Tíminn - 06.03.1984, Blaðsíða 13
Gullberg frá Svíþjóð. Til vinstri stendur keppnisstjórinn, Agnar G. Jörgensen * Guðmundur Páll Amarsson til vinstri og Þórarinn Sigþórsson urðu í öðru sæti í tvímenning Bridgehátíðar. Þarna spila
íbygginn á svip. Þc'r wð Ásgeir Asbjörnsson og Guðbrand Sigurbergsson.
voru spilaðar á mótinu með monrad-
formi.þ.e. efstu sveitirnar spiluðu alltaf
saman.
Nokkrar sveitir fengu fullt hús, eða 20
stig í fyrstu tveim umferðunum, þar á
meðal sveitir Alan Sontag, og Gests
Jónssonar sem spiluðu saman í þriðju
umferðinni. Mesta athygli í þeirri um-
ferð vakti þó leikur sveitar Jóns Hjalta-
sonar og Hans Göthe sem spiluðu á
sýningartöflunni. Sveit Jóns hafði yfir-
höndina nær allan leikinn og í þessu spili
tóku þeir Jón Ásbjörnsson og Símon
Símonarson snaggaralega slemmu:
Norður S. K74 T. 85 T. 86
L.AKG1043
Vestur Austur
S.1086 S. AG32
T. 76 H.942
L. KD10975 L.G32
L.D5 L.982
Suður
S. D85
H.AKDG103
T. A4
L. 76
Við annað borðið spiluðu Svenson og
Petterson 4 hjörtu í suður og fengu alla
slagina 13. Við hitt borðið opnaði Jón í
norður á 2 laufum og Símon í suður
sagði 2 tígla sem var biðsögn og bað
norður að lýsa spilunum sínum nánar.
Vestur doblaði 2 tígla og Jón sagði 3
lauf, sem sýndi 6-lit í laufi og lofaði hlið
að fyrri stöðu. Nú vissi Símon að Jón átti
ekkert í tígli: hliðarfyrirstaðan hlaut að
vera í spaða. Hann spurði því um ása
með 4 gröndum og stökk síðan í 6
hjörtu. Þau unnust auðveldlega þegar
laufadrottningin lá rétt.
Sveit Jóns vann Svíana 15-5 meðan
Sontag vann Gest hreint. Jón og Sontag
spiluðu því saman í 4. umferð en þar
gekk allt á afturfótunum hjá Jóni og
félögum. Einn spilarinn var m.a. í
slemmu sem ekki var sögð við hitt
borðið. í miðju spili lagði spilarinn upp
en gleymdi að eitt tromp var eftir úti hjá
andstæðingunum. Keppnisstjóri dæmdi
réttilega að spilarinn yrði að spila spilið
áfram án þess að hreyfa trompið og það
varð til þess að annar Ameríkaninn gat
trompað með tromphundinum sínum
svo slemman varð einn niður. Sontag
vann leikinn 16-4 og eftir það varð
forystu hans ekki ógnað. Þegar þetta er
skrifað voru úrslitin ekki kunn í sveita-
keppninni en allt benti til að Sontag færi
með sigur af hólmi.
Þessi Bridgehátíð heppnaðist ekki
síður cn þær fyrri. Áhorfendur voru
fjölmargir alla dagana og spilarar, jafnt
erlendir sem innlendir voru mjög ánægð-
ir með framkvæmd mótanna. Og það
eru meðmæli með mótunum að nær allir
erlendu spilararnir sem hingað komu í
þetta skipti hafa spilað hér á landi áður
á Bridgehátíðum.
-GSH
sveitakeppninni
spaða hefði hann byrjað á að henda
spaða í stað þess að henda laufi. Svo
Guðmundur spilaði tígli á ásinn, og tígli
heim á kóng. Síðan spilaði hann vestri
inn á hjarta og hann gat tekið þrjá
hjartaslagi en varð að gefa Guðmundi á
AD í spaða í lokin.
Þegar líða fór að lokum mótsins komu
Guðlaugur og Örn skyndilega á mikilli
ferð og náðu forustunni þegar 16 spilum
af 86 var ólokið. Þegar sex spil voru eftir
höfðu Guðlaugur og Örn að því er virtist
tryggt sér sigurinn, voru 40 stigum á
undan Guðmundi og Þórarni sem voru í
öðru sæti. En þá mættu þeir Ameríkön-
unum Molson og Cokin sem ekki hafði
gengið sem best í mótinu. Guðlaugur og
Örn sáu ekki til sólar í setunni og fengu
yftr 30 stig í mínus. Á meðan skutust
Guðmundur og Þórarinn upp fyrir þá.
En í næstu setu spiluðu Guðmundur og
Þórarinn við þá Molson og Cokin og
fengu svipaða útreið og Guðlaugur og
Örn áður og Guðlaugur og Örn fengu
góðan plús.
í síðustu umferðinni gekk Guðlaugi
og Erni síðan illa en Guðmundi og
Þórarni vel. Það ríkti því mikil spenna
meðan beðið var eftir útreikningnum.
En Guðlaugur og Örn héngu á forskot-
inu eins og áður sagði; þetta voru efstu
pörin í lokin en 10 efstu sætin gáfu
peningaverðlaun:
Guðlaugur Jóhannsson -
Örn Amþórsson 289
Guðmundur Páll Arnarsson -
Þórarinn Sigþórsson 287
Hans Göthe -
Tommy Gullberg 238
Alan Sontag -
Steve Sion 222
Aðalsteinn Jörgensen -
Runólfur Pálsson 199
Göran Petterson -
Leif Svenzon 187
Tony Forrester -
Gus Calderwood 184
Hrólfur Hjaltason -
Jónas P. Erlingsson 152
Hörður Blöndal -
Jón Baldursson 140
Stefán Guðjohnsen -
Þórir Sigurðsson 138
Sveitakeppni Bridgehátíðar hófst á
sunnudag. 32 sveitir tóku þátt í mótinu
og það er mesti fjöldi sveita sem spilað
hafa á bridgemóti hér á landi. 7 umferðir
Eysteinsson og Guðmund Sv. Hermannsson.
Tímamyndir Róbert
■ Bjöm Theodórsson, forseti Bridgesambands íslands, og Guðmundur K. Sigurðsson, einn þekktasti keppnisstjóri hérlendis fylgjast með Gylfa
Baldurssyni og Sigurði B. Þorsteinssyni spila við Odd Hjaltason og Jón Hilmarsson.