Tíminn - 03.03.1984, Page 3

Tíminn - 03.03.1984, Page 3
Sérkennilegur málatilbunaður í borgarstjórn: MEIRIHLUTINN FORDÆMH ATVINNU- MALATHIÖGUR ALÞÝÐUBANDALAGSINS — en vísaði þeim þó til atvinnumálanefndar með hjásetu Alþýðubandalagsins vegna orðalags ■ Miklar umræður spunnust í borgar- stjórn í fyrrakvöld um tillögur um að- gerðir í atvinnumálum Reykjavíkur. Guðmundur Þ. Jónsson mælti fyrir tíl- lögunum, sem voru í 6 liðum og undirlið- um, en Magnús L. Sveinsson formaður atvinnumálanefndar varð fyrir svörum. Las hann upp skýrslu sem Egg'ert Jóns- son borgarhagfræðingur hafði tekið sant- an um horfur í atvinnumálum Reykja- víkur, en blaðamönnum var meinað að fá skýrsluna í hendur á þeim forsendum að hún væri ekki ennþá orðin opinbert plagg. Taldi Magnús L. Sveinsson að tillöguflutningur Alþýðubandalagsins væri sýndarmenska og hefði þann tilgang að koma því inn hjá almenningi að atvinnumálanefnd svæfi á verðinum, en nefndin hefði þvert á móti haft allt það til athugunar sem í tillögum Alþýðu- bandalagsins stæði. Lagði Magnús L. Sveinsson fram tillögu um afgreiðslu málsins frá meirihlutanum þar sem lagt var til að tillögum Abl. yrði vísað til atvinnumálanefndar þrátt fyrir að allt í þeim væru yfirborðstillögur og sýndar- mennska. Alþýðubandalagið greiddi ekki atkvæði með þessari málsmeðferð vegna orðalagsins og var það því meiri- hlutinn með fulltingi borgarfulltrúa Framsóknarflokksins og Guðrúnar Jóns- dóttur frá Kvennaframboði, sem stóð að því að vísa tillögunum til atvinnumála- nefndar. Eins og áður segir eru tillögur Alþýðu- bandalagsins í 6 liðum og undirliðum. Það helsta sem lagt er til að gert verði er að í samvinnu við aðra verði gerð skrá yfir vörutegundir sem fluttar eru inn en ætla mætti að unnt væri að framleiða hérlendis, og á grundvelli þess gerðar tillögur um nýjar framleiðslugreinar í borginni. Þá leitist borgin við að greiða fyrir stofnsetningu nýrra iðnfyrirtækja með ýmsurn ráðum, milligöngu um út- vegun lánsfjár frá atvinnuleysistrygg- ingasjóði, tryggingasjóði, byggðasjóði, framkvæmdasjóði o.s.frv., ábyrgð vegna lántöku, frestun opinberra gjalda vegna nýrra framleiðslufyrirtækja eða endur- fjárfestingar eldri fyrirtækja, borgin leiti eftir að stóriðnaður verði settur þar upp, stofnaðir verði verndaðir vinnustaðir, og stofnað verði embætti iðnráðgjafa, sem starfi með borgarhagfræðingi. Enn- fremur með framlagi áhættufjármagns þar sem það á við, eða beinni þátttöku í framleiðslustarfsemi, hugsanlega með hlutafjárframlögum. -JGK. Deilur tveggja aðila um lóðarrétt við Borgartún ÖÐRUM ÚT- HLUTAÐ BYGGINGA- LEYFI ■ „Bygginganefnd hefur með þessari samþykkt tekið afstöðu með öðrum aðilanum í deilu sem hún ætti ekki að j blanda sér í“, sagði Kristján Benedikts- son borgarfulltrúi á fundi borgarstjórnar í fyrradag í tilefni þess að bygginganefnd hefur heimilað byggingu iðnaðarhúss, á lóðinni Borgartúni 25-27, en deilur eru uppi milli Guðna Helgasonar, handhafa byggingaleyfisins, og Vélsmiðju Jóns Bergssonar s.f. um lóðarréttindi á þessum stað, en síðamefndi aðilinn á stál- grindarhús á viðkomandi lóð. Hefur lögmaður hans mótmælti þessari af- greiðslu bygginganefndar. Þá hefur skrifstofustjóri borgarverkfræðings lagt til að ekkert hyggingaleyfi verði gefið á lóðinni fyrr en deilurnar eru útkljáðar, og tók Kristján Benediktsson undir það i sjónarmið. | Hilmar Guðlaugsson formaður bygg- inganefndar flýtti fyrir úrslitum í deil-i , unni. Teldi Vélsmiðja Jóns Bergssonar! s.f. að gengið væri á sinn hlut, væri hægurinn hjá að gera lögbannskröfu og fá málið síðan útkljáð fyrir dómi. Guðni Helgason mun hafa lagt fram teikningar af lóð, sem hann telur sig hafa eignarhald á, en á hluta hennar stendur stálgrindahús Jóns Bergssonar og hyggst Guðni gera bílastæði þar sem húsið stendur nú. - K.K. Varð á milli blla og fótbrotnaði ■ Fjögurra bfla árekstur varð í gær í Svínahrauni við Litlu kafflstofuna. Einn maður mun hafa orðið á milli bfla og fótbrotnað, en um frekari málavöxtu var blaðinu ekki kunnugt í gærkvöldi. Gífurleg hálka var í Reykjavík í gær og mikið um árekstra. Bifreið valt á Breiðholtsbrautinni, en ökumaður slapp ómeiddur. FALLEGUR FISLÉTTUR FÍLSTERKUR FRAMTÍÐARBÍLL virðulegur sparneytinn þœgilegur 1929 i EGILL VILHJÁLMSSON HF. sprettfiarður Smiðjuvegi 4, Kópavogi. Símar 77200 - 77202 -JGK

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.