Tíminn - 21.03.1984, Blaðsíða 2

Tíminn - 21.03.1984, Blaðsíða 2
2______ fréttir Kleppspftalinn: ELDUR í RUSLAFÖTU ■ Eldur kom upp í ruslafötu í Víðihlíð, einu húsanna á Kleppspítalalóðinni um kl. 14.00 í gær. Slökkviliðið í Reykjavík var kallað út og lögðu þrír bílar af stað. Tveim þeirra var síðan snúið við þar sem starfsfólk náði fljótlega að slökkva eldinn, en einn bíll fór á staðinn til eftirlits. Engarskemmdirurðu íhúsinu. - GSH SÖKN ÓSKAR VIÐRÆÐNA FYRIR HELGI ■ „Við höfum verið að móta kröf- urnar og ég býst við að þær verði tilbúnar á fimmtudag eða föstudag og þá munum við biðja um viðræður,“ sagði Guðlaug Pétursdóttir, sem á sæti í hinni nýju viðræðunefnd Starfs- mannafélagsins Sóknar, en hún var kosin í kjölfar þess að samningar ASI og VSÍ voru felldir á félagsfundi. Viðsemjendur Sóknar eru stjórn Ríkisspítalanna, vinnumálanefnd ríkisins, sjálfseignastofnanir og Reykjavíkurborg. Guðlaug var spurð hvort til stæði að fara fram á miklu meiri kjarabætur en fólust í samkomu- lagi ASÍ og VSÍ. Hún sagði að svo væri ekki en hins vegar yrði leitað leiðréttinga á vissum atriðum sem hún vildi ekki tíunda nánar. -Sjó „DAGSBRUN STÓRT SKIP EN VSf VfS- AR A SMABRVGGJU” — segir Guðmundur J. Guðmundsson. ■ „Pað cr ekki gott fyrir stórt skip eins og Dagsbrún að leggjast að þeirri smábryggju sem Vinnuveitendasam- bandið vísar á. Þeir verða að sýna meiri rausn en hingað til annars verður ekki lagst upp að,“ sagði Guðmundur i. Guðmundsson, formaður Dags- brúnar, þegar hann var spurður um ganginn ■ viðræðum félagsins við Vinnuveitendasamhandið. Guðmundur sagði að þótt engin lausn væri í sjónmáli hefðu um helgina átt sér stað alvöru viðræður, scm náttúrulega væru grundvöllur þcss að samkomulag næðist í deilunni. Þó sagði hann að VSf hefði ekki enn sem komið væri gcngið að neinum kröfum Dagsbrúnar. Hann sagði að síðan á mánudag hefði aðallega verið rætt um hina ýmsu sérsamninga verkamanna innan Dags- brúnar. Það hefði gengið ákaflega tregiega. -Sjó. Húsnæðismálastofnun: 4884 hafa feng ið viðbótarlán ■ Um miðjan þennan mánuð höfðu 4884 viðbótarlán verið afgreidd frá lánadeild Húsnæðismálastofnunar til vcðdeildar Landsbankans samtals að upphæð 303 millj. kr. Á sama tima hafði veðdeildin greitt út 4.714 lán. Hér er um að ræða sérstök viðhótarlán sem ríkis- stjórnin beitti sér fyrir að veitt yrðu til að létta vanda húsbyggjenda og hús- kaupenda á árunum 1981-83, með því að hækka afgreidd lán um 50%. Þessar upplýsingar komu tram í svari Alexanders Stefánssonar félagsmálaráð- herra um fjármögnun húsnæðismála. Skipting lánanna er þannig að 2.634 fengu F-lán að upphæð samtals 210.618 þús. kr., 2.031 fengu G-lán að upphæð 79.433 þús. kr.,190fengu lán til viðbygg- inga eða viðgerða að upphæð 11.68C þús. kr. Sérþarfalán voru 10 talsins að upphæð 393 þús. kr og 19 orkusparnað- arlán að upphæð 769 þús. kr. NOT A LOVE STORY sýnd aftur ■ Ákveðið hefur verið að endursýna kanadísku heimildarmyndina NOT A LOVE STORY - kvikmynd um klám í Norræna húsinu miðvikudaginn 21. mars kl. 18:00. Myndin varsýnd sl. sunnudag á vegum kvikmyndaklúbbsins Norður- Ijóss og urðu þá margir frá að hverfa vegna mikillar aðsóknar. Aðgöngumiðar verða seldir við inn- ganginn. Myndin er stranglega bönnuð börnum. ÁDJ SHÍ MÓTMÆLIR SKÝRSLUNNIUM LÁNASIÓÐINN ■ Stúdentaráð Háskóla íslands hefur sent frá sér mótmæli vegna úttektar sem menntamálaráðherra hcfur látið vinna um Lánasjóð íslenskra námsmanna. Þá segir í ályktun ráðsins að það muni láta vinna fræðilega úttekt á þessari skýrslu ráðherra og senda hana til réttra aðila innan skamms. Stúdentaráð telur óeðlilegt að úttekt sem þessi skuli unnin án samráðs við Lánasjóðinn og námsmannasamtökin. Þá harmar ráðið að skýrslan skuli unnin á „jafn hlutdrægan hátt eins og raun ber vitni“ eins og segir orðrétt í ályktun ráðsins. Stúdentaráð mótmælir þeim hugmyndum að námslán verði með sömu kjörum og fjárfestingalán, afnámi víxil- lána, skerðingu á félagslegri aðstoð og kröfum um aukin námsafköst. Þá hafnar ráðið þeim hugmyndum að eftirspurn eftir lánum skuli byggjast á mati náms- manns á peningalegu gildi síns náms. Stjórnarfrumvarp: BARNABÆTUR OG TEKIUTRYGGING HÆKKA VERULEGA ■ Stjórnarfrumvarp um hækkanir á ýmsum liðum almannatrygginga hefur ver- ið lagt fram á Alþingi. Er „Helmingur mánaöarlaun- anna fer í orkukostnað" ■ „Húshitunarkostnaður og annar orkukostnaður almennings er orðinn svo stór hluti af tekjum fólks, að nær ekkert stendur útaf til annarrar fram- færslu. Láta mun nærri að tvenn viku- laun verkamanns fyrir dagvinnu fari í þennan eina þátt heimilishaldsins", segir í ályktun kjaramálaráðstefnu Alþýðu- sambands Vestfjarða sem haldin var á Isafirði 26. febrúar. Þá skorar Alþýöu- sambandið á stjórnvöld að skila nú þegar öllu því verðjölnunargjaldi sem lagt er á orkusölu og ætlað var til jöfnunar á orkukostnaö landsmanna. Fundur haldinn 4. mars í Verkalýðs og sjómannafélagi Bolungarvíkur mót- mælir harðlega þeim háa orkukostnaði sem lagður er á Vestfirðinga og skorar á stjórnvöld að standa við gefin fyrirheit um stórlega lækkun. Verði það ekki gert nú þegar.segir í ályktuninni.skoðast það sem bein ögrun við launafólk á svæðinu. Þá er skorað á alla Vestfirðinga að skera upp herör til framgangs þessu réttlætis- máli. frumvarpið samið í fram- haldi af yfirlýsingu ríkis- stjórnarinnar um að hún beiti sér fyrir úrbótum til handa þeim sem verst eru settir til að liöka fyrir nýgerð- um kjarasamningum. Helstu hækkanir samkvæmt frum- varpinu eru aðóendurkræfurbarnalíf- eyrir verður hækkaður úr 1.615 kr..á mánuði í 2.015 kr. og verður barnalíf- eyrir nú 24.180 kr. á ári. Gert er njið fyrir að meðlagsgreiðslur fyigi þessum greiðslum. Árleg mæðralaun verða nú 15.156 kr. á ári með einu barni. Með tveimur börnum 39.708 kr. og með þremur börnurn cða fleiri 70.428 kr. Tekjutryggingin hækkarum22.5%. Elli-og örorkulífeyrisþegar sem ekki ná 29 þús. kr. tekjum á ári fyrir utan lífeyri almannatrygginga á greidda. uppbót á lífeyri 56.736 á ári. Hækkar tékjutryggingin úr 3.861 kr. á mánuði í 4.728 kr. á mánuði. Grunnlífeyrir hækkar um 7% þannig að heildar- hækkun grunnlífeyris og tekjutrygg- ingar verður 15.5%. Hjónalífeyrir verður hlutfallslega óbreyttur en heimilisuppbót hækkar um 10% verður 1.422 á mánuði. Arlegur kostnaður vegna þessara hækkana verður 343 millj. kr.,en í ár er talið að kostnaðaraukinn verði á milli 280 og 290 millj. kr. -OÓ ■ „Við höfum tekið eftir því að mikil aukning hefur orðið í viðkomufarþegum til landsins, sérstaklega frá Bandarikjun- um, og til að auka enn meira áhugann á þessu, ákváðum við að prenta bækling í 200.000 eintökum til að kynna þcnnan möguleika betur og láta hann liggja frammi sem víðast,“ sagði Hans Indriða- son hjá Flugleiðum um nýjan kynningar- bækiing sem Flugleiðir eru að láta prenta í prentsmiöjunni Odda. Hans sagði að bæklingurinn væri í léttum dúr: Lundi er látinn tala til farþegans sem les og segir honum frá mcrkisstöðum og atburðum. Að lokurn þakkar lundinn fyrir sig og kvittar fyrir með klófari. „Þetta verður til þess að beina hingað túristum sem ekki eru tilbúnir til að cyða öllu sumarfríinu hér og vekja athygli þeirra að þeim möguleika að eyða hér nokkrum dögum á leið þeirra heim, t.d. ferðamönnum frá Ameríku á leið frá Evrópu," sagði Hans. Eins og áður sagði er bæklingurinn prentaður í Odda og hannaður af Gunn- ari Gunnarssyni. Hann er prentaður á fjórum tungumálum. -GSH ■ Fyrstu síður kynningabæklingsins runnu í gegnum prentvélarnar í Odda í gær. Frá vinstri eru Gunnar Gunnarsson hönnuður, Þorgeir Baldursson hjá Odda, Símon Pálsson og Hans Indriðason. Tímamynd Róbert. Nýr kynningarbæklingur Flugleiöa: PRENTAÐUR f 200 ÞtiS- UND EINTÖKUM f ODDA

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.