Tíminn - 15.03.1984, Blaðsíða 11
10
FIMMTUDAGUR 15. MARS 1984
FIMMTUDAGUR 15. MARS 1984
11
iþróttír
GLÍMAN IÐKUÐ
Á 7 STÖÐUM
- EINUNGIS 131 SEM
ÆFIR REGLULEGA
■ Samkvæmt frctt í febrúar fréttabrcfi-
íþróttasambands íslands. er glíman,
þjóðaríþrótt íslendinga, iðkuð reglúlega
á aðeins sjö stöðum á landinu. Iðkendur
eru als 131, þar af 67 undir 16 ára aldri.
Tekið er fram í fréttabréfinu, að glíma
sé iðkuð á fleiri stöðum, en ekki æfð
reglulega, í fréttabréfinu eru gefnir upp
eftirfarandi staðir félag og iðkendafjöldi:
16áraogyngri Eldrienlóára
Kr 8 12
Ármann 0 7
Víkverji 3 6
HSÞ 30 5
HSK 0 30
ÚÍA 11 4
Húnavs 15 0
67
64
SÖE.
Félagakeppni í
kraftlyftingum
- víða um land á laugardag
■ Félagakeppni í kraftlyftingum verð-
ur haldin víða um land næstkomandi
laugardag. Mótið er í æfingahúsnæði
hvers félags, þar sem sveitir félagsins
keppa. Úrslitum ræður samanlagður
stigaárangur.
Sveitir eru skipaðar fimm mönnum.
Hvert félag má senda allt að tvö lið, A
og B. Keppnin hefst klukkan 15.00.
Þetta keppnisfyrirkomulag er að sögn
lyftingamanna mjög vinsælt vt'ða erlend-
is. Nefna þeir sem dæmi, að í Svíþjóð
keppi 99 félög í slíkum keppnum í einu.
-SÖE
Fimleikahátíð
á íslandi '85
■ Sumarið 1985 mun Eimleikasam-
band íslands gangast fyrir mikilli lurt-
leikahátíð hérlendis. Á hátíðina verður
boðið um þúsund erlendum gestum, til
viku dvalar. Boðið verður upp á kynnis-
ferðir um landið í tengslum við hátíðina,
svo og sýningar og námskeið í öllum
greinum limleika. Gisting verður boðin
hinum erlendu gestum í skólum.
Fulltrúar Fimleikasambands ísiands
kynntu hátíðina á þingi norrænna fim-
leikasambanda í Stokkhólmi í janúar.
Mæltist hátíðin vel fyrir að sögn stjórnar
FSÍ, og er mikill áhugi fyrir hátíðinni frá
öðrum Norðurlöndum. Vænta því Fim-
leikasambandsmenn mikillar þátttöku.
Á þinginu í Stokkhólmi var sýnd
kvikmynd frá Íþróttahátíð 1980, iagt
fram efni og kynningarrit og kynntur
íslenskur matur í boði Flugleiða hf.
- SÖE
50 manns
tóku þátt
ígöngu
-í tilefni afmælis SR
■ 50 inanns tóku þátt í almennings-
göngu sem Skíðafélag Reykjavíkur stóð
fyrir um síðustu helgi. Gengnir voru 3
kílómetrar í Hveradölunt, og hressing
þegin í Skíðaskálanum á eftir. Elsti
þátttakandinn var sjötugur en sá yngsti
sjö ára.
Engin númcr og engin tímataka voru
á mótinu, og þátttaka ókeypis. Tilefnið
var 70 ára afmæli Skíðafélags Reykjavík-
ur. Fararstjóri í ferðinni var Leifur
Múller, sonur LH Múllers kaupmanns í
Reykjavík, sem stofnaði Skíðafélag
Reykjavíkur 26. febrúar 1914 ásamt
áhugafólki í greininni. Á fyrstu árum
félagsins var ganga aðall þess, og því við
hæfi að fara í hópgöngu. Núverandi
formaður SR er Matthías Sveinsson.
-SÖE
II
SIGURMASKINAN
77
RÆSTHERIKVOLD
■ „Sigurmaskínan“, eins og Svíar
kölluðu sovéska landsliðið í handknatt-
leik eftir World-Cup keppnina í hand-
knattleik á dögunum í Svíþjóð, leikur
við íslenska landsliðið í handknattleik í
kvöld klukkan 21.45. Liðið, sem sigraði
nokkuð örugglega í keppninni, tapaði
ekki leik, er talið afskaplega heilsteypt.
Varla er hægt að taka einn leikmann út
fyrir annan, enda hefur liðið frábærum
leikmönnum á að skipa í hverri stöðu,
einnig á varamannabekknum.
Mest bar á hinum stórvaxna Oleg
Gagin í leikjum Sovétmanna í Svíþjóð á
dögunum, hann skoraði 21 mark í
fjórum leikjum og var mjög áberandi
sern aðalskytta liðsins. Gagin erörvhent-
ur, vel við aldur eins og Sovétmenn í
þessu liði almennt og sköllóttur. Hann
er gífurlega iðinn við kolann og hættir
aldrei fyrr en flautan gellur. Hin mikla
reynsla Gagins kemur honum og að
góðu haldi, eins og reyndar liðinu öllu.
Á Polar Cup í Noregi í nóvember á
síðasta ári var A. Karshakevic kosinn
Alafoss-
hlaupið
■ Alafosshlaupið verður hlaupið á
laugardaginn. 7. mars, og hefst klukkan
14.00. Keppendur eiga að mæta til
skráningar klukkan 13, við íþróttahúsið
á Varmá í Mosfellssveit.
Keppt v.erður í eftirtöldum flokkum:
Karlar, fæddir 1969 og fyrr 7 km.
Piltar, fæddir 1968-1970, 3 km.
Strákar, fæddir 1971 og síðar, 1.5 km.
Konur, fæddar 1969 og fyrr, 3 km.
Meyjar, fæddar 1968-1970,1,5 km.
Stelpur, fæddar 1971 og síðar, 1,5 km.
-SÖE
besti leikmaður mótsins. Hann vareinn-
ig markahæstur, skoraði 36 mörk í 6
leikjum, að meðaltali 6 mörk í leik.
Hann þykir afar fjölhætur leikmaður,
skorar á alla mögulega vegu, fyrir utan,
með gegnumbrotum úr hornum eða af
línunni, og skorar með afar fjölbreyti-
legum skotum.
Sovéska liðið hefur fram að leikjunum
í Danmörku á leið til íslands, leikið 18
landsleiki á þessu ári og unnið 16 þeirra.
Fjórum sinnum hefur liðið skorað 35
mörk og yfir, gegn Svíum 35-24, gegn
Bandaríkjamönnum 40-16, gegn
Frökkum 35-21 og gegn Hollendingum
36-17.
Það er því Ijóst að íslendingar þurfa
að halda vel á spilunum. -SÖE
a ;
\T
■ Atli Hilmarsson stórskytta íslenska
liðsins. Atli var ekki með þegar Islend-
ingar mættu Sovétmönnum árið 1982,
en hann er með nú og bætir það úr, ekki
síst þar sem „útlendingarnir“ eru ekki
með í íslenska liðinu. Hér er Atii að
senda þrumufleyg í mark Norðmanna
sem komu hingað á dögunum.
Tímamynd Árni Sæbcrg
GODUR ARANGUR
ÍSUEN PINGANNA________
— á Sweden-Cup á dögunum
— á að loka á lyftingamenn með
ósanngjörnum lágmörkum?
■ Islendingarnir þrír, sem tóku þátt í
Sweden Cup lyftingamótinu í Svíþjóð á
dögunum stóðu sig allir mjög vel.
Haraldur Ölafsson ÍBA varð annar í 75
kg. flokki, Garðar Gíslason ÍBA varð
þriðji í 100 kg. flokki og Gylfi bróðir
hans fimmti, en Gylfi er vanur að keppa
í 90 kg. flokki, svo hans árangur er ekki
síðri.
í 75 kg. flokki sigraði Reijo Toivanén
frá Finnlandi, snaraði 125 kg. og jafnhatt-
aði 167,5, samtais 292,5 kg. Haraldur
snaraði einnig 125 kg. en jafnhattaði
162.5 og varð annar með samanlagt
287.5 kg.
Boiko Parvanon frá Búlgaríu sigraði í
100 kg. flokki. Hann er algert tröll í
■ „Sigurmaskinan", var þetta lið kallað i Svíþjóð, soveska landshðið. A
myndinni eru: efri röð frá vinstri: Subov (læknir), Kozhukov (liðsstjóri),
Jewtushenko (þjálfari), Kusnirjuk, W'assiliev, Gagin, Rymanov, Zjukov,
Klimov (aðstoðarþjálfari), og Murakin (nuddari): Sitjandi fyrir framan:
Valutkas. Below. Karshakevic„ Schevtsov, Kidjajev og Novitski.
SAMI KJARNINN
■ Sami kjarni leikmanna er í íslenska
landsliðinu í handknattleik, sem, ieikur
gegn Sovétmönnum í kvöld, og var árið
1982, þegar Sovégtmenn komu hingað og
léku þrjá leiki. I 17 manna hópi sem
Hilmar Björnsson þáverandi landsliðs-
þjálfari valdi fyrir leikina, voru sömu
menn og eru í 20 manna hópi Bogdans
nú, ef undan eru skildir Ólafur Jónsson
■ Aðalskytta Sovétmanna: Oleg
Gagin.
Staðan í
blakinu
1. deild karla:
Þróttur ... 14 14 0 42-12 28
HK ...... 14 10 4 33-21 20
ÍS ...... 12 5 7 26-39 10
Fram .... 14 3 11 22-39 6
Víkingur .14 2 12 17-39 4
1. deild kvenna:
Völsungur .... 15 13 2 39-11 26
ÍS ........ 16 13 3 43-17 26
Breiðablik .... 16 10 6 37-31 20
Þróttur.... 16 6 10 28-35 12
KA .........16 3 13 17-41 6
Víkingur... 15 2 13 9-44 4
60 hlupu í
Rafhahlaupinu
■ Alls luku sextíu krakkar Rafha-hlaupinu
í Hafnarfirði um síðustu helgi, en hlaupið er
hlaup skólanna þar. Finnbogi Gylfason Víði-
staðaskóla sigraði í piltaflokki, eftir harða
keppni við Ásmund Edvardsson Lækjar-
skóla, og Björn Pétursson Lækjarskóla varð
þriðji, ekki langt á eftir. Þessir þrír hlaupa
allir grimmt fyrir FH. Guðrún Eysteinsdóttir
Víðistaðaskóla sigraði í telpnaflokki, eftir
harða baráttu við Súsönnu Helgadóttur
Öldutúnsskóla. Anna Valdimarsdóttir varð
þriðja og Rakel Gylfadóttir fjórða, en þessar
eru einnig framarlega í flokki duglegrar
hlaupa og frjálsíþróttasveitar FH.
Fyrstu tíu í hvorum flokki í hlaupinu urðu:
Piltar 2 km. mín.
Finnbogi Gylfason V 2:50
Ásmundur Edvardsson L 2:54
Björn Pétursson L 3:09
Sigurþór Ingólfsson V 3:12 ■
kristinn F. Kristinsson
Gunnar Guðmundsson
Sveinn Heigason
Kjartan Einarsson
Páll Oskarsson
Róbert Magnússon
Telpur 1 km
Guðrún Eysteinsdóttir
Súsanna Helgadóttir
Anna Valdimarsdóttir
Rakel Gylfadóttir
Helen Ómarsdóttir
Aðalheiður Birgisd.
Helga Sigurðardóttir
Helga Lea Egilsdóttir
Þyrí Gunnarsd. (9-10)
Þórunn Unnarsd. (9-10)
Öll verðlaun í hlaupið gaf Rafha-
ið.
L
V
3:35
3:40
O 3:54
V 4:01
4:11
4:21
L
V
min.
V 3:04
Ö 3:06
V 3:15
L 3:18
L 3:28
Ö 3:30
V 3:35
V 3:35
Ö 3:38
Ö 3:38
fyrirtæk-
-SÖE
iovétmenn á leið til Islands;
DANIR FENGU
STORANSKELL
■ Sovétmenn rassskelltu Dani í
fyrri leik þjóðanna í fyrrakvöld í
handknattleik. Úrslitin i leiknum,
sem leikinn var í Danmörku, urðu
27-19 Sovétmönnum í hag. Sýna
þessar tölur að ekki hefur Sovét-
mönnum farið aftur síðan á World
Cup á dögunum í Svíþjóð, þar sem
þeir unnu Dani með þriggja marka
mun í úrslitaleik.
Staðan í hálfleik var 10-10. Danir
höfðu leikið vel, og haldið í við
meistarana. En í síðari hálfleik
settu Sovétmenn á fulla ferð í
upphafl, og skoruðu strax fjögur |
mörk gegn engu. Liðið sló ekkert
af fyrr en fimm marka forskoti var |
náð, en þá gaf Jevtushenko þjálfari ■
sínum mönnum merki um að „slaka I
á og halda þessu bara“.
„Þeir eru stórkostlegir, liðið lék 1
eins og best gerist, og leikfléttumar j
gengu eins og svissneskt úr“, sagði .
stjórnarmaður í danska handknatt- |
lcikssambandinu um sovéska liðið ■
í gær. -SÖE
Víkingi og Gunnar Gíslason KR, sem
ekki eru lengur með. Þeir sem hafa bæst
við eru Ellert Vigfússon Víkingi, Atli
Hilmarsson FH, Steinar Birgisson Vík-
ingi. Jakob Sigurðsson Val og Guð-
mundur Albertsson KR. - Þá verður og
að taka með í reikninginn, að þrír af
sterkustu mönnum hópanna, bæði fyrr
og nú, Bjarni Guðmundsson Wanne
Eyckel, Sigurður Sveinsson Lemgo og
Aifreð Gíslason Essen, eru ekki með
nú, og er þar skarð fyrir skildi. Þeir
fengu ekki frí frá félögum sínum í
V-Þýskalandi.
Eftir standa því 17 manns, sem liðið
verður valið úr í leikina þrjá.
Þeir eru: Markverðir: Jens Einarsson
KR, Einar Þorvarðarson Val, Brynjar
Kvaran Stjörnunni og Ellert Vigfússon
Víkingi. Útileikmenn eru: Steinar Birg-
isson Víkingi, Atli Hilmarsson FH,
Guðmundur Guðmundsson Víkingi,
Steindór Gunnarsson Val, Þorgils Óttar
Mathiesen FH, Jóhannes Stefánsson
KR, Þorbergur Aðalsteinsson Þór V,
Páll Ólafsson Þrótti, Sigurður Gunnars-
son Víkingi, Þorbjörn Jensson Val,
fyrirliði, Jakob Sigurðsson Val, Guð-
mundur Albertsson KR.
- Það er því Ijóst að meginkjarni
liðsins er sá sami, og hefur öðlast aukna
reynslu síðan ’82. Nú vantar hins vegar
burðarása í liðið, þannig að litla ísland
ætti að standa svipað að vígi, Liðið getur
veitt besta liði heims keppni, með góðum
og vönduðum leik, og miklum stuðningi.
-SOE
Úrslrtakeppnin í
körfuboKanum í kvöld:
Ræðst
hverjir
leika í
úrslitum?
1 kvöld er úrslitakeppni úrvals-
I
deildarinnar í körfuknattleik i full-
um gangi. Annar leikur efsta liðs
og fjórða liðs, og annars og þriðja
liðs.
Haukar leika sinn annan leik við
Njarðvíkinga í kvöld, í Hafnarfirði
klukkan 20.30. Fyrri leikinn unnu
Njarðvíkingar 53-49 í miklum bar-
áttuleik, þar sem minna fór fyrir
fallegum körfuknattleik. I kvöld
hafa Haukar tækifæri á að hefna
harma sinna, og takist þeim að
vinna í kvöld, leika liðin þriðja
leikinn á laugardag og ræður hann
úrslitum.
Sama gildir um Val og KR. í
fyrsta leik liðanna, á þriðjudag
unnu Valsmenn næsta auðveldan
sigur, 76-61. -SÖE^
FÁ HESTAMENN
INNGÖNGU í ÍSÍ?
■ Á næsta sambandsráðsfundi íþrótta-
sambands Islands kemur enn til umræðu
hvort veita eigi hestamönnum inngöngu
í ÍSÍ. Reyndar telja margir að hestamenn
eigi nú mikla möguleika á að komast
inn, þar eð tillagan sem borin verður
fram á fundinum verður um hvort veita
eigi íþróttadeildum hestamannafélag-
anna inngöngu. - Síðast þegar þetta mál
var tekið fyrir, var sá annmarki fundinn
á því að hjá hestamönnum væri það
hesturinn sem keppti fremur en maður-
inn, en eftir að íþróttadeildir hófu starf-
semi sína og svokallaðar íþróttakeppnir
hófu gang sinn, hefur þetta viðhorf
dálítið breyst.
Meðal annarra mála sem tekin verða
fyrir á þessum sambandsstjórnarfundi
ÍSÍ, er skipting útbreiðslustyrkja til sér-
sambanda ÍSÍ, nefnd leggurfram tillögur
um breytingar á dóms og refsiákvæðum
ÍSÍ eftir endurskoðun þeirra, lagðar
verða fram sameiginlegar reglur íþrótta-
sambanda Norðurlandanna, til sam-
þykktar, og tillaga um breytingar- á
reglugerð ÍSÍ um lyfjaeftirlit. Margt
fleira verður á dagskrá sambandsstjórn-
arfundar ÍSÍ 31. mars. -SÖE
■ - Fá hestamenn inngöngu
íþróttasamband íslands? Sambands-
ráðsfundur i lok mánaðarins mun
fjalla um máliö, og nú vona hesta-
menn að margra ára óréttlæti í þeirra
garð vcrði lciörétt.
Egypti á íslandsmótid í vaxtarrækt:
SEXFALDUR HEIMSMEISTARI
og hámenntaður í þokkabót
■ Egypskur tungumálamaður kemur
hingað til lands sem sérlegur gestur á
Islandsmótið í vaxtarrækt, sem haldið
verður í Broadway sunnudaginn 25.
mars næstkomandi. Úrslitakeppnin
hefst klukkan 20.30, en forkeppnin hefst
klukkan 14.00 um daginn.
Egyptinn, Mohamed Makkawy, er
sexfaldur heimsmeistari atvinnumanna í
vaxtarrækt, var kjörinn hr. Alheimur
árið 1976, sigraði í Grand Prix keppninni
í Belgíu árið 1982 og í Pro World
keppninni í Bandaríkjunum þremur
dögum síðar. Hann varð númer sjö í
keppni hr. Ólympía 1982, og númer
þrjú árið eftir í sömu keppni. Fimmtán
ára gamall var Makkawy valinn hr.
Egyptaland og sautján ára varð hann hr.
Miðjarðarhaf.
Makkawy er fæddur árið 1953 rétt
fyrir norðan Kaíró. Hann fékk mikinn
áhuga á vöðvum strax um 11 ára aldur,
og fjórtán ára var honum boðið að hefja
æfingar í ólympískum lyftingum. Hann
hóf þá að æfa með lóðum, og færði sig
fljótt í vaxtarræktina úr lyftingunum.
Mohamed Makkawy er ekki eins og
margir gætu haldið eintómt samsafn
beina og vöðva, hann er mjög fjölhæfur
og vel gefinn. Hann gekk menntaveginn,
hefur BA próf í enskum bókmenntum,
þessum flokki. og þvkir mjög sigurstrang-
legur á Ol í sumar. Hann snaraði 175 kg.
og jafnhattaði 210 kg. Samanlagt 385 kg.
Olavi Blomfjord frá Svíþjóð, sem valinn
hefur verið í sænska ólympíuliðið í 100
kg. flokki varð annar, snaraði 150 kg. og
jafnhattaði 185 kg. samanlagt 335 kg.
Garðar Gíslason var skammt á eftir,
snaraði 150 kg, og jaínhattaði 180 kg,
samanlagt 330 kg. Frank Strömboe frá
Danmörku varð fjórði með 147.5 kg, í
snörun og 180 kg. í jaínhöttun, alls
327.5 kg. og Gylfi Gíslason snaraði 140
kg. og jafnhattaði 180 kg, alls 320 kg.
Árangur lyfingamannanna allra er
mjög góður, og er við alþjóðleg lágmörk
sem sett hafa verið til þátttöku á
Ólympíuleikum. Hins vegar mun við-
miðunartala Ólympíunefndar íslands
vera allnokkru hærri, t.d. um 360 kg. í
90 kg. flokki.
Á enginn að fara?
Samkvæmt heimildum Tímans, telja
sumir að Ólympíunefnd ætli sér að koma
málum þannig fyrir, að enginn lyftinga-
maður fari á Ólympíuleikana í sumar.
Ástæður eru taldar helstar þær að nefnd-
in sé hrædd við lyfjapróf og niðurstöður
þeirra. Sweden Cup var lyfjaprófað
mót, og fær því Ólympíunefndin niður-
stöður þaðan. Þá ætti jafnvel, með
jákvæðum niðurstöðum, að vera hægt
að endurskoða „viðmiðunartölur" nefnd-
arinnar, því það er fullyrt af kunnáttu-
mönnum, að t.d. „viðmiðunartalan” í 90
kg. flokki, 360 kg. dugi nær örugglega til
að komast á verðlaunapall á 01 í sumar.
- Til viðmiðunar má geta þess, að
Guðmundur Sigurðsson lyfti samtals
332.5 kg. á síðustu Ólympíuleikum og
varð sjöundi, sem er annar besti árangur
íslendings á Ólympíuleikum,
-SÖE
og heldur nú fyrirlestra á fjórum tungu-
málum, arabísku, þýsku, ensku og
frönsku. Hann hefur og stundað nám í
innanhússarkitektúr við UCLA háskól-
ann í Bandaríkjunum. Aðaláhugamál
hans eru klassísk tónlist og popptónlist,
tennis, sund, yoga, eldamennska og
teikning.
Mohamed Makkawy kemur hingað til
lands á vegum Vaxtarræktarinnar hf.
Dugguvogi 7, og kemur fram sem gestur
á íslandsmótinu. Hann er 1,60 cm. á
hæð, vegur 77 kg. og málin eru: mitti 64
cm, tvíhöfði upphandleggs 46 cm og háls
39 cm.
-SÖE
■ Mohamcd Makkawy, sexfaldur
heimsmeistari atvinnumanna í vaxtar-
rækt-kemur hingað til lands í vikunni og
verður gestur á íslandsmótinu á sunnu-
umsjón: Samúel Öm Erlingsson
BREÍÐABLIK
VAR STERKAST
Á 6 UÐA MÓTI í KÖRFUB0LTA
■ Breiðablik var sterkast i 6 liða móti
í körfuknattleik, sem haldið var fyrstu
hclgina i mars í liorgarncsi og á Akra-
nesi. Sex lið tóku þátt Breiðablik, Léttir,
Tindastóll, Skallagrímur, Akranes og
HK.
Skipt var í tvo riðla og urðu urslit
þessi:
A-riðill:
Breiðablik-Léttir......... 87-66
■ Akranes-Breiðablik . .... 58-61
Akranes-Léttir .......... 115-73
B-riðill:
Skallagrímur-Tindastóll....64-67
Skallagrimur-HK............64-61
Tindastóll-HK..............65-67
Stigamunur réð röð í B-riðli. og
munaði einu stigi á efsta liði ogöðru liði,
og einu stigi á öðru liði og þriðja liði.
Leikið var um sæti á sunnudegi, en
riðlakeppnin var á föstudegi og laugar-
dcgi:
5-6. sæli: Léttir-HK.......79-60
3-4. Sæti: ÍA-Skallagrimur.83-82
1-2. sæti: Breiðablik-Tindastóll .... 73-63
Ragnar Bjartmarz Breiðabliki var
kjörinn besti leikmaður mótsins. Garðar
Jónsson I A var stigahæstur með 90 stig.
Báðir fengu veglega vcrðlaunagripi. Sjö
manna úrvalslið mótsins var valið, og
var skipað eftirtöldum: Atli Arason
UBK, Gísli Gíslason ÍA Garðar Jónsson
ÍA. Ragnar Bjartmarz UBK, Eyjólfur
Svcrrisson Tindastóli, Guðmundur
Guðmundsson Skallagrími og Kristján
Rafnsson HK. -SÖE.
Enn lá Ipswich
■ Tveir leikir voru i fyrrakvöld í ensku
knattspyrnunni báðiri 1. deild. Coventry
og Aston Villa skildu jöfn 1-1, og Luton
vann Ipswich 2-1. -SÖE
Hópferð fyrir
golf og tennis
áhugafólk
■ Um páskana er fyrirhuguð hjá Sam-
vinnuferðum/Landsýn hópferð til' Al-
garve í Portúgal fyrir golf- og tennis-
áhugamenn. Þar eru aðstæður fyrir golf
og tennis, og veðurfar einkennist af sól og
sumaryl. Farið verður hinn 11. apríl, og
komið heim hinn 22., sem er páskadag-
ur.
Að sögn þeirra sem til þekkja mun
ferö þessi vera á mjög aðgengilegu
verði, og mikil freisting þeim sem eiga
áhugamál sín í golf- og tennisíþróttun-
um. Ekki munu vera mörg sæti laus.
i -SÖE
ísfirðingar
létu að
sérkveða
- 1 fyrsta sinn á skólamóti á
skíðum
■ ísfirðingar létu að sér kveða á sinu
fyrsta skólamóti á skíðum, sem haldið
var í síðustu viku. ísfirðingar urðu í 4.
sæti í svigi, og sigruðu í skíðagöngu,
með olympíufarann Einar Ólafsson í
fararbroddi.
Sveit Háskóla íslands sigraði í svigi. I
sveitinni voru Kristinn Sigurðsson, Einar
Úlfsson, Helgi Geirharðsson og Trausti
Sigurðsson. Sveit Menntaskólans á
Akureyri varð í öðru sæti, sveit Mennta-
skólans við Sund í þriðja sæti og sveit
Menntaskólans á ísafiröi í fjórða sæti.
í göngukeppninni sigruðu ísfirðingar.
í sveitinni voru Guðmundur Kristjáns-
son, Brynjar Guðbjartsson og Einar
Ólafsson. Sveit fþróttakennaraskóla fs-
lands varð í öðru sæti og sveit Mennta-
skólans á Akureyri í þriðjasæti. Gengnir
voru 3x3 km.
Keppnin var haldin í Hveradölum t
sæmilegu veðri. Skíðafélag Reykjavíkur
sá um framkvæmd mótsins, cn það hefur
verið haldið á hverju ári síðan 1977.
-SÖE