Tíminn - 18.02.1984, Síða 2
LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 1984
2
Wímm
fréttir
Bankamálanef nd skilar áliti sínu væntanlega í dag:
ÚTVEGSSANKINN SELDUR OG
VEXT1R GEFNIR FRtóLSIR?
■ Samkvæmt heimildum Tím-
ans þá mun talsverður ágreining-
ur hafa verið í bankamálanefnd-
inni sem unniö hefur ötullega að
tillögum um endurskipulagningu
bankakeriísins undanfarna
mánuði, og mun að líkindum
skila bankamálaráðherra Matth-
íasi Á JVlathiesen tillögum sínum
í dag. Tíminn hefur fregnað að
meðal athyglisverðustu tillagn-
anna í tillögum nefndarinnar séu
annars vegar tillaga unt fækkun
ríkisbankanna, en ætlunin mun
vera að fækkunin komist í fram-
kvæmd með þeim hætti að Út-
vegsbankinn verði seldur Iðnað-
arbanka og Versiunarbanka, og
hins vegar að bankar verði sjálf-
ráðir um vaxtaákvarðanir sínar
hér eftir, en um hvorugt þessara
atriða mun vera samkomulag í
nefndinni.
Upp hafa komið mismunandi
tillögur innan nefndarinnar um
það með hvaða hætti hægt sé að
fækka ríkisbönkunum, og hefur
verið rætt þar að sameina þá í
tvo banka, en aðrir hafa viljað
selja Útvegsbankann yfir til Iðn-
aðarbanka og Verslunarbanka,
en Tíminn hefur heimildir fyrir
því að framsóknarmenn telji þá
leið ófæra, því þeir efist um að
aðrir bankar vilji kaupa Útvegs-
bankann, því þessi banki hafi
séð um að útvega undirstöðuat-
vinnuvegum landsins rekstrar-
fjármagn, og ef hann verði seldur
öðrum bönkum, þá sé fyrirsjáan-
legt að framleiðslugreinamar
verði sveltar, hvað varðar lána-
fyrirgreiðslur, en slíkt geti haft
ófyrirsjáanlegar afleiðingar.
Nefndin hefur mikið fjallað um
það hvernig vaxtaákvarðanir í
framtíðinni verða teknar. Hafa
sjálfstæðismennirnir lagt til að
vaxtaákvarðanir verði gefnar
frjálsar, eins og tíðkast víðast
hvar erlendis, en framsóknar-
menn segja hins vegar að slíkt
frjálsræði sé ekki tímabært nú,
því það myndi að þeirra mati
hafa það í för með sér að vextir
væru um 20 prósentum hærri en
þeir eru, og verðbólgustigið um
30%. Meta framsóknarmenn
þetta út frá þeim skuldabréfum
sem seld eru nú á frjálsum mark-
aði.
Er taliö líklegt að tillögur
bankanefndarinnar um vaxta-
ákvarðanir verði í þá veru að
draga úr vaxtamuni innláns og
útláns en hér er hann í kringum
9 til 10 prósentustig, en sam-
kvæmt því sem tíðkast í löndun-
um í kringum okkur, þá er hann
á milli 4 og 5 prósentustig.
Bankamálanefndin mun því
reyna að gera tillögur um strúk-
trúrbreytingar, þannig að banka-
reksturinn verði hagkvæmari en
hann er í dag, en þar mun
mikillar mótstöðu gæta hjá
bönkunum.
-AB
Tvö innbrot
í fyrrinótt:
HAGLA-
BYSSUOG
HÖGLUM
VARSTOLIÐ
— öllu tóbaki
stolið úr Gosa
■ Tvö innbrot voru framin í
fyrrinótt. Úr versluninni Vest-
urröst á Laugavegi 178 var
stolið einni Winchester hagla-
byssu, 12 cal. þriggja skota
sjálfvirkri. Ennfremurvarstol-
ið úr versluninni 25 hagla-
skotum Ely nr. 4.
Annað innbrot var í verslun-
ina Gosa en úrhenni hreinsaði
þjófurinn allt tóbak. Ekki er
vitað nákvæmlega hve mikið
magn var um að ræða en Ijóst
að það er töluvert. -KRl
GENGURBHM
AB 4% KAUP-
TILBOEHNU?
■ Líklegt má telja að BHM
muni ganga að tilboði ríkisvalds-
ins um kauphækkanir upp á um
4%, samkvæmt heimildum
Tímans. Að minnsta kosti munu
samninganefndarmenn hafa ver-
ið svo ákveðnir í því að semja
upp á þessi kjör, að þeir kynntu
samkomulagsdrögin á ákveðn-
um vinnustöðum BHM-manna í
gær, og mæltu með því að þau
yrðu samþykkt.
Tíminn hefur helmildir fyrir
því, að meðal ástæðna fyrir því
að launamálanefnd vilji ganga
að þessu tilboði ríkisvaldsins, sé
sú viljayfirlýsing að ný kjara-
nefnd verði fengin til þess að
leiðrétta kjör kennara innan
BHM, sem verulega hafa dregist
aftur úr kjörum annarra félags-
mannaBHM síðustu ár. Oghef-
ur þessi nýja kjaranefnd sam-
kvæmt heimildum Tímans nú
þegar verið samþykkt af yfir-
völdum fjármálaráðuneytisins.
-AB
Samningafundi frestað í áldeilunni:
STARFSMÖNNUM BODIN SAMA
KAUPHÆKKUN 0G ASÍ SEMUR UM
■ Samningafundi í kjaradeil-
unni í álverinu, sem halda átti í
gær, var frestað til mánudags-
morguns nema annarhvor aðili
eða sáttasemjari óski fundar fyrr.
Tilboð deiluaðila um grunn-
kaupshækkanir hafa því enn ekki
verið rædd en eins og áður hefur
komið fram í blaðinu virðast
sáttanefndirnar halda að sér
höndum þar til ljóst er hvert
stefnir í samningum ASI og VSÍ.
Eins og komið hefur fram bauð
framkvæmdastjórn ÍSAL 3%
grunnkaupshækkun en starfs-
mennirnir lögðu fram kröfu um
7,5%. Samkvæmt heimildum
Tímans fólst það í tilboði ÍSALað
kaupið yrði síðan endurskoðað til
samræmis við almenna samninga
eigi síðar en mánuði eftir að þeir
næðust. Samningstíminn var til-
greindur til 1. janúar 1985. Starfs-
menn lögðu fram kröfu um 7,5%
í styttri tíma og án tengsla við
almenna samninga. -GSH
■ Tröllaleikir, sýning Leikbrúðulands, sem hefur verið fastur liður á sunnudögum í Iðnó feliur niður á
morgun af óviðráðanlegum orsökum. Ein þeirra þriggja kvenna sem stýrir brúðunum að tjaldabaki varð
nefnilega fyrir því að handleggsbrotna á sýningu í fyrradag. „Það var þannig að við á Brúðubílnum vorum
að sýna á Selfossi og fyrstu sýningu lauk með því að ég hoppaöi niður af sviðinu með litla brúðu í fanginu
og ætlaði að láta brúðuna veifa í kveðjuskyni til krakkanna, en það tókst ekki betur til en svo að ég braut
á mér úlnliðinn," sagði Helga Steffensen, ein þeirra þriggja kvenna sem standa að Leikbrúðulandi í samtali
við blaðið í gær. „Þetta þýðir það að ég verð ófær um að standa mína plikt á morgun, en ég get lofað því
að það verður aðerns þessi eina sýning sem fellur niður, á sunnudaginn cftir viku höldum við áfram eins
og ekkert hafi í skorist," sagði Helga. Tímamynd Árni Sæberg
Nýir kjara-
samningar á
Grundartanga:
SAMIS
UM WER
HÆKKANIR
SEMAÐRIR
SEMJAUM
■ Kjarasatnningar verka-
lýðsfélaga og landssam-
banda, sem aðild eiga að
hinum ajmenna kjarasamn-
ingi við íslenska járnblendi-
félagið, voru undirritaðir á
fimmtudag. Grundvallar-
atriði samningsins er að
hann er óbreyttur frá því
sem verið hefur, miðað við
óbreytt afköst verksmiðj-
unnar en samið er um að
grunnkaupsbreytingar sem
verða kunna á almennum
vinnumarkaði á samnings-
tímanum komi núverandi
launum til hækkunar á þeim
tímum sem þar um semst.
í frétt frá íslenska járn-
blendifélaginu segir að í
samninginn hafi verið tekin
inn ákvæði sem færa munu
starfsmönnum auknar tekj-
ur þá mánuði sem fram-
Ieiðslumagn og framleiðni
er meiri.
Samningarnir voru undir-
ritaðir af fulltrúa frá-
kvæmdastjórnar og samn-
inganefnd með venjulegum
fyrirvara urn samþykki
stjórnar félagsins og hlutað-
eigandi verkalýðsfélaga og
sambanda. -GSH
KAUPMENN FAGNA
FRJÁLSRIÁLAGNINGU
■ „Við fögnum mjög þeim
mcrka áfanga í íslenskri versl-
unarsögu, að gefa verðmyndun
frjálsa og hvetjum stjórnvöld
eindregið til að hvika hvcrgi
frá markaðri stefnu. Frjáls
verðmyndun mun verða eitt
giftudrýgsta skrefið í viðleitni
ríkisstjórnarinnar til að bæta
lífskjör aimennings samfara
aðgerðum tU að sigrast á verð-
bólgunni", segir í ályktun, sem
samþykkt var á aöalfundi Fé-
lags íslenskra stórkaupmanna
í gær.
Þá segir í ályktuninni að
frjáls verðmyndun muni færa
heim óyggjandi sannanir fyrir
því, að hún hefði í för með sér
lækkað innkaupsverð og þar
með vöruverð, þjóðinni allri til
hagsbóta.
Þá fagnar fundurinn þeim
umbótum sem gerðar hafa ver-
ið í gjaldeyris- og bankamálum
og hvetur viðskiptaráðherra og
ríkisstjórnina til áframhald-
andi aðgerða á því sviði.
-Sjó
Ef sérfrædingar telja rekstrarvon hjá Arnarflugi:
„Þá tel ég rétt að
veita ríkisábyrgð"
— segir forsætisráðherra
■ „Ég vil skoða þetta dæmi
Arnarflugs mjög vandlega, og ef
sérfræðingar sem skoða rekst-
urinn eru sannfærðir um að þeir
muni ná þessum rekstri upp
aftur þá tel ég rétt að veita
ríkisábyrgð, en ég vona að hún
þurfi ekki að vera svona há,“
sagði Steingrímur Hermanns-
son, forsætisráðhcrra er Tíminn
spurði hann í gær hvort hann
myndi beita sér fyrir því að
Arnarflugi yrði veitt 45 milljón
króna ríkisábyrgð, eins og fyrir-
tækið hcfur óskað eftir.
„Arnarflug hefur orðið fyrir
miklum skakkaföllum upp á síð-
kastið, en þeir hafa rekið innan-
landsflug sitt af miklum dugnaði,
en með tapi. Þeir eru með ákaf-
lega erfiða áætlunarstaði í innan-
landsfluginu, og það er allt
annað, frá rekstrarlegu sjónar-
miði að fljúga á þessa litlu áætl-
unarstaði, eða þessa stóru staði
eins og ísafjörð og Akureyri. Ég
vek athygli á því að Flugleiðir í
erfiðri stöðu út af Atlantshafs-
fluginu fengu mjög víðtækar
ríkisábyrgðir og aðstoð þegar
svö stóð á fyrir þeim, og sem
betur fer hafa þeir náð sér upp
úr þeim erfiðleikum," sagði
Steingrímur jafnframt.
-AB