Tíminn - 18.02.1984, Síða 5

Tíminn - 18.02.1984, Síða 5
LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 1984 5 fréttir Framkvæmda- stofnun ríkisins: NÝR FORSTJÓRI VERÐUR SETTUR í STAÐ SVERRIS ■ Stjórn Framkvæmdastofnunar ríkis- ins hefur gert þá tillögu til Steingríms Hermannssonar forsætisráöherra aö Kristinn Zimsen, starfsmaður lánadeild- ar Framkvæmdastofnunar verði settur forstjóri Framkvæmdastofnunar meðan Sverrir Hermannsson gegnir ráðherra- , störfum, og voru það fulltrúar stjórnar- flokkanna sem báru fram þessa tillögu. -AB Þar sem þessi háttur hefur ekki verið hafður á, t.a.m. þegar Tómas Árnason forstjóri Framkvæmdastofnunar gegndi ráðherraembætti, en þá var Sverrir Her- mannsson einn forstjóri, snéri Tíminn sér til Tómasar í gær og spurði hann hvað hann teldi að byggi hér að baki: „Það er rétt að þetta hefur ekki verið gert áður, en sjálfstæðismenn óskuðu eftir því að þessi háttur yrði hafður á, og mér þykir sjálfsagt að orðið sé við þeirri ósk. Ég fagna því því þess vegna að vera þarna við annan mann að ráðslaga um þessi vandasömu málefni." Sauðárkrókur: Flugmynda- sýning í Safnahúsinu ■ Flugáhugamönnum á Sauðárkróki og víðar gefst gott tækifæri til að afla sér aukins fróðleiks um flugmál nú um helgina. Flugklúbbur Sauðárkróks efnir til umfangsmikillar flugmyndasýningar í Safnahúsinu á Sauðárkróki sem verður opin frá kl. 13.00 bæði laugardag og sunnudag, 18. og 19. febrúar. Verður þar sýndur mikill fjöldi ljósmynda af flugvélum og atburðum tengdum flugi. Myndirnar eru m.a. frá: Flugleiðum, flugsögufélaginu, Veðurstofu íslands, erlendum sendiráðum, NASA, og flest- um flugvélaframleiðendum heims. Þá verða til sýnis sölubækur verksmiðja yfir einstakar flugvélar, upplýsingabréf, verksmiðjukynningar, ársreikningar verksmiðja, kennslugögn, teikningar, j töflur og línurit auk fjölda mynda frá Sauðárkróki. Bæði kvöldin og síðari hluta sunnudags verða sýndar litskyggn- ur, kvikmyndir og videomyndir. Þá efnir Flugklúbburinn til fundar í Safnahúsinu kl. 17.00 á laugardeginum. Þar mun Jóhannes R. Snorrason, flug- stjóri flytja minningarfyrirlestur dr. Al- exander Jóhannessonar. í ráði er að halda slíka fyrirlestra árlega, þar sem menn tengdir flugi og flugmálum verða fengnir til að tala um áhugamál sín. Jóhannes R. Snorrason, flugstjóri hefur góðfúslega þegið boð Flugklúbbsins að flytja fyrsta fyrirlesturinn. Aðgangur verður ókeypis bæði að sýningunni og fyrirlestri Jóhannesar. -G.Ó/HEI Kjör kvenna rædd á KEA á Akureyri ■ Kjör kvenna á vinnumarkaði verða rædd á fundi á Hótel K.E.A. á Akureyri á laugardag kl. 14.00. Þar munu Gerður Steinþórsdóttir og Sigríður Skarphéðins- dóttir kynna starf framkvæmdanefndar um launamál kvenna á vinnumarkaði sem hefur það markmið að ná fram úrbótum í launamálum kvenna og launa- jafnfrétti kynjanna á vinnumarkaðinum ásamt því að með konum myndist sam- staða um þessi mál. Þá munu þær Karólína Stefánsdóttir og Valgerður Magnúsdóttir skýra frá nýlegri könnun á vegum jafnréttisnefndar Akureyrar. Elín Antonsdóttir sér um skemmtiatriði. Fundarstjóri verður Þóra Hjaltadóttir. §vipaðir fundir verða haldnir á 7 öðrum stb^um á landinu þessa helgi. BÍLASÝNING Stór LAUGARDAG og SUNNUDAG KL. 2-5 subaru Hatchback, fjórhjóladrifinn: Það kemur sér illa fyrir marga að komast ekki til vinnu þegar færð er slæm. Ert þú kannski einn þeirra? Eða ert þú einn af þeim sem hafa gaman af að takast á við ófærðina og bjóða henni byrginn? Þú þarft ekki tröllvaxinn jeppa. Subaru Hatch- back er svarið. Hann gerir ófærðina að spennandi leik og þjónar þér þess á milli eins og viljugur og skemmtilegur gæðingur. Subaru Hatchback, beinskiptur með vökvastýri kr. 396.000.- Tökum flestar gerðir eldri bíla upp í nýja. VERIÐ VELKOMIN OG AUÐVITAÐ VERÐUR HEITTÁ KÖNNUNNI Sýnum framhjóladrifs - og fjórhjóladrifs bíla Bíla sem láta ekki að sér hœða í ófœrðinni NISSAN MICRA „Fisléttur, frískur bensínspari, sem leynir á sér“ sagði Ómar Ragnarsson í yfirskrift á grein sinni í DV 29/12 sl. í greininni segir m.a. „en mér fannst bíllinn betri, en ég átti von á, þægilegri og skemmtilegri, en vonir stóðu til, og það virtist vera erfitt að fá hann til að eyða bensíni svo nokkru næmi, þótt frísklega væri ekið.“ NISSAN MICRA GL kr. 259.000.- NISSAN MICRA DX kr. 249.000.- DEUVERY VAN 4WD subaru Highroof Van, fjórhjóladrifinn: Þeir hjá Subaru eru þeirrar skoðunar að gróf torfærutæki eigi engan einkarétt á fjórhjóladrifi. Subaru Highroof 4WD er sparneytin, rúmgóð og þrælsterk sendibifreið. En hún ber leynivopn innan klæða. Það er fjórhjóladrifið. Með einu handtaki breytist þessi auðmjúki þjónn í ófærujötun sem gera má enn sterkari með því að skipta í lága gírinn. Subaru Highroof Van 4WD kr. 225.000.- pickup framhjóladrifinn. Hvað færðu fyrir kr. 115.000? Þú færð pickup á grind með sjálfstæðri gormafjöðrun, fram- hjóladrifi, smekklegri innréttingu, þriggja strokka sparneytinni vél og margt margt fleira. Kr. 115.000 subaru GLT1800 fjórhjóladrifinn með háu og lágu drifi. Mest seldi bíllinn árið 1983. Af hverju heldur þú að svo sé? Kr. 418.000 Ingvar Helgason h f. SÝNINGARSALURINN/RAUÐAGERÐI S33560

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.