Tíminn - 18.02.1984, Side 20

Tíminn - 18.02.1984, Side 20
Opið virka daga ' 9-19. Laugardaga 10-16 H HEDD Skemmuwegi 20 Kopavogi Simar (91)7 75 51 & 7 80 30 A*i Varahlutir Mikiö úrval Sendum um land allt Ábyrgö á öllu Kaupum nýlega bíla til niðurrifs SAMVINNU TRYGGINGAR &ANDVAKA ARMULA3 SIMI 81411 • vi.orn86300-Aug!ysinKar 183100- Afgreiðí.la Sfi.XOO - Kvöids.mar St.sS i abriel cíS HÖGGDEYFAR ^^vsrðhlutir sími365io. Hamarshöfða 1 Laugardagur 18. febrúar 1984 Ganga verður ödruvísi frá peningaflutningum hér eftir: „MENN VERÐfl AÐ VERA VOPNAÐIR” segir Einar Ólafsson, útsölustjóri ÁTVR við Lindargötu ■ „Ég er auðvitað sjokkeraður. Það er alveg á hreinu, að það verður að ganga öðruvísi frá þessum peningaflutningum hér eftir. Ég eða þessir strákar mínir förum ekki með pen- inga á milli á þennan hátt úr þessu - menn verða að vera vopnaðir“, sagði Ein- ar Ólafsson, útsölustjóri ÁTVR við Lindargötu er við ræddum við hann eftir ránið á 1,8 milljóna króna innkomu dagsins í útsöl- unni á Lindargötu. „Þessir menn vinna virkilega erf- iðisvinnu, eru illa launaðir og þeir fara ekki með pen- inga í banka upp á þessi býtti lengur“, sagði Einar. „Ég þakka þó guði fyrir að fyrir mörgum árum lét minn ágæti húsbóndi svo fyrir mælt að tveir menn skyldu ávallt fara saman með peningana í bankann, þannig að aldrei lenti einn maður í vanda - það yrðu alltaf tveir til frásagnar ef eitthvað skeði - og það skeði í kvöld. Fram til þess tíma var ég í mörg ár búinn að labba einn með peningana undir hendinni neðan af Lindargötu og í bankann. Allir vissu hver maðurinn var, hvert hann var að fara og hvað hann var með. Svonalagað var bara ekki til í okkar þjóð- félagi þá - en síðan hefur heimurinn breyst.“. Einar var sannfærður um að maðurinn sem þarna var að verki hafi alveg vitað hvernig og hvenær peningaflutning- arnir fara fram - hann hafi verið búinn að kynna sér allt í því sambandi, og ekki ætlað að lenda í nein- um smá bita. Hann kvaðst jafnframt bera það mikið traust til lögreglunnar að hann væri sannfærður um að hún mundi leysa þetta mál. ■ Haglaförín á bifreiðinni sem starfsmenn ÁTVR við Lindargötu voru á þegar þeir ætluðu að skila af sér fjármununum í útibú Landsbankans að Laugavegi 77. Tímamynd: Sverrir „VAR MED BYSSUNA Á HNAKK- ANUM Á LOFTLEHKAVEGINUM” — segir Örn Reynir Pétursson, leigubifreiða- stjóri, sem vard fyrir þeirri óhugnanlegu reynslu ad farþegi ógnaði honum með byssu og hrakti hann síðan út úr bílnum ■ „Ég held að það sé tæpast hægt að lenda i öllu verri lífs- reynslu. Þetta sýnir best hvað við erum óvarin gagnvart öllu svonalöguðu - sérstaklega þó ■ „Þetta sýnir best hvað við erum hér óvarin gegn öllu svona- löguðu - sérstaklega þó leigubíl- stjórarnir sem keyra á kvöldin og á nóttunni", sagði Hreyfds- bílstjórinn Örn Reynir Péturs- son, nýlega kominn heim eftir hið óhugnaniega „ævintýri“ klukkan langt gengin eitt í nótt. Tímamynd Róbert leigubílstjórar sem keyra á kvöldin og á nóttinni“, sagði Örn Reynir Pétursson, bifreiða- stjóri á Hreyili, sem í gærkvöldi varð fyrir þeirri óhugnanlegu reynslu að farþegi ógnaði honum með byssu og hrakti hann síðan úr bfl sínum á afviknum stað. Örn sagðist hafa tekið mann- inn upp í bíl sinn við Hótel Sögu um kl. hálf átta í gærkvöldi og hafi hann beðið hann um að aka sér út að Hótel Loftlciðum. Á leiðinni þangað dró árásarmað- urinn upp byssu og beindi henni að höfði Arnar. „Á Loftleiða- veginum var ég með byssuna í hnakkanum og þegar kom að Loftleiðahótelinu breytti hann áætluninni og sagði mér að aka út í Nauthólsvík. Þegar þangað kom skipaði hann mér út úr bílnum. Mér fannst þá ekki nema um tvennt að ræða - ég vissi ekki nema að maðurinn væri geðveikur, eins og hann hlýtur raunar að vera“, sagði Örn. Hann kvaðst síðan hafa hlaupið að Loftleiðahótelinu og látið lögregluna vita. Örn kvaðst ekki hafa séð manninn vel - hann hafi komið upp í bílinn í myrkri og myrkur verið í bílnum alla leiðina. auk þess sem hann kvaðst ekki viss um að hann hafi verið eins og hann átti að sér að vera. Væri jafnvel giskað á að hann hafi verið með gerfiskegg málað á andlitið. Örn var búinn að gefa skýrslu hjá lögreglunni er við hitturn hann að máli í gærkvöldi. „Ég reyndi að lýsa manninum fyrir lögreglunni, svona nokk- urnveginn eins og mér fannst hann vera. Maður er bara að vona að hann náist sem fyrst - þetta er auðvitað stórhættulegur maður", sagði Örn. -HEI mm dropar Rás I til tilbreytingar ■ Blaðið hennar Regínu á Selfossi og Erlingur útvörður íslenskrar tungu, hafa iðulega gert að umræðuefni sínu áhyggjur Dropa af málfari því sem viðgengst í nokkrar klukkustundir á dag, á Rás 2, að vísu ekki átölulaust, en þó án þess að það fari batnandi. Dropar ætla því að gleðja þessa tvo vini sína, Regínu- blaðið og útvörðinn, með því að breyta örlítið til og ræða þátt sem hrellir landsmenn - takið nú eftir - alla landsmenn, snemma á morgnana, en það er þátturinn Á virkum degi, en blessunarlega fá landsmenn hvíld frá þættinum um helgar. Dropar vöknuðu upp við illan leik í gærmorgun, þegar Stefán Jökulsson, einn umsjónar- manna þáttarins var að ræða við mjólkurbílstjóra fyrir aust- an. Þegar mjólkurbflstjórinn var búinn að gefa skýrslu um það hvenær hann vaknaði á morgnana og hvert mjólkur- svæði, Mjólkurbús Flóamanna frá vestri til austur næði, fannst Kolbrúnu, meðstjórnanda Stefáns, tími til kominn að hún Jegði nú orð í belg, og spurði hún bflstjórann þessarar frá- bæru spurningar: „Akið þið svo mjólkinni til kaupmann- anna og framleiðendanna?" Blessaður bflstjórinn kvað já við, cn hann hefði að sjálf- sögðu átt að segja Kolbrúnu, fyrst hún skilur ekki hvert hlutvcrk mjólkurbíla er, að það væri að taka mjólkina, og hclla henni jafnóðum í Ölfusá, til þess að viðhalda nú mó- rauða litnum. Ekki satt? Kolbrún kona þattarins ■ Þessi sami morgunþáttur fékk fasteignasala í heimsókn, til þess að ræða fasteignavið- skipti og Kolbrún þessi sama spurði hann hvað gerðist eigin- lega þegar seljandi og kaup- andi hefðu undirritað kaup- samning, við hverju gáfust lítil svör - Dropar halda helst að ckkcrt gerist. Kolbrún spurði þá hvort ekki væri ráðlegt að þinglýsa kaupsamningi hið fyrsta og var spumingin í þessa iíf m veru: „Er ekki ráðlegt að gera það á þessu tvo mánaða tíma- bili" og halda Dropar því nú fram að þeir hafi uppgötvað nýjan málfarssjúkdóm, sem sé engu betri en þágufallssýkin gamalkunna, en það er and- eignarfallssýki. Krummi .. . ...vonar bankanna vegna að ekki sé allt þegar þrennt er, er bankaræningjar eiga í hlut.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.