Tíminn - 03.03.1984, Síða 5
LAUGARDAGUR 3. MARS 1984
5
W\
1111 JAI'
fréttir
■ Úr „Sjóleiðinni til Bagdad“ eftir Jökul Jakobsson sein UMF Ármann á
Kirkjubæjarklaustri sýnir um þessar mundir. Júlíus Oddsson, Jóna Sigurbjartsdóttir
og Vilhjálmur Bjarnason í hlutverkum sínum.
Leikför um Suðurland
UMF ÁRMANN Á KLAUSTRI
SÝNIR SIÓLBDINA TIL
BAGDAD EFTIR JÖKUL
Danskeppni í
Tónabæ
ÍSLANDS-
MEISTARA-
KEPPNI í
„FREE-
STYLE“
■ Félagsmiðstöðvarnar í Reykjavík
efna til íslandsmeistarakeppni í „free-
style“ dönsum dagana 15. og 16.
mars, þriðja árið í röð. Keppni þessi
er opin öllum unglingum á aldrinum
13-17 ára og geta þeir sem áhuga hafa
pantað tíma til æfinga í félagsmið-
stöðvunum. Keppt verður í einstak-
lings og hópdans, en hópur telst þrír
eða fleiri dansarar.
„Freestyle" dans felur í sér að
þátttakendum er frjálst að dansa
hvaða dansstíl sem er, t.d. jassdans,
diskó eða „breakdance“.Undankeppni
erl5. mars og úrslitakeppni kvöldið
eftir og hefjast báðar klukkan 20:00 í
Tónabæ. Innritun og tímapantanir
fara fram í félagsmiðstöðvunum dag-
ana 5. til 12. mars. Þátttökugjald er
ekkert.
■ Úm þessar mundir er Ungmennafé-
lagið Ármann að leggja upp í leikför um
Suðurland með leikrit Jökuls Jakobs-
sonar, Sjóleiðina til Bagdad, eftir vel
heppnaða frumsýningu í Kirkjuhvoli um
síðastliðna helgi. Leikstjóri er Jónína
Kristjónsdóttir en með helstu hlutverk
fara Soffía Ragnarsdóttir, Gunnar Jóns-
son og Jóna Sigurbjartsdóttir
Næsta sýning verður að Leikskálum
Vík í Mýrdal miðvikudaginn 7. mars en
síðan á eftirtöldum stöðum; Aratungu í
Biskupstungum 8. mars, Félagsheimili
Kópavogs 9. mars, Flúðum í Hruna-
mannahreppi 10. mars, Félagsheimili
Vestur-Eyfellinga 11. marsoglokasýning
verður svo heima á Klaustri 17. mars.
Allar sýningarnar hefjast klukkan 21:00
Hrossabú
Óska eftir vinnu á hrossabúi. Er vön hrossum.
Upplýsingar í síma 91-52276
Bíll til sölu
Toyota Hi Lux stuttur, 5 sportfelgur m/breiöum dekkjum
fylgja, pallur klæddur m/krossviö og segl yfir. Góöur
frágangur! Mjög vel farinn.
Upplýsingar í síma 78195.
Bújörð óskast
á leigu á Suður eða Suðvesturlandi. Hentug fyrir
kýr. Upplýsingar í síma 23864.
Plast og málmgluggar
Helluhrauni 6 Hafnarfirði
sími53788
Við minnum á að það þarf ekki fúa-
varnarefni á okkar framleiðslu.
Hjartavernd
Landssamtök hjarta-
og æðaverndarfélaga
Heldur fræðslufund fyrir
almenning um kransæða-
sjúkdóma
laugardaginn 10. mars 1984 kl. 13.30 í
Domus Medica
Fundarstjóri Snorri Páll Snorrason prófessor.
Dagskrá:
1. Ávarp. Matthías Bjarnason heilbrigðisráöherra.
2. Starfsemi Hjartaverndar, stutt yfirlit.
Stefán Júlíusson framkvæmdastjóri.
3. Útbreiðsla kransæöasjúkdóma á íslandi.
Rannsókn Hjartaverndar.
Nikulás Sigfússon yfirlæknir.
4. Alkohólneysla í hófi. Hvar eru mörkin frá heilsufars-
legu sjónarmiði?
Dr. Bjarni Þjóðleifsson yfirlæknir.
5. Meingerð æðakölkunar.
Dr. Guðmundur Þorgeirsson læknir.
6. Blóðfita og kransæðasjúkdómar.
Hvert er sambandið þar á milli?
Dr. Gunnar Sigurðsson yfirlæknir.
7. Áhættuþættir kransæðasjúkdóms.
Varnaraðgerðir vestrænna þjóða.
Dr. Sigurður Samúelsson prófessor.
8. Getum við breytt lífsvenjum okkartil bættrar heilsu?
Dr. Jón Óttar Ragnarsson dósent.
9. Hvers vegna borgar sig að hætta að reykja?
Dr. Þorsteinn Blöndal yfirlæknir.
10. Hringborðsumræður.
Umræðustjóri dr. Þórður Harðarson prófessor.
Jörð til sölu
Til sölu jörðin Lambhagi og hluti í landi Litla-Lambhaga,
Skilmannahr. Borgarfj. sýslu. Laxveiðihlunnindi. Upp-
lýsingar eru veittar í símum 91 -45912,38014 og 39037.
Tilboð óskast fyrir 25. mars n.k.
Bíldshöfða 8 - Símar 8-66-55 & 8-66-80