Tíminn - 15.03.1984, Page 13
FIMMTUDAGUR 15. MARS 1984
ii ;i .1II !i
13
i
fréttir 1
Sumaráætlun Urvals:
SÓLARLANDAFERÐIR LÆKKA
■ „Úrvals ferðamöguleikar 1984“
nefnist sumaráætlun ferðaskrif-
stofunnar Úrvals sem er nýkomin út.
Áætlunin er 32 síður auk 12 síðna
verðskrár.
I frétt frá Úrval segir að í áætluninni
séu kynntir fleiri og fjölbreyttari
ferðamöguleikar en nokkru sinni fyrr.
Má þar nefna sólarferðir til Ibiza og
Mallorca; flug, bíll og sumarhús í
Austurríki, Bretlandi, Danmörku,
Frakklandi, Hollandi, Luxemborg,
Noregi, Svíþjóð og Þýskalandi; París-
ar og Rómarferðir; rútuferðir um
Mið-Evrópu og fleira.
Þá eru í fréttinni rakin greiðslukjör
Úrvals. Þar segir að með verulega
hagstæðum samningum og stórauk-
inni hagkvæmni í leiguflugi geti Úrval
nú boðið ferðir sínar til Mallorca
Ibiza og Noregs á enn lægra verði en
s.l. sumar.
í Úrvalsferðum til Ibiza, Mallorca,
Noregs og í sumarhúsin í Daun Eifel
býðst viðskiptavinum Úrvals að
greiða helming út en eftirstöðvar eru
til 3ja mánaða með þrem mánaðar-
legum greiðslum. Sé útborgun að
viðbættri fyrstu afborgun 3/4 hluti eða
meir af andvirði ferðar, greiðast engir
vextir af fyrstu afborgun. Fyrir þá sem
nýta sér Úrvalsferðalán, en af því er
fyrsta afborgun eftir 2 mánuði, er hér
kjörið tækifæri til að hafa fyrstu
afborgun hlutfallslega stærsta.
■ Feröaskrifstofan Úrval býður m.a. upp á sumarhús í Daun Eifel í Þýskalandi.
Staðurinn er rétt hjá Mósel og Rín og eru húsin í þýskum bjálkakofastíl.
Úrvalsferðalánin býður Úrval í
samvinnu við Iðnaðarbankann. Þau
eru að því leyti frábrugðin hefðbundn-
um sparilánum eða ferðaveltum að
fyrsta afborgun er eftir tvo mánuði í
stað eins sem helst tíðkast. Þessi
gjaldfrestur gefur þannig möguleika
til hækkunar á fyrstu afborgun ferðar-
innar, sem er vaxtalaus.
Að lokum segir í fréttinni að við-
skiptavinir Úrvals þurfi hvorki að
vera aðildarfélagar né klúbbmeðlimir
til að njóta hæsta afsláttar og bestu
kjara hjá ferðaskrifstofunni.
- GSH.
Eigum til sýnis og sölu URSUS 1004
100 ha. Ekin rúmar 500 vinnust. Öll ný
yfirfarin og í mjög góðu standi.
Vélinni geta fylgt:
Keðjur - Snjótönn og Ripper.
Eigum ýmsar aðrar notaðar dráttarvélar
á góðu verði.
Hringið eða komið og gerið okkur tilboð.
Samvinnubankinn á Egilsstööum
mun frá og með föstudeginum 16. mars nk.
auka við þjónustusvið sitt og sjá um sölu
á ferða- og námsmannagjaldeyri.
Þar verður einnig hægt að stofna innlenda
gjaldeyrisreikninga auk þess sem útibúið veitir
alla þjónustu varðandi VISA-greiðslukort.
ERLEND
m
VÉIáBCCG
Bíldshöfða 8 - Símar 8-66-55 & 8-66-80
Auglýsing frá
ríkisskattstjóra um
framtalsfrest
Framtalsfrestur manna, sem hata með höndum atvinnurekstur eða
sjálfstæða starfsemi, er hér með framlengdur til og með 29. mars
1984.
Reykjavík 12. mars 1984
Ríkisskattstjóri
Búvélar til sölu:
International 435 heybindivél árg. 1980. International
áburðardreifari 3ja m. mönduldreifari árg. 1973.
MF 135 dráttarvél m/ámoksturstækjum árg. 1972. Vicon
4ra hjóla lyftutengd rakstrarvél.
Upplýsingar í síma 99-5568.
Djúprækjuveiðar
Óskum eftir viðskiptum við báta sem hyggja á
djúprækjuveiðar.
Upplýsingar í síma 96-52188 og 96-52154.
Sæblik h.f.
Kópaskeri.