í Brautarholti 4. erlent yfirlit ■ UM miðjan þennan mánuð, eða nánar tiltekið 17. janúar, mun hefjast í Stokkhólmi ráð- stefna Evrópuríkja, Bandaríkj- anna og Kanada um aðgerðir til að draga úr spennu og tortryggni og undirbúa þannig jarðveginn fyrir afvopnun. Ekki er búist við því, að mikill árangur náist í fyrstu, enda er ráðstefnunni ætlað að standa í þrjú ár. Jafnhliða ráðstefnunni eða setningu hennar, munu hefjast tveir fundir, sem eru líklegir til að draga að sér miklu meiri athygli. Þetta er í fyrsta lagi fundur þeirra Shultz, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og Gromikos, utanríkisráðherra Sovétríkj- anna, en nú hefur verið ákveðið að þeir ræðist við í Stokkhólmi í sambandi við setningu ráðstefn- unnar. í öðru lagi er það svo fundur utanríkisráðherra Atlantshafs- bandalagsríkjanna, en þar munu allir mæta við setningu ráðstefn- unnar og nota tækifærið til frek- ari viðræðna sín á milli. Yfirleitt er ekki búist við mikl- um árangri af fundi þeirra Shultz og Gromikos að þessu sinni, nema Shultz bjóði fram eitthvað nýtt og áþreifanlegt. Af hálfu Gromikos mun það ekki gert. Hann hefur nýlega lýst yfir því, að Sovétríkin setjist ekki aftur að samningaborði varðandi af- vopnunarmál, nema hætt verði við staðsetningu bandarískra, meðaldrægra eldflauga í Evr- ópu. Öllu meiri athygli mun því sennilega beinast að fundi Nato- ■ Shultz mun vafalítið ráða mestu á Stokkhólmsfundi Nato-ráð- herranna má stöðva eða flytja þær brott jafnskjótt og raunhæfur árangur næst við samningaborðið. Njeð þetta í huga er ósk okkar sú, að samningaviðræður um meðal- drægar eldflaugar, sem Sovétrík- in hafa nú hætt, haldi sem fyrst áfram. (Danmörk og Grikkland gerðu fyrirvara varðandi afstöðu sína til þessarar málsgreinar. Spánn var ekki aðili að ákvörð- uninni 1979 og gerði fyrirvara varðandi þessa málsgrein.) Við hvetjúm aðildarríki Var- sjárbandalagsins til að grípa þau tækifæri sem við bjóðum til að hefja uppbyggilegt samstarf þar sem jafnvægi og sönn slökun Tíkja. Árangur verður að nást hjá þátttökuríkjum í öllum við- ræðum um vopnatakmarkanir, einkum í viðræðunum um: - fækkun langdrægra kjam- orkuvopna (START); - meðaldrægar kjarnorkuflaug- ar(INF); - gagnkvæman og jafnan niður- skurð venjulegra vopna (MBFR); - tilraunir til að koma á algjöru banni við efnavopnum á veg- um afvopnunarnefndarinnar. Við erum einnig staðráðnir í því að nota fyrirhugaða Stokk- hólmsráðstefnu sem nýjan vett- vang til að útvíkka viðræður við Austur-Evrópuríkin, semja um traustvekjandi ráðstafanir og efla festu og öryggi í Evrópu ailri. Við munum halda áfram að gera okkar ýtrasta til viðhalds friði ogöryggi í framtíðinni. Við bjóðum Sovétríkjunum og öðrum ríkjum Varsjárbanda- H vað gerist á Stokkhólms fundi Nato-ráðherranna? Verður hreyft nýjum hugmyndum um slökun og afvopnun? ráðherranna. í mörgum Nato- ríkjum er vaxandi áhugi á því, að Nato bjóði fram eitthvað nýtt, sem geti orðið til þess, að Rússar fáist aftur að samninga-. borði. í þessum ríkjum er það vaxandi skoðun, að rétt hefði verið að reyna frekari viðræður áður en staðsetning bandarísku eldflauganna var hafin. Þetta mun hafa verið eitthvað rætt í sambandi við fund ráð- herra, sem haldinn var í Brússel fyrrihluta desembers síðastlið- ins. í yfirlýsingu fundarins, sem birt var að honum loknum, kom ekkert nýtt fram. Þar var fyrst og fremst áréttað, að þeir væru fúsir til áframhaldandi viðræðna, án þess að nokkur ný tilboð væru gerð. YFIRLÝSING ráðherrafund- arins var mun styttri en venja hefur verið. Rétt þykir því að birta hana hér í heilu lagi.: „Við, fulltrúar hinna sextán aðildarríkja Atlantshafsbanda- lagsins, lýsum á ný yfir því, að samstarf okkar er helgað vernd friðar á grundvelli frelsis. Bandaiag okkar ógnar engum. Við munum aldrei beita vopni nema á okkur verði ráðist. Við sækjumst ekki eftir yfirburðum, en munum heldur ekki sætta okkur við að aðrir nái yfirburð- um yfir okkur. Réttmætir örygg- ishagsmunir okkar verða aðeins tryggðir með nánum tengslum Evrópu og Norður-Ameríku. Við hvetjum Sovétríkin til að virða réttmæta öryggishagsmuni, okkar eins og við virðum þeirra. Við erum staðráðnir í að tryggja öryggi með hernaðar- jafnvægi og eins litlum herbún- aði og mögulegt er. Þeirri hættu ■ Fundur Nato-ráðherranna í Stokkhólnii verður eitt síðasta tækifæri Luns til að láta í Ijós sitt skína sem sovésku SS-20eldflaugarnar skapa hafa hlutaðeigandi aðild- arríki bandalagsins mætt með því að hrinda í framkvæmd hinni tvíþættu ákvörðun frá 1979. Lokamarkmiðið ér sem fyrr það, að útrýmt verði bæði sovéskum og bandarískum meðaldrægum kjarnorkuflaugum á landi. Stað- setningu bandarískra eldflauga Þórarinn Þorarinsson, ritstjóri, skrifar lagsins að taka höndum saman við okkur um að koma á upp- byggilegu og raunsæju framtíð- arsamstarfi er byggist á jafnvægi sem grundvallað verði á jafn- ræði, hófsemd og gagnkvæmni. í þágu alls mannkyns hvetjum við til opinskárra alhliða um- ræðna um stjórnmálaleg úr- lausnarefni og samvinnu til gagn- kvæmra hagsbóta.1' EINS OG áður segir, felst ekki neitt nýtt í þessari yfirlýs- ingu, umfram það sem hefur verið margsagt. Að því leyti er hún neikvæð, að ekkert er að finna í henni um kjarnavopn Breta og Frakka. Aðeins er minnzt á útrýmingu eldflauga Sovétríkjanna og Bandaríkj- anna, en þetta myndi tryggja yfirburði Natoríkjanna, þar sem undan eru skilin kjarnavopn Breta og Frakka. Þá er því haldið opnu, að Natoríkin gætu fyrst orðið til að beita kjarnavopnum, ef eitthvert þeirra yrði fyrir árás, sem gerð væri með hefðbundnum vopnum. Það er nú vonað, að á fundi Nato-ráðherranna í Stokkhólmi verði ályktað skýrara um þessi mál og helzt bryddað upp á einhverju nýju, sem gæti leitt til raunhæfari viðræðna um útrým- ingu kjarnavopna og annarra vopna jafnhliða eða í framhaldi af því. Hlutverk Nato er ekki aðeins að efla varnir. Það er aðeins annað hlutverk þess. Hitt hlut- verkið er að vinna að spennu- slökun og það er ekki minna mikilvægt. Vonandi verður það ekki sízt umræðuefni á Stokk- hólmsfundi Nato«ráðherranna.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.