Tíminn - 07.01.1984, Page 11
LAUGARDAGUR 7. JANUAR 1984
krossgáta
4245.
Lárétt
1) Oddi. 6) Erfiði. 8) Fugl. 9) Tóm. 10)
Pantur. 11) Eyða. 12) Orka. 13) Dropi.
15) Svarir.
Lóðrétt
2) Fjallvatn. 3) Strax. 4) Kátari. 5) Púa.
7) Stétt. 14) Spil.
Ráðning á gátu no. 4244
Lárétt
1) Skaft. 6) Aur. 8) Men. 9) Árs. 10)
Tól. 11) Nóa.-12) Eta. 13) Nei. 15)
Galta.
Lóðrétt
2) Kantana. 3) Au. 4) Fráleit. 5) Smána.
7) Ástar. 14) El.
bridge
■ í fimnrtu spilaþrautinni spilaði suður
6 lijörtu. Sú slemma er ekki beint
glæsilegt enda var spurt um hvort lesend-
ur sæju einhvern möguleika á að lauma
henni heim með brögðum.
Vestur Norður S. K87542 H.82 T. G10 L.753 Austur
S.G9 S. D103
H.1074 H.63
T.D864 T.K9532
L.DG108 L.962
Suður S. A6 H.AKDG95 T. A7 L.AK4
Suður spilar 6 hjörtu og vestur spilar
út laufadrottningu. Þegar blindur kemur
niður sést að spilin koma ekki vel saman:
ef blindur hefði hinsvegar verið með
þrílit í tígli og tvílit í lauf hefði slemman
verið nær pottþétt. En hvernig á suður
að spila?
Það er smá möguleiki á þvingun, t.d.
með því að taka útspilið heima, gefa
tígulslag og taka síðan trompin. Þá þarf
sami spilari að eiga 3 spaða og 5 lauf.
Þetta er nú ekki mjög líklegt og það er
til önnur spilaleið sem er frekar reyn-
andi. Hún er sú að treysta andstæð-
ingunum til að gera vitleysu í vörninni.
Suður tekur útspilið heima á ás, og
tekur spaðaás, spaðakóng og trompar
spaða heim með níunni. Og þá er komið
að vestri. Ef hann yfirtrompar með
tíunni er spilið unnið: suður getur tekið
næsta slag heima, tekið hjartaás og
spilað hjarta á áttuna í borði og þá eru
trompin búin og spaðaslagirnir bíða í
bunu í blindum.
Þessi þraut var nú meira til gamans
því engin rétt lausn er til á henni. Ef til
vill hefði verið nær að setja upp hendur
norðurs og vesturs og láta reyna á
vamarspil vesturs þegar hjartaníunni er
spilað. En í svona tilfellum er til þumal-
fingursregla sem á býsna oft við: Þegar
sagnhafi virðist vera að gefa vörn ódýran
slag er rétt að fúlsa við honum þó menn
geri sér ekki fulla grein fyrir hvað er á
seyði. í þessu tilfelli er eina vörn vesturs
að henda tígli í hjartaníuna og þá hlýtur
slemman að fara einn niður.
myndasögur