Tíminn - 18.02.1984, Page 9

Tíminn - 18.02.1984, Page 9
LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 1984 9 byggt og búið í gamia daga 384 með listrænt slóðum 1929- 1936 Vinnur þú fé og frama, eða fléttar úr dáðleysi drama? Oft var hýrt á Hafnarslóð í heintsins glaum og þjarki. Sýslað við nám og sjafnarglóð, sultum ekki að marki! Að dönskum krásum sjaldan sat, - svöng var tíðin maður. Fimmtíu aura miðdagsmat, maula sallaglaður. Nærri skólaus orðinn er, aumar tær má gnúa. Snjáðan kufl og kápu ber, kraga mætti snúa. Fyrr en hani hóf sitt gól og hlýjar loftið morgunsól, karskur kaupför gerði. Yfir krása gufu gein, grísinn feigur rýtti og hrein. Ég át hans soðnu „svínabein“ seld á hálfu verði. Mettur kom í kennslustund, kræfur gekk í slaginn. Krufði orma, léttist lund, lærði margt þann daginn. Lestu, skráðu, rýndu, reyndu, rannsóknarefni freista mörg. Hugsaðu, tjáðu, grunda, greindu, gálauss bíður villan örg. Tveir ólíkir „eilífðarstúdentar" I. Dotta við námið, sofna senn, - sveimar víða hugur. Stunda bjór og ballgarð enn, bráðum hálffertugur. II. Iðinn við kolann Ungur kenndur við ýmsar greinar: Etik, tékknesku, hebreskt mál. Skamma stund þræddi brautir beinar, breytingagjörn var mannsins sál. Reyndi sem Jakob glímu við guð, gaf sig þreyttur í læknapuð. Franskar bókmenntir frakkur stundar, (í framhjáhlaupi tók norsku með), Latínu vestra gagngert grundar, þið getið hans fína vottorð séð. Næsta roskinn við námsgrein jók, norrænupróf í fússi tók! Nú er hann eins og orðabækur, ætlaðar til að fletta í. Sjötugur karlinn sífellt sprækur, sálin leitandi fersk og ný. Forvitnir jafnan heita á hann, hundvísan erki-töframann! Don Júan Engin vissi af annarri - yngismeyjar þrjár. Allar leikföng kappans - og kannski leið til fjár. Bústin Bergenjenta, brjóstgóð Hafnarhrund, skaphörð Skærgárdsflicka - með skrúfu í heimanmund. Nú leikur allt í lyndi Ijúfar stundir. Þær byrja að nefna hjónaband - hann tekur iítið undir. Hvenær segir hann úrslitaorðið, leggur spilin á borðið? Loks að fljóðum læddist illur grunur, tvær læðast til hans óvænt - vein og stunur! Sú þriðja í sænginni svitnar af ótta. Don Júan leggur á flótta! Bitinn, rifinn, barinn, blár og marinn. Amorsljóminn farinn! Ingólfur Davíðsson skrifar: á vettvangi dagsins HLUTA- SQFNUN TIMANS — eftir Guðmund P. Valgeirsson ■ Eitt af grundvallarskilyrðum lýðræð- is og skoðanafrelsis er frjáls blaðaútgáfa. í nútíma þjóðfélagi gegna dagblöð þýð- ingarmiklu hlutverki á þessu sviði. En útgáfa dagblaðs er orðin umfangsmikil, kostar mikla fjármuni og sterkan stuðn- ing til þess að geta haldist gangandi og gegnt hlutverki sínu: - Þau dagblöð, hér á landi, sem mestri útbreiðslu hafa náð og eru fjárhagslega sterk, styðjast við fjársterka aðila í kaupsýslu og einka- rekstri. Þau hafa sterka aðstöðu til útbreiðslu og skoðanamyndunar langt út fyrir það sem heilbrigt má teljast. Önnur blöð eru í sífelldri fjárþröng og eiga af þeim sökum í vök að verjast, svo við liggur að útgáfu þeirra verði hætt. - Þegar svo væri komið er hætt við að mörgum myndi þykja þröngt fyrir dyrum og lítið orðið úr frjálsri skoðanamyndun og ritfrelsi. Landsmálablaðið, Tíminn hefur köm- ið út í 67 ár, fyrst sem vikublað og síðan um áratugi sem dagblað. - Það olli strax straumhvörfum í íslenskum stjórnmál- um og hefur verið áhrifamikið málgagn næst stærsta stjórnmálaflokks þjóðarinn- ár'og um alla uppbyggingu þjóðfélagsins, jafnt efnahagslega og menningarlega, frá upphafi sínu til þessa dag. Vart er hægt að gera sér grein fyrir hver þróun þeirra mála hefði orðið ef þess hefði ekki notið við, og sama máli gegnir um það í framtíðinni. Það hefur verið málgagn samvinnustefnunnar og almennings í sveit og við sjó, og haft forgöngu um þá byggðastefnu, sem kom- ið hefur í veg fyrir að heilir landshlutar færu í niðurníðslu og auðn, svo nokkuð sé nefnt. - Af þeim sem að blaðinu standa hefur verið brugðið á það ráð, að stofna hlutafélag um útgáfu þess. f því hlutafé- lagi verður Framsóknarflokkurinn stærsti hluthafinn, en jafnframt er heitið á alla góða menn og velunnara blaðsins, að leggja þessu þjóðfélagslega nauð- synjamáli lið, hvern eftir sinni getu. Engum dylst að mikið er í húfi, að þær lífsskoðanir, sem blaðið hefur túlkað frá upphafi, eigi sér málgagn svo íhalds- og öfgaöflin verði ekki ein um alla skoðana- myndun meðal þjóðarinnar. - Hlutafjár- söfnunin stendur yfir. - Samvinnumenn, bændur, sjómenn og verkamenn um land allt, sem eigið Tímanum þökk að gjalda fyrir baráttu hans á liðnum árum, sameinist um að tryggja útgáfu blaðsins með því að lcggja ykkur skerf til þess, undir kjörórði samvinnustefnunnar: „Sameinaðir stöndum vér“, og ;Margar hendur vinna létt verk“. - Það er góð fjárfesting á þessum viðsjálu tímum. Án málsvarnar Tímans yrði framtíð margra ykkar völt í sessi. Guðmundur P. Valgeirsson menningarmál AVENTURA ■ MeðalbókasemkomuúthjáAvent- ura á sl. ári var „Om det tragiske" eftir Peter Wessel Zapffe. Þettaerdoktorsrit- gerð höfundar og kom fyrst út 1941. Þetta er ótvírætt besta bók sem hefir verið skrifuð um efnið á norrænt mál, ef ekki í allri sögu heimspekinnar. „Norsk Poesi fra Henrik Wcgeland til Emil Boyson" er safn Ijóða. Emii Boy- son og Asbjörn Aarnes gáfu hana fyrst út 1961. Nú að Boyson látnum kcmur bókin út á ný með viðbótinni, sem eru Ijóð Boysons. Ljóðskáldsins fullkomna, sem þó aldrei fannst Ijóð sín nógu góð. Þetta er því úrval beslu norskra Ijóða. „Likestilling et aktivt verdivalg?" Raunhæfar hugmyndir til notkunar í bekknum, er skemmtileg kennslubók og mjög raunhæf, samin af fjórum kennur- um um jafnrétti. „Veien til Lagoa Santa“ eftir Henrik Stangerup, opnar okkur lítinn glugga inn í eilífðina. Lýsingar hans á minnstu hræringum náttúrunnar samofnar frá- sagnarþræðinum og persónunum, eru svo meistaralega gerðar, að lesandinn hrífst með. Við förum á karneva! í Róm og Ríó, guðsþjóncamposanna, þar sem vindlareykur andalæknisins blandast reykelsi kristninnar. Makt eftir Öyvind Myhre fjallar um rætur, menningu og vald. Þrána eftir einveru og samhengi í tilverunni, en ekki síst mat okkar á hinu heilaga, enda efnið sótt til írlands. Kannske er ekki alveg óviðeigandi að minnast næst á bók Öystein Sörensen, „Fra Marx til Ouisling". Bók þessi sýnir okkur hve skammt er öfganna á milli. Hún er raunveruleg og fjallar um þekkt dæmi eins og norsku marxistana, sem gengu í nasistaflokkinn, Eugenc Olaussen o.fl. Leif B. Lillegaard sendi frá sér fjórar bækur fyrir síðustu jól. Ein þeirra er „Sörgaende hurtigrute savnet." Til þess þarf veður svo að vælir í turnspírum og allt kvikt reynir að skríða ofan í jörðina. Þessu öllu tekst Lillegaard mjög vel að lýsa. „Livsfrisen" eftir Björg Jönsson fjallar um grunnverðmæti mannlegs lífs, burt- séð frá stað og stund eða hugmynda- fræði. „Overganger“ eftir Gail Sherry fjallar um erfiðleika sem segja má fyrir um í lífi fólks. Af hverju? Eru þeir nauðsynlegir? Koma þeir bara seinna, ef við ýtum þeim á undan okkur? Með mörgum dæmum úr lífi fólks, spyr hún ekki aðeins þessara spurninga, en svarar þeim einnig. „Nye Östfold historier" eftir Knut Roen er vandlega valin Austfoldsfyndni. „OSLO" eftir Sissel Jenseth segir frá hjólreiðaferðum höfundar um Osló og gefur okkur nýja mynd af borginni. Nú eru æ fleiri rithöfundar að kveðja ritvélina sína og þá taka þeir upp ritvinnslu á tölvu. Öyvind Myhre ncfnir kveðjubók sína til ritvélarinnar „Data- kultur,,. Það finnst varla það svið sem hann ekki fjallar um í bókinni, þcgar ritvélin er kvödd. „Hva er en baby?“ er ritstýrt af Richard og Helen Exley. Þetta er safn allskonar ummæla frá öllum tímum um hvað barn er. Er það kannske von ■ Kunnskapsforlaget, sem er sameign Gyldendahl og Aschehoug, dreifir m.a. orðabókum og fræðibókum þeirra for- laga, en hefir einnig sjálfstæða útgáfu- starfsemi. Langar mig til að gera hér að umtalsefni tvær slíkar útgáfur. „Ett binds leksikon" er stærsta eins bindis alfræðibókin, sem hér er gefin út og inniheldur 52 þúsund greinar um ýmis efni. Er ánægjulegt að sjá að t.d. er kaflinn um Island mun betri en í flestum öðrum alfræðibókum hér og ekki með sömu vitleysunum og þar virðast orðnar fastar í sessi. Auk þess er að finna sérgreinar um: Islenska hestinn, íslenskt mál, íslendingabók og íslenska bók- menntafélagið auk margs annars. Þannig er þetta sú aifræðibók er gerir okkur hæst undir höfði af þeim er ég hefi séð hér. Að vísu er bókin prentuð með smáu letri, en hefir líka því meira efni og er 1575 blaðsíður að stærð. Öll vinna og frágangur bókarinnar er einstaklega vandað. Norsk Riksmálsordbok í fjórum bindum, sem á sínum tíma var gefin út af Det norske Akademi for sprog og litteratur, hefir verið gefin út á ný af Kunnskapsforlaget. Er þar um beina endurútgáfu að ræða. Það voru Tryggve Knudsen og Alf Sommerfeldt, sem á sínum tíma sáu um útgáfuna, ásamt K.E. Bödtker, Ulrik Mörk, J. Mörland og R. Ullmann. Þá vinnur prófessor heimsins sitjandi á næturgagni, eða er það lifandi sönnun þess að þú hefir verið ósiðsamleg stúlka. „G-sonen og andre nye opdagelser om menneskets seksualitet" fjallar um kenningar Gráfenbergs um möguleika kvenna á fullnægingu. „Bruk dine drömmer“ eftir Montague Ullmann og Nan Zimmerman. Getum við lært að nota drauma sent hjálpartæki til að skilja okkur sjálf bctur? Margar af stærstu uppgötvunum í ýmsum fræði- greinum, hala all upphaf sitt i dtaumum þeirra cr gcrðu uppgötvanirnar. Bókin segir okkur hvað vísindin vita um draum okkar. „ „Innvolverings-Pcdagogikk" eftir Poul Nissen, scgir okkur í raun hvað skólinn getur gert til að leysa vandamálin og skapa bctra starf í bekknum. Harald Noreng, sem hefir unnið við bókina síðan 1938, að gerð viðbótar- bindis sem mun koma út á næstunni í samskonar frágangi og þau fjögur bindi sem eru komin út. Þetta er stærsta orðabók norsks máls sem nú er á markaðnum og þangað er margt að sækja fyrir íslendinga. Prófessor Alf Sommerfeldt, var mikill málvísindamaður á sínum tíma, sem lést langt fyrir aldur fram í bílslysi. Verður þó þetta mikla verk alla tíð verðugur bautasteinn um minningu hans. Segja má að raunverulegir höfundar auk hans hafi verið fyrst og fremst Trygve Knu- dsen og K.E. Bödtker. Aðrir í ritstjórn unnu að ýmsu öðru er fylgir svo miklu verki. Þá kemur og Harald Noreng inn sem höfundur eftir að verkið er fullgert aftur að S. Þegar farið er gegnum bækur og verk sem hafa verið orðtekin ber eðlilega nokkuð á íslenskum verkum. Er þar bæði um að ræða fornbókmenntir okkar, en auk þess höfunda sem skrifað hafa á norsku, eins og Kristmann Guðmunds- sori og aðra sem þýddir höfðu verið á norsku. Auk þess er sá listi góð heimild um norska höifunda og bækur þeirra, auk allra orðabóka og orðasafna, sem þá höfðu komið út hér í landi. Er heimildalistinn 32 þéttprentaðar síður, en orðabókin 4348 dálkar. Osló 5. febr. 1984 Sigurður H. Þorsteinsson Oslo 5. fcbr. 1984 Sigurður H. Þorsteinsson Kunnskapsforlaget

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.