Tíminn - 21.03.1984, Blaðsíða 4

Tíminn - 21.03.1984, Blaðsíða 4
MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 1984 /0!l\ Lestunar- áætlun 1 Skip Sambandsins munu I fermatil Islandsá næstunni sem hér segir: Hull/Goole: Jan . .. 2/4 Jan . . . 16/4 Jan . . . 30/4 Rotterdam: Jan . .. 3/4 Jan ... 17/4 Jan ... 1/5 Antwerpen: Jan .. . 4/4 Jan ... 17/4 Jan . . . 2/5 Hamborg: Jan . . . 23/3 Jan . . . 6/4 Jan . . . 19/4 Jan . . . 4/5 Helsinki/Turku: Mælifell . . 22/3 Hvassafell . . 31/3 Hvassafell . . 26/4 Larvik: Francop . . 26/3 Francop . . 9/4 Francop ■ ■ 23/4 Francop . . 7/5 . Gautaborg: Francop . . 27/3 Francop . . 10/4 Francop . . 24/4 Francop . . 8/5 Kaupmannahöfn: Francop . . 28/3 Francop . . 11/4 Francop . . 25/4 Francop .. 9/5 Svendborg: Francop . . 29/3 Francop . . 12/4 Francop . . 26/4 Francop . . 10/5 Árhus: Francop .. 30/3 Francop .. 13/4 Francop . . 27/4 Francop . . 11/5 Falkenberg: Helgafell . . 11/4 Ship . . 25/4 Gloucester Mass.: Skaftafell . . 24/3 Jökulfell . . 13/4 Skaftafell . . 25/4 Halifax, Canada: Skaftafell . . 26/3 Skaftafell . . 26/4 SKIPADEILD SAMBANDSINS Sambandshúsinu Pósth. 180 121 Reykjavík | Sími 28200 Telex 2101 (^Notum ljós í auknum mæli ^ — í ryki, regni, ■ Fimmtugasta ársþing Félags íslenskra iðnrekenda fór fram í gxr. Hér setur Víglundur Þorsteinsson, formaður félagsins, þingið. Tímamyndir GE Arsþing Félags íslenskra iðnrekenda: „IÐNi IÐUR [ J iL Dl Rl El J in STÆI RRI1 m U1 r í HEI ILD- ARÚ1 FLU1 'Nl N Gl 1 OKI IAR” — sagði Víglundur Þorsteinsson í setningarræðu sinni ■ „Útflutningsverðmæti iðnaðarvöru var samtals 5,5 milljarðar króna eða um 30% af heildarútflutningi okkar. Það er hæsta hlutfall iðnaðarvöruútflutnings frá upphafi. Sambærilegt hlutfall fyrir árið 1982 var 23%. Það ár telst mér til að iðnaðarvöruút- flutningurinn hafi numið 151 milljón dollara en hann varð 220 milljónir dollara í fyrra," sagði Víglundur Þorsteinsson, formaður Félag íslenskra iðnrckenda, meðal annars í setningarræðu á ársþingi félagsins á Hótel Loftlciðum í gær. Hann sagði að á heildina litið hefði árið 1983 verið iðnaðinum fremur hag- stætt þrátt fyrir að bætt afkoma og vöxtur hefði ekki átt sér stað í öllum iðngreinum. „Góður vöxtur var í útflutn- ingsframleiðslunni á árinu. Talið er að hún hafi aukist um 5%. Þessi vöxtur kemur fram í öllum þáttum útflutnings- framleiðslunnar, nema hvað að sam- dráttur varð hjá skinnaiðnaði og einnig varð verulegur samdráttur í framleiðslu á prjónabandi og lopa til útflutnings, þannig að þrátt fyrir aukna framleiðslu á tilbúnum fatnaði stóð ullarvöruútflutn- ingurinn í heild sinni í stað," sagði Víglundur. Hann sagði, að framleiðsla áls og kísiljárns hefði vaxið verulega á árinu og einnig hafi orðið umtalsverð aukning í niðursuðu- og niðurlagningariðnaði. Víglundur nefndi, að mikill vöxtur hefði orðið í útflutningi á ýmiss konar iðnaðarvöru sem verið hefði á nokkru tilraunarstigi undanfarin ár. Til dæmis iðnaðarvörum fyrir sjávarútveg, svo sem umbúðir, veiðarfæri, vélar og plast- vörur. Þá sagði hann að útflutningur málningar, þangmjöls og viku'rs hefði aukist verulega. Þegar litið væri á hinar hefðbundnu heimamarkaðsgreinar, sagði Víglundur, að skipst hefðu á skin og skúrir. Góður vöxtur hefði verið í ýmsum greinum, óbreytt framleiðsla í öðrum og loks samdráttur í einstaka. -Sjó. ■ Víglundur Þorsteinsson ■ Sverrir Hermannsson „Geri ráð fyrir samning- um um 50% stækkun" — sagði Sverrir Hermannsson á ársþingi Félags iðnrekenda í gær ■ „Ég geri ráð fyrir að samningar stækkun álversins í Straumsvík, muni fljótlega takast um 50% sem tæki til starfa 1988,“ sagði Fundur um stöðu öldungadeilda — í MH í kvöld ■ 1 kvöld heldur Öldungaráð MH opinn fund um stöðu öldungadeilda innan skólakerfisins og hvernig þær munu tengjast lögum um framhaldsskóla og fullorðinsfræðslu. Fundurinn, sem er öllum opinn verður í samkomusal Menntaskólans við Hamrahlíð og hefst klukkan hálf níu. Meðal gesta fundarins verða menntamálaráðherra, hásköla- rektor og rektor MH. 1 fréttatilkynningu um málið segir að á síðastliðnum 10 árum hafi komið fyrir Alþingi fjögur frumvörp til laga um follorðinsfræðslu og sex um framhalds- skólakerfið í heild, en ekkert þeirra hlotið afgreiðslu. Nemendur í öldunga- deildinni og aðrir sem láta sig fullorðins- fræðslu varða eru hvattir til að mæta. Sverrir Hermannsson, idnaðarráð- herra, meðal annars í ræðu sinni á ársþingi Félags íslenskra iðnrek- enda á Hótel Loftleiðum í gær. „Þetta segi ég að sjálfsögðu með fyrirvara um orkuverð, en menn eru teknir að tæpa á tölum sem stefna í álitlega niðurstöðu í þeim efnum,“ sagði ráðherrann. Hann sagði, að ef samningar um stækkun álversins tækjust fyrir eða um mitt þetta ár, væri líklegt að nauðsynlegt reyndist að auka framkvæmdahraða við Blönduvirkjun. Þá nefndi Sverrir, að Stóriðjunefnd starfaði stöðugt að athugun á byggingu álvers við Eyjafjörð. Viðbrögð erlendra aðila í því sambandi væru mun betri en búast hcfði mátt við, þótt samningar um slík mál yrðu ekki hristir fram úr erm- inni. Hann sagði að í þessu sambandi væri mest talað um 175 þúsund tonng álbræðslu. _ Samtök sykursjúkra: Umræðu- og f ræðslu- fundurá laugardag ■ Næstkomandi laugardag gangast- Samtök sykursjúkra í Reykjavík fyrir fræðslu-og umræðufundi um sykursýki og daglega meðferð hennar. Fundur- inn sem hefst klukkan 14:30 er haldinn í fundarsal Sambands íslenskra sam- linnuvélaga og er öllum opinn. Sér- fræðingar í málefnum sykursjúkra, læknir, næringarráðgjafi og hjúkrun- arfræðingur taka þátt í ráðstefnu þess- ari og sitja fyrir svörum að umræðum loknunt. Þá er fyrsta tölublað J^fnvægis 1984,' málgagns samtakanna, komið út. í því eru fræðslu-og upplýsingagreinar af ýmsu tagi. Ritstjóri blaðsinserGuðrún Þóra Hjaltadóttity næringarráðgjafi. íjamtök sykursjúkfa hafa nýlega opnað skrifstofu að Gnoðarvogi 88 og er hún opin á mánudögum frá klukkan 17-19. Síminn er 687530.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.