Tíminn - 06.04.1984, Page 1
Dagskrá ríkisfjölmiðlanna næstu viku - sjá bls. 13
FJÖLBREYTTARA
OG BETTtA BLAÐ!
Föstudagur 6. apríl 1984
83. tölublað 68. árgangur
Sidumula 1S—Postholf 370Reykjavik -Rítstjorn86300- Augiysingar 18300- Atgreiðsla og askrift 86300 - Kvoldsimar 86387 og 86306
Ólga hjá undirmönnum á fiskiskipum vegna samninga við yfirmenn:
FA 18-20% HÆKKUN TIL VK>-
BÓTAR VIÐ ASf-SAMKOMULAG!
„Munum alls ekki sætta okkur við þetta”, segir formaður Sjómannasambandsins
■ Samningamál undirmanna á fískiskipum eru nú komin í algeran hnút eftir að samningar hafa verið gerðir
við yfirmenn sem túikaðir eru sem 18-20% hækkun kauptryggingar á ársgrundvelli til viðbótar við ASI/VSI
samkomulag, eða alls um 32-34% hækkun á ársgrundvclli. Samningur við yfirmenn kveður á um 6% frá 1.
apríl og síðan 2%, 3% og 3% áfangahækkanir eins og ASI/VSÍ samningarnir.
■ Jón Sigurðsson þjálfari og
ieikmaður KR-inga „tolleraður"
af félögum sínum eftir sigur KR i
gær. Jóni er flugið ekki leitt, enda
var hann og félagar hans vel að
sigrinum í gær komnir. Jón
blómstraði í leiknum í gær, sem og
lærísveinar hans.
Tímamynd Róbert.
KR BIKARMEISTAM
f KðRFUKNATTLEIK
— vann Val 94-79 í úrslitum í gær
- Sjá íþróttir bls. 10-11.
En jafnframt var samið um að
1. sept. og 1. jan. n.k. muni
hlutföll kauptryggingar yfir-
manna miðað við háseta - þ.e.
að skipstjóri og stýrimaður hafi
hálfa aðra kauptryggingu - leið-
rétt að fullu, en þau hlutföll
skekktust með launajöfnunar-
bótuni á árunum 1974-78. Petta
mun metið sem 8% viðbót í
hvorum áfanga auk þess sem
samið var um ýmis önnur atriði
sem Sjómannasambandið metur
sem allt að 4%.
„Þótt af okkar hálfu hafi verið
viðurkennt að staðan væri ekki
góð til stórra hluta töldum við að
sjálfsögðu að þarna hefði opnast
leið til að fá a.m.k. sambærilegar
hækkanir til þeirra sem verst eru
settir á skipunum, þ.e. háset-
anna, en þá virtust allar dyr vera
lokaðar fyrir því. í viðtölum við
formann LIÚ var því ítrekað
hafnað að nokkur geta væri af
þeirra hálfu til að bæta hásetun-
um það sem hinir hafa náð. Við
komum að lokuðum dyrum. Við
það munum við alls ekki sætta
okkur. Þó svo að staðan sé ekki
beysin fyrir sjómannastéttina að
ætla sér að fara að standa í
aðgerðum til að þrýsta fram
leiðréttingu á sínum kjörum
miðað við það sem aðrir hafa
fengið, þá munum við svara
fullum hálsi", sagði Óskar Vig-
fússon, form. Sjómannasam-
bandsins. Hann tók fram að í
sjálfu sér fagnaði hann því að
félagar þeirra hefðu náð fram
betri kjörum en almennt hefur
gcrst í samningum að undan-
förnu.
„En þeim sem lægst eru settir
hlýtur auðvitað að svíða mjög að
sjá kauptryggingarákvæði yfir-
manna allt í einu taka stökk upp
á við ef þeir einir eiga að sitja
eftir og það á ég alls ekki von á
að mínir menn sætti sig við."
„Það er út í liött að túlka þessa
leiðréttingu á þennan hátt. Þau
launahlutföll að skipstjórar og
stýrimenn hefðu hálfa aðra
kauptryggingu höfðu gilt í ára-
tugi þar til þau skekktust með
láglaunabótunum 1978 og þessir
menn eru síðastir allra í þjóðfé-
laginu til að fá þetta leiðrétt",
sagði Kristján Ragnarsson.
„Sjómannasambandið kom til
okkar og spurði hvort þessi leið-
rétting á aukahlutum mundi ekki
einnig gilda unt sína menn, mat-
sveina, netamenn og bátsmenn,
og við höfum sagt að þeir muni
fá samskonar leiðréttingu. Ég
get því ómöguiega skilið hvernig
þeir ætla sér einnig að fara fram
á einhverja extra hækkun fyrir
háseta vegna þessa - slíkt væri
hreinn útúrsnúningur", sagði
Kristján.
-HEI
Sýslufulltrúinn og lögreglumaðurinn
gerðu ekki góða ferð að Teigaseli:
KÆRÐIR FYRIR AÐ VALDA
SKARKALAVK) REFABÚIÐ
—er þeir voru að eltast við meintan ölvaðan ökumann
■ Rannsókn á meintum ölvunarakstri austfirðings nokkurs um
helgina snerist upp í kæru á hendur sýslufulltrúa N-Múlasýslu,
lögreglumanns á Egilsstöðum og lögreglumanns á Héraði fyrir að hafa
hugsanlega orðið þess valdandi með skarkala við refabú á Teigaseli
nálægt Egilsstöðum, að pörun hjá tveim refalæðum hafi mistekist.
Tildrög málsins voru þau að
Björn Halldórsson lögeglumað-
ur á Egilsstöðum var að svipast
um eftir ökumanni sem hafði
ekið bíl sínum út af nálægt
Egilsstöðum en var ekki í honum
þegar lögreglan kom á staðinn.
Björn spurðist fyrir um manninn
á Teigaseli og var sagt að hann
væri þar inni sofandi og mætti
ekki vekja hann.
Þar sem þetta var á svæði
sýslumannsins í N-Þingeyjar-
sýslu, sendi Björn eftir Svein-
birni Sveinbjörnssyni sýslufull-
trúa á Seyðisfirði, sem kom yfir
Fjarðarheiði á snjósleða þar sem
hún var ófær bílum. Þeir fóru
síðan heim að bænum ásamt
lögreglumanni á Héraði en þegar
enginn var heima fóru þeir að
refabúi við bæinn og bönkuðu
þar upp á.
Bóndinn kom þá út og urðu
einhver orðaskipti milli hans og
komumanna. Bóndinn mun hafa
viðurkennt að hafa sótt öku-
manninn í bíl hans og var honum
þá stefnt fyrir sakadóm N-Múla-
sýslu daginn eftir. Eftir vitna-
leiðslur þar bar bóndinn fram
kæru vegna ónæðisins við refa-
búið þar sem það hefði hugsan-
lega valdið því að pörun hjá
þrem læðum mistókst.
Lögreglunni á Seyðisfirði var
falið að rannsaka málið, þar sem
lög um refabú kveða á um að
ekki megi valda ónæði við þau.
Til var kvaddur dýralæknir sem
skoðaði læðurnar sem styrrinn
stóð um. Þá kom í Ijós að þær
voru aðeins tvær. Önnur hafði
hugsanlega náð að festa fang en
hin ekki. Þó er enn ekki ljóst
hvort það var af völdurn ónæðis-
ins eða ekki þannig að varla
verður um frekari málarekstur
að ræða.
-GSH