Tíminn - 12.01.1984, Blaðsíða 16

Tíminn - 12.01.1984, Blaðsíða 16
opið vima aaga a A Varahlutir Laugardaga 10-16 Mikiö Úrval Sendum um land allt HEDDf MBB Ábyrgð á öllu JZZbZL CJ Tj Kíupum ný^aga S,ma, (9117 75 51 * 7 80 30 blla tll niÖUmfS SAMVINNUr^f'l tryggingarLtxJ & ANDVAKA V<VX\\y ARMULA3 SIMI81411 ^^■abriel Míí J ■ HÖGGDEYFAR G fijvarahlutir “óða1U Ritstjorn 86300-Augiysingar 18300- Afgreiðsla og askrift 86300 - Kvöldstmar 86387 og 86306 ^ Fimmtudagur 12. janúar 1984 Kröfur BSRB á fundi með ríkisvaldinu í dag: STRAX 4—5% GRUNNKAUPSHÆKKUN OG 15 MiSUND KR. UGNIARKSLAUN ■ „Við krcfjumst þess í fyrsta verði miðuð að engin laun verði „Við sættum okkur við að og hækkun skattleysismarka við janúar síðastliðnum, sem leiði til unum á þriggja mánaða fresti, ■ „Viö krefjumst þess í fyrsta lagi, að þeim sem lægst hafa launin í okkar röðum verði tryggðar verulegar kjarabætur og þá sem mest í einum áfanga til að vega upp þá gífurlegu kjaraskerðingu sem átt hefur sér stað og komið þyngst niður á þeim. Við viljum að við það verði miöaö að engin laun verði lægri en 15.000 fyrir dagvinnu," sagði Kristján Thorlacius, for- maður BSRB, þegar hann var spurður um þær kröfur sem samninganefnd Bandalagsins fer með á fund hjá ríkissáttasemjara í dag, en fundurinn hefst kl. 17:00 „Við sættum okkur við að liluti kjarabóta að þessu marki felist í breytingum launastigans án þess að til beinnar kauphækk- unar komi. I því sambandi má nefna hröðun uppfærslu milli lægstu launaflokkanna, hækkun barnabótá, tekjutryggingu líf- eyrisþega, neikvæðan tekjuskatt og hækkun skattleysismarka við álagningu tekjuskatts og útsvars," sagði Kristján Hann sagði, að í öðru lagi fælust kröfurnar í því, að tryggja það að kaupmáttarskerðing haldi ekki áfram. „Við byrjum á því að gera kröfur um grunn- kaupshækkanir frá og með 1. janúar síðastliðnum, sem leiði til þess, að kaupmáttur verði ekki minni en hann var í upphafi síðasta ársfjórðungs 1983, sem þýðir á milli 4 og 5% hækkun eftir því sem ég kemst næst.“ Þá sagði Kristján, að krafan væri sú, að sá kaupmáttur yrði tryggður með grunnkaupshækk- unum á þriggja mánaða fresti, en í því sambandi hefðu ekki verið ákveðnar neinar hlutfalls- tölur. „Við köllum þetta grunn- kaupshækkanir því að um þær má semja þótt óheimilt sé að semja um vísitöluhækkanir," sagði Kristján. - Sjó „OKKUR VAR ALDREI BANNAÐ AÐ SEUA V-VICT0RY“ — segir innflytjandinn, sem býst þó við að varan verði útilokuð fyrir áramót. ■ Frá afliendingu vinninga á Símanúmerahappdrætti Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra. Á myndinni eru talið frá vinstri: fulltrúi bifreiðaumboðsins, vinningshafar eða fulltrúar þeirra og fulltrúi Styrktarfélagsins. Happdrætti Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra: Sú sem borgaði mið- ann fékk bifreiðina ■ „Okkur var aldrci bannað aö selja V-Victory. Viö vorum hins vegar beðin að hægja á sölunni meðan Hollustuvcrnd ríkisins athugaði inálið. Nú hef ég fengiö að vita að þessi vara veröur ekki bönnuð í bráð að minnsta kosti en liúast inegi við því að hún ásamt inörgum vörum öðrum verði l'elld undir sérstaka reglugerð scm verið er að undir- húa og sér líklega ekki dagsins Ijós fyrr en í lok ársins,“ sagði Friðrik Sigurhjörnssun, fram- kvæmdastjóri Islcnsk erlenda verslunarfélagsins, í samtali við Tímann. í einu dagblaðanna var nýlcga greint frá því, að Hollustuvérnd ríkisins hefði lagt bann við sölu á_ V-Victory. sem Islcnsk erlenda flytur inn. á þeirri íorsendu að í því séu cfni scm geti verið skaðlcg. í kjölfarið birtist auglýs- ing í öðru dagblaði þar sem sagði, að af gefnu tilefni væri ástæða til að taka fram að sala á V-Victory væri ekki bönnuð á íslandi. „Heilbrigöisnefnd Reykjavík- ursvæðis stöðvaði dreifingu á þessari vöru í bili meðan vcrið var að rannsaka hve mikið hún innihéldi af chlorofrom og eter. Hún var aldrei innkölluð í búð- um og þar af leiðandi er ekki hægt að segja að sala á henni ltafi vcrið bönnuð," sagði Þórhallur Halldórsson forstöðumaður heil- brigðisnefndar Hollustuverndar, í samtali við Tímann. Hann sagði, að í um eitt ár hefði verið í undirbúningi gerð nýs aukacfnalista, og í drögum sem fyrir lægju, væri ckki gert ráð fyrir að cfni, scm V-Victory inniheldur, ásamt fleiri sælgætis- tegundum á markaðnum, yröu leyfð hér á landi. „Þegar þessi nýi listi tekur gildi, vonandi á þessu ári, verða þessar sælgætis- tcgundir bannaðar," sagði Þór- hallur. Þórhallur var spurður hvort citthvað hefði borið á því, að unglingar hefðu neytt þessa sælg- ætis í þeim tilgangi að komast í vímu. Hann sagðist ekki vita til þess, enda þyrfti að innbyrða reiðinnar býsn af þessu til þess að komast í vímuástand. -Sjó. ■ Vinningar til þeirra sem þeg- ar hafa geflð sig fram í símnúm- erahappdrætti Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra voru aflient- ir á þriðjudag, en vinningar voru Fíat Uno bifreiðar. Eins og komið hcfur fram í Tímanum kom upp deila um einn vinninginn milli eiganda símanúmersins sem dregið var út og konu sem hafði afnot af þeim af þeim síma og borgaði af honum öll gjöld, þar á meðal happdrættismiðann. Að sögn Sigurðar Magnússonar fram- kvæmdastjóra Styrktarfélagsins leitaði félagið til Guðmundar Ingva Sigurðssonar hæstaréttar- lögmanns sem kynnti sér öll gögn í málinu. Samkvæmt hans áliti úrskurðaði Styrktarfélagið að konan sem borgaði miðann skyldi hljóta vinninginn. - GSH Upplýsingarit um símanúmer á Akureyri veldur vandræðum: Símanúmer hjá skóla og versl- un skráð hjá einstaklingum ■ „Það eru sifellt að koma fram fleiri villur í þessu upplýs- ingariti; við höfum m.a. fengið kvörtun frá manni hér sem númer í skóla hér í bænuin hefur verið skráð hjá og hann er sífellt að fá upphringingar frá foreldrum, annar maður er með númer á verslun og hefur fengið af því mikið ónæði", sagði Gísli Eyland símstöðvar- stjóri á Akureyri þegar hann var spuröur um tilefni auglýs- ingar í Akureyrarblöðum, sem stöðvarstjóri undirritar. í auglýsingunni eru símnot- endur á Akurcyri beðnir um að nota Símaskrána en ekki Upplýsingarit um Akureyri sem gefið var út á síðastliðnu ári, vcgna síendurtekinna kvartana. Gísli sagði að þó Símaskráin hefði verið notuð til grundvall- ar upplýsingaritsins virtist hún hafa verið prentuð eftir vélrit- uðu handriti og þá hefðu kom- ið fram ýmsar villur, sérstak- lega væri víxiað. Upplýsinga- skráin var á sínum tíma kærð til bæjarfógeta en Gísli sagði að sú kæra virtist hafa dagað uppi hjá dónismálaráðuneyt- inu. - GSH dropar Af ánægjulegri og hollri hreyf- ingu rúminu!! ■ „Við sem ekki iðkum aörar iþróttir cn þær að lilusta á Jónínu í morgunleikflmi og Hemma Gunn, ásamt því að horfa stundum á Bjarna Fel og Ingóif, eigum erfitt með að skilja hvað rekur mcnn til keppni í íþróttum", scgir Dag- fari í sínum daglega pistli í DV í gær, en þar lýsir arftaki Svarthöföa viðhorfum sínum til keppnisíþróttamanna, ekki síst lyftingamanna. En hvernig vill þá Dagfari aö staðið verði að íþróttaiökun hérlendis? „Mættum við pappírspúkar þá frcmur biðja um hina lokkandi rödd Jónínu í útvarpinu á morgnana. Sagt er aö hún örvi marga til aö grípa í það sem hendi er næst þcgar fólk er í svefnrofunum og taka nokkrar léttar inorgun- sveiflur. Næst þá holl og ánægjuleg hrcyfing þótt ekki fylgi mikið öskur þá lyftingunni er náð“. Kratar hræðast Ólaf Ragnar ■ Tímahær eða ótímabær umræða um hugsanleg for- mannaskipti á Alþýðuflokkn- um eftir því hvernig mcnn líta á þau mál, licfur magnað upp óvæntan draug í herbúðum krata eftir því sem Dropar komast næst. Þannig er ekki nóg að þcir berist sjálfir á banaspjótum, heldur óttast þeir ekki síöur að landsfrægir flokkaflakkarar hugsi sér til hreyfings í Ijósi nýrrar stöðu mála. Er Ólafur Ragnar Grímsson uppgjafa þingmaður Alþýöubandalagsins í Reykja- vík helst nefndur til sögunnar, og segir sagan að kratar óttist hann meira en Kjartan sjálfan. Krummi.. . .. vonar bara að það verði ekkert ORG út af formannin- um.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.