Tíminn - 06.03.1984, Blaðsíða 5
ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 1984
fréttir
Bifreiða- og ferðakostnaður ríkisins árið 1982: w
SAMSVARAR 730 MIUJ. KRONA
SAMKV. NIÍGIIDANDI VERDLAGI!
■ Bílakostnaður ríkisins árið 1982 var
samtals tæpar 212 milljónir króna.
Ferðakostnaður sem ríkið þurfti að
greiða sama ár nam tæpum 120 miilj.
króna. Samtals mundu þessir tveir kostn-
aðarliðir samsvara um 730 milljónum
króna á núgildandi verðlagi. Tekið skal
fram að útgjöld til bflakaupa eru ekki
meðtalin í framangreindri upphæð, en
hins vegar eru afskriftir af bílum fyrír-
tækja í B-hluta fjárlaga meðtaldar.
Um 800 ríkisbílar
Um helmingur af bílakostnaði ríkis-
ins, 104,1 millj. króna árið 1982 var
vegna reksturs, viðhaldskostnaðar og
trygginga eigin bíla. Alls voru bílar
ríkisins taldir 796 árið 1982, þannig að
meðal rekstrarkostnaður hefur numið
um 130 þús. krónum á hvern bíl sem
samsvara mundi um 285 þús. kr. á
núgildandi verðlagi.
Nær 11 milljónir
í leigubíla
Næst stærsti bílakostnaðarliður ríkis-
ins var 50,8 millj. króna sem greiddar
voru ríkisstarfsmönnum vegna nota á
3.611 einkabílum þeirra, eins og áður
hefur verið frá skýrt íTímanum. Þá voru
greiddar rösklega 24,3 millj. króna
vegna leigu á btlaleigubílum, um 21,7
millj. vegna svonefnds annars aksturs,
þ.e. kostnaðar sem ekki fellur undir
aðra tilgreinda liði. Og loks eru taldar
nær 10,8 milljónir króna vegna leigubíla
af leigubílastöðvum. Lang mestu not-
endur leigubíla eru: Menntamálaráðu-
neytið með röskar 3 millj. króna 1982,
þar af rúmar 1,9 millj. vegna Öskjuhlíð-
arskóla. Heilbrigðis- og tryggingaráðu-
neytið með tæpar 2,8 millj., þar af rúmar
1,2 millj. vegna Landsspítalans. Og
samgönguráðuneytið með rúma 1.
millj., þar af um 700 þús. vegna Skipaút-
gerðarinnar.
Bílakostnaður
Vegagerðarinnar
50 milljónir
Mesti bílakóngur ríkisins er Vegagerð
ríkisins, sem rekur 136 bíla er kostaði
um 22,8 millj, króna að reka. Þar við
bættist annar akstur fyrir tæpar 15 millj.
um 7,4 millj. voru greiddar starfs-
mönnum vegna einkabíla þeirra og tæp-
ar 5 millj. fyrir bílaleigubíla. Alls nam
bílakostnaður Vegagerðarinnar um 50,2
millj. eða tæpum fjórðungi af heildar
bílakostnaðir ríkisins.
Rafmagnsveitur ríkisins koma næstar
í röðinni með 121 eigin bíl hverja
kostaði 21,5 millj. króna að reka þetta
ár. Þar við bættust um 3,8 millj. vegna
bílaleigubíla og rúmar 1,9 millj. króna
greiðslur til starfsmanna vegna einka-
bíla. Alls nam bílakostnaður RARIK
rúmlega 27,5 milljónum króna.
Þriðju í röðinni eru Póstur og sími
sem rak 111 bíla fyrir um 10 millj. Við
bætast 5,5 millj. vegna bílaleigubíla og
5,2 millj. vegna einkabíla starfsmanna
eða samtals 21,2 millj. króna bílakostn-
aður samtals.
Löggubílar um 140
Alls voru 138 lögreglubílar í notkun
árið 1982. Rekstrarkostnaður þeirra
nam 24 millj. króna það ár. Þá má nefna
að á vegum Flugmálastjórnar voru 42
bílar sem kostaði rúmar 2 millj. að reka
auk þess sem starfsmenn fengu tæpa 1
m.illj. fyrir notkun eigin bíla.
Um 120 milljóna
Ferðakostnaður á vegum ríkisins var
tæpar 120 millj. króna árið 1982, sem
fyrr segir. Þar af innanlands nær 69 millj.
króna og utanlands tæp 51 milljón
króna. Vegagerðarmenn eru einnig
mestu ferðagarparnir, með tæplega 19
millj. króna ferðakostnað 1982, að lang
mestu leyti innanlands. Næstar koma
Rafmagnsveitur ríkisins með rúmar 11
milljónir, þá Póstur og sími með tæpa
7,5 millj., að stórum hluta erlendis og í
fjórða sæti cr utanríkisráðuneytið með
rúmar 6 millj. króna. Af öðrum má
nefna: Orkustofnun 4 millj., Landsspít-
ali tæpar 4 millj., Flugmálastjórn 3,7
millj. og Kröfluvirkjun sem kostaði
ríkið um 2,9 milljónir króna í ferða-
lögum árið 1982.
Um 14,5 milljóna
veisluhöld
Þá má nefna að risnukostnaður ríkis-
ins árið 1982 nam um 14,5 millj. króna
þar af tæpar 11,8 millj. scm greiddar
voru samkvæmt reikningum vegna gesta-
boða t.d. frá veitingahúsum. Samsvar-
andi tala miðað viö verðlag nú mundi
nema 32 millj. króna á ári. - HEl
Danir hafa áhuga á
að sýna „Húsið”
í kvikmyndahúsum
■ „Við erum í sambandi við danskt Hann sagði ennfremur að eftir nokkr-
fyrirtæki sem hefur sýnt áhuga á að fá
myndina til dreifingar um kvikmyndahús
vítt og breitt um Danmörku. Það hefur
haft hana til skoðunar núna í um tvær
vikur og við vitum að hún hefur vakið
hrifningu. Þess vegna erum við nokkuð
bjartsýn á að úr þessum áformum verði,
sennilega áður en langt um líður. Annars
borgar sig ekki að vera með neinar
fullyrðingar, en þetta ætti að skýrast í
næstu viku," sagði Egill Eðvarðsson,
leikstjóri kvikmyndarinnar Húsið, þegar
Tíminn spurði hann hvernig gengi að
koma myndinni á markað erlendis.
Egill sagði að þreifingar væru víða í
gangi og þegar væri búið að semja um að
myndin yrði sýnd í sjónvarpi í Ástralíu.
Nú stæðu yfir viðræður um að hún yrði
sýnd í sjónvarpi í Þýskalandi og þá væru
japanskir aðilar að athuga myndina. „Ég
held mér sé óhætt að segja að við leitum
fyrir okkur í öllum heimsálfum, nema
kannski Afríku," sagði Egill.
ar vikur yrði myndin sýnd ásamt níu
öðrum myndum frá Norðurlöndum, þar
á meðal Hrafninn flýgur, á kvikmynda-
kynningu íNew York. „Þóaðómögulegt
sé að segja fyrirfram hvað út úr því
kemur erum við óneitanlega spennt.
Svona kynningar geta alltaf verið lykill
að einhverju stærra,“ sagði Egill.
-Kostar ekki gífurlegt fé að kynna
kvikmyndir erlendis?
„Auðvitað kostar það mikla peninga.
Við erum til dæmis búnir að leggja í það
meira fé en við höfum fengið til baka enn
sem komið er. Það sem þyrfti að gera
hérna væri að stofna fyrirtæki sem hefði
það á sinni könnu að koma íslenskum
kvikmyndum á framfæri. Það er alveg
ljóst að markaðurinn hér á landi er alltof
smár og ef kvikmyndagerð á að dafna
eðlilega þá verður að grípa til einhverra
siíkra ráða. Enda held ég að þaðsé bara
tímaspursmál hvenær það verður gert,“
sagði Egill. -Sjó
Borgarrað felldi tillögu umferðarnefndar:
„Mun endurflytja
tillöguna í vor“
■ „Að berjast fyrir úrbótum í um-
ferðarmálum er eins og trúboð, við
vitum að árangurinn kemur seint í
Ijós, en við höldum áfram að reyna
að kristna heiðingjana, alla vega
meðan við erum ekki étin.“
Eitthvað á þessa leið sagði Katrin
Fjeldsted borgarfulltrúi og formað-
ur umferðarnefndar á borgarstjórn-
arfundi i fyrradag. Katrín gerði að
umtaisefni meðferð borgarráðs á
tillögu frá umferðarráði þess efnis
að lögfestur yrði 30 km, hámarks-
hraði í Þingholtunum. Borgarráð
felldi tillögu umferðarráðs með 4
atkvæðum gegn einu á fundi sínum
á dögunum.
Katrín ræddi um þann árangur sem
orðið hefði á síðasta ári, Norræna um-
ferðaröryggisárinu, þegar banaslysum í
umferðinni fækkaði um 7 frá meðaltali
áranna 1978-1982, en það hefur ekki
gerst nú um hríð að banaslysum fækki
frá ári til árs. Hún vitnaði til árangurs
Svía í aðgerðum þeirra við að fækka
banaslysum í umferðinni en í gömlu
íbúðahverfi í Gautaborg hefði tekist að
fækka banaslysum á börnum úr 28 á
10.000 börn á ári í 1.5-5 banaslys á
10.000 börn á ári. Þessar upplýsingar
hafði Katrín úr grein Ólafs Hergils
Oddssonar héraðslæknis á Akureyri í
íslendingi fyrir nokkrum árum. Þessi
fækkun slysa hefði tekist með endur-
skipulagningu gatnakerfis og öðrum að-
gerðum með öryggi gangandi vegfarenda
í huga. Hún vitnaði einnig til greinar
Valgarðs Briem formanns umferðarráðs
í Morgunblaðinu fyrir nokkrum dögum,
þar sem hann sagði meðal annars að
reynslan sýndi að fækkun slysa eitt ár
fylgdi gjarna fjölgun þeirra árið á eftir,
„við geíom reiknað með því að 25
mannslíf verði það gjald sem við greið-
um fyrir umferðina á þessu ári,“ sagði
Katrín.
Katrín rökstuddi nauðsyn hraðatak-
markana í Þingholtunum''með því að
þar væru götur þröngar og gatnamót tíð
og hús gjarna byggð út að götum, eins
og víðar í gömlum hverfum. Hún sagði
að aksturshraði væri neðarlega á blaði
yfir orsakir umferðarslysa eins og þær
væru túlkaðar af lögreglu, en samkvæmt
samtali við Óskar Ólafsson yfirlögreglu-
þjón væru upplýsingar um hraða hafðar
eftir ökumönnum sjálfum. Katrín sagði
að sér segði svo hugur um að aksturs-
hraði ætti þarna meiri sök en skýrslur
greindu og áhyggjur foreldra vegna
hraðaksturs í hverfunum væri nóg á-
stæða til aðgerða.
„Við verðum að reyna að gera okkur
í hugarlund stærðarhlutföllin, 20 kíló-
gramma barna andspænis 2 tonna málm-
ferlíki. „Davíð verður að setja Golíat
leikreglur," sagði Katrín. Hún boðaði
að hún myndi endurflytja tillöguna um
hámarkshraða og hraðahindranir í Þing-
holtunum næsta vor.
JGK
Jón Kjartansson SU-111
strandaði í Færeyjum:
LOSNAM MEÐ
EIGIN VÉLARAFU
— viðgerð mun taka
um þrjár vikur
■ „Ég hefekki haff nanar fréttir af þannig að ekki varð um leka að
þvíhvaðolli þessu, þelta hefur hara ræða. Á flóði losnaði skipið með
veriö eitthvað alveg sérstakt slys,“ . eigin vélarafli og er nú komið í slipp
sagði Aðalsteinn Jónsson á Eskifirði 1 Þórshöfn. „Að sögn Aðalsteins
útgerðarmaður Jóns Kjartanssonar mun viðgerðin væntanlega taka
SU-111, sem strandaði í Fuglafirði í þrjór vikur.
Færeyjum í fyrrinótt. Lóðs var ekki Skipstjóri ú Jóni Kjartanssyni cr
um borð í skipinu. Þorsteinn Kristjánsson frá Nes-
Jón Kjartansson hafði siglt með, kaupstað. Skipið hefur aflað vel á
fullfermi af loðnu og landað í Fugla- loðnunni og var að koma úr sínum
firði og var á leiðinni út aftur þegar síðasta túr á loðnuna í þetta sinn,
óhappið bar að. Skipið steytti á skeri þar eð kvótinn var fylltur.
og rifnaði kjölurinn við botnatanka, JGK