Tíminn - 26.02.1984, Qupperneq 19
SUNNUDAGUR 26. FEBRÚAR 1984
■ Helgi Olafsson
saman settur með það í huga að íslend-
ingar ættu tiltölulega auðveit með að ná
í titiláfanga, þá hlýtur það að hafa
afskaplega góð áhrif að keppa á mótum
af þessari styrkleikagráðu, sem sé milli-
sterku móti. Á Reykjavíkurmótunum
1978 og 1980 var fylgt þeirri stefnu að
bjóða svo tii eingöngu mjög sterkum
stórmeisturum til þátttöku og þótt ungu
mennirnir öðlist náttúrlega dýrmæta
reynslu af að keppa við slíka menn (og
tækifæri til að næla sér í eitt og eitt
höfuðleður stór-stórmeistara), þá getur
það varla verið örvandi að vera sífellt í
neðra kanti móts og fá ekki að kynnast
því að berjast um sjálfan sigurinn á
mótinu. Það er augljóst að hér þarf að
fjöiga skákmótum. Hæfileg blanda af
sterkum mótum, miilisterkum mótum
og opnum mótum er líklega affarasælust
og áhugi áhorfenda er augsýnilega
nægur. Það er ekki lengur skilyrði að
Friðrik Óiafsson sé meðal keppenda til
þess að fjöldinn (Svarthöfðar sem aðrir)
flykkist á skákstað, nú hafa menn trygg-
ingu fyrir því að aðrir íslendingar geta
einnig látið að sér kveða í toppbarátt-
unni, og unnið hvern sem er. Eins og
Búnaðarbanki íslands hefur þegar sýnt
og sannað er leikur einn fyrir kraftmikil
fyrirtæki að halda eins og eitt skákmót á
ári, og einnig hlýtur að vera grundvöllur
fyrir því að Reykjavíkurskákmótið verði
loks gert að árlegum viðburði. Þjóðir
eins og Englendingar og Hollendingar
halda fjöldann allan af skákmótum á ári
hverju, og þó þær séu auðvitað miklu
fjöimennari en við íslendingar er alls-
endis óvíst að raunverulegir skákáhuga-
menn séu ýkja fleiri en hér.
Hvort það eigi að styrkja alþjóðlegu
meistara af peningum ríkisins, rétt eins
og stórmeistarana? Því ekki það? Það
yrði ríkinu varla ofviða og fólkið fengi
leiki, þó það fengi ekki brauð í þessu
hallæri. Eftir sigur sinná Búnaðarbanka-
mótinu varpaði Jóhann Hjartarson fram
þeirri hugmynd að skákmenn gætu sótt
um sérstaka styrki sem veittir yrðu til
kannski tveggja ára í senn en ekki
endilega ævilangt. Það yrði náttúrlega til
stórra bóta og ef alþjóðlegir meistarar
ættu aðgang að slíku gætu þeir teflt eins
mikið og kostur er, og árangurinn væri
þá ekki lengi að skila sér.
Eitt enn. Snemma næsta vetur, eða í
nóvember, verður haldið ólympíuskák-
mót í Grikklandi og þar verður ísland að
sjálfsögðu meðal þátttakenda. Á síðustu
ólympíumótum hafa íslendingar hvað
eftir annað virst líklegir til mikilla af-
reka, og vissulega hafa verið höggvin
strandhögg hjá sumum sterkustu skák-
þjóðum heims, en lokaárangurinn hefur
þó sjaldnast verið alveg í samræmi við
fyrirheitin. Nú þegar sjáanlegar eru
miklar framfarir ungu mannanna okkar
frá síðasta ólympíumóti er um að gera
að undirbúa mótið í Grikklandi vel.
Nokkuð Ijóst virðist hverjir munu keppa
þar fyrir íslands hönd ef tekst að ná
saman sterkasta liðinu. Ef Friðrik Ólafs-
son er frátalinn eru sex sterkustu skák-
menn íslands að líkindum þessir: Guðm-
undur Sigurjónsson, Helgi Ólafsson,
Jóhann Hjartarson, Jón L. Árnason,
Karl Þorsteins og Margeir Pétursson
, (stafrófsröði). Reynslan frá heimsmeist-
aramóti sveita ungmenna í Chicago á
síðastliðnu ári sýnir hversu mikils virði
samæfing og stöðug keppni fyrir mót
getur verið. Ef vel ætti að vera, ættu þeir
aðilar sem málið varðar að taka sig
saman og útvega íslensku ólympíusveit-
inni stuðning sem dugar til þess að búast
sem allra best til Grikklandsfararinnar.
19
'oppkz computer
Stórkostkig' verÖlækkuii!
Nú geta allir fengið sér alvöru tölvu
Nú hafa verið felldir niöur tollar og söluskattur af tölvubúnaöi.
Þetta gerir íslendingum kleift að tölvuvæöast í samræmi viö
kröfur nútímans. Nú átt þú næsta leik!
Nú getum viö boöiö þér vinsælustu alvöru einkatölvu í heimi,
Apple / / e, en hún hefur nú selst í 1.500.000 eintökum. Meira
en 20.000 forrit eru fáanleg á Apple / / e, en þaö er mun meira
en nokkur önnur tölva getur státaö af. Mörg íslensk forrit eru
fáanleg á vélina, t.d. fjárhagsbókhald, viðskiptamannabókhald,
lagerbókhald, launabókhald, tollvörugeymsluforrit, veröútreikn-
ingar o.fl. Mundu þaö, aö án forrita er tölva eins og bensínlaus
bíll.
Á Apple / / e er staðlað íslenskt lyklaborö, og hentar hún því
einkar vel til ritvinnslu.
Notendaminni vélarinnar er 64K, en þaö er stækkanlegt í 128K
og ætti þaö aö vera nægilegt fyrir flesta.
Apple tölvur eru notaöar hjá skólum, bönkum, opinberum
stofnunum, einkafyrirtækjum, skipafélögum, flugfélögum, verk-
fræðistofum, læknastofum, rannsóknarstofum, lögfræðistof-
um, endurskoöendum, vélsmiöjum, fataframleiöendum, ráð-
gjafarfyrirtækjum, verktökum, útgáfufyrirtækjum, prentsmiöj-
um og þannig mætti lengi telja. Fjölmargir einstaklingar nota
Apple, svo sem kennarar, rithöfundar, vísindamenn, forritarar,
rafeindavirkjar, radioamatörar, stjórnendur fyrirtækja og stofn-
ana, læknar, verkfræöingar, þýöendur og blaöamenn, og eru
þá aöeins tekin örfá dæmi.
Tilboð:
Kr. 63.990,-, nú aðeins kr. 49.990,-
Útborgun kr. 10.000,- og eftirstöðvar á 10
mánuðum!
Skipholti 19, sími 29800.
fffff
. ; , ;
.
Lausar stöður
Stöður fulltrúa við embætti ríkisskattstjóra rannsóknar-
deild eru hér með auglýstar lausar til umsóknar.
Nauðsynlegt er að umsækjendur séu endurskoðend-
ur, eða hafi lokið prófi lögfræði, hagfræði eða viðskipta-
fræði eða hafi staðgóða þekkingu á bókhaldi og
skattskilum.
Umsóknir með upplýsingum um aldur, menntun og
fyrri störf sendist rannsóknardeild ríkisskattstjóra, Skúla-
götu 57, Reykjavík, fyrir 21. mars.
Reykjavík 21. febrúar 1984.
Skattrannsóknarstjóri.
Hf LAUSAR STÖÐUR HJÁ
M REYKJAVÍKURBORG
Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk til eftirtalinna
starfa hjá Borgarverkfræðingnum í Reykjavík,
Skúlatúni 2.
Starfskjör samkvæmt kjarasamningum.
Gjaldkera
Starfsmann á Ijósprentunarstofu
Upplýsingar veitir skrifstofustjóri Borgarverkfræð-
ings í síma 18000.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð á
sérstökum umsóknareyðubiöðum sem þar fást
fyrir kl. 16.00 mánudaginn 5. mars 1984.