Tíminn - 18.02.1984, Qupperneq 10

Tíminn - 18.02.1984, Qupperneq 10
10 LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 1984 LAUGARDAGUR 18. FEBRUAR 1984 fþróttir umsjón: Samúel Öm Erlingsson JUNN SÆTflSll SttUt — sagdi Leifur Gústafsson eftir ad Valsmenn unnu UMFN 90-89 m ■ Það er ekkert lát á spennuleikjunum í úrvalsdeildinni í körfuknattleik, í gær- kvöld niættust Valsmenn og Njarðvík- ingar í íþröttahúsinu í Njarðvík og þurfti framlengingu til aö knýja fram úrslit. Valsmenn voru fyrr í gang og náðu yfirhöndinni í leiknum. Á tímabili í fyrri hálfleiknum höfðu þeir 13 stiga forskot, 26-13, en Njarðvíkingum tókst að minnka muninn í 6 stig fyrir leikhlé, 38-32. Á 5. mínútu síðari hálfleiks tókst Njarðvíkingum að jafna, 50-50 og stuttu síðar náðu þeir forystunni 54-52. Þegar 5 mínútur voru til leiksloka var jafnt 73-73. Þegar 30 sekúndur voru eftir skoraði Ingimar Jónsson Njarðvíkingur og jafnaði leikinn 81-81. Valsmönnum tókst ekki að skora á þeim tíma sem eftir var og því var framlengt. í upphafi framlengingarinnar fékk Torfi Magnús- son, Val, sína 5. villu og varð að fara af leikvelli. Skömmu fyrir leikslok höfðu þeir Kristján Ágústsson Val og Kristinn Einarsson UMFN, einnig farið af leik- velli af sömu ástæðu. Þegar 40 sekúndur voru eftir af fram- lengingunni höfðu Njarðvíkingar yfir 89-86, en Valsmenn stálu sigrinum í lokin með tveimur körfum frá Leifi Gústafssyni. Valsmenn höfðu þar með sigrað efsta lið úrvalsdeildarinnar með eins stigs mun. Er þetta fjórði leikurinn á skömmum tíma sem endar með þessum mun. „Þetta er minn sætasti sigur og sérlega ánægjulegt fyrir okkur að halda haus eftir að Kristján og Torfi voru farnir útaf“, sagði hetja Valsmanna í leiknum í gær, Leifur Gústafsson í samtali við Tímann eftir leikinn. Leifur var bestur Valsmanna ásamt þeim Kristjáni og Torfa. Hjá Njarðvíkingum áttu þeir Árni Lárusson og Hreiðar Hreiðarsson mjög góðan leik, en Valur Ingimundar- son og Kristinn Einarsson voru einnig áberandi. Stig Vals: Kristján Ágústsson 22, Torfi Magnússon 21, Leifur Gústafsson 21, Jó- hannes Magnússon 12, Valdemar Guðlaugs- son 6, Tómas Holton 4 og Páll Arnar 2. Stig UMFN: Valur Ingimundarson 18, Gunnar Þorvarðarson 18, Árni Lárusson 16, Kristinn Einarsson 16, Ingimar Jónsson 12, Hreiðar Hreiðarsson 5, Júlíus Valgeirsson 4 og Ástþór Ingason 1. -TÓP/BL KSI ræðir við Barnwell: AFTUR A ÞRHUUÐAG ■ Englendingurinn John Barnwell, sem kominn er hingað til lands á vegum knattspyrnufélagsins Vals, til að kanna aðstæður hjá félaginu með þjálfun í huga, ræddi við fulltrúa Knattspyrnu- sambands íslands í fyrrakvöld. „Þetta voru mjög jákvæðar viðræður, menn skýrðu sína afstöðu", sagði Ellert B. Schram, formaður Knattspyrnusam- bands íslands í samtali viðTímann í gær. Ellert sagði að málið horfði þannig að annað hvort yrði gengið frá ráðningu Barnwells á þriðjudag, eða ekkert yrði úr. „Það verður fullljóst á þriðjudaginn, þegar við tölum við manninn aftur, hvort manninum verður gert boð, og einshvort hann vill koma“, sagði Ellert. -SÖE Málverk eftir Karen Agnetc Þórarinsson af stofnfundi Sambandsins að Ystafclli hinn 20. fcbrúar 1902. Talið frá vinstri: Stcingrímur Jónsson, Bencdikt Jónsson á Auðnum, Sigurður Jónsson í Ystafclli, Pctur Jónsson á Gautlondum, Hclgi Laxdal í Tungu, Arni Kristjánsson í Lóni og Friðbjórn Bjarnason á Grýtubakka. LIFANDITRÉ FJÖLGAR LENGI GREINUM Hinn 20.febrúar1902stofnuðu kaupfélögin í landinu með sér samband til að sinna ýmsum sameiginlegum verkefnum. Það hlaut nafnið Samband íslenskra samvinnufélaga - og er fyrirtækið í eigu kaupfélaganna. Sambandið hefur með höndum fjölþæt.tan atvinnurekstur - innanlands og utan - og annast margvísleg verkefni fyrir samvinnufélögin um land allt. VIISIISIUWI SAM AISI SAMBAND ÍSLENSKRA SAMVINNUFÉLAGA ^ ÍBK til Birmingtiam ■ Lið íþróttabandalags Keflavikur mun fara til Birraingham á Englandi og æfa þar yflr páskana. Liðið mun dveljast í Birmingham í 9 daga, en ferðin er í samráði við stjóm FC Birraingham, enska fyrstu deildarliðsins. Ekki er vitað hvort ÍBK fær æflnga- ieiki í Englandi, en málið mun væntanlega skýrast um helgina. -Tóp/SÖE Siggi setti met ■ Sigurður T. Sigurðsson stangarstökkvari úr KR setti i fyrradag nýtt jslandsmet innanhúss ■ stangar- stökki á frjálsiþróttamóti í Zweibruggen í V-Þýska- landi. Sigurður stökk 5,23 metra, og er það nýtt íslandsmet innanhúss. Siguröur stökk síðan vel yflr 5,43 metra, en felldi á niðurleið. Sigurður varð fjóröi í keppninni, en þátt tóku allir bestu stangarstökkvar- ar V-Þjóðverja. Sigurður dvelur nú við nám og æflngar í V-Þýskalandi, og virðist vera kominn í hörkuform. Það má því búast við miklu af honum á næstu mánuðum. -SÖE Sveinn tekur tvo með sér til Seyðisfiarðar ■ Sveinn Sveinsson, Eyjamaðurinn knái í knatt- spyrnunni, mun þjálfa og leika með 3. dcildarliði Hugins á Seyðisfirði næsta sumar. Með Sveini fara tveir ungir Eyjapeyjar til Seyðisfjarðar, þeir Kristó- fer Helgason og Þórir Ólafsson. Þeir eru báðir 17 ára. -SGG/SÖE KR-INGAR EIGfl ENNÞfl MðGULEIKfl — ef Þróttur og Stjarnan gera jafntefli ■ KR-ingar halda enn í vonina um að verða eitt af fjórum efstu liðunum í 1. deild og komast þar með í úrslitakeppn- ina um Islandsmeistaratitilinn í hand- knattleik. Þeir unnu KA á Akureyri ■ gærkvöldi með 18 mörkum gegn 16 í miklum barátt uleik - leik þar sem barátt- an sat í fyrirrúmi á kostnað góðs hand- knattleiks. KR-ingar geta þakkað slökum dómur- um og fjölmörgum mistökum KA- manna á lokakafla leiksins að hluta til fyrir sigurinn. KA hafði forystu þegar 8 mínútur voru til leiksloka, 15-13, en þá hrundi leikur liðsins gjörsamlega. KR- ingar skoruðu næstu 5 mörk, komust yfir 18-15 og þar með höfðu þeir gert út um leikinn. Fyrri hálfleikurinn var ávallt mjög jafn, liðin yfir til skiptis og staðan í leikhléi 9-9. Síðan var jafnt 13-13 áður en KA komst tvö mörk yfir, en það nægði liðinu ekki. Bestu menn liðanna í gærkvöldi voru þeir Gunnar Gíslason og Jóhannes Stef- ánsson hjá KR og þeir Magnús Gautiog Jón Kristjánsson hjá KA, en Jón mætti að ósekju sýna meira frumkvæði í leik sínum. Mörk KR: Jakob Jónsson 6, Gunnar Gíslason 5, Jóhannes Stefánsson 3, Guðmundur Albertsson 3 og Friðrik Þorbjörnsson 1. Mörk KA: Jón Krist- jánsson 6, Erlingur Kristjánsson 4, Logi Einarsson 3, Þorleifur Ananíasson 1, Magnús Birgisson 1 og SigurðurSigurðs- son eitt. -GK Þór vann Reyni ■ Þór vann Reyni Sandgerði í fyrra- kvöld í 2. deild karla í handknattleik í Eyjum 29-18. Staðan var 13-12 Þór í hag i hálfleik. Leikurinn var jafn í fyrri hálfleik, og hafði þá Reynir um tíma 2 marka forskot. Síðan stungu Þórarar af í síðari hálfleik. Flestmörk Þórsskoruðu Gylfi Birgisson 8, Sigbjörn Óskarsson 7 og Þorbergur Aðalsteins 5/2. Daníel Einarsson var markahæstur Reynis- manna með 5/2 mörk. Sigmar Þröstur varði 20 skot fyrir Þór, en Einar Benediktsson varði 12 skot fyrir Reyni, þar af 2 víti. -SGG/SÖE HSÍ baðst afsökunar — sendi norðanmönnum bréf í vikunni ■ Stjóm Handknattleikssambands íslands sendi forráðamönnum handknattleikslið- anna Þórs og KA bréf í vikunni, þar sem stjómin biður norðanmenn afsökunar á hvemig til tókst með landsleikinn við Norðmenn sem átti að vera á Akureyri í lok janúar, en ekki var hægt að láta fara þar fram. Um þetta hafa orðið talsverð blaðaskrif, og Akureyringar hafa verið sárir útí forráðamenn HSÍ, vegna þess að þeir teija að sér hafí verið lofað leiknum á sunnudeginum, en það síðan svikið. Sfjóm HSÍ fór fram á það við norðanmenn 'að bréfið yrði birt í Degi vegna þess að um málið hefði verið fíallað þar, og þrátt fyrir að Tímanum hafi ekki borist bréfið frá HSÍ, er rétt að það birtist, því um málið hefur mikið verið fíallað í blaðinu. Þá leitaði Tíminn álits Guðmundar Lámssonar hjá Handknattleiksdeild KA á málinu, og er það hér neðar á siðunni. Bréf HSÍ til norðanmanna hljóðar þannig: ■ „Laugardaginn 28. janúar sl. var fyrirhugað að íslendingar og Norðmenn léku landsleik í handknattleik á Akur- eyri. Allur undirbúningur að leiknum var í höndum norðanmanna, og vel á málum haldið eins og vænta mátti. Frá upphafi var öllum sem málinu tengdust gert Ijóst, að ekki kæmi til greina að leika nyrðra á sunnudag. Stjórn HSÍ treysti sér ekki til að taka þá áhættu að liðið yrði veðurteppt á Akureyri. Það hefði valdið því að Norðmenn hefðu misst af beinu flugi til Osló á mánudags- morgun, en orðið að fara um Kaup- mannahöfn á þriðjudag. Kostnaður af slíkri seinkun hefði orðið meiri en við erum menn fyrir í svipinn. Þegar Ijóst var að ekki yrði komist norður á laugardag, en vitað um hinn mikla áhuga fyrir leiknum á Akureyri og einnig að forráðamenn beggja íþrótta- .félaganna höfðu lagt mikla vinnu í undirbúning, ákvað formaður HSÍ að kanna á nýinnan stjórnar hvort taka ætti áhættuna af sunnudagsleik, þar sem veðurútlit var mjög gott. Tíminn var naumur og erfitt að ná til allra stjórnar- manna, en endanleg niðurstaða varð sú að fyrri ákvörðun stóð óbreytt. Veðurguðirnir og erfiðar fjárreiður Handknattleikssambandsins komu í veg fyrir að landsleikur færi fram á Akureyri að þessu sinni. Stjórn HSÍ metur mikils þann áhuga sem sýndi sig vera á leiknum á Akureyri, þakkar öllum sem lögðu hönd á plóginn og biðst afsökunar á því hvernig til tókst. Stjórn HSÍ mun leggja alla áherslu á að koma landsleik á nyrðra sem fyrst. Allar líkur eru á að sjálfir heimsmeistararnir í handknattleik, Rússar, heimsæki okkur í mars, og hver veit nema þá takist að bæta norðan- mönnum Norðmannaleikinn. Með íþróttakveðju, fyrir hönd stjórnar HSÍ, Friðrik Guðmundsson.“ Guðmundur Lárusson hjá KA: „Ó7TALEGT KLÓR” ■ „Þetta bréf er óttalegt klór og engan veginn fullnægjandi miðað við þau stóru orð sem búið var að segja. Þessir menn eiga að geta tekið þau til baka líka“, sagði Guðmundur Lárusson hjá hand- knattleiksdeild KA, er Tíminn leitaði álits hans á bréfi því er stjóm HSI hefur sent forráðamönnum handknattleiks- deildanna á Akureyri. Iþróttir helgarinnar: Handknattleikur Laugardagur: Hafnarfjörður. FH-Haukar 1. deild karla kl. 15.15. Hafnarljörður. FH-Fylkir 1. deild kvenna kl. 14.00. Seljaskóli. ÍR-HK 2. deild karla Id. 15.15. Seljaskóli. Fylkir-UBK 2. deild karla kl. 16.30 Sunnudagur: Laugardalshöll. Þróttur-Stjaman 1. deild kariakl. 20.00. Laugardalshöll. Víkingur-Valur 1. deild karla kl. 21.15. Seljaskóli. Fram-Grótta 2. deiid karla Id. 15.15. Seljaskóli. KR-ÍA 1. deild kvenna kl. 16.30. Seljaskóli. Fram-Víkingur 1. deiid kvenna kl. 14.00. Seljaskóli. Valur-ÍR 1. deild kvenna kl. 20.00. Körfuknattleikur Laugardagur: Njarðvík. Grindavík-Skallagr. 1. deild karla kl. 14.00. Sunnudagur: Hagaskóli. Fram-ÍS 1. deild karia Id. 14.00. Hagaskóli. KR-ÍBK úrvaisdeild Id. 20.00. Hagaskóli. KR-ÍS1. deild kvenna Id. 21.30. Hafnatfjörður. Haukar-ÍR úrvalsdeQd kl. 14.00. Hafnarfj. Haukar-Njarðvík 1. deild kvenna id. 15.30. Badminton Laugardagur: KR-hús. KR-mót í tvíliðaleik, og Ivenndarkeppni. Sunnudagnr: TBR-hús. Meistaram. TBR í tvfliðal. og tvenndarkeppni. Skíðaíþróttir ísafjörður. Bikarmót unglinga 13-14 ára og 15-16 ára fer fram um helgina. Víðavangshlaup Laugardagur: Flóahlaup UMF. Samhygðar, hefst kl. 14.00 við Vorsabæ í Gaulverjabæjar- hreppi. Hlaupnir verða 10 km. Glíma Laugardagur: Bikargltma íslands í íþróttahúsi Meiaskóla kl. 14.00, keppt er í flokki fullorð- inna, 12 keppendur og í flokki unglinga, þar sem keppendur eru 2. Blak Laugardagur: Hagaskóli.Þróttur-Samhygð.Bikarkeppni karla Id. 14.00. HagaskóliÍS-FramBikarkeppni karla kl. 15.20. Hagaskóli.Vtkingur-Breiðablik 1. deild kvenna kl. 16.40. -BL verðlækkun á jógúrt Nú hefur tollur verið felldur niður af inníluttum ávöxtum sem notaðir eru í hinar fjölmörgu jógúrttegundir okkar. Þetta gerir okkur kleift að lækka, - já, þú last rétt, læfea verð á allri jógúrt frá okkur um 10,6%. Þetta kemur að sjálfsögðu ekkert niður á gæðunum, þau verða eitir sem áður 100%. Ny-ódýr- aðeins tCTT-jógúrt Léttjógúrt er svar okkar við óskum fjölmargra neytenda. Léttjógúrt inniheldur ennþá minni ntu og minni sykur, en iafnframt meiri eggiahvítu. Léttjógúrt er í femum og ódýrari en ódýra jógúrtin í dósunum og um 20% hitaeiningasnauðan. Mjólkursamsaían - Mjólkurbú Flóamanna AUK HF. Auglýsingastofa Kristfnar 3.124

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.