Tíminn - 21.03.1984, Page 8

Tíminn - 21.03.1984, Page 8
8 Útgefandi: Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Gfsli Sigurisson. Auglýsingastjóri: Steingrimur Gíslason. Skrifstofustjóri: Ragnar Snorri Magnússon. Afgreiðslustjóri: Sigurður Brynjólfsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson, Elias Snæland Jónsson. Ritstjórnarfulltrúi: Oddur V. Ólafsson. Fréttastjórl: Kristinn Hallgrlmsson. Umsjónarmaður Helgar-Timans: Atli Magnússon. Blaðamenn: Agnes Bragadóttir, Bjarghildur Stefánsdóttir, Baldur Kristjánsson, Friðrik Indriðason, Guðmundur Sv Hermannsson, Heiður Helgadóttir, Jón Guðni Kristjánsson, Jón Ólafsson, Kristin Leifsdóttir, Samúel Örn Erlingsson (iþróttir), Skafti Jónsson. Útlitsteiknun: Gunnar Traustl Guðbjörnssson. Ljósmyndir: Guðjón Einarsson, Guðjón Róbert Ágústsson, Árni Sæberg. Myndasafn: Eygló Stefánsdóttir. Prófarkir: Kristin Þorbjarnardóttir, Flosl Krlstjánsson, Guðný Jónsdóttir Ritstjórn skrifstofur og auglýsingar: Sfðumúla f 5, Reykjavfk. Sími: 86300. Auglýsingasimi 18300. Kvöldsímar: 86387 og 86306. ' Verð i lausasölu 20.00, en 22.00 um helgar. Áskrift á mánuði kr. 250.00. Setning og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Blaðaprent hf. Sjóorustan við ísland ■ Fyrir fáum dögum var í heræfingum sett á svið mesta sjóorusta, sem háð hefur verið til þessa dags. Til þess að taka þátt í henni stefndi mikill floti hvers konar herskipa, kafbáta og flugvéla frá mörgum löndum eða frá Bandaríkjunum, Bretlandi, Vestur-Fýzkalandi og fleiri þátttökuríkjum Nató. Frá Miðjarðarhafinu kom stærsta flugvélamóðurskip Banda- ríkjanna, sem hafði annazt gæzlu við strendur Libanons. Fyrir íslendinga hlýtur það að verða eftirminnilegt að þessi mikla sjóorusta var háð í nánd við ísland eða á hafsvæðinu milli íslands og Skotlands. Eins og áður hefur verið sagt frá hér í blaðinu, hafa staðið yfir undanfarnar vikur á vegum Atlants hafsbandalagsins mestu hernaðaræfingar á sjó, sem farið hafa fram hingað til. Tilgangur æfinganna var að sýna að hægt væri að senda liðsafla frá Bandaríkjunum og Kanada til Noregs, ef rússnesk árás virtist í undirbúningi eða hefði verið gerð á Norður- Noreg. Að sjálfsögðu var reiknað með því að Sovétríkin myndu reyna að hindra þessa liðsflutninga og þótti líklegt að floti þeirra og flugher myndi veita aðalmótspyrnuna á hafsvæðinu milli íslands og Skotlands. Rússneski flotinn hefði safnað þar saman miklum fjölda svokallaðra árásarkafbáta, sem hafa það meginhlutverk að granda kafbátum og öðrum skipum andstæðinganna og gera árásir á nálæg landsvæði, sem andstæðingar ráða yfir. Kafbátar þessir eru yfirleitt ekki búnir stórum eldflaugum, en þeir eru eigi að síður margir hverj ir búnir kj arnasprengj um, sem skj óta má á nálæg mörk. Fregnir hafa ekki borizt af því, hvernig til tókst með hina miklu sjóorustu, sem heyja átti í æfingaskyni milli íslands og Skotlands. Það skiptir heldur ekki höfuðmáli, heldur hitt, að herfræðingar reikna bersýnilega með því, að hafsvæðið milli íslands og Skotlands verði eitt mesta átakasvæðið, ef til styrjaldar kemur milli risaveldanna. Þetta er vissulega vísbending um, að margvíslegur vígbún- aður og undirbúningur hans fer nú fram á hafsvæðum við ísland. Margt annað bendir líka til þess, að umræddur undirbúningur muni aukast, ef svo heldur áfram sem nú horfir. Ekkert öruggt ráð er til að afstýra þessu, nema hafizt verði hánda um að ná samkomulagi, sem dregur úr vígbúnaði, og helzt að hætta honum með öllu. Slíkt næst áreiðanlega ekki fram, nema á lengri tíma, og tvímælalaust ekki, nema strax sé hafizt handa um að beina þróuninni í þessa átt. íslenzkir utanríkisráðherrar, eins og Einar Agústsson, Benedikt Gröndal, Ólafur Jóhannesson og Geir Hallgríms- son hafa á þingum Sameinuðu þjóðanna og víðar vakið athygli á þeim áhyggjum, sem íslendingar hafa af þessari þróun. Þetta er góðra gjalda vert, en gallinn er sá, að þetta vill týnast í þeim miklu ræðuhöldum, sem einkenna slíka fundi. Til þess að vekja athygli og koma af stað umræðum um vígbúnaðinn í Norður-Atlantshafi, þarf meira til. Vegna þess hafa Framsóknarmenn nú flutt í annað sinn á Alþingi tillögu um að íslensk stjórnvöld beiti sér fyrir því, að haldin verði hér á landi alþjóðleg ráðstefna um kjarnorkuvígbúnað á Atlantshafi. Þar verði sjónarmið íslendinga kynnt og hvatt til undirbúnings um að draga úr þessum vígbúnaði og þeim hættum, sem fylgja honum. Ótvírætt myndi slík ráðstefna vekja athygli og stuðla að auknum umræðum og samningaviðleitni um þessi mál. Hér geta íslendingar haft frumkvæði, líkt og í landhelgismálum, sem þeir eiga ekki að láta sér úr greipum ganga. Þ.Þ. WÉ.'yjt*. MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 1984 skrifað og skrafað DJOÐVIlllNN Aðalatml ÞJóóviljana a» 81313 kl. 9 - 20 manudag lil loatudaga. Uun pass i«na er A&alsími Kvöldsími Helgarsími 81382. 81482 og 81527. umtxol 81285. l|6smvn<J« 81257 Lauga-aaga «1 9 12 e- haogl að na i algreiðslu Olaðsms i sima 81663 Pienismiðian Prenl helur sima 81348 og eru Olaðamenn þar a vakt 011 kvold 81333 81348 81663 Urgur í verkafólki í Vestmannaeyjum: Eins og ASI og VSI hafi svarist í fóstbræðralag segir formaður Verkalýðsfélags Vestmannaeyja „VwtaMk héf I Eyjum m þokka- t*0k étmtfl m*6 þonnwi umnlng •nda var hann aamþyfcklur maö M atkvw&utn gagn • A tundl aam vtA hAtdum A aumtudag. Hlna ar M4k aM inntt an Anmgl nwi þaö •uöviuð þýöir *ð •tvmnurckendur hafnut vcmk|a á bónuilólkinu", u(ði Jón cnnlrcmur. Eyjun n IQaAanaaon tor- VarfcatyöalAJaga imninfi vcrkalýðt(éla(tnna I er |ert ráð (yrir 5% launahakk- —t lckur (ikJt 21 (cbrúar il. eða þc|ar ASl-VSl sammnfunnn var undirntaður SAmu á(an(ahxkkamr koma tiðar Nýmali i Eyjaumnin(num er huu veftr að un(lin(ataatinn cr al- (jórlcfa tekinnút.þ.e. vcrka(ólk tckur vciu okkur ituð«un( en hvað a( þeim tiUóyum varð veit é( ckki. Að minnsta kotu bánut þcr ckkt þeim scm á þurftu að halda Það virðist þv( scm ASl o| VSl bafi svarisl f (ósibrcðralaj ur fulllaunfrá lóára Þá hckkar dajvmn ukaup um 1.65 kr á llmann vc(na hlut- dcúdar fynrtakjanna ( fainaði o( þeir „Eins 0( <( U(ði áðan er ur(ur hér ( _________________________„______ scm ha(a unnið 15 ár cða lcnjur hjá (ólki ve(na þess hvc Alþýðusambandið berja á þeim sem ekki makka rétt, enda sama atvinnurckanda (á 2ja launa- o( Vcrkamannasambandtð létu sér (ált bótt lafaákvcði kveði á ui nokka hckkun Ja(n(ildir það rúmle(a um finnast að hér vcn (ólk í baráttu .a..-----a r ------- 4% kauphckkun Okkur er kunnuft um að á (undum „Hins ve(ar náðum við ekki (ram þcsura umtaka í siðustu viku duttu krófu okkar um að bónus yrði (rciddur þcir Guði á 12.660 króna láfmarkslaunin * ‘ Guðmundur J. Guðmundsson o inprátturinn si í höndum eirutakra (á- la(a“. U(ði Jón Kjattansson (ormaður Verkalýðs«la(s Vestmannaeyja að sið- . Fóstbræðralag ■ Margir eru þeir andskot- ar sem allaballar þurfa við að kljást og eru þeim ekki vand- aðar kveðjurnar á góðum stundum. Meðal þeirra óþokka, sem þjóðfrelsisfylk- ingin á í stöðugum útistöðum við og heilögu stéttastríði, er Vinnuveitendasamband íslands. VSÍ situr yfir hlut verkalýðs og sannra sósíalista og er persónugervingur auð- hyggjunnar og sérgæða. Allaballarnir og málgagn þeirra hafa gegnum tíðina varið mikilli orku og rými til að fletta ofan af vélabrögðum samtaka atvinnurekenda og öllu þeirra æði. Fer vart á milli mála að Vinnuveitenda- samband íslands er stéttar- óvinur númer eitt og er það meðhöndlað samkvæmt því. Hins vegar eru alþýðu- samtökin af hinu góða og berjast hinni réttlátu baráttu gegn hinni gráðugu krumlu auðvaldsins, og reyna eftir mætti að halda sínum hlut. Forystumenn almúgans eru hvattir til dáða og fjallað er um þá í málgagninu eins og heilaga menn þegar svo ber undir. En nú er hlaupin snurða á þráðinn og Málgagnið er orð- ið svo ruglað að það er hætt að þekkja skil góðs og ills, og stendur nú frammi fyrir þeim þurs sem það hefur löngum kljáðst við og er hann nú orðinn tvíhöfða. „Eins og ASÍ og VSÍ hafi svarist í fóstbræðralag", er prentað yfir baksíðuna þvera, en Ólafi Jóhannessyni er helguð forsíðan og getið þar að góðu einu, eins og vera ber. Sá, sem borinn er fyrir þeim válegu tíðindum, að svardagar hafi verið hafðir uppi af bræðralaginu nýja, er Jón Kjartansson, formaður Verkalýðsfélags Vestmanna- eyja, og er tilefnið að þar hafa kjarasamningar verið samþykktir og kveður Jón verkafólk sæmilega ánægt með þá útkomu. En Jón gladdi Málgagnið með því að hnýta í valinkunna allaballa, sem hafa það sér til saka unnið að hafa gerst taglhnýt- ingar atvinnurekendaklík- unnar og stjórna þeir báðir miklum samtökum. Haft er eftir Jóni Kjartans- syni: „Eins og ég sagði áðan er urgur hér í fólki vegna þess hve Alþýðusambandið og Verkamannasambandið létu sér fátt um finnast að hér væri fólk í baráttu. Okkur er kunnugt um að á fundum þessara samtaka í síðustu viku fluttu þeir Guðmundur J. Guðmundsson og Ás- mundur Stefánsson tillögur um að veita okkur stuðning, en hvað af þeim tillögum varð veit égekki. Að minnsta kosti bárust þær ekki þeim sem á þurftu að halda. Það virðist því sem ASÍ og VSÍ hafi svarist í fóstbræðralag um að berja á þeim sem ekki makka rétt, enda þótt laga- ákvæði kveði á um að samn- ingsrétturinn sé í höndum einstakra félaga.“ Ný bræðrabönd Hér er talað tæpitungu- laust um hverjir svikarararnir eru og að þeir séu komnir í bland við tröllin í Vinnu- veitendasambandinu til að „berja á þeim sem ekki makka rétt“. Von er að þessi boðskapur sé að minnsta kosti fimm dálka virði. Annað er ekki að sjá en að Málgagnið hafi snúið baki 1 við fyrri félögum sínum, for- ystumönnum Alþýðusam- bandsins og Verkamanna- sambandsins, og skipað þeim til sætis meðal svörnustu fjandmanna. En verkalýðshreyfingin stendur traustari fótum en svo að hún kikni þótt félagar í Æðsta ráði Alþýðubanda- lagsins og Málgangið snúist gegn henni. Það er henni aftur á móti styrkur að losna við þá pólitísku loddara, sem alltof lengi hafa beitt henni fyrir sig - sjálfum sér til stjórnmálalegs ávinnings. Auðvitað hefur verkalýðs- hreyfingin ekki gengið til neins konar fóstbræðralags við atvinnurekendur, en það verður henni enginn skaði þótt hún losni úr heljargreip- um þess pólitíska átrúnaðar sem öllu ræður í Alþýðu- bandalaginu. En Málgagnið hangir enn í nokkrum hálmstráum óá- nægðra sérþarfahópa. „Greiðið atkvæði á móti“ er boðskapur símamanna til fé- laga sinna í BSRB. Og Gísli Baldvinsson formaður Kenn- arafélags Reykjavíkur brýnir sína félagsmenn í Málgagn- inu:“ Vil kolfella samning- ana, og Margrét Pála Ólafs- dóttir fóstra tilkynnir starfs- félögum sínum. „Höfum ekki efni á þessum samningum“. Eitthvað er þá eftir af rödd- um fólksins, þótt forseti og formaður stærstu verkalýðs- samtakanna séu komnir í hundana. Og andstæðingum kvóta- kerfisins er veifað sem bar- áttumönnum réttlætisins og þar getur að Iíta merkilegt fóstbræðralag, þar sem Jón Sólnes og Skúli Alexand- ersson og Steingrímur Sigfús- son allaballaþingmenn tengj- ast bræðraböndum til varð- veislu lögmála frumskógar- ins. Skrýtið málgagn Þjóðvilj- inn. -OÓ Kísilmálmverksmiðja á Reyðarfirði?: Óþolandi að bíða í óvissu — segir bæjarstjóm Eskif jarðar ■ Bæjarstjóm Eskifjarðar samþykkti °8 Alþingi að taka án tafar af skarið nýlega áskorun á iðnaðarráðherra um byggtnu Kistlmalmverksmtðju við Vörumerkja- og einkaleyfatíðindi - nýtt blað á vegum iðnaðarráðuneytisins ■ Á vegum iðnaðarráðuneytisins er hafin útgáfa á sérstöku blaði þar sem birtast munu allar lögboðnar auglýsingar er'varða vörumerki og einkaleyfi. Um leið verður hætt að birta þetta efni í Lögbirtingablaði og B-deild Stjórnartíð- inda. Blaðið nefnist Vörumerkja- og einkaleyfatíðindi og mun að jafnaði koma út mánaðarlega. Gunnar Guttormsson deildarstjóri annast yfirumsjón með vörumerkja-og einkaleyfamálum af hálfu iðnaðarráðu- neytisins en ritstjóri blaðsins er Eygló Halldórsdóttir lögfræðingur. Afgreiðsla blaðsins verður á Laugavegi 116. Til að kynna blaðið hefur fyrsta eintak þess verið sent öllum áskrifendum Lög- birtingarblaðs. Þeir sem óska að gerast áskrifendur þurfa að tilkynna það bréf- lega til afgreiðslunnar eða í síma 25000. Áskriftargjald fyrir árið 1984 er kr. 450,- en verð hvers eintaks í lausasölu er kr. 50.-. -GSH Reyðarfjörð. Bent er á að óvissa í þessu máli sé óþolandi fyrir sveitarfé- lögin við Reyðarfjörð og því brýnt að ákvörðun verði tekin sem allra fyrst. Bæjarstjórn sendi áskorun þessa til deildaforseta Alþingis, iðnaðarráð- herra og þingmanna Austurlandskjör- dæmis. Á sama bæjarstjórnarfundi voru samþykkt mótmæli gegn þeirri ákvörðun samgönguráðherra að endurveita ekki Benna og Svenna h.f. sérleyfið á leiðinni Egilsstaðir- Nes- kaupstaður, sem fyrirtækið hafi haft um árabil og rekið óaðfinnanlega. Minnir bæjarstjórn á einróma sam- þykkt sína um þetta mál. Bæjarstjórn segist hafa vænst annars af ráðherra og þingmönnum kjördæmisins en að þeir ynnu gegn framtaki einstaklinga á Eskifirði, en með þessari ákvörðun væri verið að skerðaeinhæft atvinnulíf á staðnum. -HEI

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.