Tíminn - 15.03.1984, Blaðsíða 15
FIMMTUDAGUR 15. MARS 1984
15
krossgáta
myndasögur
4293
Lárétt
I) Blekking 5) Veina 7) Hátíö 9) Rönd
II) Korn 12) Tónn 13) Bein 15) Rödd
16) Hulduvera 18) Kyrri
Lóðrétt
1) Meiri maður 2) Hamingjusöm 3)
Tveir eins bókstafir 4) Blöskrar 6) Gjaldi
8) Gruni 10) Fiskur 14) Fum 15) Orka
17) 51
Ráðning á gátu No. 4292
Lárétt
1) Noregs 5) Áin 7) Tek 9) Ýsa 11) At
12) Ós 13) Rak 14) Kák 15) Hak 17) Sá
Lóðrétt
i) Nýtari 2) Rák 3) Ei 4) Gný 6) Vaskur
8) Eta 10) Sói 14) Kák 15) Hak 17) Sá
bridge
■ Eitt einasta spil getur oft haft mikla
þýðingu í bridge og öðrum spilum. Eitt
spil hefur oft skorið úr um hvort menn
standa auðugir eða öreigar upp frá
pókerspilaborðum og í bridge veltur oft
fjöldi impa á því sama. Guðmundur
Sveinsson komst ónotalega að þessu í
einu spili í sveitakeppni Bridgehátíðar
Norður
S. G4
H.A5
T. AG5
L. AKD1076
Vestur Austur
S, - S.D8753
H.KG974 H.82
T. D9873 T.K1064
L.853 L.G9
Suður
S. AK10962
H.D1065
T. 2
L.42
Guðmundur og Þorgeir Eyjólfsson sátu
NS og sögðu þannig I á spilið:
Vestur Norður Austur Suður
1L pass 1S
pass 3L pass 3 H
pass 3Gr pass 4 S
pass 5S pass 6 S
Sagnirnar voru allar' eðlilegar og
slemman var þokkaleg. Vestur spilaði út
litlum tígli og Guðmundur stakk upp ás
til að spila spaðagosanum. Austur lagði
drottninguna á en þegar Guðmundur
tók á ásinn heima kom þegar í Ijós þegar
vestur henti hjarta. Guðmundur spilaði
síðan laufi á ásinn, austur lét níuna, og
spilaði síðan fjórum sinnum spaða. Vest-
ur henti tveim hjörtum í viðbót og einum
tígli.
Austur hlaut að fá slag á spaða og því
var mikilvægt að laufið plumaði sig. En
laufanía vesturs og spaðalengdin þar
benti óneitanlega til þess að vestur ætti
gosann fjórða í laufi. Og þá mátti
Guðmundur ekki spila laufi á kónginn í
borði því austur myndi trompa og þá
væru ekki nægar innkomur í borðið til
að fría laufið með trompun og taka síðan
fríslagina.
Svo Guðmundur ákvað að fylgja hug-
boði sínu eftir og spilaði laufi á tíuna í
borði. En þessi spilaleið var ekki árang-
ursrík í þessari legu. Austur tók á
gosann og spilaði tígli sem Guðmundur
neyddist til að trompa. Hann spilaði
síðan hjarta á ás og laufakóng en austur
trompaði, spilaði tígli sem Guðmundur
trompaði með síðasta trompinu og þá
átti vestur afganginn.
3 niður og stór sveifla því við hitt
borðið léku NS sér nægja geimið.
Svalur
"’~—i——■—■.