Tíminn - 03.03.1984, Blaðsíða 11
10
LAUGARDAGUR 3. MARS 1984
íþróttiri
umsjón: Samúel Öm Erlings:
KR LA I NJARÐVIK
— 83-74, íleik sem hafði enga þýðingu
■ I gærkvöld léku Njarövík og KR í
úrvalsdcildinni í körfuknattleik. Leikið
var í Njarðvík og sigruðu heimamenn,
83-74 eftir að staðan í hálfleik var 41-29.
Leikurinn einkenndist af stöðu liðanna í
deildinni, bæði löngu örugg í úrslita-
keppnina.
Njarðvíkingar voru yfir framan af, en
KR náði yfirhöndinni 22-21 um miðjan
hálfleikinn. Njarðvíkingar tóku síðan
leikinn í sínar hendur og höfðu yfir í
hálfleik 41-29. í síðari hálfleik juku
heimamenn enn á forskot sitt og höfðu
á tímabili 20 stiga forskot 60-40, og síðar
68-48. í lokin náðu KR-ingar að rétta
hlut sinn nokkuð, þeir minnkuðu mun-
inn í 13 stig, 70-57 og 74-61, og síðan í
10 stig 80-70. Lokastaðan síðan 9 stiga
sigur Njarðvíkinga, 83-74.
Leikurinn einkenndist nokkuð af
þeirri stöðu sem liðin eru í. Bæði hafa
fyrir löngu tryggt sér rétt til að leika í
úrslitakeppninni og skipti þessi leikur
því engu máli. Hjá Njarðvíkingum bar
lítið á þeim leikmönnum sem venjulega
eru í sviðsljósinu, þeim Val Ingimundar-
NM á fullu
— Undankeppni í Höllinni f dag
■ Norðurlandamót unglinga í badminton'
er áfram haldið í dag. I dag verður undan-
keppni í einliðaleikjum pilta og stúlkna,
tvíliðaleikjum pilta og stúlkna, og tvenndar-
leik. Danir eru taldir sigurstranglegastir í
flestum greinum, en þó þykir sænsk stúlka
líkleg í cinliðalcik stúlkna. Hverjir leika í
undanúrslitum á morgun, skýrist í dag.
( einliðaleik pilta þykir líklegastur Poul
Erik Höyer frá Danmörku. í stúlknaflokkn-
um þykir líklegust sænska stúlkan Charlotta
Wihlhorg, en danska stúlkan Lene Sörensen
er talin munu veita henni harða keppni. 1
tvíliðaleik pilta eru Danirnir Poul Erik
Höyrer og Henrik Jensen taldir sigurstrang-
legastir. Norðurlandameistararnir í tvíliða-
leik stúlkna eru mættir til leiks, Gitte Poulsen
og Gitte Sögaard. Paulsen er að auki Evrópu-
meistari í tvenndarleik ásamt Anders Niel-
■ Gitte Paulsen, Norðurlanda-
meistari í tvfliðaleik kvcnna, og Ev-
rópumeistari í tvenndarleik í sínum
aldursflokki. Hún er sá keppandi
sem lengst hefur náð í badminton
þeirra, sem hér keppa.
; sen, og eru þau að sjálfsögðu sigurstrangleg-
: ust þar.
íslensku keppendurnir eiga erfiða keppi-
nauta framundan í flestum greinum. Piltarnir
mæta allir Norðmönnum eða Svíum í fyrsta
leik, og eiga möguleika á að komast áfram,
en ekki mikla. Þórdís Edwald mætir norskri
stúlku í fyrsta leik, og með alla sína keppnis-
reynslu ætti hún að hafa sigur, og komast
eitthvað áfram.
syni og Gunnari Þorvarðarsyni. Aftur á
móti voru þeir Ingimar Jonsson og
Hreiðar Hreiðarsson meira áberandi og
áttu þeir góðan leik ásamt Árna Lárus-
syni og Isak Tómassyni. Hjá KR var Jón
Sigurðsson góður ásamt þeim Páli Kol-
beinssyni og Garðari Jóhannssyni.
Stig Njarðvíkinga skoruðu: Ingimar
Jónsson 18, Árni Lárusson 13, Valur
Ingimundarson 11, ísak Tómasson 10,
Hreiðar Hreiðarsson 9, Ástþór Ingason
8, Gunnar Þorvarðarson 6, Sturla Ör-
lygsson 4 og Júlíus Valgeirsson 4.
Hjá KR skoruðu: Jón Sigurðsson 22,
Garðar Jóhannsson 18, Páll Kolbeinsson
14, Guðni Guðnasor! 11, Kristján
Rafnsson 5, Birgir Guðbjörnsson 2 og
Agúst Lindal 2.
Leikinn dæmdu þeir Hörður Tuliníus
og Gunnar Bragi Guðmundsson og var
dómgæsla þeirra góð, lítið um vafaatriði.
Ekki kemur á óvart að Gunnar skuli
dæma vel, því hann hefur dæmt mikið af
leikjum íveturogstaðiðsigmjögvel. Þá
hefur Hörður einnig oft sýnt það að í
honum býr góður dómari þó djúpt sé á
því stundum.
-BL.
INGUNN SKAUT ÞÆ
BANDARfSKU í KAF
skoradi 11 mörk f 19-18 sigri fslands f gær
zunn Bernódusdóttir handknatt- I Staðan í hálfleik var 11-11 no í síftari I mnronn vörrSur cvn l#^il*rírS í 1
ELLEFU LEIKMENN
STANDARD UEGE
í YFIRHEYRSUI
— f gær — ,,mútumálid” hjá
Waterschei einungis eitt margra
hneykslismála f rannsókn
■ Ellefu leikmenn knattspyrnuliðsins Stand-
ard Liege í Belgíu voru færðir til yfirheyrslu hjá
Belgísku skattalögreglunni í gærdag. Voru leik-
mennirnir teknir strax eftir æfingu, og yfirheyrð-
ir vegna meintra skattsvika félagsins. Skattalög-
reglan belgíska hefur komist yfir „svarta bók-
haldið" svonefnda hjá félaginu, en þar eru
skráðar greiðslur sem leikmenn liðsins hafa
fengið undir borðið. Nú þykir sýnt, að „mútu-
málið“ hjá Waterschei er aðeins lítill hluti
þeirrar rannsóknar sem fram fer í Belgíu.
Þjálfari Waterschei sagði í viðtölum við
belgísk blöð í gær, að það sem hann myndi frá .
títtnefndum leik Waterschei og Standard Liege
í deildarkeppninni 1982, þar sem sagt er að
leikmönnum Waterschei, og þar á meðal Lárusi
Guðmundssyni hafi verið mútað, sé að mark-
vörður liðsins og Lárus Guðmundsson hafi átt
• sérstaklega góðan leik.
w
■ Ingunn Bernódusdóttir hnndknatl
leikskona skaut landslið Bandaríkjanna
hreinlega í kaf í gær, er íslenska landsliðið
lék við það í Pennsylvaninu í Bandaríkj-
unum. Islenska liðið sigraði í leiknum,
sem var hörkuspennandi og hnífjafn
lengst af, 19-18. Ingunn skoraði 11
marka íslenska liðsins, eða um 60%, og
segir það meira en mörg orð um hamfarir
hennar.
Leikurinn var mjög spennandi, og vel
leikinn að sögn Arnþrúðar Karlsdóttur,
formanns landsliðsnefndar kvenna hjá
HSÍ, en hún er fararstjóri í keppnisferð
íslands til Bandaríkjanna að þessu sinni.
Staðan í hálfleik var 11-11, og í síðari
hálfleik var sem í þeim fyrri, jafnt á
flestum tölum en ísland var sterkara a
endasprettinum og sigraði 19-18.
Ingunn Bernódusdóttir var eins og
áður sagði langatkvæðamest íslensku
stúlknanna, skoraði 11 mörk, þar af eitt
úr vítakasti. Þær Kristjana Aradóttir,
Guðríður Guðjónsdóttir og Margrét
Theódórsdóttir skoruðu 2 mörk hver, og
Sigrún Blomsterberg og Erla Rafnsdóttir
eitt mark hvor. Kolbrún Jóhannsdóttir
stóð í marki íslands allan leikinn, og átti
mjög góðan leik.
í dag keppir liðið í West Point, en á
Grosswallstadt?
í úrslitum IHF-Evrópukeppninnar í
handknattleik? — Per Skaarup hættir með
danska landsliðinu eftir Ol í sumar
■ Verða það Gladsaxe HG frá Danmörku og Grosswallstadt frá V-Þýskalandi sem
leika til úrslita í IHF Evrópukeppninni í handknattleik? Margt bendir til að svo verði.
Um síðustu helgi var fyrri leikur beggja undanúrslitaviðurcignanna í keppninni.
Gladsaxe HG sigraði Lokomotiva Tmava frá Tékkóslóvakíu 25-22 í Tékkóslóvakíu,
og Tatabanya Banyaz sigraði Grosswallstadt naumt, 23-22 í Ungverjalandi.
Tatabanya, liðið sem sló FH út úr keppninni á dögunum, virðist ekki eiga mikla
möguleika á að ráða við Þjóðverjana í Þýskalandi, svo mikið hefur heimavöllurínn
að segja. Danirnir eru einnig mjög sigurstranglegir gegn Tékkunum eftir frækinn
útisigur. Þeir gætu þó nagað sig í handabökin, þeir höfðu á tímabili, skömmu fyrir
leikslok,8 marka forskot.
Það voru tveir góðkunningjar fslend-
inga sem voru mennirnir bak við sigur
danska liðsins í Tékkóslóvakíu. Þeir eru
Morten Stig Christiansen landsliðsfyrir-
liði Dana, og risinn Per Skaarup, leik-
maður sem íslenskar skyttur þekkja vel.
Morten Stig var maðurinn bak við 6
gullfalleg mörk í fyrri hálfleik, og byggði
upp mörg önnur. Skaarup skoraði 5
mörk, og varði, eins og hans er von og
vísa, fjölda skota með sínum löngu
hrömmum. Hann leikur sem langskytta
með Gladsaxe, og spilar stórt hlutverk í
vörninni. Hann spilar einnig stórt hlut-
verk í danska landsliðinu í vörninni, en
leikur minna í sókn, og þá sem línumað-
ur. Dálítið sérstakur Iínumaður, á þriðja
metra á hæð.
Per Skaarup sagði í viðtali við danskan
fréttamann eftir leikinn í Trnava, að
hann ætlaði að hætta að leika með
danska landsliðinu eftir Ólympíuleikana
í sumar. Hann hefur verið lengi í
eldlínunni, um tíma sem helsta skytta
danska landsliðsins, en varð fljótt aðal-
trompið í vörninni, og þrátt fyrir að ekki
séu lengur not fyrir han sem stórskyttu
í liðinu, er hann enn aðalvarnarmaður
liðsins. „En lífið er meira en handbolti“,
sagði Skaarup, og fer sennilega nálægt
sannleikanum þar. - íslendingar geta
því gefið sér það, að þessi viðfelldni risi
mun að líkindum ekki leika sér framar
með félögum sínum í danska landslið-
inu.
Síðari leikirnir í undanúrslitum IHF
Evrópukeppninnar verða leiknir nú um
helgina. Þá verður séð hvort úrslita-
leikurinn í keppninni verður vestur-
evrópskur, aldrei þessu vant, eins og
mcstar líkur eru nú á. -SÖE
morgun verður svo leikið í Lake Placid,
þar sem vetrarólýmpíuleikarnir fóru
fram fyrir fjórum árum. Mikið fannfergi
er í þeim hluta Bandaríkjanna sem
stúlkurnar ferðast nú um, og hefur þeim
ekki gengið of vel að komast milli staða
þess vegna.
{fyrsta leik íslands og Bandaríkjanna,
í fyrradag, sigraði bandaríska liðið 26-
21. íslenska liðið var þá ferðaþreytt,
nýkomið frá íslandi og hafði aðeins
hvílst í fáar klukkustundir, ísland hafði
þó yfir 12-11 í hálfleik, en síðan tóku þær
bandarísku völdin og sigruðu 26-21.
Guðríður Guðjónsdóttir var þá at-
kvæðamest íslensku stúlknanna í
leiknum, skoraði 6 mörk, Ingunn
Bernódusdóttir var með 5, og Margrét
Theódórsdóttir 4. - SÖE.
■ Per Skaarup ætlar að hætta með
danska landsliðinu eftir Ol í sumar.
Skaarup og félagar í Gladsaxe eiga nú
þokkalega möguleika á að verða
Evrópumeistarar.
„Ég var að berjast fyrir sæti í liðinu á þessum
tíma, nýkominn til liðsins, og mátti ekki við því
að slappa neitt af. Það trúði því enginn að þetta
væri alvara með greiðslurnar frá Standard fyrir
leikinn. Þessar greiðslur komu svo eftir á, og þá
tóku menn við þeim, því miður. Ef einhver,
ekki síst ég nýliðinn, sem ekki talaði einu sinni
málið, hefði neitað, hefði honum verið útskúf-
að“, sagði Lárus Guðmundsson í samtali við
Tímann í gær.
Roger Petit, formaður og aðaleigandi Standar
Liege sagði af sér í gær, svo og þjálfari liðsins,
Raymond Goethals. Rannsóknin beinist nú að
„svörtum“ greiðslum Standard Liege og annarra
félaga til leikmanna sinna, en slíkar greiðslur
munu útbreiddar í Belgtu. - Er nú sýnt, að
„mútumálið" hjá Waterschei er bara eitt margra
hneykslismála sem eru á leið upp á yfirborðið í
Belgtu. -SÖE jj
ÞROTTIR
Körfubolti
í dag kl. 14.00 leika Valur og ÍR sinn næst
síðasta leik í úrvalsdeildinni. Ef ÍRingum tekst
að vinna sleppa þeir örugglega við fall. Leikur-
inn verður í Seljaskóla. Á sunnudag leika svo
Haukar og ÍBK t íþróttahúsinu í Hafnarfirði,
hefst leikurinn kl. 14.00. Á morgun er svo
einn leikur í 1. deild karla, Fram og umFL
leika í Hagaskóla kl. 14.00.
I 1. deild karla eru tveir leikir á dagskrá,
báðir í Hagaskóla. Þróttur og Fram leika kl.
14.00 og Víkingur og ÍS þar á eftir kl. 15.20.
Handbolti
í dag er einn leikur í bikarkeppni HSÍ.
Afturelding og Grótta keppa á Varmá, og hefst
leikurinn klukkan 13.00. I þriðju deild karla
eru tveir leikir í dag, á Selfossi leika hcimamenn
við Ögra klukkan 14.00, og í íþróttahúsi
Seljaskóla keppa Ármann og Skailagrtmur, að
iíkindum klukkan 15.30.
Hlaup
3.Stjörnuhlaup FH hefst í dag kl. 14.00, við
Lækjarskóla í Hafnarfirði. Karlar hlaupaS km,
konur4 km,drengir4km, piltar2km,ogtelpur
2 km. Umsjónarmaður mótsins er Sigurður
Haratdsson. Heimasfmi hjá honum er 52403.
Júdó
Fyrri hluti {slandsmeistaramótsins í júdó fer
fram í fþróttahúsi Kennaraháskólans í dag.
Mótið hefst kl. 15.00.
Skíði
í dag og á morgun verður bikarmót í
alpagreinum haldiðfyrir 13-16ára aldurshóp .
Mótið verður á Húsavík.
Badminton
í Laugardalshöllinni er Norðurlandamót
unglinga um helgina. Um mótið er fjallaðmikið
ahnars staðar í blaðinu. í dag hcfst undan-
keppni í tvíliðaleikjum, tvenndarleik og ein-
liðaleikjum. Á morgun árdegis hefst keppni í
undanúrslitum þessara greina, og síðdegis
verða úrslitaleikir leiknir.
-SGG
LAUGARDAGUR 3. MARS 1984
11
Betri búfénaður, meiri
afurðir með lýsisgjof
Lýsi hefurum langan aldurgegnt veigamiklu hlutverki í landbúnadi okkar íslendinga.
Lýsi er afar auðugt af náttúrulegum A- og D-vítamínum, enþað eru einmittþau vítamín, sem
búfénaðurgetur ekki framleitt sjálfur og verðurþvíaðgefa sérstaklega.
Skorturáþessum vítamínum orsakarm.a. skerta sjón eðajafnvel blindu hjá ungviði, minni
vaxtahraða og beinkröm.
Lýsi hefurþvígóð áhrifá sjón búpenings, vöxt tanna og beinabyggingu, svo ogfrjósemi.
Lýsi er mikill orkugjafi og veitirþvígóða vörngegn kulda.
Lýsið inniheldur t.d. þrefalt meiri orku en bygg, eða um 9 hitaeiningar/g.
Til hagræðingarfyrir bœndurfylgja öllum umbúðum Lýsis h/fleiðbeiningarum hæfilegan
dagskammtaffóðurlýsifyrirmismunandi búfénað.
f KALDHREINSAÐ f
FODIJKLYSI
Alltfóðurlýsi okkar er kaldhreinsað, þannig aðþaðþykknar ekki í kulda og erþviauðvelt í
meðförum.
Æskilegt er, aðfóðurlýsi ségeymt áþurrum og köldum stað.
Við afgreiðum kaldhreinsaðfóðurlýsi í eftirtöldumpakkningum:
2,5 kg blikkdósir með tappa,
5 lítra plastbrúsar,
25kgblikkbrúsar meðtappa.
Grandavegi 42,Reykiavik
s 91-28777