Tíminn - 06.04.1984, Blaðsíða 7

Tíminn - 06.04.1984, Blaðsíða 7
 B.St. o|K.L. ■ Það var stutt leðurpilsið á dragtinni hennar Lindu Gray (Sue EUen) og svörtu silkisokkamir hennar vöktu hrifningu áhorfendanna. SUEELLEN (UNDA GRAY) — með „smá einkasýningu“ ■ Tiskusýning hjá DIOR í París, sem haldin var nú síðast í marsmánuði, þótti lítið spenn- andi. Þó var þarna komið saman mikið af frægu fólki og tísku- fólki, og hafði það beðið spennt eftir að sjá hvað nýi tísku- hönnuður DIOR-fvrirtækisins, Gerard Penneroux kæmi með nýtt á sýningunni. Þama vom sýndir dömukjólar, en Penner- oux hefur árum saman staðið fyrir herratískunni hjá Dior. Það mátti líka sjá herrasvip á hinum stóm og víðu kápum og jökkum, sem sýningarstúlkumar nærri hurfu í. En það besta við þessa tísku- sýningu kom mönnum saman um að hefði verið leikkonan Linda Gray (Sue Ellen). Hón sat þarna í fremstu röð við sýning- arpallinn og brosti og vinkaði til Ijósmyndaranna, sem hópuðust að henni. Þar fengu þeir vera- lega skemmtilegt myndaefni. Linda Gray var í svartri dragt ór mjóku leðri. Pilsið var mini-pils og við það var leikkonan í næfurþunnum svörtum sokkum og háhæluðum skóm, og var hón óspar á að sýna herlegheitin. „Ég keypti dragtina heima í Kaliforníu“, sagði Linda Gray við blaðamennina“, en auðvit- að er hón innflutt frá París“, bætti hón við og brosti ánægð. Hón mátti líka vera ánægð með sig, því ór öllum áttum gat hón heyrt aðdáendaraddir, og fleiri en einn hafði orð á því, að Linda hefði borið af, ef hón hefði farið upp á sýningarpailinn. Hón hefði verið miklu glæsilegri en sýning- arstólkurnar sem sýndu Dior- tískuna. 5'íiTTij L 'W erlent yfirlit ■ FYRR í vetur bárust þær fréttir frá Vestur-Þýzkalandi. að margt benti til, að Græni flokk- urinn svonefndi. sem náði fót- festu á sambandsþinginu í Bonn í þingkosningunum í marz 1983, væri að leysast upp. Ósamkomu- lag væri að aukast innan flokksins, enda hefur hann mjög lauslega stefnu, þegar baráttu fyrir umhverfisvernd og and- stöðu við kjarnavopn sleppir. Barátta flokksins gegn stað- setningu meðaldrægra kjarna- flauga beið visst skipbrot á síð- astliðnu hausti, þegar mistókst að koma í veg fyrir uppsetningu þeirra. Þetta virtist í fyrstu hafa þau áhrif að baráttukjarkurinn hefði minnkað. Við það bættist svo, að ágrein- ingur fór vaxandi innan flokksins um önnur mál og þá ekki sízt um það, að þingmenn flokksins ættu að víkja af þingi eftir tvö ár og láta varamenn sína taka við. Þetta átti sinn þátt í að einn af þingmönnum flokksins, Gert Bastian hershöfðingi, sagði sig úr flokknum og bar við klofningi í flokknum og vaxandi undir- róðri kommúnista innan hans. Hann mun halda áfram setu á ■ Þama bregður þekktur blaðafulltrói upp mynd af því, hvernig gömlu flokkunum hugnast ekki vöxtup græna flokksins. Græni flokkurinn eflist enn í Vestur-Þýzkalandi Það virðist vera mest á kostnað frjálslyndra þingi sem utanflokkamaður í vissu samstarfi við sósíaldemó- krata. Petra Kelly, sem ereinn helzti stofnandi flokksins og borið hef- ur einna mest á, lét svipaða gagnrýni í Ijós um líkt leyti, en hún og Bastian höfðu unnið saman. Það var á sínum tíma viss styrkur fyrir flokkinn, þegar hershöfðingi gekk til liðs við hann. SPÁR þeirra, sem hafa haldið því fram, að Græni flokkurinn myndi leysast upp, urðu fyrir miklu áfalli í fylkiskosningunum, sem fóru fram í fylkinu Baden- Wiirttemberg 25. marz síðastlið- inn. Fyrir kosningarnar hafði ekki borið verulega á Græna flokkn- um og honum veitt lítil athygli. Baráttan stóð fyrst og fremst milli kristilegra demókrata og sósíaldemókrata. Kristilegir demókratar hafa farið með meirihlutastjórn í Baden-Wiirttemberg. Kohl kanslari taldi það miklu skipta fyrir stjórn sína, að þeir héldu þar velli. Forsætisráðherrann í Baden-Wiirttemberg, Lothar Spáth, vildi hins vegar verða sem minnst bendlaður við stjórnina í Bonn. Hann hefur unnið sér miklar vinsældir í Baden-Wiirtt- emberg, og þótti því vænlegur til að halda velli, ef honum tækist að halda stjórninni í Bonn utan við kosningabaráttuna. Það skipti hinn stjórnarflokk- inn íBonn, Frjálslyndaflokkinn, enn meira máli, að hann héldi velli í Baden-Wiirttemberg, sem verið hefur frá upphafi eitt aðal- vígi hans. Flokksforustan lagði því megináherzlu á kosningabar- áttuna í Baden-Wiirttemberg. Fyrir sósíaldemókrata skiptir það vitanlega miklu máli að halda vel velli í Baden-Wurtt- emberg og leiða þannig í ljós, að það hefði ekki orðið hnekkir fyrir flokkinn, að honum mis- tókst að fá staðsetningu banda- rísku meðaldrægu eldflauganna frestað. Úrslit fylkiskosninganna í Baden-Wiirttemberg urðu þau, að allir flokkar töpuðu nema Græni flokkurinn. Kristilegi flokkurinn hélt ■ Bastian hershöfðbigi nokkurn veginn velli. Hann fékk 51.9% greiddra atkvæða í stað 53.4% í fylkiskosningunum 1980. Sósíaldemókratar rétt stóðu í stað. Þeir fengu 32.5% nó í stað 32.4% 1980. Frjálslyndi flokkurinn varð hins vegar fyrir nokkru áfalli. Hann fékk 7.2% í stað 8.3% árið 1980. Græni flokkurinn var sá eini, sem bætti stöðu sína. Hann fékk 8% í stað 5.3% í kosningunum 1980. Hann hafði þannig unnið allt það fylgi, sem stjórnarflokkarnir í Bonn höfðu tapað samanlagt eða rómlega 2.6%. Fyrir Frjálslynda flokkinn cr það talið verulegt áfall, að hann er ekki lengur þriðji stærsti flokkurinn í Baden-Wiirttem- berg, en þaö hafði hann verið síðan stríðinu lauk. Flokk- urinn hefur aidrei fengið eins lítið fylgi í Baden-Wurttemberg og nó. Græni flokkurinn vann eink- um á í borgunum. Hann fékk 10.5% greiddra atkvæða í Stutt- gart og nær tvöfaldaði fylgi sitt þar. í háskólabænum Tubingen fékk hann 20.6% atkvæðanna. Margt bendir til, að fylgisaukn- ingu sína hafi hann einkum feng- ið frá ungu fólki. Það er víðar en í Baden- Þorarinn Þórarinsson, ritstjóri, skrifar Wurttemberg, sem Frjálslyndi flokkurinn hefur lotið í lægra haldi fyrir Græna flokknum. t borgarstjórnarkosningum, sem fóru fram í Munchen fyrir skömmu, varð Græni flokkurinn þriðji stærsti flokkurinn. Úrslitin þar urðu þau, að Kristilegi flokk- urinn og sósíaldemókratar fengu sína 35 borgarfulltrúa hvor, Græni flokkurinn fékk 6 borgar- fulltrúa og Frjálslyndi flokkurinn 4. Jafnhliða þessu fóru fram borgarstjórnarkosningar í Munchen og varð að fara fram endurkosning, því að enginn frambjóðandi fékk meirihluta at- kvæða. Síðastliðinn sunnudag var kosið að nýju og fékk Georg Kronawitter, frambjóðandi sós- íaldemókrata 58.3%, en Erich Kiesl borgarstjóri og frambjóð- andi kristilegra 41.7%. Þetta er talinn mikill ósigur fyrir Franz Josef Strauss, en hann kennir óvinsældum stjórnarinnar í Bonn unt. Getur þetta orðið verulegt deilumál milli Strauss og Kohls. Sósíaldemókratar hafa yfir- leitt haft borgarstjórann í Munchen. Kronawittervarborg- arstjóri 1972-1978, en féll þá vegna klofnings hjá sósíaldemó- krötum, en vinstri armur þeirra var andvígur honum. Kristilegir hugga sig við það, að Kronawitt- er sé til hægri í flokki sínum. Kronawitter bíður nú það verkefni að reyna að ná samstarfi við græningja, en það er eitt af deiluefnum í flokki þeirra, hvort haft skuli samstarf við sósíal- demókrata eða hafna samstarfi við alla. NÆSTA vetur verða tvö ár liðin frá þingkosningunum 1983. Þá verða þingmenn Græna flokksins að gera það upp við sig, hvort þeir fara eftir flokks- reglum og víkja af þingi og láta varamönnum eftir sæti sitt. Þetta hefur verið mikið deiluefni og virðist hafa verið sætzt á þá lausn, að vilji 70% flokksfélaga í umdæmi viðkomandi þing- manna að þeir gegni þing- mennsku áfram, séu þeir undan- þegnir tveggja ára reglunni. Ekki er þó algert samkomulag í flokkn- um um þetta.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.