Tíminn - 10.01.1984, Síða 20
dropar
Hvernig væri nú
að útvörður
íslenskrar tungu
færi að veita Rás 2
yfirhainingu?
■ Erlingur nokkur Sigurðar-
son, útvörður íslenskrar tungu,
með aðsetur norður undir
heimskautsbaug mætti Dropa
vegna hætta um stund að rýna
í fréttatilkynningar ráðuneyt-
anna og snúa sér að innhverfri
íhugun, þ.e. að því að skoða
ofan í kjölinn málfar það sem
Rás 2 býður landsmönnum upp
á. Dropar minna á frábæran
vikuskammt Flosa í síðasta
helgar-Þjóðvilja: „Að liafa
vaðið fyrir neðan nefið“. Það
er með ólíkinduni hvað mikið
af innihaldslausu bulli getur
komið frá plötusnúðum Rásar
tvö, og þeim mun fleiri sem
saman eru komnir í einum
þætti, þeim niun meira af bulli,
og það sem meira cr bulli, sem
sagt er á lélegri íslensku, oft
vitlausri og án nokkurs
„húmors“. Það væri til að æra
óstöðugan að eiga að fara að
nefna dæmi, máli Dropa til
sönnunar, þyrfti alla vega helli-
rigningu til en ekki einn deigan
Dropa. Er þeirri áskorun hér
með komið á framfæri til út-
varðarins í norðri.
Tíminn reynd-
ist forspár
■ Þorsteinn Gíslason, for-
stjóri Coldwater, dótturfyrir-
tækis S.H. í Bandaríkjunum
sagði starfi sínu lausu sl. föstu-
dag, þcgar Ijóst var að hann
hefði orðið undir í átökum
þeim sem áttu sér stað innan
stjórnar Coldwater og S.H.
hvað varðar verðlagningu, en
Þorsteinn var eindregið and-
vígur því að lækka verð á
fimmpunda flökum um 10 cent
pundið, scm jafngildir 6%
verðlækkun, eins og ákveðið
var af nefnd skipaðri stjórnar-
mönnum S.H. og Coldwater, í
kjölfar þess að S.H. barst harð-
ort bréf, þar sem kvartað var
yfir því að Þorsteinn Gíslason
ræki of harða verðstefnu.
Þorsteinn segir í viðtali við
Morgunblaðið sl. laugardag,
er hann er spurður hvort hann
líti á þessa ákvörðun sem van-
traust á sig sem forstjóra? „Það
kann að vcra, að minnsta kosti
fékk ég ekki þann stuðning
gagnvart viðskiptavini okkar,
sem ég taldi mig þurfa.“
Tíminn hafði gerst forspár í
þessu máli, því fyrr í vetur
birtist í Tímanum grein, þar
sem m.a. sagði: „Tíminn hefur
heimildir fyrir því að ákveðnir
samskiptaörðugleikar séu á
milli forystumanna S.H. og
Coldwater, og það svo mildir
að sumir telja að þeir verði
ekki leystir nema með manna-
breytingum.“
Krummi . . .
...hélt sem snöggvast að það
hefði soðið upp úr hjá íhald-
inu...!
Opið virka daga
9-19
Laugardaga 10-16
HEDD
Skemmuveg* 20 Kopavogi
Simar (91)7 75 51 & 7 80 30
Varahlutir
Mikiö úrval
Sendum um land allt
Ábyrgö á óllu
Kaupum nylega
bila til niðurrifs
w
abriel
HÖGGDEYFAR
y QJvarahlutir .SKST'
Helgi vann enn
■ Helgi Ólafsson varð sigur-
vegari í 22. Helgarskákmótinu
sem haldið var á Olafsvík um
helgina og er þetta í 13 sinn sem
Helgi stendur eftir sem sigurveg-
llelgarskákmótinu. Hann
nut 6 Vi vinning af 7 mögu-
. .vguni, gerði jafntefli við Sævar
Bjiirnason í síðustu umferð.
öðru sæti varð sjálfur prínius
‘Wiótor Helgarskákmótanna, Jó-
Ttánn Þórir Jónsson með 6 vinn-
Thga, en þetta er í fyrsta sinn sem
1íjánn er meðal þátttakcnda í
Helgarskákmóti, hingaðtil liefur
hann látið sér nægja að vera
skipuleggjandi. I4 ára skákmað-
'ur úr Reykjavík, Guðmundur
,:Árnason fékk einnig 6 vinninga,
en lægri stigatölu en Jóhann
Þórir, og skaut mörgum þckkt-
um skákmönnum ref fyrir rass.
Næstir komu með 5'/ð vinning
Dan Hansson, Sævar Bjarnason
og Óli Valdimarsson í þeirri
stigaröð sem þeir eru hér taldir
upp. Óli varð jafnframt hæstur
öldunga að vinningum. Næstir
með 5 vinninga þcir Karl Þor-
steins, Hilmar Viggósson og
Tómas Björnsson.
Þctta mót var haldið í minn-
ingu Ottós Árnasonar, sem var
mikill skák- og menningar-
frömuður í Ólafsvík en hann lést
árið 1977. Tímaritið Skák afhenti
minningagjafir um hann til skák-
félags staðarins og skólabóka-
safnsins. Töfl og klukkur og allar
skákbækur sem tímaritið hefur
gefið út og enn eru fáanlegar.
JGK
5AMVINNU
TRYGGINGAR
&ANDVAKA
ARMULA3 SIMI 81411
Helgarskákmótid Ólafsvík:
umferðar-
óhöppum
■ Tvö utnferöaróhöpp urðu
ineð stuttu niillibili á Þingvaila-
stræti á Akurevri á sunnudag.
Fjórir bflar lentu saman í fyrra
skiptiö og tveir i það seinna.
Engin slys urðú á fólki en
talsvcrt cignatjón.
Miklir snjóruöningar eru viö
götuna og um daginn gckk á
með miklum hryðjum þannig
að snjókófið varð mikiö öðru
hvoru. Fyrri áreksturinn varð
vegna þess að kona sem ók
efíir götunni varð að stoppa í
einni hryðjunni þar sem hún sá
ekki fram fyrir bílinn. Skipti
þá engum togum að þrír bílar
komu hver á eftir öðrum og
lentu saman.
Seinni áreksturinn varð rúm-
um tveim timum seinna en
hann varð vegna þess að aðal-
brautarréttur var ekki virtur.
Tímamynd: Sverrir
■ Slökkviliðsmenn bera sig að á eldsstað í Engjaseli.
rttTStjorn8b300- Auglysingar Í8300- Afgreiðsla og askrift 86300 - Kvoldstmar 86387 og 86306
Þriðjudagur 10. janúar 1984
FERSKUR FISKUR I SKIPA-
GAMUM TIL EVRÖPULANDA?
Fyrrverandi forstjóri BUR stofnar útflutningsfyrirtæki med syni sínum
■ „Ég mun fara að starfa núna
við útflutning á sjávarafuröum -
annars vegar hjá eigin fyrirtæki,
sem ég cr að stofna ásamt syni
núnum, Rúnari Björgvinssyni
verkfræðingi og hins vegar hjá
umboðssölu Jóhönnu T. Bjarna-
son,“ sagði Björgvin Guð-
mundsson erTíminn spurði hann
í gær hvað hann myndi nú taka
sér fyrir hendur, en hann hætti
sem framkvæmdastjóri Bæjarút-
gerðar Reykjavíkur nú um ára-
mótin, eins og kunnugt er.
Björgvin sagði að fyrirtækið
sem þeir feðgarnir hefðu
stofnað, héti fslenskur nýfiskur,
og að þeir hygðust fyrst og
fremst flytja út ferskan fisk til
Þýskalands og Frakklands. Hann
sagði að fiskurinn yrði fluttur út
með gámum, í flutningaskipum
Eimskips og Hafskips.
„Ég er búinn að semja við
þrjá aðila í Þýskalandi og Frakk-
landi um kaup á slíkum fiski, en
er nú í viðræðum við útgerðar-
menn hér heima um að fá
fiskinn. Það er kannski ekki svo
létt núna í augnablikinu, þar
sem það er svo vont veðrið, litlar
gæftir og tregur afli."
Björgvin var spurður hvenær
hann gerði sér vonir um að geta
sent út fyrsta gáminn, og sagði
hann að það lægi enn ekki Ijóst
fyrir, því það færi eftir afla-
brögðum og öðru.
-AB
Skemmdir vegna
elds f Engjaseli
— erfitt ad koma slökkvi-
bifreidum ad ádur en nýi
bfllinn kom
■ Slökkviliðið í Reykjavík var
kvatt að húsi við Engjasel á
föstudagskvöldið. Vel gckk að
slökkva eldinn cn skemmdir
urðu þó talsverðar að sögn varð-
stjóra.
Engjasel hefur valdið slökkvi-
liðinu nokkrum áhyggjum þar
sem mjög erfitt er að komast
með slökkvibíla að húsum þar.
Að sögn Hrólfs Jónssonar vara-
slökkvistjóra er þetta vandamál
nú úr sögunni eftir að slökkvilið-
ið fékk nýja bifrcið til umráða en
hún er m.a. búin 90 metra
löngum háþrýstislöngum. Þó er
óhægt um vik ef nota þarf körfu-
bíla. -GSH
Ottó N. Þorláks-
son verður frá
veiðum í þrjár
vikur:
Tjónið nem-
ur 2-3 millj-
ónum króna
■ „Svona lauslega áætlað
ncmur tjónið allt tveiniur til
þremur milljónum króna fyrir
utan það að skipið verður frá
vciðum í um það bil þrjár
vikur,“ sagði Gunnar Sæ-
mundsson, forstöðumaður
tæknideildar Bæjarútgerðar
Reykjavíkur, þegar Tíminn
ræddi við hann um skemmdirn-
ar á Ottó N. Þorlákssyni, sem
eins og greint hefur verið frá
fékk á sig mikinn brotsjó i
vikunni sem leiö.
Gunnar sagði, að nú væri
verið að meta tækjabúnaðinn,
sem orðið hefði fyrir
skemmdum, og Ijóst yrði í
vikunni hvernig það dæmi liti
út. Sýnt væri, að viðgerð á
sjálfri brúnni myndi kosta um
eða yfir hálfa milljón fyrir utan
viðgerðir á tréverki og eftirlit
með viðgerðunum.
Búist er við að viðgerð á
togaranum fari fram hjá Stál-
vík í Garðabæ, en þar var
togarinn smíðaður.
-Sjó
Sex bílar
í tveimur