Tíminn - 15.03.1984, Blaðsíða 6
Sænska konan, sem
sló öll met í megrun
■ Það var erfítt lífið
hjá sænsku konunni
Rut Lindberg, sem
var 190 kíló á þyngd,
eða 380 pund! Það
mátti segja að hún
i væri fangi í sínu eigin
! spiki, því að aumingja
konan komst varla út
eða inn um dyr, hún
gat ekki setið í venju-
legum sætum í bíó
eða leikhúsi. Hún gat
varla klætt sig hjálp-
arlaust, og alls ekki
reimað skóna sína.
A tveimur árum hafðihún svo
lést um 128 kg. (256 pund) í 62
kg. (124 pund) og það er víst
áreiðanlega heimsmet í megrun.
Rut er 45 ára húsmóðir í
Obbola í Svíþjóð. Hún segir svo
frá:
„Ég byrjaði að fitna þegar ég
var ófrísk að syni mínuni Leifi
fyrir 26 árum. Ég borðaði- og
borðaði mér til óbóta. A stuttum
tíma olli ofátiö því að ég varð
hálfgerð ófreskja. Ég glataði
æsku minni. Ég átti erfitt um
hreyfingar, átti fullt í fangi með
að hugsa uni hússtörfin og
barnið. Ég hætti að geta reimaö
skóna mína. Þetta varð algjör
martröð. Ég hélt mig mest heima
við og horfði á sjónvarpið og át!
Ef ég lét sjá mig úti, þá fann ég
að allir horfðu á mig. Ég hcyrði
hvíslað: „Sjáðu, þarna er feita
konan úr húsinu á horninu", en
ég var kölluö það.
Ég þráði að léttast, guð hvað
ég þráði það, en ég gat engan
veginn haldið mig við neinn
megrunarkúr, en sem síðasta
úrræði för ég í félagsskapinn
„Línan" í Svíþjóö, og þá fór
þetta að ganga," sagði Rut á
blaðamannafundi í l.ínunni í
sínum heimabæ.
Þegar Rut kom fyrst í megrun-
arklúbbinn var ekki hægt að
vigta hana á neina vigt sem þar
■ Rut I.indbcrg áður en hún byrjaði í megrunarkúrnum
■ „Það er munur að geta keypt
sér föt eins og venjulegt fólk",
sagði Rut þegar hún vigtaði sig
og var komin niður í 62 kíló - úr
190!
var til. Starfsmaður félagsins fór
með henni á jarnbrautarstöðina,
og þar var hún vigtuð á
farangursvigt! Það var útbúinn
handa henni sérstakur matseðill,
þar sem hennar vandamál var
enn erfiðara en flestra annarra,
sem komu í klúbbinn til að losa
sig við nokkur kíló. Henni tókst
að komast upp á lagið að halda
sig við matseðilinn og árangurinn
lét ekki á sér standa. A tveimur
árum hefur Rut náð kjörþyngd
sinni 62 kg. og er mjög hamingju-
söm með það. - Þetta er eins og
nýtt líf, segir hún.
Mannfall á
Kjötkveðju-
hátíðinni
í Ríó
■ Samba - fyrst og fremst sam-
badans - drykkjulæti - slys og
morð hafa fylgt í kjölfar kjöt-
kveðjuhátíðarinnar í Ríó de Jan-
erdo í Brasilíu. Það ætla allir að
skemmta sér og mikið er lagt í
dansæfingar, búninga og annan
undirbúning. En það er ekki allt
grín og gaman. Það sést af
skýrslu. sem lögreglan í Ríó gaf
út þegar hátíðin hafði staðið í 5
daga.
A þessum fyrstu 5 dögum
„karnivalsins" hafði mannfallið
orðið 144 dánir. í flestum tilvik-
um var ofneyslu víns um að
kenna, annað hvort blátt áfram
áfengiseitranir, sjálfsmorð,
morð, slys eða drukknanir.
Sjúkrahús borgarinnar höfðu
þessa daga tekið á móti 11.000
manns vegna einhvers konar
slysa, sem rekja mátti til hátíða-
haldanna.
Yfirvöldin virðast taka þessum
upplýsingum með mikilli
rósemd, og segja að þessar tölur
séu alveg eðliiegar fvrir borg
með 9 milljón íbúa, sem séu allir
á fullu að „skemmta sér“.
■ Þær hafa kannski æft samba-
dansinn lengi til að taka þátt í
danskeppninni á kjötkveðju-
hátíðinni í Ríó, en varla hefur
mikið efni farið í búninga þessara
ungu stúlkna.
viðtal dagsins
SKEMMlllfGAR ANDSWEB-
IIR Mllil ÞESSARA VERKA
— rætt vid Einar Jóhannesson, sem leikur tvo
klarinettukonserta með Sinfóníunni í kvöld
■ Einar Jóhannesson klari-
nettuleikari ber hitann og þung-
ann af tónleikum Sinfóníuhljóm-
sveitar Islands í kvöld, en þá
leikur hann tvo konserta fyrir
klarinett og hljómsveit, A-dúr
konsertinn eftir Mozart, og Klari-
nettukonsert eftir John Speight.
Sá síðarnefndi er saminn fyrir
Einar og tileinkaður honum og
flutningur kvöldsins er fruin-
flutningur. John Speight er raun-
ar kunnur söngvari eins og flestir
vita, en upp á síðkastiö hefur
hann einnig verið að hasla sér
völl sem tónskáld.
„Þetta er svona einn samfelld-
ur konsert, það er að segja, það
eru ekki kaflaskipti í honum og
því ekki hægt að segja að hann
sé í hefðbundnu formi, enda
eiginlega ekki til neitt hefðbund-
ið í dag," sagði Einar aðspurður
um konsert Speight. „Þetta er
dálítið áköf músík, jafnvel ofsa-
fengin á köflum, en síðan blíðar
melódíur inn á milli. En það er
yfirskrift yfir konsertinum, það
er tilvitnun í Shakespeare úr
einu leikrita hans. Hún hljóðar
svo: „Nelodious birds sing madri-
gals," sem gæti útlagst „söng-
glaðir fuglar syngja madrigala,"
og þetta minnir á að John
Speight er barýtónsöngvari og
þótt hann noti mikið af því sem
við köllum nútíma effekta og
noti möguleika hljóðfærisins þar
til hinsýtrasta, þá er aldrei langt
yfir í melódíuna, eða lagið."
En Mozart konsertinn, er
hann ekki á prógrammi hjá
öllum einleiksklarinettistum?
Jú, hann er líklega uppáhalds-
konsert flestra klarinettuleikara.
Ég hef raunar aðeins einu sinni
spilað hann áður, það var á
Biennal í Kaupmannahöfn, ég
hef ekki spilað hann hér heima
fyrr.
Þessir konsertar tveir mynda
á sinn hátt skemmtilegar and-
stæður. Þeir sem semja fyrir
klarinett í dag notfæra sér þá
þróun sem orðið hefur í gerð
hljóðfærisins sjálfs, það ræður í
■ Einar Jóhannesson