Tíminn - 06.04.1984, Blaðsíða 4

Tíminn - 06.04.1984, Blaðsíða 4
■ Nokkrir nýir ieikkraftar bætast í raðir Þjóðleikhússins í sýningunni á Gæjar og Píur, sem verður í kvöld. Tíminn náði tali af þeim eftir langa og stranga æfingu einn daginn. Þetta eru þau Ragnheiður Steindórsdóttir, Sigur- jóna Sverrisdóttir, Kristján Franklín Magnús, og Edda H. Bachman. Ragn- heiður eru þeirra elst, og kunn úr ýmsum verkefnum, en hin eru öll úr sama bekk í Lciklistarskólanum og útskrifuðust sl. vor. Fyrsta spurningin vár hvar þau hefðu starfað áður. Ragnheiður: „Ég starfaði hjá Leikfélagi Reykjavíkur lengi vel, kom út úr skóla 1975. Nú í vetur hef ég starfað með Leikfélagi Ákureyrar“. - Hvernig var það? „Þaðvargaman.mérlíkaði mjög vel“. Sigurjóna, Kristján og Edda hafa ekki starfaö mikið. enda nýskriöin úr leik- skóla. Sigurjóna hcfur þó leikið í Undir teppinu hennar ömmu með Vorkonum Alþýðulcikhússins, Kristján í Hart íbak í Iðnó og Edda reyndar einnig í sama stykki. ÖII hafa þau svo leikið eitthvað í útvarpi og sjónvarpi. Þau þrjú leika ýmsa gæja og píur í Gæjar og Píur, en Ragnheiður fer með stórt hlutverk, leikur Söru á móti Skæ Egils Ólafssonar. Hvernig cr aö leika á móti Agli? „Hvernig spyrðu maður? Það er fínt“, er svarið. - En hvernig er að lcika Söru? Hvers konar karakter er hún? „Hún cr kannski ckki flókinn karakt- er. En þar sem ég er fyrst og frcmst leikari, þá er þetta svolítð erfitt að þurfa að gera allt í einu, syngja, dansa og „MJÖG SKEMMHLEGT EN ÞRÆL- ERFTTT AD VERA LBKART Rætt vid f jóra nýja leikara Þjóðleikhússins, sem taka þátt í sýningum á Gæjum og píum Icika. Þetta er mjög skemmtilegt, og það er falleg músík. Sara er indæl hjálpræð- isherspía sem lendir í því að verða ástfangin í gamblcr gæja, en endalok þessa sambands verða mjög óvænt. Við skulum ekki gefa of mikið upp fyrir- fram". - Þú ert komin á fastan saming við Þjóðleikhúsið er það ekki? „Jú, ég var ráðin á árssamning en var í launalausu leyfi þangað til ég kláraði á Akureyri". - Ilvernig líkar ykkur hér í Þjóð- lcikhúsinu? „Bara vel. Þetta er að vísu mjög mikið öðru vísi en annars staðar. Stærðin á húsinu er mikil og fjöldinn mikill. Þetta er búið að vera alveg svakalegt törn, og við crum kanski ekki vön að taka þátt í svona sýningum. Mesta vinnan erá milli atriða, þá erum við í panik að skipta unt búninga og slfkt, því að við leikum öil ntörg hlutverk nema Ragnheiður. Við erum í söngleik, og erum minnst notuð ■ Héma sést Edda H. Bachman ásamt nokkrum meðleikurum. Tímamyndir Árni Sæberg. í leikinn, en meira til að syngja og - Sjáið þið þrjú ófastráðnu mikil dansa". verkefni framundan? „Það er nóg að gera stundum, en svo eru lægðir á milli“ - En hvernig er stykkið, Gæjar og píur? „Þetta er mjög skemtilegt stykki, týpískt Broadway stykki. Það er mjög flott sviðsmynd og gaman að leika í henni. Að vísu erum við varla búin að sjá sviðsmyndina, það væri reyndar gam- an að veraút í sal ogsjásýningunsjálfur. Við erum með tækninýjungar, þeir sem fara með sólóparta syngja í gegn um hljómkerfi. Þeir hafa á sér hljóðnema, sem senda sönginn og talið út í hljóm- kerfið. Þetta er vegna þess að það er stór hljómsveit. 15 manna hljómsveit, sem annars mundi yfirgnæfa leikarana". - Hvernig komust þið inn í sýninguna? „Við þrjú, Sigurjóna, Kristján og Edda vorunt valin eftir eða prófun, þar sem fullt af fólki kom og söng og dansaði. Margt af því hefði alveg eins getað gert þetta og við, en við vorum valin." ■ Leikstjórinn, Kenn Oldfield. - Að lokum, hvernig er að vera leikari? Kristján: „Mjög skemmtilegt en þræl- erfitt". Ragnheiður: „Ég hugsa að þetta tvennt jafni sig upp. Þessu má kannski líkja við það þegar barn kemur í heiminn, fæðingin er kannski erfið og sársaukafull, en ánægjan fær mann til að gleyma efiðleikunum". Aðalfundur Framsóknarfélags Reykjavíkur: Valdimar var endurkjörinn formaður Alliance Francaise: Einnar aldar afmælisfagn- adur haldinn ■ Aðalfundur Framsóknarfélags Reykjavíkur var haldinn fyrir skömmu. Gestur fundarins var Ólafur Jóhannes- son, alþingismaður, sem tjallaði um stjórnmálaviðhorffð um þessar mundir og stöðu Framsóknarflokksins, sérstak- lega í Reykjavík. Valdimar K. Jónsson, var endurkjör- inn formaður félagsins. Aðrir í stjórn eru: Leifur Karlsson, varaformaður, Al- freð Þorsteinsson ritari, Valur Sigur- bergsson ritari og meðstjórnendur Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, Jónína Jónsdóttir og Pétur Sturluson. Vara- menn í stjórn eru: Haraldur Ólafsson, Jónas Guðmundsson, Örn Erlendsson og Steinþór Þorsteinsson. ■ Annie Jeanne ■ Föstudaginn 6. apríl kl. 18.00 hefst á Hótel Sögu árshátíð og eitthundrað ára afmælisfagnaður Alliance Francaise. Þar verður borðað og dansað við undirleik hljómsveitar til kl. 2 e.m., en gestur hátíðarinnar er franska söngkonan Annie Jeanne. Hún flytur þar lög allra helstu söngvara Frakklands á þessari öld (Edith Piaf, Gilbert Becaud, Charles Aznavour, Guy Beart, Charles Trenet, Jacques Brel o.s.frv.) auk eigin laga, við undirleik píanó- leikara síns. Miðar verða seldir hjá Alliance Francaise, Laufásvegi 12, kl. 17.00-19.00, alla virka daga til 4. apríl.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.