Tíminn - 12.01.1984, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 12. JANÚAR 19M
3
fréttir
Laxeldistödin Laugalax við Apavatn:
FREKARI RANNSÚKNIR A MENG-
UNARHÆTTU ERU NAUÐSYNLEGAR
■ Hollustuvernd ríkisins- mengunarvarnir hefur sent heilbrigðisráði Laugardals-
hrepps, Náttúruverndarráði og aðstandendum Laugalax hf. umsögn sína um
mengunarhættu af völdum frárcnnslis frá laxeldisstöð þeirri sem ráðgerð er við
Apavatn, og hefur hlotið nafnið Laugalax hf. Þar kemur m.a. fram að Hollustuvernd
telur nauðsynlegt að frekari rannsóknir fari fram varðandi mengunarhættu, og er
meginorsök þess, að sögn Ólafs Péturssonar, forstöðumanns Mengunarvarna sú, að
hrcinsibúnaður sá sem I.augalax hf. hyggst nota við laxeldistöðina er ekki staðlaður,
þannig að útilokað sé á þessu stigi að segja til um nákvæma mengunarhættu. Þar að
auki, sagði Ólafur að ekki lægju fyrir upplýsingar um umhverfi stöðvarinnar, þannig
að Hollustuverndin mælti því með að ýmsar mælingar yrðu frantkvæmdar áður en
endanlegt starfsleyfi yrði gefið stöðinni. Sagðist Ólafur telja eðlilegt að laxeldisstöðin
sjálf kostaði slíkar rannsóknir, og að þær yrðu framkvæmdar í samráði við
Náttúruverndarráð.Ólafur taldi að slík athugun mvndi taka um einn mánuð. í sama
streng tók Jón Gauti Jónsson, framkvæmdastjóri Náttúruverndarráðs í samtali við
Tímann í gær, því hann sagði m.a.: „Við geruni okkur vonir umn að geta náð
samkomulagi við þá Laugalaxmenn, að þeir láti framkvæma þá könnun sem
Hollustuverndin mælir með. Það er ekkert hægt að segja til um næsta skref okkar i
málinu, fyrr en niðurstöður þeirrar könnunar liggja fyrir.“
Tegund mengunar
SS (fastaragnir)
BOD, COD
Fosfór
Köfnunarefni
Vatnsnotkun
Persónueiningar
250-300
800-1000
225-325
350—450
22.000
„Ekki hægt að fullyrða
neitt á þessu stigi“
í umsögn Hollustuverndar ríkisins
segir m.a: „Við seiðaeldisstöð Laugalax
hf er gert ráð fyrir mengunarvarnabún-
aði til að hreinsa fastar agnir (SS) úr
frárennslinu. Búnaðurinn samanstendur
af setþró og sandsíu. Um leið og fastar
agnir eru fjarlægðar úr frárennslinu,
minnkar einnig styrkur lífrænnar meng-
unar svo ög að líkindum köfnunarefnis-
sambönd í sama mæli.
Líklegt er að fosfór- næringarsölt
minnki ekki og geti jafnvel vaxið vegna
niðurbrots úrgangsins, sem mengunar-
varnarbúnaðurinn skilur frá frárennslis-
straumnum.
Þar sem ekki cr um staðlaðan búnað
að ræða, er engan veginn hægt að
fullyrða neitt um það á þessu stigi, hve
vel hreinsibúnaðurinn muni virka.“
Síðar segir: „Upplýsingar vantar um
það, með hverjum hætti fyrirhugað er að
hreinsa botnfallið, sem safnast í set-
þróna, en mjög mikilvægt er til þess að
ekki verði mikið niðurbrot, að fjarlægja
það reglulega og farga á viðunandi hátt.“
í skýrslu mengunarvarna kemur jafn-
framt fram að starfsmenn mengunar-
varna telja það ekki í sínum verkahring
að meta hættuna á sjúkdómum af völd-
um baktería sem hugsanlega geta verið
í frárennslinu. Slík hætta geti ávallt
verið til staðar og mikilvægt sé að halda
henni í lágmarki.
„Gífurleg áhrif á
allt samfélag lífvera“
Mælikvarði sá sem notaður er á
mengun af völdum lífrænna efna, er að
því er fram kemur í skýrslunni BOD
(biological oxygen demand) og COD
(chemical oxygen demand) BOD gefur
til kynna lífræna niengun sem eyðist
auðveldlega fyrir áhrif lífvera: Þar um
segir m.a. í skýrslunni: Við starf sitt nota
lífverurnar súrefni. þannig að á uppleyst-
an súrefnisforða vatnsins gcngur, ef
endurnýjun er ckki í sama mæli. Af-
leiðingin getur orðið súrefnisþurrð, sem
hefur gífurleg áhrif á allt samfélag Iffyera
á viðkomandi svæði."
Síðar segir: „Magn mengunarefnanna
eitt út af fyrir sig segir ekki mikið um
hvaða mengunar muni gæta í umhverf-
inu. Miklu frekar segir væntanlegur
styrkur mengunarefnanna eftir að út í
umhverfið er komið hvaða áhrifa megi
vænta.“
„Getur verið til bóta
ef vatnið er snautt“
í lokaorðum skýrslu mengunarvarna
Hollustuverndar ríkisins segir m.a.
„Þegar lífræn mengun og næringarsölt
eru leidd út í vatn, er það mjög háð
aðstæðum hver áhrifin verða. Jafnvel
getur það verið til bóta, ef vatnið er
snautt. (Það er Apavatn alls ekki -
innskot blm.) Sá þáttur, sem miklu máli
skiptir, er þynning mengunarefnanna og
þann þátt getum við nokkurn veginn
áætlað, ... miðað við enga hreinsun.
Það er ljóst að vatn mengast nokkuð
við að fara í gegnum seiðaeldisstöð, og
þar sem vatnsmagn er mjög mikið,
verður magn mengunarefna að sama
skapi mikið.
I óhreinsuðu frárennsli frá Laugalax
hf. má búast við, að mengunin samsvari
þeim fjölda persónueininga, sem fram
koma í töflu hér á eftir, þegar mest er.
Hollustuvernd ríkisins - mengunar-
varnir telja því. að mikið sé undir því
kontið, að merígunarvarnabúnaður hjá
Laugalaxi hf. virki vel."
Auk þcsssegir þar að mcngunarvarn-
ir telji, að því tilskildu að mengunar-
varnabúnaðurinn virki vel, sé ckki lík-
legt að áhrif frárcnnslis vcrði teljandi,
þar sem þynning í umhverfinu verði
talsverð. Mjög erfitt sé þó að fullyrða
umslíkt, rnest vegna þcss.aðsúmcngun,
sem frá stöðinni fari, sé viðbót við sams
konar mengun sem fyrir sé í Apavatni,
og engar upplýsingar séu til um, hve
mikil hún sé.
Mengunarvarnir leggja því til, að sem
fyrst verði gerð mæling á Apavatni og
aðrcnnsli þcss, og vilja að cftirfarandi
þættir verði mældir: BOD og COD. SS,
súrefni. hitastig. sýrustig. ammóníum-
jónir, fosfat og nitrat.
Þá er einnig lagt til að virkni mengun-
arvarnabúnaðar stöðvarinnar, svo og
eyðing í frárennslisskurði, verði mæld í
a.m.k. citt ár eftir að stöðin tekur til
starfa, þar sem styrkur mengunarcfna í
frárennsli sé mismunandi eftir árstíma.
Niðurlagsorð skýrslunnar eru þcssi:
„Að fengnum niðustöðum þessara at-
hugana, er hægt með meiri vissu að
meta, hve mikil áhrif mengunarefni í
frárennsli stöðvarinnar muni hafa á
vatnsgæði í Apavatni og þá jafnframt
gera ráðstafanir í tæka tíð til að draga
enn frekar úr styrk þcirra. cn nú er
áætlað, rcynist þess þörf.
Eins og greint hefur verið frá í
Tímanum og víðar, þá stefndu þeir
Laugalaxmenn að því að rekstur seiða-
eldisstöðvarinnar gæti hafist nú strax
upp úr áramótum, cn greinilega vcrður
einhvcr dráttur þar á, því Náttúruvernd-
arráð hefur komist að niðurstöðu sem
mjög er í anda þeirrar scm Hollustu-
vernd hcfur sent frá sér - þ.e.a.s. að
nánari athuganir þurfi að fara fram, áður
cn hægt er að gefa cndanlcga umsögn.
Jón Gauti Jónsson, framkvæmdastjóri
Náttúruverndarráðs, sagði í samtali við
Tímann í gær: „Við vorum búnir að
mynda okkur ákvcðna skoðun á þessu
máli, sem mjög cr í anda þcirrar greina-
gerðar sem við höfum nú fcngið frá
Hollustuverndinni. Við gcrum okkur
vonir um að við gctuni náð því sam-
komulagi við þá Laugalaxmenn, að þeir
láti framkvæma þá könnun sem Holl-
ustuvcrndin mælir með. Það er ekkcrt
hægt að segja til um næsta skref í málinu,
hvað okkur varðar, fyrr en niðurstöður
þeirrar könnunar liggja fyrir."
- AB
Bandalag jafnaðarmanna eins árs
■ „Úrræði ríkisstjórnarinnar í efna-
hagsmálum hafa eingöngu birst sem
kjaraskerðing láglaunafólks," sagði
Guðmundur Einarsson alþingismaður
Bandalags jafnaðarmanna m.a. á fundi
sem Bandalag jafnaðarmanna boðaði til
með fréttamönnum, í tilefni þess að nú
er um eitt ár liðiö frá því Bandalag
jafnaðarmanna var stofnað.
Guðmundur rakti árs sögur BJ, hver
hefðu verið heistu baráttumál þess þetta
ár, hver yrðu baráttumál þess í náinni
framtíð, og auk þess gerði hann grein
fyrir hvaða augum BJ lítur á störf
ríkisstjórnarinnar og stjórnarflokkanna,
frá því þing kom saman í haust.
Hann sagði að svarta skýrslan frá því
í haust, hefði verið ákveðið tilefni sem
hefði verið notað til þess að fara ofan í
kjölinn á sjávarútvegsmálum, en það
hefði \d)Súlega verið brýn þörf á því.
Hins vegar gagnrýndi hann hvernig
kvótafrumvarpið hefði verið afgreitt á
þingi, fyrir jól, og sagði að þótt það hefði
verið samþykkt, þá hefði það siðferði-
lega verið fellt, vegna andstöðu ákveð-
inna stjórnarþingmanna.
Þegar Guðmundur ræddi aðskilnað
löggjafarvalds og framkvæmdavalds,
sem hefur eins og kunnugt er, verið
helsta baráttumál Bandalagsins, sagði
hann m.a. „Ótrúleg uppákoma Fram-
sóknarflokksins í sambandi við banka-
stjóraembættisveitingu nú fyrir jólin
sannaði svo ekki verður um villst að við
höfum rétt fyrir okkur í þessu efni.
Framsóknarmenn létu dag eflir dag frá
sér fara yfirlýsingar sem voru með slík-
um endemum að við hefðum aldrei
getað diktað slíkt upp.“
Guðmundur rakti einnig þau áhrif
sem hann taldi að Bandalag jafnaðar-
manna hefði haft á pólitíska umræðu,
liðið ár, og sagði nærtækasta dæmið vera
umræðu þá um stjórnarkerfi og siðferði
þess sem væri orðin allalmenn. Auk þess
benti hann á að aðskilnaður löggjafar-
valds og framkvæmdavalds væri nú
orðið nokkuð sem menn ræddu og væru
margir jákvæðir fyrir, en fæstir hefðu
haft hugmynd um slíkap möguleika fyrir
stofnun bandalagsins.
Fram kom á fundinum að BJ menn
eru í grófum dráttum ánægðir með þetta
fyrsta starfsár sitt, en tclja þó að ekki
verði lengi hjá því komist að BJ eignist
sitt eigið málgagn. Aðspurðir um gagnrýni
sem fram hefði komiðástjórnarandstöð-
una á þessu hausti, þess efnis að hún væri
með því máttlausasta sem sést hefði,
svöruðu BJ menn að þessi ríkisstjórn
sem nú situr hefði ekki gefið mörg tilefni
til málefnalegrar umræðu á þingi, þannig
að stjórnarandstaðan hefði ekkú haft
verðug verkefni til þess að sýna styrkleík
sinn, sem þó tvímælalaust væri fyrir
hendi.
- AB
■ Nokkrir BJ-menn við eins árs afmæliskökuna - takið eftir kertinu cina. Frá
vinstri, Kolbrún Jónsdóttir, alþingismaður, Kristín Kvaran, alþingismaður, Lára
Hanna Einarsdóttir, Ragnheiður Olafsdóttir, Guðmundur Einarsson alþingismaöur,
Stefán Benediktssqjpfflþingismaður og Karl Birgisson.
Tímamynd Róbert
1 i :ramhaldsstofnfundur 1
1 Framhaldsstofnfundur 1 veröur haldinn á Hótel Sögi I Gengið veröui ' útgáfufélagsins Nútíminn h.f. 1 j fimmtudaginn 12. janúar kl. 20.30. 1 r frá stofnun félagsins. 1
Undirbúníngsnefnd