Tíminn - 15.03.1984, Blaðsíða 20

Tíminn - 15.03.1984, Blaðsíða 20
 k á Opið virka daga ^ 9-19 (1 I Laugardaga 10-16 HEDD" M Skemrmjvegi 2C Kopavogi ( Stmar (91)7 75 51 & 7 60 30 Varahlutir Mikiö úrval Sendum um land allt Ábyrgö á öllu \ Kaupum nýlega bíla til niðurrifs SAMVINNUr^T'l TRYGGINGARLTXJ & ANDVAKA VAVy ARMULA3 SIMI81411 Ritstjorn 86300 - Auglýsingar 18300 - Afgreiðsla og áskríft 86300 - Kvöldsímar 86387 og 86306 ,£is T* abriel rhöggdeyfar w Qivarahlutir 3SST Fimmtudagur 15. mars 1984 Bjartsýni á Tálknafirdi: HUGMYNDIR UM BYGGINGU STÖRRRR LAXEUMSSTtiÐVAR ■ Á TúlknafírAi rikir töluverð bjartsýni meðal manna um að þar séu til stuðar einhverjar bestu aðstæður á landinu til að rcisa stóra laxeldisstöð á hagkvæman hátt, m.a. vegna góðra land- fræðilegra ug náttúrufræðilcgra aðstæðna. Hefur jafnvel verið talað um laxcldissiúð sem fram- leitt gæti allt að 2.000 tonnum af laxi á ári. Frumathugun á þessu máli er nú langt kumin í vinnslu á Verkfræðistofu Sigurðar Thor- oddsen í Reykjavík. „Það er rétt að allar líkur virðast benda til að þarna sé hægt að byggja stóra laxeldis- stöð, jafnvel eitthvað álíka og við Islendingar höfum verið að tala um stærst", sagði Höskuldur Davíðsson. sveitarstjóri á Tálknafirði í samtali viðTímann. Hagkvæmni við byggingu slíkrar stöðvar þar sagði hann í fyrsta lagi byggjast á jarðhita sem þar ér til staðar, í öðru lagi á vel aflokuöum firði og í þriðja lagi á nokkuð góðu flátlendi fyrir bygg- ingarnar. Varðandi stærð sagði hann ýmsar tölur hafa verið ncfndar, 2.000 tonna stöð og 1.000 tonna stöð m.a., en alll slíkt væri þó ágiskanir á þessu stigi. Jafnvel gæti komið í ljós að eitthvað minni stöð væri heppilegri fyrir stað eins og Tálknafjörð, vegna þeirrar geysilegu uppbyggingar sem til þyrfti í kring um stóra stöð. Allt ætti þetta eftir að skýrast nánar með skýrslunni sem verið er að vinna að. Spurður um áætlaðan bygg- ingarkostnað benti Höskuldur á upplýsingar í skýrslu þeirri er Orkustofnun lét gera um laxeld- isstöð við Kistu á Reykjanesi. Par er kostnaður við 670 tonna laxeldisstöð áætlaður nokkuð yfir 300 millj. króna og við 2.000 tonna stöð rösklega 800 milljónir króna. Þrátt fyrir það á fyrra dæmið að skila 15-30% arðsemi og hið síðara 30-47% arðsemi. Höskuldur sagði menn hins vegar telja að fyrir vestan geti byggingarkostnaður orðið veru- lega lægri en á Reykjanesi og jafnframt ætti það að geta komið til kostnaðarlækkunar að í Tálknafirði er lághiti í stað há- hita á Reykjanesi. Útvegun á fjármagni til fram- kvæmdanna sagði Höskuldur menn ekki farna að spá í ennþá - enda of fljótt - og sömuleiðis ekki hvernig eignaraðild kæmi til með að skiptast ef til framkvæmda komi. Ef fyrirtæki gæti skilað mikilli arðsemi ættu einhverjir að fást til að leggja fé í það. Komi í Ijós að vonir manna um hagkæmni slíkrar laxeidisslöovai i Tálkna- firði reynist á rökum reistar sagði Höskuldur a.m.k. óverj- andi annað en að skoða þann möguleika nánar, ekki síst vegna þess að nauðsyn sé á að fá eitthvað til mótvægis við minnk- andi sjávarafla. „Sýni það sig að árangurs sé að vænta af að koma upp fiskeldi þarna þá tel ég að það verði gert, jafnvel að við mundum þá sjálfir fara út í þetta í smáum stíl til að byrja með“, sagði Höskuldur. Hann lagði þó áherslu á að varasamt sé að fara út í einhverja loftkastalasmíði á þessu stigi, betra sé að bíða eftir útkomu könnunarinnar en að gera sér of háar vonir fyrirfram. -HEI Sókn felldi samningana á fjölmennum félagsfundi „AÐALATRIÐIÐ AÐ FELLA SAMNINGANA“ — segir Aðalheiður Bjarnfreds- dóttir, formaður félagsins ■ „Ég haföi alveg eins reiknaö meö því aö samningarnir yrðu felldir. Þegar við sáum hvað mikiö fór héðan út af skirtcinum þá vissum við auövitaö að hörku smölun var í gangi og því alveg eins hægt að reikna meö að þetta yrði fellt", sagði Aðalhciður Bjarnfreðsdóttir, form. Starfsmannafélagsins Sóknar. Samningur ASI og VSI var fclldur á félagsfundi sóknar með 246 at- kvæðum gegn 177. Auk þess sem Aðalheiður kvaðst hafa talið að samningur ASÍ og VSÍ hafi komið þeim helst til góða sem lægst launin hafa sagði hún nokkuð góð ákvæði hafa náðst fram í sér- samningum félagsins. Þar hafi m.a. komið inn að þær sem hefðu hús- niæðraskólapróf skyldu hækka um 3 launaflokka og flokkast með matar- tæknum. Einnig hafi fengist fram yfirlýsing frá heilbrigðisráðherra um að hann mundi gefa út tilskipun um endurskoðun á reglum barnaheimila ríkisspítalanna með tilliti til þess að börn Sóknarkvenna skyldu fram- vegis tekin inn ef plássværu laus. Þá hefði náðst fram að Sóknarkonur sem annast deildargæslu á barna- heimilum skuli fá undirbúningstíma eins og fóstrur. Hins vegar sagði Aðalheiður Ijóst að samningurinn hefði ekki breytt því að sumt Sókn- arfólk væri auðvitað vandræðalega illa launað. Aðalheiður var spurð hvort hörð andstaða hafi komið fram á fundin- um eða hvort einhver sérstök atriði samningsins hafi öðrum fremur mætt mótspyrnu: „Það fólk sem vann gegn þessu var ákaflega duglegt að tala. Eiginlega get ég ekki sagt þér á hverju helst strandaði - held að aðalatriðið hafi verið að fella samn- ingana". Spurð hvað nú tæki við, sagði Aðalheiður: „Nú cr ég ekki inni í dæminu. Um leið og búið var að fella samningana stakk ég upp á þeim í samninganefnd sem ötulast hafa unnið gegn þeim. Ég vona bara að því fólki takist betur en mér". „Samningarnir voru felldir vegna þess að fólki finnst kaupið of lágt og sú kjarabót sem þarna var boðið upp á of lítil. T.d. hafa konur sem vinna á barnaheimilum og saumastofum aðeins dagvinnu og hún gefur á mili 11.700 og 12.200 kr. á mánuði", sagði Guðlaug Pétursdóttir, sem er ein þeirra sem fundurinn kaus í nýja samninganefnd. Varðandi framhaldið benti Guð- laug á að allir hafi verið í vinnu í gær og því enginn tími gefist fyrir samn- inganefndina til að koma saman og ræðast við. - HEI. 7 f 7 , 1' 1 T A \ X: ’r*. j \ s , ■ Hann gerir ráð fyrir mörgum sólardögum á næstunni og er búinn að fá sér sólgleraugu. Egilsstaðir: FANGAGEYMSLU- LAUST í SUMAR ■ Utlit er fyrir að lögreglan á Kgilsstööuin standi uppi fangageymsluiaus í sumar og verði þá að notust við fanga- geymslur lögreglunnar á Eski- firði, um 50 kin. í burtu, cf svo ber undir. Fangageymsla lögreglunnar á Egilsstöðum stendur á lóð sem var í cigu Húsiöjunnar en Olíufélagið Skcljungur hefur nú keypt lóðina til að reis a á henni bensínstöð, og verða allar byggingar sem nú standa á lóðinni rifnar. í samtali við Ttmann sagði Björn Halldórs- son lögregluvarðstjóri á Egils- stöðum að hann byggist við að sjá fangageymsluna í rústum fyrir páska. Björn sagði að til stæði að innrétta fangageymslu í kjall- ara iögreglustöðvarinnar en framkvæmdir við það væru ekki hafnar. Því gæti skapast bagalegt ástand í sumar, þar sem undanfarið hefðu ein- hverjir gist fangageymsluna á Egilsstöðum um hverja einustu helgi yfir sumartímann. Þetta snérist síðan við yfir veturinn, þá heyrði það til undantekn- inga ef fangageymslan væri notuð. -GSH Bónus í bankana? ■ Málm- og skipasmiða- samband íslands og Sam- band bankamanna hafa bæst i hóp þeirra sem skrif- að hafa undir nýja kjara- samninga. Að sögn Guð- mundar Hilmarssonar skrifuðu Málm- og skipa- smiðir undir samning ASÍ og VSÍ án nokkurrar viðbót- ar. Félagsfundir félaga inn- an sambandsins hefjast i kvöld. VilhelmG. Kristinssonsagði samninga Bankamanna nánast þá sömu og skrifað hafi verið undir af ASÍ og BSRB, þ.e. 5% frá 21. febrúar, 3% 1. júlí. 2% þann 1. seþt. og 3% þann 1. jan. 1985. Launaliðir væru uþpsegjanlegir miðað við 1. sept og 1. jan. með mánaðar fyrirvara. Auk þess hafi verið samþykktar þrjár bókanir, sem fjalla um vinnu sem aðilar ætla að sameinast um á samnings- tímabilinu að vinna að, m.a. varðandi könnun á gildandi launakerfi og möguleikum á afkastahvetjandi launakerfi. -HEI dropar Fleiri lána liðvagna ■ Liðvagn af gerðinni Merc- edes Ben/ hefur undanfarnar vikur verið í láni hjá Strætis- vögnum Reykjavíkur. Er verið að kanna hvernig slíkur gripur kemur til með að nýtast á mannflestu leiðum fyrirtækis- ins. Hingað til hefur einungis veriö verslað við innflytjendur Mercedes Benz og Volvo þegar vagnar eru keyptir og Reykja- víkurborg á í hlut. Það er því eðlilegt að hinn aðilinn láti í hér heyra eftir að góð reynsla hefur fengist af liövagni þeirra þýðversku. Nýlega barst stjórn SVR erindi frá Volvo þar sem boðinn er til láns liðvagn af þeirri gerð um tveggja vikna skeið, svo cölilcgur samnaburð- ur fáist. Dropar híða hins vegar eftir því að Ikarus-vcrksmiðj- urnar láti tii sín heyra. Ævilangir atvinnuleys- ingjar? ■ Mikillar bjartsýni gætir í Háskóla Islands eins og með- fylgjandi klausa úr fréttabréfi hans ber með sér: „Heyrt á háskóialóðinni. Kennari nokk- ur tók tvær námsmeyjar tali og spurði þær hvað þær væru að læra. Þær sögðust vera önnur í hcimspeki en hin í fornmálum. - Þið hafíð ekki valið fögin af hagnýtara taginu, sagði kennarinn. - Oðru nær, sögðu þær, við erum að undirbúa okkur undir ævilangt atvinnuleysi. Blaðamenn á fleygiferð ■ Þau tíðindi hcrast eftir Síðumúlanum, með hraða Ijóssins, að enn sé talsverð hreyfing á félagsmönnum Blaðamannafélags Islands, og að allnokkrir þeirra stefni á nýja vinnustaði nú með vorinu. Til að mynda hefur því verið fícygt að Sandkornasmiður DV, Jóhanna Sigþórsdóttir muni innan skamms hefja störf hjá Helgarpóstinum, en það mun vera cnn ein tilraun þeirra Helgarpóstsmanna til þess að fá í sínar raðir fréttahauk, sem vart licfur verið á hlaðinu frá því að Guðmundur Árni Stefánsson var einn óbreyttra liðsmanna blaðsins. Egill k: nokkur Helgason blaðamaður mun hafa ákveðið að víkja úr sæti fyrir Jóhönnu, og heyrist frá Höfðabakka að hann muni fyrst um sinn verða lausráðinn blaðamaður tímaritsins Storðar. j| i jp 1 i Jl Jjg J ■jfi^„„ Jl Krummi . . . I r| sér aö ekki mun standa IHHi stcinn yfir stcini á Egilsstöðum á upprisuhátíð frelsarans...?

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.