Tíminn - 26.02.1984, Síða 6

Tíminn - 26.02.1984, Síða 6
6 SUNNUDAGUR 26. FEBRÚAR 1984 ■ Það tók þá félaga heila viku að undirbúa sig undir það að leggja fótgangandi af stað aftur til mannabyggða. A myndinni sést Andrée skima út yfir ísauðnina þar sem hann stendur á körfunni af loftbelgnum. Feigum verður ei forðað né ófeigum í hel komið. Eftir allar þær hrakningar sem þeir félagar höfðu komist sæmilega í gegnum, urðu örlitlir ormar þeim að bana ■ Slitrur úr dagbókarblaði þar sem er að finna síðustu orðin sem Andrée Yfir pólinn til Alaska Mikið hefur verið rætt og ritað um ferð þessa og sýnist þar sitt hverjum. Margir álitu að ferðin væri slíkt feigðarflan að það væri þeim sjálfum að kenna og engum öðrum ef illa færi. Aðrir bentu á, að samkvæmt þeim útreikningum sem leiðangursmenn höfðu gert, átti það vel að vera mögulegt að láta staðvindana sem eru á þessu svæði bera loftbelginn þvert yfir pólinn til Alaska. Ef illa færi þá voru þeir og vel útbúnir að ferðast fótgangandi á ís og ættu töluverða mögu- leika á því að komast aftur til byggða. Það er erfitt að gera sér grein fyrir því hvernig þeim félögum var innanbrjósts þegar Örnin, en svo hét loftfarið, sveif með þá af stað frá Daneyju norður í svæði sem lítt eða ekkert voru mönnum kunn. Dagbækur þær sem leiðangurs- menn skráðu bera lítið með sér slíkar vangaveltur. Á einum stað er þó eftirfar- andi hugleiðingu að finna sem Andrée skrifaði. „Það er einkennilegt að svífa hér yfir íshafið. Hinn fyrsti sem hér svífur í loftfari. Hvað verður langt þangað til að aðrir koma á eftir okkur? Munu menn álíta okkur geggjaða eða fara að okkar dæmi? Ég get ekki neitað því að við erum dálítið hreyknir, allir þrír. Við álítum að við getum vel tekið dauðanum eftir að hafa gert það sem við þegar höfum gert. Ástæðurnar tel ég sérstak- lega sterkt einstaklingseðli sem þolir ekki að lifa og deyja sem óbrotnir liðsmenn, gleymdir af komandi kynslóð- um. Er þetta metnaðargirni"? Líkamsleifar pólfar- anna finnast Sumarið 1930 voru norskir selfangarar að veiðum norð-austur af Spitsbergen í Barentshafi. Þeir höfðu komist óvana- lega norðarlega í þetta skiptið vegna hinna miklu hita sem gengið höfðu yfir allt norðurhveli jarðar. Nú var auður sjór þar sem í venjulegu árferði var hulið ís. Um borð í selfangaranum „Bratvaag“ voru nokkrir vísindamenn sem ætluðu að láta setja sig í land á einhverri þeirra eyðieyja sem þarna eru og stunda rann- sóknir á meðan selfangararnir væru að störfum og fá svo far með þeim til baka um haustið. í byrjun ágúst eru þeir staddir við Hvítey sem er austust þeirra eyja er teljast til Svalbarða. Jökull liggur yfir eynni að mestu en á tveimur stöðum er nokkurt undirlendi og þar var nú snjólaust vegna hitanna. Tveir piltar af skipinu eru sendir upp á eyna til að leita að fersku vatni. Ekki líður á löngu þar til þeir koma hlaupandi til skips með þær fréttir að þeir hafi fundið merki um mannaferðir á eynni. Skipstjóri fer strax í land með menn sína og þeir taka að kanna svæðið. í malarurð sem nú var að koma undan snjó finna þeir bát úr segldúk og í honum eru margs konar hlutir. M.a. finnst þarna krókstjaki úr kopar og á hann er greypt: „Pólleiðangur Andrées 1896“. Vísindamennirnir undir stjórn Dr. Gunnars Horn voru nú kallaðir á vettvang og skipuleg leit hafin. í undrun sinni finna þeir líkamsleifar pólfaranna þriggja auk farangurs þeirra. Allt er þetta furðulítið skemmt nema að því leytinu til að dýr og þá aðallega ísbirnir virtust hafa orðið á undan þeim og gert þarna nokkurn usla. Fréttin barst eins og eldur í sinu um gjörvallan heiminn. Stórblöðin börðust um að verða fyrst með lýsingar af þessum stórkostlega fundi. Dagbækur leiðangursmanna voru furðulítið skemmdar og nú 33 árum seinna fékk heimurinn að vita hvernig leiðangur þessi hafði endað á hinn skelfilegasta hátt í myrkri heimskautavetrarins. f farangri leiðangursmanna fundust og fimm spólur með ljósmyndum og voru þarna komnar í leitirnar myndir þær er Strindberg hafði tekið í leiðangrinum. Filmur þessar voru af Kodak gerð og var nú farið með þær sem gull. Með því að gera tilraunir á framköllun þess hluta filmanna, sem ekki hafði verið tekið á, ritaði. tókst að framkalla all-nokkrar þessara stórkostlegu Ijósmynda sem hér eru birtar. „Hvítabjörninn er besti vinur heimskautafarans“ Dagbækurnar og ljósmyndirnar leiddu í ljós að ísing hafði gert það að verkum að loftfarið nauðlenti á ís 14. júlí, þremur dögum eftir að lagt hafði verið af stað frá Daneyju. Leiðangursmenn höfðu þá tekið til bragðs að reyna að halda fótgangandi á ís til byggða. Rek ísflákans sem þeir höfðu lent á gerði það að verkum að ferð þeirra varð ærið skrykkjótt. Þeir náðu þó landi á Hvít- eyju þar sem þeir báru beinin. Síðasta dagbókarfærslan er frá 17. október þar sem Strindberg skrifar þetta: „heimkl. 7.50 f.h.“ Þegar bækurnar voru rannsakaðar báru færslurnar það með sér að þeir höfðu allir átt við veikindi að stríða. Menn áttuðu sig þó ekki á því hvað orðið hafði þeim að aldurtila því að þessi veikindi sem þeir lýsa, virtust ekki vera alvarlegs eðlis. Hvað orðið hafði þessum hetjum norðursins að falli var því mönnum hulin ráðgáta. Ýmsar sögur spunnust upp. Sumir töldu að þeir hefðu kafnað í tjaldi. Aðrir létu að því liggja að þeir hefðu fallið fyrir eigin hendi í örvinglun. Það var svo ekki fyrr en 1949 að danska lækninum Ernest Adam Tryde sem kominn var á eftirlaun, tókst að ráða þá gátu. Með því að rannsaka bein sem fundist höfðu á Hvíteyju og hár úr ísbjarnarfeldi sem þeir félagar höfðu haft með sér, tókst Tryde að færa sönnur á það að ofurlítið ormkvikindi hafði orðið pólarförunum að aldurtila. Með því að nærast á ísbjarnarkjöti höfðu þeir étið tríkínuorma, sem í ísbjörnum lifa, og þeir síðan smám saman dregið þá til dauða. Ein þeirra setninga sem Andrée skrif- aði í dagbók sína þykir heldur kald- hæðnisleg þegar örlög þeirra félaga eru höfð í huga. Þann 20. september árið 1897 skrifaði hann um það að þeir félagarnir hefðu fellt ísbjörn sér til matar. Líkt og í þakklætisskyni skrifar hann: „Hvítabjörninn er besti vinur heimskautafarans." -JÁÞ

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.