Tíminn - 21.03.1984, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 1984
6
T spegli tímans
Sophie von Habsburg þykir fögur kona og hinn besti kvenkostur ■ Philippe Junot getur ekki boðið unnustu sinni kirkjulegt brúðkaup
Philippe Junot lítur ekki
við öðrum en prinsessum
— nú hef ur hann eina þýska í takinu
■ Zita, fyrrum keisaraynja í Austurríki, fékk áheyrn hjá páfa. Bað
hún hann þá að hlutast til um að hjónaband Philippe Junots og
Karólínu Mónakóprinsessu yrði ógilt?
■ Hið stutta og misheppnaða
hjónaband Karólínu Mónakó-
prinsessu og franska glaumgos-
ans Philippe Junot hefur svo
sannarlega dregið dilk á eftirsér,
sein ekki er séð fyrir endann á.
Páfinn þijóskast enn við að ógfida
hjónabandið og þegar að því
kom, að Karólínu þótti óumflýj-
anlegt að giftast á ný, varð hún
að láta sér nægja borgaralega
vígsiu. Nú benda allar líkur til,
að Philippe verði að láta sér
nægja slíkt hið sama.
Philippe Junot hefur nú um
langt skeið átt vingott við unga
stúlku af þýska háaðlinum, Sop-
hie von Habsburg. Hún er kaþó-
likki, eins og Philippe og Karól-
ína, og því skiptir hana miklu
máli, hvaða afgreiðslu hjónavíg-
sla Karólínu og Philippes fær
hjá páfa. Sophie hefur alla tíð
dreymt um að ganga upp að
altarinu sem hvít brúður, þegar
sá tími rynni upp, að hún ætti
leið þangað. En nú er sem sagt
talsvert stórt Ijón í veginum.
En Sophie á sér góðan
bandamann þar sem Zita, fyrrum
keisaraynja í Austurríki er. Hún
er í fjölskyldu við Sophie og
kaþólsk eins og hún. Fyrir1
skemmstu gekk hún á fund páfa
í fylgd með sonum sínum, Otto,
Rudolph og Karli von Habsburg,
og átti með honum góða stund í
einrúmi. Agiskun góðra manna er
sú, að hún hafi farið að honum
bónarveg vegna Sophie, sem
henni er mjög annt um. Um
málalyktir hefur þó ekkert frést
Sophie von Habsburg vinnur
sem innanhússarkitekt í Madrid,
en hefur nú brugðið sér í frí til
Tcxas ásamt sínum heittelskaða
Philippe Junot. í farangri sínum
hefur hann vandlega innpakkaða
gjöf, sem hann vonast til að geti
orðið brúðkaupsgjöf tif hennar.
Er það forláta málverk af Sop-
hie, sem hún hefur enn ekki
augum litið sjálf.
■ Sophie sat sjálf fyrir hjá
málaranum Luis Pin to-Coelho,
en hefur ekki fengið að sjá
málverkið í endanlegri mynd.
viðtal dagsins j
„Munum sprengja af
okkur f jötra órétt-
lætis og ómennsku”
— rætt við Áshildi Jónsdóttur, um vorhátið
Samhygðar á Borginni í kvöld
■ „f>að verður dúndurstuð
og baráttuandi“, segir Ás-
hildur Jónsdóttir um sam-
komu þeirra Samhygðar-
manna á Borginni í kvöld.
„Þetta er vorhátíð, en á
þessu vori munum við
sprengja af okkur fjötra
óréttlætisins og ómennsk-
unnar.
Með samkomu sem þess-
ari viljum við benda á hvað
er að í samfélagi okkar í
dag, benda á okkar leiðir til
lausnar og berjast fyrir því
að þær nái fram að ganga.
Það hefur verið dimmt yfir
mannheimum og samskipti
manna gerast æ ópersónu-
legri og fjarlægari sjálfum
okkur. Við erum ekki við
sjálf heldur það sem við
gerum. Kennari, læknir, af-
greiðslumaður og svo fram-
vegis. Þannig felum við okk-
ur sjálf bakvið einhver
stöðuheiti, samskipti okkar
við annað fólk verða köld,
ópersónuleg og við erum
hrædd. Þessi tegund sam-
skipta skapar meðal okkar
stöðuga streytu og álag“.
Ashildur Jónsdóttir
Tímamynd Árni Sæberg