Tíminn - 06.03.1984, Blaðsíða 6

Tíminn - 06.03.1984, Blaðsíða 6
ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 1984 APAKATTAIÆTl > ■ Orangútan-apinn hann CJ er orðinn þekktur sem sjón- varpsstjama í Bandaríkjunum. Hann lifir líka eins og film- stjarna. Býr í fiottu húsi í Kali- forníu með sundlaug í garðinum og lcikur sér um allt húsið, stofur og svefnherbergi. Þjálfarí apans er 24 ára og heitir Bill Gage. Hann segir sambúðina mjög vinsamlega hjá þeim félögum. „CJ er mjög ljúfur í umgengni og hlyöinn", segir Gage. „Hann hefur gaman af að fá að glamra á píanóið með mér, henda bolta og sitja á mótorhjólinu hjá mér og svo finnst honum ofsalega spennandi að horfa á sjónvarpið, - sérstaklega þáttinn sem hann sjálfur lcikur í! ■ Þarna situr CJ í jakkafötunum sínum með bindi um hálsinn. Hann veit að hann má ekki rífa af sér bindið fyrr en upptökunni er lokið. UM ALLT HÚSID John Wayne og dóttir hans Marisa M LAGÐIST LITIÐ FYRIR KAPPANN JOHN WAYNE — Ein átta ára sló hann í rot Hinn fjölhæfi api við píanóið með þjálfara sínum. ■ CJ finnst gaman að fara í bfitúr eða að fá að sitja á mótorhjólinu hjá þjálfara sínum og vini, Bill Gage ■ Eftir 15 tíma langan vinnudag er CJ alveg uppgefinn. ■ Það er alkunna, að leikarinn John VVayne var einn af hörðustu körlunum sem sáust í kvikmyndum, en það tók þó ekki meiri kraftajötun en eina 8 ára stelpu til að slá hann í rot, og var það þó áður en W'ayne varð að láta undan síga vegna veikindanna. Sú sem kom svona laglegu höggi á kappann var engin önnur en dóttir hans Marisa - þá 8 ára gömul. John Wayne var þá að hvíla sig með fjölskyldu sinni eftir erftðar upptökur, og fór hann út á golfvöll með dóttur sinni og ætlaði að kenna henni að slá goifkúlu. DÖttirin var uppfull af áhuga á að læra að sveifla kylfunni, og stóð alveg eins og pabbi hennar hafði sagt henni að gera, - og reiddi svo til höggs. Hún sveiflaði kylfunni af miklu afli, en Wayne hafði gert þau mistök að standa álútur og spenntur fyrir aftan Marisu til að fylgjast með hvernig höggið tækist. Hann varð því fyrir kylfunni, og telpan hafði ekki dregið af kraftinum, því að þegar höggið kom á koll Johns, þá féll hann við og missti meðvitund um stund. Marisa varð alveg eyðilögð yflr að meiða pabba sinn og var óhuggandi, en þegar Wayne hafði fengið átta spor í kollinn og hresst sig upp með einum sterkum varð hann að fara að hugga dótturina. Það var ekki nóg með það, að Wayne fengi gat á höfuðið, heldur meiddi hann sig svo í fallinu að hann fékk mjög slæmt glóðarauga, og varð að hafa „sjóræningja- bót“ yflr auganu næstu daga. Það fyndna við það var, að í myndinni, sem verið var að taka (Rooster Cogburn), átti hann einmitt að vera með lepp yfír öðru auganu, - og þetta var „rétta augað“, svo upptökur gátu haldið áfram þrátt fyrir meiðslin. Það eru víst ekki margir, sem geta hrósað sér af því að slá John Wayne niður, hvorki í einkalífí eða í kvikmynd- um, því að oftast iék hann „hetjuna" í myndinni. viðtal dagsins „VIUUM KOMA1L MÓISVIÐ FORELDRA í VANDA” — Rætt við deildarstjóra Afengisvarnadeildar borgarinnar ■ Lítt þekktur afkimi í borgar- kerfinu er ÁHR, eöa Áfengis- varnardeild Heilsuverndarstööv- ar Reykjavíkur. Hún er til húsa í húsnæöi SÁÁ aö Síöumúla 3-5, og þar fer fram mikið starf til aðstoðar aðstandendum þeirra sem ánetjast hafa vímuefnum, áfengi eða öðru. Starfsmenn deildarinnar kynntu nýlega störf hennar. Það var Ingibjörg Björnsdóttir deildarstjóri sem varð fyrir svörum. „Deildin hefur starfað í sex ár, og aðstoðaði í fyrstu aðallega miðaldra konur alkohólista. Síð- ar hefur starfið færst niður á við í aldursstiganum, nú koma hing- að margar konur á aldrinum 20-30 ára, en einnig unglingar og feður, sem eiga við áfengis- eða ■ Ingibjörg Bjömsdóttir deildarstjóri Áfengisvarnardeildar ásamt einum starfsmanni. Tímamynd Róbert.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.