Tíminn - 06.04.1984, Blaðsíða 5

Tíminn - 06.04.1984, Blaðsíða 5
J5£V. .ö Jl'jí FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 1984 immrn fréttir Krabbameinsfélag Reykjavíkur: VILL HÆKKA RIKISFRAM- LAGIÐ T1L TÓBAKSVARNA — í dag nemur það tveimur aurum af hverjum sígarrettupakka ■ Aðalfundur Krabbameinsfélags Reykjavíkur sem haldinn var fyrir skemmstu skorar á Alþingi að sam- þykkja hið fyrsta frumvarp það sem nú liggur frammi um tóbaksvarnir jafnframt því sem félagið bendir á nauðsyn þess að hinar nýju reglur verði kynntar rækilega. Þá telur aðalfundurinn að ríkisframlag til tóbaksvarna þurfi að efla stórlega enda nemi það nú sem samsvarar tveim- ur aurum af hverjum pakka af sígarrett- um. Þá var á aðalfundinum skýrt frá starfssemi félagsins á árinu sem hefur verið blómlegt. Krabbameinsfélagið hefur haldið fræðslufundi nú síðast 19. mars en sá fundur var haldinn í tilefni af 35 ára afmæli félagsins sem er um þessar mundir. Reykingvarnarstarfsemi fé- lagsins í grunnskólum hefur verið einn veigamesti þátturinn í starfssemi félags- ins en það tekur til nær allra nemenda í 5. til 9. bekk skólanna á höfuðborgar- svæðinu auk þess sem félagið hefur staðið fyrir heimsóknum út á land. í vetur var tekið upp á þeirri nýjung í starfssemi félagsins að bjóða kvenfé- lögum fræðsluerindi og kvikmyndir um orsakir krabbameins og forvarnir gegn þeim. Var þessu boði vel tekið. Af öðru starfi Krabbameinsfélagsins má nefna útgáfustarfssemi en félagið gefur út blað- ið Takmark sem nýlega kom út og auk ■ Það er einbeittur svipurinn á þeim Heiðgerðingum en hópurinn ætlar að efna til hlutaveltu n.k. laugardag. Á myndina vantar Thorvald Brynjar, Vilhjálm og Halldóru. ALUR VELKOMNIR! Á hlutaveltu í skóladag- heimilinu í Heiðargerði ■ Það fer ekki mikið fyrir skóladag- heimilinu í Heiðargerði 38 í Rvk. en þar er þó líf og fjör alla daga á meðan á skólaárinu stendur. Krakkarnir sem þangað sækja, sautján að tölu, eru öll í Hvassaleitisskólanum en dveljast á skóladagheimilinu þann tíma dagsins sem þau eru ekki í skólanum. Á stóru heimili er auðvitað margt brallað og börnin vasast í ýmsu bæði úti og inni. Við heimsóttum þcnnan lífsglaða hóp og stálumst til að smella af mynd í leiðinni. „Við höfum verið að safna ýmsum hlutum undanfarnar vikur sem börnin ætla að hafa á tombólu sem haldin verður hér á heimilinu n.k. laugardag þann 7. apríl kl. 2," sagði Signý Óskars- dóttir forstöðukona heimilisins þegar við tókum á þeim hús. „Mikið af þeim munum sem á tombólunni verða hafa börnin búið til sjálf auk þess sem fjöl- skyldur þeirra hafa hlaupið undir bagga með ýmislegt. Við ætlum líka að bjóða upp á veitingar og það er rétt að láta þess getið að allir eru auðvitað hjartanlega velkomnir hingað á laugardaginn til að skoða það sem börnin eru að fást við og að taka þátt í hlutaveltunni. Ágóðanum ætla börnin að verja til þess að fara í ferðalag í sumar en þessi ferð er eins konar punktur aftan við vetrarstarfið. Við höfum gert þetta undanfarin ár og alltaf verið mjög gaman. Hér er um alvöru ferðalag að ræða eins og það er kallað, þar sem við gistum a.m.k. eina nótt i- ferðinni og þá sjá bömin um kvöldvöku sem þau hafa sjálf æft. Ferða- lagið er líka eins konat.kveðjustund þar sem stóru börnin okkar eru aðJiætta en hér eru aðeins börn á aldrinum 6 til 10 ára. Þau sem hætta í sumar fyrir aldurs sakir, ef svo má að orði komast, eru Villi og Binni að ógleymdum dömunum okk- ar þeim Ásdísi, Halldóru og Álfrúnu. Við komum til með að sjá mikið eftir þeim en svona er þetta nú og fyrr en varir eru þau orðin fullorðið fólk.“ -JÁÞ Látinn laus úr varðhaldi ■ Maðurinn sem reyndi að smygla 126 grömmum af amfetamini innvortis á sunnudag, hefur verið látinn laus úr gæsluvarðhaldi. Maðurinn var úrskurð- aður í 10 daga gæsluvarðhald sl. mánu- dag en ekki þótti ástæða til að halda honum lengur inni þar sem Ijóst þótti að hann hafði verið einn að verki. - GSH þess Fræðslurit krabbameinsfélagsins en tíundi bæklingurinn sem út kom í vetur fjallar um krabbamein í eggjastokkum. - b ■ Árshátíð Menntaskólans í Hamrahlíð var haldin í gær. Stóð hún yfir allan daginn og lauk með dansleik í Broadway í gær- kvöldi. Nemendur skólans sýndu m.a. skemmtiatriði í Miklagarði, sal M.H. og var þessi mynd tekin þar af eldhress- um dansmeyjum. Tímamynd Ari SRIHUIHHH SOLUBOÐ SYKUR 2KG Juvel HVEITI 2 KG LENI SALERNIS PAPPIR SMJÖRLÍKI • • /6\sARUD KARTOFLU SKRÚFUR PASKAEGG vtóna NO. 8 ...vöruverð í lágmarki SEXT1U OG SEX NORÐUR Hlífdorfatnaður frá SJóklceðagerðinnl: Proaður lil að mæta kröfum íslenskra sjómanna við erfiðustu aðslæður. POLY-VINYL GLÓRNN brælsterkir vinyIhúðaðir vinnuvettlingar sérstökum gripfieti scm Skúlagötu 51 Sími 11520

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.