Tíminn - 18.02.1984, Qupperneq 4

Tíminn - 18.02.1984, Qupperneq 4
LAUGARDAGUR 18. FEBRUAR 1984 fréttir Treystir rfkisstjórnin sér til að standa undir „Tryggingapakkanum”: „UOST AÐ EKKI GETUR ORÐIÐ AÐ 650 MllilÓNA KRÓNA VIÐ- BÓTARÚTGJÖLDUM RÍKISSJÓÐS” — segir Steingrímur Hermannsson, forsaetisrádherra ■ Frélt Tímans í gær um að aðilar vinnumarkaðarins hafi undanfarið rætt um að tryggingapakki sá sem ríkiskass- inn þarf að punga út með, ef samningar eiga að takast á þeim lágu nótum sem nú hefur verið rætt um, virðist hafa komið stjórnvöldum í opna skjöldu, því Stein- grímur Hermannsson, forsætisráðherra sagði m.a. er Tíminn ræddi við hann í gær: „Eg verð að segja það, að ég hef ekki séð þessa tölu fyrr en ég las þessa frétt í Tímanum og mér þykir ákaflega undarlegt ef aðilar vinnumarkaðarins ætla ríkinu að standa undir 650 milljón króna útgjöldum. Að vísu mun eitthvað vera rætt um að færa eitthvað frá niðurgreiðslum, en það hefur aldrei verið rætt um að færa þaðan meira en 200 til 300 milljónir, en það sem mér finnst mæla því í mót, er að athugun Þjóðhagsstofnunar hefur sýnt að slík tilfærsla kemur harðast niður á því fólki sem ætlunin er að hjálpa, barnmörgum fjölskyldum. Það kann því að vera að þarna væri verið að taka með annarri hendinni það sem veitt er með hinni.“ Forsætisráðherra sagði að hjá ríkis- sjóði væri gert ráð fyrir 4% hækkun, svo sem á tekjutryggingu, örorkubótum, mæðralaunum og slíkum liðum. Hann sagðist fyrir sitt leyti vera þeirrar skoðunar að rétt væri að færa töluvert meira fjármagn til þeirra sem versta afkomu hefðu, en til þess að svo mætti verða, yrðu peningar annars staðar frá að koma. Forsætisráherra sagði í því sambandi: „Ég vil leggja áherslu á að verulegur hluti af því verður að koma frá atvinnu- rekendum sjálfum. Það er því miður ekki svo mikið svigrúm innan ríkisgeir- ans eins og þessi hugmynd um 650 milljónir gæti gefið vísbendingu um. Það er alveg Ijóst að það getur ekki verið um 650 milljóna króna viðbótarútgjöld ríkis- sjóðs að ræða“ Forsætisráðherra sagði að í þessum átökum við verðbólguna núna, væri aðalveikleikamerki okkar peningamál- in. Hér væri of mikið fjármagn í umferð og útlán bankanna væru of mikil og staða ríkissjóðs væri mjög erfið. „A síðasta ári var halli ríkissjóðs á milli 1.3- og 1.4 milljarðar, og slíkan halla þolir þjóðarbúið ekki aftur, - það þýddi einfaldlega það að verið væri að prenta seðla sem ekki væri innistæða fyrir,“ sagði forsætisráðherra. -AB Mosfellshreppur: SAMKEPPNI UMNÝn MIÐBÆJAR- SKIPULAG ■ Mosfellshreppur og Skipulagsstjórn ríkisins hafa ákveðið að efna til hugmynda- samkeppni um uppbyggingu miðbæjar í Mosfellshreppi, í samvinnu við Arkitekta- félag íslands og samkvæmt samkeppnisregl- um þess. Tilgangurinn er að fá fram hug- myndir sem bæði séu listrænar, nútímalegar og raunhæfar, bjóði upp á manneskjulegt umhverfi og tengist vel aðliggjandi byggð. Reiknað er með að frestur til að skila tillögum renni út um miðjan apríl. Formaður dómnefndar er Gestur Ólafsson, arkitekt og aðrir nefndarmenn Jón M. Guðmundsson, form. skipulagsnefndar hreppsins, Páll Guð- jónsson, sveitarstjóri og arkitektarnir Stefán Thors og Valdís Bjarnadóttir. ANDÓF GEGN EITUREFNUM ■ JC Hafnarfjörður er nú að hcfja herferð gegn eiturefnanotkun sein ber yflrskriftina Adóf gegn eiturefnum. Markmiðið er að fræða börn og unglinga um hættur eiturefna og vekja fólk al- meúnt til umhugsunar um þessi mál. I því skyni hefur verið geflnn út bæklingur með ýmsu efni, nt.a. viðtölum við ungl- inga og nokkra aðila sem fjalla um þessi mál að staðaldri. Ennfremur hafa verið' útbúnir sérstakir límmiðar með slagorð- um gegn vímuefnanotkun. I frétt frá JC Hafnarfjörður segir að hápunktur hcrferðarinnar sé að efnt verður til hljómleika í Veitingahúsinu TESS í Hafnarfirði sunnudaginn 19. febrúar kl. 20.00. _GSH ■ Bókmenntaverðlaun DV voru afhcnt í hádegisverðarboði á Hótel Holti. Myndin er af vcrðlaunahöfunum, f.v. Egill Eðvarðsson, sem tók við kvikmyndaverðlaununum fyrir hönd Saga fllm vegna kvikmyndarinnar Húsið, Valdimar Harðarson arkitekt fyrir hönnun á stól, sem fjöldaframleiðsla er hafin á erlcndis, Magnús Loftsson, tók við leiklistarverðlaununum l'yrir hönd Stúdentaleikhússins, Katrín Briem sem veitti viðtöku myndlistarverðlaununum fyrir hönd föður síns, Jóhanns Briem listmálara, Thor Vilhjálntsson, sem fékk bókmenntaverðlaunin fyrir þýðingu sína á skáldsögunni Hlutskipi manns eftir André Malraux og Jón Nordal, sem hlaut tónlistarverðlaunin að þessu sinni. Tillagan um breytta landnotkun viö Skúlagötu: AFGREIDD í B0RGARSTJÓRN ■ Borgarstjórn samþykkti í fyrradag afgreiðslu borgarverkfræðingsembættis- ins á athugasemdum við Skúlagötu skipulagið, eftir langar og harðar um- ræður. Tillaga fulltrúa Framsóknar- flokks og Alþýðubandalags um að fresta afgreiðslu málsins og efna tii umræðu- Atvinnuflugmenn: Ósáttir við yfirlýsingu flugmáiastjórnarinnar Félag ísíenskra atvinnuflugmanna er ósátt við yfirlýsingu Flugmálastjórnar vegna óhappsins á Keflavíkurflugvelli er DC-8 þota Flugleiða lenti út af flugbraut í lendingu og hefur F.Í.A. sent frá sér eftirfarandi tilkynningu vegna þessa máls: „F.Í.A. lítur svo á, að það sé í einskis manns þágu að rannsókn á óhöppum í flugi sé rekin í fjölmiðlum. Mál sem þessi krefjast nákvæmrar og yfirvegaðrar rannsóknar. Framburður sjónarvotta einn sér, í þessu tilviki, hlýtur að orka tvímælis. Fram að þeim tíma að niðurstöður rannsóknarinnar liggja fyrir verður að telja bæði rétt og sanngjarnt að rann- sóknaraðili bíði með yfirlýsingarsínar." funda um málið í samræmi við tilmxli sem borist höfðu frá íbúasamtökum Skuggahverfis var felld að viðhöfðu nafnakalli. Fulltrúar minnihlutans gagnrýndu það enn að borgarverkfræðingsembættinu hefði verið falin umsjá málsins en ekki borgarskipulagi og töldu að þar með hefði verið komið í veg fyrir að fagleg sjónarmið fengju að ráða í málinu. Þeir töldu að borgarverkfræðingsembættið hefði ekki tekið tillit til umhverfissjón- armiða, né heldur varðveislugildis þeirra bygginga sem fyrir eru á skipulagssvæð- inu, auk heldur sem athugasemdum um 350 manna hefði verið látið ósvarað eða svarað með útúrsnúningum, borgarverk- fræðingsembættið hefði falið sig á bak við það að ekki væri búið að vinna deiliskipulag að svæðinu. Deiliskipulag hefði átt að vinna áður en ákvörðun var tekin um leyfilegt nýtingarhlutfall, en það er um nýtingarhlutfallið sem deilur hafa einkum risið upp í sambandi við þetta mál. Með samþykkt málsins væru eigendum lóða gefið það vald að ákveða nýtingarhlutfall að tveim á vissum reitum í Skuggahverfinu, þeir ferigju leyfi fyrir því og gætu knúið sitt fram með hótunum um skaðabótakröfur, ef yfirvöld vildu 'síðar lækka nýtingarhlutfallið. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson formaður skipulagsnefndar varði þá ákvörðun að taka máiið úr höndum nefndarinnar og borgarskipulags, meðal annars á þeim forsenduiil að margra lagaatriða þyrfti að gæta við útfærsiu skipulagsins, en lagaþekkingu væri ekki að ;ækja til Borgarskipulagsins. Davíð Oddsson borgarstjóri sagði að nýtingarhlutfallið 2 væri þak, og kæmi það í ljós við deiliskipulagsvinnu að ekki væri unnt að ná því markmiði svo að vel færi, þá yrði nýtingarhlutfallið einfaldlega lækkað. Tillagan um breytta landnýtingu í Skuggahverfi fer nú til skipulagsstjórnar ríkisins til staðfestingar. -JGK Rithöfundasambandid: Þungar áhyggjur vegna Spegil- málsins ■ Aimennur félagsfundur sem hald- inn var nýverið í Rithöfundasambandi íslands lýsti þungum áhyggjum sínum „vegna framsögu Saksöknara ríkisins í Spegilsmálinu svonefnda.“, Segir í ályktun fundarins að það hljóti að teljast háskalegt ef hægt sé að leggja hald á prentað mál án þess formleg ákæra sé fyrir hendi, eða formleg ákæra liggi fyrir. Sh'kt veiti einstaklíngum óeðlilegt svigrúm til geðþóttaákvarðana og stefni ritfrelsi í hættu. Fundurinn skoraði á viðeigandi yfir- völd að sjá til þess að töggjöf tryggi það að ritfrelsi verði ætíð í heiðri haft. -JGK ara afmæli ■ Vélstjórafélag íslands heldur upp á 75 ára afmæli sitt nú um helgina. Óllum fyrrverandi stjómarmönnum félagsins ásamt þeim sem félagið hefur átt hvað mest skipti við í gegn um árin verður boðið til hátíðarfundar í Borg- artúni 18, klukkan 15.30 á laugardag- inn. Að fundi loknum verður boðið upp á hressingu. Frá kl. 14.00 á sunnudag verður síðan opið hús að Borgartúni 18, þar sem félagsmönnum og öðrum velunnurum félagsins sem líta inn verða boðnar veitingar. Á Akureyri og Reyðarfirði verður einnig opið hús á sama tíma á sunnudag fyrir alla félagsmenn og velunnara félagstns. Fyrsta Vélstjórafélag á íslandi var stofnað þann 20. febrúar 1909. Aðal- hvatamaður að stofnun þess var Sigur- jón Kristjánsson. Félagið beitti sér m. a. fyrir því að sett voru lög um atvinnuréttindi vélstjóra 1911. Frá 1911 til 1968 önnuðust Vélskóli íslands og Fiskifélag ísiands véistjórafræðslu hér á landi, en Vélskólinn einn frá 1968. Vélstjórafélag íslands er landsfélag með um 1.800 félagsmenn og er aðili að um 20 kjarasamningum. Um 90% félagsmanna starfa á kjarasamningum félagsins. Um 60% félagsmanna starfa á kaup- og fiskiskipunr, en um 30% í landi, í orkuverum, verksmiðjum og öðrum tækniiegum störfum. Aðrir eru ýmist gjaldfríir eða starfa á samníngum annarra félaga. Auk aðalskrifstofu í Reykjavík rekur félagið skrifstofur á Akureyri og Neskaupstað. -HEI Óvæntur gestur hjá Leikfélagi Kópavogs ■ Leikfélag Kópavogs frumsýnir á sunnudagskvöld leikritið „Óvæntur gestur“ eftir Agöthu Christie í þýðingu Helgu Harðardóttur. Verkið hefur ekki verið flutt áður hérlendis^ Hér er um að rxða spennandi sakamála- leikrít, eins og við er að búast, þegar þessi höfundur er annars vegar. Aðalhlutverkin eru í höndum Helgu Harðardóttur, Sigurðar Grétars Guðmundssonar, Sólrúnar Ingvadótt- ur, Svanhildar Th. Valdimarsdóttur, Eiríks Hjálmarssonar, Hrafns Hauks- sonar. Finns Magnússonar, Þórs Ás- geirssonar og Gunnars Magnússonar. Sýningar á leikritinu verða siöan n. k. fimmtudags- og laugardagskvöld. Tvö leikrit verða því í gangi hjá Leikféiagi Kópavogs, því að barna- söngleikurinn Gúmmí Tarsan gengur enn og næsta sýning verður á sunnudag ki. 15.00. -JGK

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.