Tíminn - 12.01.1984, Blaðsíða 7

Tíminn - 12.01.1984, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR 12. JANÚAR 1984 17 Gerður Steinþórsdóttir, borgarfulltrúi: verði lokið við hönnun þessa skóla. Verði við það miðað að hægt verði að bjóða verkið út síðari hluta árs 1984 og hægt að hefja þar kennslu haustið 1985. Smjörþefinn af frestuninni fékk fræðsluráð að finna á fundi 28. nóv. þegar lagðar voru fram upplýsingar um skólamannvirki. Þar segir um Vestur- bæjarskólann: „Ákveðið hefur verið að byggja nýjan barnaskóla á lóð við Vest- urvallagötu þar sem nú er gæsluvöllur og sparkvöllur. Hönnun þessarar byggingar er hafin en ýmis vandkvæði varðandi lóðina eru enn óleyst t.d. hvað gert verður við þá leikvelli er þar eru nú. Má því ætla að framkvæmdir geti ekki hafist þarna fyrr en á árinu 1985 í fyrsta lagi.“ Svo mörg voru þau orð. Hvílík rök og hvflíkt kattarklór! Skömmu síðar eða 12. des. lagði formaður ráðsins fram bókun um fram- kvæmdir við skólabyggingar. Það sem vekur mesta athygli er að skóli í Grafar- vogi er orðinn forgangsverkefni, en þar á að vera hægt að hefja kennslu árið 1985, á meðan Vesturbæjarskóla hefur verið skipað aftur fyrir. Slíkt er óskiljan- legt og lýsir furðulegri skammsýni. í bókun formanns kom fram að skólasókn nemenda úr Áttúnsholti og S-Selási og af Eiðsgranda yrði leyst með akstri fyrst um sinn og ætla mætti að slíkt hið sama mætti gera úr Grafarvogi, á meðan brýnni verkefni bíða. En vitanlega bygg- ist afstaða sjálfstæðismanna á klókind- um. Það má ekki spyrjast að börnin í Grafarvogi muni líða menntunarskort og mikið er í húfi að laða menn til búsetu í Grafarvogi. Starfsemi Vesturbæjar- skóla fer fram á fjórum stöðum. Þetta er lítill skóli en börnunum fjölgar frá ári til árs og skólinn alltof þröngur. í fræðslu- ráði er búið að taka prinsipákvarðanir um skólabygginguna og unnið er að hönnun hans. Við borgarfulltrúar Framsóknar- flokksins teljum óverjandi að fresta framkvæmdum svo lengi sem meirihlut- inn hefur í hyggju og berum því upp þessa tillögu nú, og varið verði til skólans 2 milljón kr. á þessu ári. Þá liggur fyrir breytingatillaga þess ■ Hér fer á eftir meginhluti ræðu sem Gerður Steinþórsdóttir borgarfulltrúi Framsóknarflokksins i Reykjavík flutti við aðra umræðu um fjárhagsáætlun borgarinnar: Á síðasta fundi borgarstjórnar lýsti Kristján Benediktsson borgarfulltrúi helstu einkennum þeirrar fjárhagsáætl- unar sem hér liggur fyrir til afgreiðslu. I ræðu hans kom fram að engin rök væru fyrir svo hóflausri skattheimtu sem áætl- uð er í þessari fjárhagsáætlun og taldi borgarfulltrúinn hana hreina óskamm- feilni. Eins og borgarfulltrúum er kunnugt er áætlað að meðaltekjur fólks hækki um 20% á milli áranna 1983 og 84. Á sama tíma ætlar meirihluti borgarstjórnar að fá í borgarsjóð tekjur sem samsvara 42% hækkun og vega útsvarstekjurnar þyngst. Áætluð rekstrargjöld eru þó ekki meiri en 22.6%. En hér er ekki látið staðar numið. Næstum allar gjaldskrár þjónustufyrir- tækja eiga að hækka stórlega: Vatnsveit- an um 57%, Hitaveitan um 82%, SVR um 27% og standa undir 85% rekstrar. Gjaldskrár hækka langt umfram tekjur, má nefna gjöld í sund, í skíðalyftur, bókaskírteini Borgarbókasafns. Alls staðar er boginn spenntur til hins ýtrasta í gjaldtöku. Fróðlegt er að sjá hvernig málgagn Sjálfstæðisflokksins kynnir þessa skatt- píningu. Daginn eftir síðasta borgar- stjórnarfund þann 16. des. birtist frétt á baksíðu Mbl. með stórri fyrirsögn: Drögum saman tekjustofna eins og hægt er. Hér er um öfugmæli að ræða. En áróðurinn er fólginn í því að slá ryki í augu fólks með því að benda á það að útsvarsprósentan lækki úr 11.88% í 11%. Þetta þýðir í raun 47% hækkun á milli ára, þegar meðaltekjur hækka um 20%. Fjármálaráðherra orðaði blekk- inguna á eftirfarandi hátt: „Skattarnir hækka ekki, fólk er bara lengur að vinna fyrir þeim“ Framsókn vill 10% útsvarsprósentu Við borgarfulltrúar Framsóknar- flokksins viljum lækka útsvarsprósent- una í 10%, sem þýðir í raun 31% hækkun á milli ára og 110 milljónir króna minna í borgarsjóð, sem þó er 220 m. kr. umfram status-qvo. Hér er ekki spurning um að halda í horfinu heldur hversu mikla hækkun útsvars borgarfull- trúar telja forsvaranlega. Til að mæta þessum mismun gerum við tillögu um að afborganir lána dreifist á lengri tíma, í stað 220 m. kr. í afborganir verði greiddar 110 milljónir og er það þó ærið. Ekki get ég látið hjá líða að gera að umræðuefni efnisgrein í fyrrnefndri frétt í Mbl. 16. des. Þar segir orðrétt: „í gjöldum vega félagsmálin þyngst, en í þau er ætlað að verja liðlega 615.8 m. kr. en það er liðlega 59% hækkun frá frumvarpi fyrra árs“. Af þessu mætti ráða að núverandi meirihluti væri sérstaklega félagslega sinnaður. Þegar betur er að gáð er það í hófi. Framlag borgarsjóðs til Sjúkrasamlags Rvíkur er bundið og áætlað 233.7 m. kr. á þessu ári - í raun er þetta heilbrigðismál - og síðan er framlag til sjóða eins og Bjargræðis- sjóðs, Atvinnutryggingasjóðs og fast- eignalánasjóðs um 64 milljónir. Raun- verulegar hækkanir til félagsmála í borg- inni eru á bilinu 20-25%. Við afgreiðslu síðustu fjárhagsáætlun- ar sagði borgarstjóri vígreifur að nú yrði blásið til sóknar eftir langt kyrrstöðu- tímabil. Þá var allt lagt undir í Grafar- vogsævintýrið, en skorið niður við trog fjármagn til framkvæmda á sviði félags- mála. Núna verða borgarbúar að súpa seyðið af ævintýramennskunni með meiri skattheimtu og hærri þjónustu- gjöldum, sem fer upp í greiðslu skulda: nærri þriðja hver króna sem aflað er fer í afborganir og vexti. Áhugaleysi á Skíðaskálanum Eins og fram kom í ræðu borgarstjóra 15. des. verður ekki varið krónu til Skíðaskálans í Hvcradölum. Gerður hefur verið kaupleigusamningur við Veislumiðstöðina Vf til 5 ára. Vegna andstöðu minnihlutans við upphafleg samningsdrög hefur honum verið breytt þannig að borgin getur að leigutíma liðnum ákveðið hvort hún vill halda skálanum eða selja hann, en í fyrri drögum gat leigutaki tekið þessa ákvörð- un. Þetta er vissulega til bóta. Samning- urinn ber þó vott um áhugaleysi borgar- yfirvalda á Skíðaskálnum í Hveradölum á sama tíma og varið er miklu fjármagni til kaupa á enn einni stólalyftu í Bláfjöll- in. Er það von mín að afstaða borgaryf- irvalda eigi eftir að breytast á þessum 5 árum sem framundan eru, og augu þeirra opnist fyrir hinum stórkostlegu möguleikum tií útivistar, öryggishlut- verki skálans og menningarlegu gildi hans. Kattarklór meirihlutans Ég mun nú. gera grein fyrir flestum þeim breytingartillögum sem við borg- arfulltrúar Framsóknarflokksins flytjum við þessa fjárhagsáætlun. Fyrst skal nefna tværtillögur: aðra um nýjan Vesturbæjarskóla, hina sem varðar átak til endurbóta og viðhalds húsa í borginni og stuðla að betri nýtingu þeirra og minni hitunarkostnaði. Fyrri tillagan hljóðar svo m.I.f.: Borgarstjórn telur með öllu ófært að byggingarframkvæmdum við nýjan skóla í Vesturbæ skuli eiga að fresta til ársins 1986 sem í reynd þýðir að þar gæti hafist kennsla haustið 1988. Samþykkir borgarstjórn að sem fyrst ■ Fundur í borgarstjórn Reykjavíkur. efnis að næsta sumar verði byggt svokall- að hús númer 7 við Seljaskóla. Seljaskóli er núna stærsti grunnskóli borgarinnar með rúmlega 1200 nemendur. Er meðal- fjöldi í bekkjardeild sá langhæsti í grunnskólum borgarinnar. Þrengsli hafa valdið því að nemendur hafa ekki fengið lögbundna sérkennslu. Nú ætlar meiri- hlutinn enn að fresta byggingu hússins og leysa vandann á næsta ári með því að færa 4 stofur frá Hólabrekkuskóla, sem fyllir að mestu allt leiksvæði barnanna. Slíkur flutningur til eins árs er dýr, áætlaður 1.4 milljónir kr. Bygging húss 7 er hins vegar áætlaður 17 milljónir, en ríkið greiðir strax helming, þannig að hlutur borgarinnar verður 8.5 m. Hér er gerð tiliaga um 8 milljónir, þar sem nýta má flutningskostnað sem þegar er inni á fjárhagsáætlun til framkvæmda. Talið er að fá megi sex kennslustofur í húsi 7 og hægt er að byggja það á einu sumri. Hér er skorað á borgaryfirvöld að samþykkja þessa tillögu. Fjandskapast út í bækur Þá er hér gerð tillaga um hækkun til skólabókasafna um kr. 400 þús. Núver- andi meirihluti virðist fjandskapast út í bækur af einhverri óskiljanlegri ástæðu. Nú er það svo að skólasöfnin eru talin meginhjálpartækið í skólakerfinu. Vegna mikils niðurskurðar á síðustu fjárhagsáætlun var farið fram á viðbót- arfjárveitingu vegna neyðarástands og fékkst hluti hennar. í þessari fjárhags- áætlun er aftur beitt hnífnum. Skóla- safnafulltrúi segir í greinargerð til fræðsluráðs „tillögur fyrir árið 1983 voru lækkaðar skv. einhverri aðferð sem eng- in skýring hefur fengist á. Undirrituð fer vinsamlegast fram á að fá einhverja greinargerð um þann niðurskurð sem brenglaði allnokkuð grundvallarviðmið- unum við útreikning á tillögunum fyrir hvert safn.“ Þá tekur fulltrúinn dæmi um handahófsniðurskurð. Beðið var um 57 þús. til Vesturbæjarskóla en 10 þús. fengust. Beðið var um 44 þús. til Breiða- gerðisskóla og fengust 35 þús. Fyrra 4 ^ J;|p ■ Gerður Steinþórsdóttir safnið var hins vegar í uppbyggingu og þurfti því meira fjármagn. Þá gerum við borgarfulltrúar Fram- sóknarflokksins tillögu um fjárveitingu til safnferða nemenda í grunnskólum kr. 207.900. Fræðsluráð samþykkti í haust að láta vinna áætlun um slíkar ferðir og kostnað við þær. Óþarft er að fjölyrða um það menningargildi að börn kynnast því ung að sækja söfn og sýningar. Áætlunin liggur fyrir og miðast hún við það að nemendur í grunnskólum borgar- innar hafi heimsótt öll söfn í borginni a.m.k. einu sinni en sum oftar eins og t.d. Þjóðminjasafnið. Er miðað við að ein skipulögð safnferð verði í boði á ári í tengslum við námsefni. Nauðsynlegt er að kennarar geti farið með nemendur í rútu sé um nokkra vegalengd að ræða því að erfitt er og tímafrekt að fara með strætisvagni óg raskar það óeðlilega mikið kennsluskrá. Af einhverri ástæðu náðist ekki að afgreiða þessa tillögu í fræðsluráði og er hún hér komin til afgreiðslu borgarstjórnar. Þá eru hér tvær tillögur um styrkja- hækkanir til kennara: til framhaldsnáms kennara í 200 þús. í stað 171.600 kr. og til námskeiða kennara úr 40 þús. í 60 þús. Mikilvægt er að kennarar geti sótt námskeið til að afla sér viðbótar- menntunar og örvunar og fái til þess nokkurn styrk. Gerðertillaga um hækk- un styrks til Myndlistarskólans úr 710 þús. í 900 þús. Tillögur skólans hafa verið hófsamar en borgin greiðir þriðj- ung rekstrarkostnaðar. Fyrri hluti B0GINN SPENNTUR TlL fTRASTA í GJALDTÖKU

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.