Tíminn - 03.03.1984, Qupperneq 20

Tíminn - 03.03.1984, Qupperneq 20
Opið virka daga 9-19 Laugardaga 10-16 HEDDk Skemmuvegi 20 Kopavogi Simar (91)7 75 51 & 7 80 30 Varahlutir Mikiö úrval Sendum um land allt Ábyrgö á öllu Kaupum nýlega bíla til niðurrifs SAMVINNU TRYGGINGAR &ANDVAKA ARMULA3 SIMI 81411 " W abriel HÖGGDEYFAR ríamarshöfða 1 w GJvarahlutir ;SnSS Ritstjorn 86300 - Auglysingar 18300 - Afgreiðsla og askrift 86300 - Kvöldsimar 86387 og 86306 Laugardagur 3. mars 1984 Tilboð opnað í gerð jarðgangna og byggingu stöðvarhúss neðanjarðar fyrir Blönduvirkjun: LÆGSTA TUfiOD AÐEINS 65% AF KOSTNAÐARÁÆTUJN — Munur á laegsta og næstlægsta tilboði 52 milljónir króna ■ Tilboð í gerð jarðganga og byggingu stöðvarhúss neðanjarðar fyrir Blönduvirkjun voru opnuð í gær, og var lægsta tilboð upp á 315.7 milljónir króna, það hæsta upp á 722.2 milljónir, en kostnaðaráætlun Landsvirkjunar, reiknuð út af Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen nam 486.4 milljónum króna, þannig að lægsta tilboð nemur aðeins 64.91% kostnaðaráætl- unar, en það hæsta 150.74% kostnaðaráætlunar. Lægsta tilboð kom frá norska fyrirtækinu Jernbeton AS og Ellert Skúlason hf, en það hæsta frá júgóslav- neska fyrirtækinu Energoprojekt. Furuholmen, AS og Hagvirki hf voru með næstiægsta tilboðið, sem hljóðaði upp á 367.5 millj- ónir króna og það þriðja lægsta upp á 368,5 milljónir króna en það var frá norska fyrirtækinu Ellefsen AS, sænska fyrirtækinu ABV AB og Vörðufelli hf, Alls bárust 11 tilboð í þetta verk. í frétt frá Landsvirkjun um þessi tilboð segir að rétt sé að geta þess að tilboðstölur allar geti breyst við nánari athugun tilboða og einingarverð þeirra. Meðan slík athugun hafi ckki farið fram ríkir því óvissa um niöurstöðutölur og röð tilboða. f>á geti tæknilegt mat á tilboðum með hliðsjón af kröfum útboös- gagna að sjálfsögðu haft áhrif á ■ Kjötverslun Tómasar Jóns- sonar við Laugaveg, ein elsta kjötverslun landsins, hefur verið tekin til gjaldþrotaskipta hjá borgarfógetaembættinu að ósk eigandans. Verslunin hafði þá verið rekin í 75 ár. Úrskurður skiptaréttar var kveðinn upp 2. febrúar en að sögn Ragnars Halldórs Hall hagkvæmni tilboða, svo og láns- fjártilboð, sem eftir sé að kanna og bjóðendum hafi verið gefinn kostur á að láta fylgja tilboðum sínum. I’rátt fyrir þennan varnagla Landsvirkjunar var svo að heyra a viðmælendum Tímans, viö opnun tilboðanna að Hótel Esju síðdegis í gær, að þeir teldu næsta öruggt að lægsta tilboði yrði tekið, enda væri það mjög hagstætt, eða rúmum 170 millj- ónum króna undir kostnaðar- áætlun verkfræðilegra ráðunauta Landsvirkjunar. Stjórn Lands- virkjunar mun taka afstöðu til tilboðanna þegar útboðsgögn og tilboð hafa verið borin endan- lega saman og verður að því loknu skýrt frá niðurstöðum um hverju tilboðanna 11 verður tekið. -AB skiptaráðanda er ekki ljóst hvað kröfur í búið eru miklar þar sem frestur til að lýsa þeim rennur út eftir 2 mánuði. Síðasti eigandi kjötverslunar- innar hafði átt fyrirtækið í eitt og hálft ár þegar hann óskaði gjald- þrotaskipta. Nýtt fyrirtæki hetur verið stofnað á sama stað og kjötverslun Tómasar var tii húsa. GSH Kjötverslun Tómasar: GJALDÞROTA! ■ Ellert Skúlason, lægstbjóðandi staðfestir tilboð sitt, eftir að tilboð höfðu verið opnuð og kynnt af stjórn Landsvirkjunar í gær. Tímamynd -G.E. Loðnan hagar sér undarlega og hrognin ekki náð eðlilegum þroska: „EXKERTVRHST VEMEMSOG MDÁWVEM" ■ „Luðnan hagar sér mjög undarlega í vetur. Þó að hún sé komin þetta langt vestur virðast hrognin ekki vera búin að ná eðlilegum þroska nema í litlum hluta af göngunni. Menn eru jafnvel að tala um að hún gangi norður með vesturströndinni og drepist áður en hún nær að hrygna,“ sagði Hjörtur Her- mannsson, yfirverkstjóri hjá Fiskiðjunni í Vestmannaeyjum, þegar hann var spurður hvernig loðnuhrognatakan gengi, en hún hófst hjá fyrirtækinu fyrir nokkr- um dögum. Hjörtur sagði að það gerði mönnum mjög erfitt fyrir hvað loðnan væri blönduð, það er að segja að í nokkrum hluta hennar væri fullþroskuð hrogn en í afgangnum mjög smá hrogn. „Við höfum stundað hrognatöku í á annan áratug hérna og það virðist ekkert núna vera eins og það á að vera. Hins vegar þýðir ekkert að leggjast í svartsýni strax því að vel má vera að sú loðna sem enn er austar við landið komi til með að skila okkur fullþroskuðum hrognum." Hann sagðist ekki hafa heyrt neinar skýringar á því hve hratt loðnan hefur gengið vestur með landinu núna. Líklegast væri þó að það stafaði af einhverjum óvenjulegum skiiyrðum í sjónum, sem enginn hefði séð fyrir. „En það er alveg ljóst að þessi hraði á henni hefur gert það að verkum að hrognin hafa ekki náð þeim þroska, sem eðli- legt er, þegar hún kemur á hrygningarsvæðið," sagði Hjörtur. -Sjó. Miðstjórn ASÍ: VÍSAR KÆRUNNI VEGNA FRAMSÓKN- ARFUNDARINS FRÁ ■ Miðstjórn Alþýðusam- bandsins vísaði á fimmtudags- kvöld frá kæru sem borist hafði vegna félagsfundar Verka- kvcnnafélagsins Framsóknar, þar sem m.a. var haldið fram að brotin hafi verið fundar- sköp. „Okkur þótti kæran ósköp léttvæg - enda er hún það“, voru orð eins miðstjórn- armanns ASÍ sem spurður var um afgreiðslu miðstjórnar á málinu. -HEI dropar Af þjóðarvitund Eistlendinga ■ Eistland er eitt af smáríkj- unum við Eystrasalt sem Stalín sálugi innlimaði í Ráðstjórnar- ríkin án þess að tala við kóng eða prest eins og það er orðað. Eistlcndingar hafa þó enn tals- verða þjóðarvitund og smá snert af þjóðarrembu þannig að ef þú spyrð Eistlending hvert sé stærsta ríki í heimi svarar hann að bragði: „Eist- Iand“. Ef Eistiendingurinn er spurður nánar út í þetta segir hann venjulega: „Þetta er ein- falt mál. Land okkar liggur að Eystrasalti. Höfuðborgin er Moskva og þjóðin býr öll í Síberíu“. Húsið á sléttunni ■ íslensk kvikmyndagerð stendur með miklurn blóma nú, og með mánaðarmillibili eru nú frumsýndar tvær nýjar íslenskar kvikmyndir. Hins vegar er ekki alltaf svo að fjárhagslega dæmið gangi upp þótt aðsókn sé í góðu meðal- lagi. Kvikmyndin Húsið sem sýnd var á síðasta ári ætlar hins vegar að ganga vel að þessu leytinu til, og mun nú myndin komin á slétt Ijárhagslega. Hafa aðstandendur hennar tekið upp á því að kalla hana „Húsið á sléttunni“ af þvi tilefni. Sverrir veið- ir ekki atkvæði á Húsavík ■ Húsvíkingar eru ckki hrifn- ir af yfirlýsingum Sverris Her- mannssonar, iðnaðarráðherra, í viðtali við íslending á Akur- eyri nýlega. Þar var hann skýr og skorinorður að venju og lýsti því yfir að ef kísilmálm- verksmiðja yrði ekki reist í hans kjördæmi þá yrði hún aldrei reist, „og þeir mega skera mig á háls ef þeim sýnist", segir Sverrir. Hann ræddi enn fremur áform Hús- víkinga um byggingu trjá- kvoðuverksmiðju en erlend fyrirtæki hafa tekið dræmt í fyrirspurnir ráðuneytisins um þátttöku í fyrirtækinu. Er hann var spurður hvað kæmi þá til greina fyrir Húsvíkinga i stað trjákvoðunnar svaraði hann: „Það er nú það. Ég er ekkert að 'velta fyrir mér Húsvíkingum frckar en Ögurvíkingum. Ég hef engar sérstakar áhyggjur af þeim.“ Víkurblaðið á Húsavík gerir þetta að umtalsefni í síðasta tölublaði sínu og segir: „Sverr- ir er sem endranær ekkert banginn og kemur til dyranna eins og hann er klæddur. En það má Ijóst vera af þessu viðtali að hann ber hag Akur- eyringa og síns kjördæmis mjög fyrir brjósti og er tilbúinn að bjarga því sem bjarga þarf þar, Húsvíkingar og Ögurvík- ingar mega sigla sinn sjó. Skyldi Sverrir vera tilhúinn til að halda fram sömu skoðunum næst þegar hann kemur til atkvæðaveiða á Húsavík?“ Krummi.. . ...sér að 50 milljónum hefur verið kastað á glæ.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.