Tíminn - 22.03.1984, Blaðsíða 2
FIMMTUDAGUR 22. MARS 1984
f réttir
Sinfóníuhljómsveit íslands
Kammertónleikar í
Gamla bíói í kvöld
■ Príöju kammertónleikar Sinfóníu-
hljómsveitar íslands á starfsárinu verða
í kvöld í Gamla bíói og hefjast kl. 20.30.
Á efnisskránni eru Serenaða fyrir blás-
ara eftir Mozart, Ljóð fyrir trompett og
blásara eftir Hartmann, Saman eftir
Þorkel Sigurbjörnsson og Svíta úr Tú-
skildingsóperunni eftir Kurt Weill.
Stjórnandi verður Páll P. Pálsson.
Einleikari á trompett verður Ásgeir
Hermann Steingrímsson. ÁsgeirerHús-
víkingur og hóf þar tónlistarnám sitt, en
lauk einleikaraprófi á trompett frá Tón-
listarskólanum í Reykjavík undir hand-
leiðslu Jóns Sigurðssonar. Síðan stund-
aði hann nám í New York og þar var
aðalkennari hans John Ware, fyrsti
trompettleikari New York
Fílharmóníunnar. Hann hefur áður
komið fram sem einleikari með íslensku
hljómsveitinni.
- JGK.
Norræn leiklistarhátíð í Osló í vor:
Skilnaður og
Lokaæfing sýnd
af íslands hálfu
■ Tvö íslensk leikrit verða sýnd á
Norrænni leiklistarhátíð sem fram fer í
Osló fýrstu vikuna í júní n.k., Skilnaður
eftir Kjartan Ragnarsson og Lokaæfing
■ Rangt var haft eftir Jóni Finnssyni,
formanni Verslunarmannafélags Borg-
arness, í Tímanum í gær, að félagið
hefði náð fram flokkatilfærslum, sem
færðu einstaka félagsmönnum kjarabæt-
ur. Hið rétta er að ákveðið var að skipa
nefnd á samningstímabilinu sem ætti að
fjalla um röðun í launaflokka og sitthvað
fleira.
eftir Svövu Jakobsdóttur. Hátíðin er
haldin og kostuð af Norrænu leiklistar-
nefndinni, en slík hátíð hefur ekki
verið haldin áður. Hvort hún verður að
föstum viðburði í framtíðinni ræðst
sennilega af fjárhag nefndarinnar, en
fullur áhugi er fyrir hendi að sögn
Stefáns Baldurssonar leikhússtjóra hjá
Leikfélagi Reykjavíkur.
Tvö verk frá hverju Norðurlandanna
verða sýnd á hátíðinni og í tengslum við
hana verða umræður með höfundum
verkanna og ráðstcfnur af ýmsu tagi fyrir
leikara, leikstjóra og höfunda. Skilnaður
verður sýndur á L.itla sviði norska Þjóð-
leikhússins, cn Lokaæfing í Norska
leikhúsinu, Dct norske teater. -JGK
Flytjendur dagskratinnar um Iomas, á myndina vatnar undirleikarann, Bjarna Jónatansson.
Tómasarkvöld í Þjódleikhúsinu
■ Æfingarstanda núyfir íÞjóðleikhús-
inu á dagskrá unt Tómas Guðmundsson
skáld, þar sem lesin verða ljóð skáldsins
og sungin lög við Ijóð hans, m.a. eftir
Sigfús Halldórsson og Gylfa Þ. Gíslason.
Flytjendur verða Anna Kristín Arn-
grímsdóttir, Arnar Jónsson, Edda Þór-
arinsdóttir, Guðrún Þ. Stephensen,
Helgi Skúlason, Róbert Arnfinnsson og
Herdís Þorvaldsdóttir sem hefur umsjón
með dagskránni. Undirleikari á píanó
verður Bjarni Jónatansson.
Frumsýning verður 1. apríl og fyrir
sýningar gefst gestum kostur á léttri
máltíð og veitingar verða bornar fram.
- JGK.
Ólafsfirðing-
ar eru uggandi
vegna kvótans
■ Atvinnumálanefnd Ólafsfjarðar
heldur almennan borgarafund um
atvinnumál bæjarins á föstudag
klukkan 5 síðdegis. Fundurinn er
haldinn að áskorun hpndrað sextíu
og þriggja Ólafsfirðinga sem skiluðu
bæjarstjórn undirskriftalista þessa
efnis fyrr í mánuðinum.
Ólafsfirðingar eru margir uggandi
um a^vinnuástand í bænum í kjölfar
kvótaskiptingarinnar. Fundur at-
vinnumálanefndar Ólafsfjarðar fyrir
skcmmstu lýsti þungum áhyggjum
sínum vegna kvótakerfisins og orð-
réít segir í fundargerð: „Bátaútgerð
er nær vonlaus og'hlýtur að leggjast
af ef aflamarki verður) ekki breytt.
Nefndin skorar því á yfirvöld að
endurskoða það aflamagn sem koma
á í hlut Norðlendinga. Benda má á
að-leyfa mætti aukna veiði á kola og
opna ný svæði til dragnótaveiða."'-'
-b
Málflutningur í Hæstarétti í manndrápsmálinu á Skeiðarársandi:
SAKSÓKNARI KREFST 17
ARA fangelsisvistar
■ Þórður Björnsson ríkissaksóknari krafðist þess við málflutning fyrir Hæstarctti í
gær að Grétar Sigurður Árnason yrði dæmdur í a.m.k. 17 ára fangelsi fyrir að hafa
orðið frönsku stúlkunni Yvette Bahuaud að bana á Skeiðarársandi í ágúst 1982, og
einnig fyrir að hafa veitt systur Yvette, Marie Luce, stórfellda líkamsáverka og skilið
hana síðan eftir ósjálfbjarga. Grétar Sigurður var dæmdur í 16 ára fangelsi í Sakadómi
Reykjavíkur fyrir tæpu ári. Skipaður verjandi Grétars Sigurðar, Jón Oddsson hrl.
krafðist vægustu refsingar sem lög heimila fyrir áðurnefnt athæfí en að ósk ákærða
setti ekki frani sýknukröfur.
I ýtarlegri ræðu rakti ríkissaksóknari
málsatvik, allt frá því að Grétar Sigurður
tók systurnar upp í bíl sinn nálægtHöfn
í Hornafirði, um kl. 17.00 16. ágúst
1982. Hann ók systrunum að sæluhúsi á
Skeiðarársandi kl. 20.00 að kvöldi 16.
ágúst, og kom síðan aftur að sæluhúsinu
sama kvöld kl. 23.00 þar sem hann lenti
í átökum við systurnar, eftir að hafa
krafist þess að þær kæmu með sér til
lögreglu vegna þess að hann taldi sig
finna hasslykt í húsinu. í átökunum
barði hann Marie Luce þrjú högg í
höfuðið með haglabyssuskepti þannig
þannig að hún höfuðkúpubrotnaði og
elti síðan Yvette út á bíl sínum og fann
hana á veginum, skammt frá sæluhúsinu.
Þar sagðist ákærði hafa skotið af hagla-
byssunni upp í loftið til að stöðva hana.
í sama mund bar að tjöruflutningabíl
sem stöðvaði við bíl ákærða. Ökumaður
hans sá Yvette alblóðuga á veginum
skríða frá bíl ákærða að tjöruflutninga-
bílnum. Hún náði taki á spegilfestingu
og hífði sig upp með hurðinni og sagði
að ákærði hefði reynt að drepa sig og bað
um hjálp. Ökumaðurinn ber að ákærði
hefði sagst hafa ekið á stúlkuna, hún
væri viti sínu fjær og geðveik, og bað
ökumanninn að fara að Skaftafelli til að
ná í hjálp.
Ökumaðurinn trúði ákærða þar sem
bíll hans var búinn merkingum frá
vegaþjónustu FÍB, og hélt því áfram að
Skaftafelli. Á meðan kom ákærði Yvette
fyrir í farangursgeymslu bíls síns, og
hefur borið að hún var þá enn á lífi.
Ákærði ók síðan af stað en við Skeiðar-
árbrú stöðvaði hann bílinn til að huga að
Yvette og þá var hún látin. Ákærði ók
þá að malarnámu við Hafrafell og skildi
bílinn þar eftir en faldi sig sjálfur upp í
hlíð, þar sem hann fannst einum og
hálfum sólarhring síðar.
Ríkissaksóknari lagði áherslu á að
Grétar Sigurður hefði gert sig sekan um
ásetningsverk þegar hann varó Yvette
að bana. Samkvæmt krufningarskýrslu
fannst í líki hennar 51 hagl, sem miðað
við skotdreiíingu og drægni byssu
ákærða hefði verið skotið af 36,6-40
metra færi. Ákærði hefði því skotið á
Yvette á veginum en ekki upp í loftið
eins og hann bar.
Nokkuð misræmi er á milli framburða
Marie Luce og ákærða um atburðina í
sæluhúsinu en saksóknari sagði að ýmis
atriði í framburði ákærða gætu ekki
staðist miðað við rannsóknir sem gerðar
hafa verið. Þá lýsti saksóknari yfir furðu
sinni á að ákærði hefði stundað vega-
þjónustu fyrir FÍB þar sem hann missti
ökuleyfi sitt ævilangt með dómi bæði
árið 1973 og 1978. I bæði skiptin hefði
hann neitað sakargiftum, þrátt fyrir að í
seinna sinnið hefði hann velt bíl og verið
hirtur úr bílflakinu. Síðan hefði komið í
ljós við blóðrannsókn að áfengismagn í
blóði hans var 2,47%. Þetta segði sína
sögu um trúverðugleik framburðar
ákærða.
Ríkissaksóknari benti m.a. á að ef
slysaskot hefði orðið Yvette að bana
hefði ákærði brugðist öðruvísi við. Hann
hefði þá hrópað til ökumanns tjöruflutn-
ingabílsins og sagt honum að slys hefði
orðið. Ákærði hefði hinsvegar sagt hon-
um ósatt um bifreiðaslys og þegar hel-
særð stúlkan kallaði á hjálp sagði ákærði
að hún hefði vankast og væri geðveik.
Ríkissaksóknari taldi brot Grétars
Sigurðar varða við 21 Lgrein 2. m.gr. 218
grein,sbr. 1. mgr. 220 greinar almennra
hegningarlaga. Hann taldi brotið einnig
varða við 2. mgr. 77 greinar almennra
hegningarlaga um refsiþyngingu enda
væri brot ákærða meira en einfalt mann-
dráp sem oft hefur sætt 16 ára fangelsis-
refsingu.
Verjandi ákærða, Jón Oddsson hafði
nýhafið varnarræðu sína þegar hlé var
gert á málflutningi til kl. 10.00 í dag.
Hann benti m.a. á að framburður
ákærða um ráðningu hans til FIB hefði
verið réttur og benti það til trúverðug-
leika framburðar hans í heild. Einnig
benti hann á að ákærði hefði verið undir
miklu andlegu álagi á þessum tíma
vegna erfiðleika atvinnureksturs hans og
heimilisástæðna. -GSH
■ Ingólfur Jóhannsson í hlutverki
Dude Lester í Tobacco road.
Leikfélag Önguls-
stadahrepps
Sýnir
Tobacco
road á Sel-
tjarnarnesi
■ Leikfélag Öngulsstaðahrepps í Eyja-
firði sýnir Tobacco road eftir Erskine
Caldwell í Félagsheimilinu á Seltjarnar-
nesi annað kvöld kl. 21.00 og á sunnu-
daginn kl. 16.00. Þetta er í fyrsta sinn
sem félagið fer í leikferð suður fyrir fjöll,
en sýningar fyrir norðan eru orðnar á
annan tug og hafa dómar verið afar
jákvæðir.
Leikstjóri Tobacco road er Hjalti
Rögnvaldsson leikari, en leikarar og
starfsmenn sýningarinnar cru 17. Leik-
félag Öngulsstaðahrepps hefur að
undanförnu vakið athygli fyrir metnað-
arfullt verkefnaval og góðar sýningar,
nægir þar að minna á Hitabylgju eftir
Ted Willis, sem félagið sýndi í fyrra við
góðan orðstír. - JGK.
■ Halldór Vilhelmsson og Ólöf Kol brún Harðardóttir í uppfærslu íslensku
óperunnar á La traviata.
Islenska óperan
20. þúsundasti gestur
vetrarins annað kvöld
■ Annað -kvöld verður 25. sýning á
óperu Verdis, La Traviata hjá Islensku
óperunni og jafnframt býst íslenska
óperan við 20. þúsundasta gesti sínum á
vetrinum á þessari sýningu. Og verður
tekið á móti honum með viðeigandi
hætti. Þessi ópera Verdis eftir sögu
Dumas um Kamelíufrúna er annars ein
hin vinsælasta sem þessi mikli jöfur
óperunnar samdi og jafnframt ein
vinsælasta ópera allra tíma. Sýning Is-
lensku óperunnar hefur fengið einróma
lof gagnrýnenda og óperugesta. Leik-
stjóri er Briet Héðinsdóttir.
Rakarinn frá Sevilla verður svo á
dagskrá hjá óperunni á laugardagskvöld,
en vegna mikillar aðsóknar hefur samn-
ingur við Sigríði Ellu Magnúsdóttur,
sem syngur aðalkvenhlutverkið, verið
framlengdur fram á vor. Á sunnudag kl.
15.00 verður svo sýning á barnaóperunni
Nóaflóðinu eftir Benjamin Britten, sem
fengið hefur ágæta aðsókn.
- JGK.