Tíminn - 15.03.1984, Qupperneq 7
FIMMTUDAGUR 15. MARS 1984
■ Gary Hart segist ánægður með úrslitin í fyrradag
Ólíklegt að sigurganga
Harts verði stöðvuð
Hljómplötukóngurinn
Julio Iglesias:
„EG FINN HVERGI
HINA SÖNNU ÁST“
■ Laglegur og eftirsóttur er
söngvarinn Julio Iglesias svo
sannarlega, og plötur með söng
hans hafa selst í 100 milljónum
eintaka, og tekjur hans eru yfir
50 millj. dollarar á ári, - en hann
staðhæfír, að hann geti ekki
fundið hina sönnu ást.
„Því meiri leit sem ég geri að
hinni sérstöku yndislegu konu,
sem ég gæti elskað, því fjær því
virðist ég að fínna hana“, sagði
þessi heimsfrægi fertugi söngvari
nýlega í samtali við amerískt
blað.
Margar konur hafa verið orð-
aðar við Iglesias, og þar á meðai
á tímabili Priscilla Presley, sem
þykir meðal fegurstu kvenna
heims (fallegust í DALLAS-
þáttunum, segja sumir).
-Eg er hrifínn af konum og ég
er einmana án þeirra, en ástin
- ég elti hana eins og villiljós,
sem ég get ekki höndlað, sagði
Julio dapur í bragði.
Hann kvæntist ungur og þau
hjón eignuðust 3 börn, en hjóna-
bandið rann út í sandinn. Hann
flæktist um heiminn, syngjandi í
ýmsum borgum, bæði á
skemmtistöðum og inn á hljóm-
plötur og enginn tími varð fyrir
fjölskylduna. Nú hefur hann
unnið sér inn meiri peninga en
hann gæti eytt þó hann yrði 150
ára, en „ástina sína hann aldrei
fann“ stendur í vísunni.
dag yfir miklu fleiri blæbrigðum
en á dögum Mozarts, þótt Moz-
art konsertinn sé yfirleitt leikinn
á nútíma klarinett."
Á klarinettið vaxandi vinsæld-
um að fagna meðal tónskálda?
„Já, klarinettið hefur náð sér
heilmikið á strik í nútímatónlist-
inni, það er talsvert um að samd-
ir séu klarinettukonsertar, kamm-
ermúsík og líka verk fyrir klari-
nettið einvörðungu. Þetta bætir
svolítið upp barrokktíimabilið,
þar sem flauta og óbó hafa nóg
að gera en þar erum við alveg
verklausir. Rómantísku höfund-
arnir hins vegar eins og Brahms
t.d. notuðu klarinettið mikið, en
aðallega í kammermúsík. En við
klarinettuleikarar þurfum ekkert
að örvænta vegna verkefna-
skorts.“
Gefast þér tækifæri til að koma
fram erlendis við og við?
„Já, sem betur fer, þá hafa
gefist tækifæri til þess, sem er
nauðsynlegt, ef maður vill halda
við þessu einleikarafagi. Ef mað-
ur fær sjaldan tækifæri hér heima
er það stór biti að kyngja. Það er
nauðsynlegt að geta farið utan
og eins út á land til tónleika-
halds. Ég hef gert talsvert af því
undanfarið, það hefur verið við-
leitni á vegum mcnntamálaráðu-
neytis að greiða fyrir tónlistar-
ferðum um landið og viðtökur
hafa verið mjög góðat
Nú er því miður búið að skrúfa
fyrir fjárveitingar til þessarar
starfsemi og ég segi því miður,
vegna þess að þetta hefur verið
með því betra sem hér hefur
verið gert í listamálum og það er
bara óskandi að það verði fram-
hald á þessu.
Það að spila með Sinfóníu-
hljómsveitinni gefur ekki mögu-
leika til þess að halda sér við sem
einleikari. Þar að auki eru hljóð-
færaleikarar illa launaðir og þeir
sem stunda einleik hér kenna
yfirleitt mikið eins og aðrir hljóð-
færaleikarar eða eru í hljóm-
sveitinni og kenna, þannig að
menn verða að skipta sér dálítið
mikið og það gefst lítill tími til
æfinga. Sjálfur hef ég verið að
draga saman kennslu til að hafa
meiri tíma til einleiks og er
tilbúinn til að leggja dálítið á mig
til þess, en það kemur auðvitað
niður á tekjunum.
-JGK
— Mondale ætlar að keppa til þrautar
■ ÞVI hafði verið spáð, að
þriðjudagurinn 13. mars gæti
orðið sögulegur dagur hjá
demókrötum í Bandaríkjunum,
en þá áttu að fara fram og fóru
fram prófkjör í níu fylkjum
Bandaríkjanna.
Þessi níu fylki kjósa samtals
511 fulltrúa á flokksþing demó-
krata, sem útnefnir frambjóð-
anda flokksins í forsetakosning-
unúm í haust, en samtals verða
fulltrúar þar 3933. Prófkjörin
13. mars hafa því þótt góð vís-
bending um hvernig straumarnir
liggja.
Sjaldan hefur samt fengist svo
glögg vísbending, að hægt hafi
verið að líta á hana sem endan-
lega niðurstöðu. Tvísýn keppni
hefur því haldið áfram, og komið
hefur fyrir, að einhver þeirra,
sem stóð höllum fæti eftir próf-
kjörin 13. mars, sigraði að lokum
og lagði að velli þá, sem áður
höfðu verið taldir sigurstrangleg-
astir.
Prófkjörin í gær virðast gefa
öllu gleggri vísbendingu en oftast
áður. Af þeim átta keppendum,
sem gáfu kost á sér áður en
prófkjörin hófust, standa nú
raunverulega ekki nema tveir
eftir.
Fjórir eru þegar opinberlega
hættir, (Cranston, Askew, Hall-
ings og McGovern). En senni-
lega bætist sá fimmti Glenn fljótt
í þann hóp. Jesse Jackson mun
halda áfram, en ekki til þess að
ná útnefningu, heldur til að aug-
lýsa málstað blökkumanna.
í reynd eru ekki eftir nema
þeir Walter F. Mondale og Garý
Hart. Milli þeirra tveggja stend-
ur baráttan hér eftir.
ÞEGAR þetta er ritað, eru úrslit
kunn í sjö fylkjum. Hart hefur
sigrað í fimm, en Mondale í
tveimur.
Hart sigraði í Massachusetts,
Rhode island, Nevada, Okla-
homa og Florida. Mondale sigr-
aði í Georgia og Alabama.
ÁÐUR hafði Hart sigrað í New
Hampshire, Maine, Vermont og
Wyoming. Mondale hafði sigrað
í Iowa.
Ef reynt er að draga ályktun af
framangreindum úrslitum, verð-
ur hún sú, að Hart sé mun
sigurvænlegri, eins og dæmið
stendur nú.
Það er t.d. athyglisvert, að
Hart hefur nær öll Nýja-Eng-
lands-ríkin. Það gæti bent til, að
hann héldi áfram að vera sigur-
■ Mondale segist einnig vera ánægður
sæll á austurströndinni og bæði
New York og New Jersey féllu
honum í skaut. Sigur hans í
Wyoming og Oklahoma gætu
bent til þess, að hann yrði sigur-
sæll í öðrum miðríkjunum, enda
er hann upprunninn í þeim.
Vesturströndin getur verið
nokkurt spurningarmerki, eink-
um Kalifornía. Sennilega væri
þó hyggilegra að veðja á Hart
þar, því að löngum hafa fram-
bjóðendur, sem hafa svipaðan
stíl og hann, verið sigursælir þar.
Úrslitin í Washingtonfylki,
sem ekki eru kunn, þegar þetta
er ritað, kunna að geta gefið
einhverja hugmynd um stöðuna
á vesturströndinni. Þó ber að
gæta þess, að Skandinavar eru
allsterkir þar og ætti það að geta
verið vatn á myllu Mondales.
Því er varlegra að draga ekki þá
ályktun af úrslitunum þar að þau
verði vísbending um niður-
stöðuna í Kaliforníu.
Sigur Mondales í Georgia og
Alabama benir til þess, að meg-
instyrkur hans sé í Suðurríkjun-
um. Þó var það nokkurt áfall
fyrir hann að Harl vann Florida.
Það gæti bent til þess, að hann
ætti í erfiðleikum í Texas, því að
oft virðist stemmningin svipuð í
þessum tveimur fylkjum.
ÓTRÚLEGA mikil breyting
hefur orðið á framboðsstöðunni
hjá demókrötum síðan 20.
febrúar. þegar fyrsta prófkjörið
fór fram í Iowa. Þá bentu allar
skoðanalölur til þess, að Mond-
ale myndi ná auðveldlega út-
nefningu sem forsetaefni dem-
ókrata á landsfundi þeirra, sem
haldinn verður í San Francisco
16.-19. júlí. Úrslitin í lowa virt-
ust staðfesta þetta.
í prófkjörinu í New Hamps-
hire 28. febrúar, snerist þetta
við. Þar vann Gary Hart óvæntan
sigur, þótt það hefði styrkt stöðu
hans að verða í öðru sæti í Iowa.
Síðan hefur sigurganga Harts
haldið áfram. Hann vinnur í
fimm ríkjum í gær og kemst
miklu lengra í Georgia og Al-
abama en búast mátti við, þar
sem hann hafði ckki lagt ncina
áherzlu á kosningavinnu þar fyrr
en cftir sigurinn í New Hamps-
hirc. Mondale hafði hins vegar
komið þar upp traustu skipulagi.
Skýringin á sigurgöngu Harts
virðist tvíþætt. Annaðerþað, að
hann virðist koma mönnum vel
fvrir sjónir og vekja svipaða
tiltrú og John F. Kennedy gerði
á sínum tíma. Hitt er það, að
Mondale hefur ckki tekizt að ná
hylli kjósenda.
Sitt hvað virðist það sem mælir
gegn Mondale. Hann kemur
ekki nægilega vel fyrir í sjón-
varpi. Norsku blöðin hafa sagt
frá því, að hann þyki of norskur
í látbragði og framsetningu.
Það mælir ekki heldur með
Mondale, að hann var vara-
forseti með Carter. Þannig teng-
ist ósigur Cartcrs við hann. Sá
áróður Harts virðist hafa fengið
hljómgrunn, að Mondale heyri
fortíðinni til.
Skoðanakannanirnar hafa líka
gengið á móti Mondale, þarsem
niðurstaða þeirra hcfur yfirleitt
verið sú, að hann gæti ekki
sigrað Reagan.
Það hefur hins vegar verið
Hart ekki lítil upplyfting, að
skoðanakannanir í seinni tíð
hafa bent til þess, að hann gæti
lagt Reagan að velli.
Þá hcfur Hart notið þess, að
fram til prófkjörsins í New
Hampshire létu keppinautarnir
hann afskiptalausan, en beindu
þeim mun meiri árásum gegn
Mondale. Nú er þetta breytt.
Hart er orðinn sá, sem þykir
sigurvænlegur, og hann verður
því að sæta vaxandi gagnrýni og
ádeilum. Komist hann nokkurn
veginn heill úr þeirri raun, virðist
flest mæla með því, að hann
verði frambjóðandi demókrata í
forsetakosningunum í haust.
Næstu stóreinvígi þeirra Harts
og Mondales verða í lllinois 20.
þ.m., í Connecticut 27. þ.m., í
New York 3. apríl og í Pennsyl-
vaníu 10. apríl. Eftir það ættu
úrslitin í keppni þeirra að vera
orðin Ijós.
¥ "1
Þórarinn
Þorarinsson,
ritstjori, skrifar itl