Tíminn - 06.04.1984, Síða 3
i i'. I l'iJ > Sí • • t í’, 1 F > J I
FÖSTUDAGUR 6. AFRll. 1984
fréttir
■ Landsbankamenn kynna Landsbankaskírteinið sitt
Nýjung hjá Landsbankanum:
Tímamynd ÁDJ
Spariskírteini til sex
mánaða með hærri vöxtum
Amnesty International:
Pyntingar tíðkast í
eitt hundrað löndum
■ Næstkomandi mánudag, 9. apríl,
mun Landsbankinn hefja sölu á nýrri
tegund spariskírteina, sem bera nafnið
Landsbankaskírteini. Skírteinin bera
6% fasta vexti ofan á almenna spari-
sjóðsvexti, sem eru nú 15%, þannig að
alts bera þessi skírteini 21% vexti.
Skírteinin eru innleysanleg að sex mán-
uðum liðnum, og er þá hægt að endur-
nýja skírteinið, eða taka féð út með
vöxtunum.
Skírteinin eru eigendum algerlega að
kostnaðarlausu, bankinn innheimtir
ekkert fé fyrir þessa þjónustu, og stimpil-
gjald er ekki greitt. Þótt skírteinið sé
ekki leyst út að sex mánuðum liðnum,
né endurnýjað, leggur bankinn samt
vextina við og síðan er skírteinið áfram
á almennum sparisjóðsvöxtum. Nýjung
varðandi þessi skírteini, en lágmarks-
upphæð þeirra er 10.000 kr., er að þau
geta gengið kaupum og sölum. Þarf ekki
að tilkynna það bankanum. Landsbank-
inn vonast eftir því að með þessu aukist
sparnaður og innlánsfé aukist, sem aftur
leiði til aukinna útlána og minni þarfar á
erlendum lántökum.
Ástæðan fyrir þessari nýjung í starf-
semi Landsbankans er ákvörðun Seðla-
bankans um að heimila sparisjóðum og
bönkum að ákveða vexti af innlánum,
sem bundin væru til sex mánaða eða
lengur. 6% föstu vextirnir á skírteinun-
um haldast óbreyttir, þótt almennir
vextir breytist. Bankastjórn mun fyrir
hver mánaðarmót tilkynna hve há upp-
hæð verður til sölu í skírteinunum þann
mánuð, en það verður þó ekki tilkynnt
nú í upphafi.
- ÁDJ
■ Pyntingar eða ómannúðleg meðferð
fanga tíðkast nú í nær 100 löndum, segir
í nýútkominni skýrslu frá Amnesty Int-
ernational. Álitið er að fullar sönnur
hafi fcngist fyrir pyntingum fanga í um
60 löndum, en misjafnlega rökstuddur
grunur leikur á því að pyntingar séu
stundaðar í alimörgum löndum til við-
bótar. Að sögn Amnesty-manna hvílir
mikil leynd yfir mannréttindabrotum af
þessu tagi, þannig að í mörgum tilvikum
er erfitt að færa sönnur á að pyntingar
hafi átt sér stað.
Þessi grimrridarverk eru oft íramin á
skipulagðan hátt, segir í skýrslunni.
Pyndingar eru í niörgum löndunt notað-
ar sem liður í skipulegri viðleitni til að
bæla niður mótþróa. Oítast eru pynting-
ar notaðar til að hræða fólk til undir-
gefni, refsa því eða knýja fram játningar
hjá pólitískum föngum. Við pyntingarn-
ar er beitt aragrúa aðferða, allt frá
höggum og hýðingum til sérhæfðra pynt-
ingartóla. Þannig eru Sýrleningar sagðir
nota svokallaðan „svartan þræl", raftæki
sem stingur hituðum málmteini inn í
endaþarm fórnarlambsins, Sovétmenn
gefa pólitískum föngum sársaukavald-
andi lyf, börn hafa verið pyntuð í El
Salvador og smábörn í íran neydd til að
horfa á mæður sínar pyntaðar.
Deildir Amnesty lnternational um
allan heim eru nú að leggja út í herferð
gegn pyntingum. Þessi herferð á að
standa fram í desember og rnun öllum
hinum hefðbundnu aðferðum Amoesty
verða beitt, svo sem bréfaskriftum,
skyndiaðferðum, sýningum, áskorunum
o.s.frv. Amnesty segir nicira en 30.00(1
sjálfboðaliða í 47 löndum vera í við-
bragðsstöðu til að geta sent skyndiá-
skoranir í tilvikum þar sem grunur leikur
á pyntingum.
Amnesty International hefur nú deild-
ir í 72 löndum, en alls niunu félagar í
Amnesty starfa í um 130 löndum.
1 Reykjavík hefur Amnesty Internat-
ional aðsetur í Hafnarstræti 15 og er þar
opið alla virka daga kl. 16-18.
- JO
Feikilega
afturhalds-
samt plagg
■ Bandalag íslenskra sérskólanenta
hefur sent frá sér ályktun um úttekt þá
sem menntamálaráðherra hefur látið
vinna uni Lánasjóð íslenskra náms-
manna þar sem bandalagið fordæmir
þær „miöaldahugmyndir" sem þar koma
fram og mótmælir öllum niðurskurðará-
formum ás núverandi námsaðstoðar-
kerfi. Þá segir að „plagg" þetta sé mjög
hroðvirknislega unnið og geti vart talist
gilt sem fagleg úttekt. Orðrétt segir að
þar sé „sallað saman annars vegar cin-
hvers konar rekstrarfræðilegum hug-
renningum og hins vegar feikilega aftur-
haldssömum niðurstöðum og tillögum
sem allar miðast við að sjóðurinn verði
skorinn niður."
FRUMSÝNING
SA 2ja dyra
Verð frá kr. 250 þús. rj
Miöað við gengi 4/4 ví
CORSA 3ja dyra
Þetta er sá yngstl í Opel-fjölskyldunni — Corsa. Hann veröur frumsýndur á bílasýningunni Auto ’84. En
hann veröur ekki einmana, því aö viö sýnum líka Opel Kadett og Opel Ascona, Isuzu Piazza, Isuzu Trooper,
Izuzu KB Pickup, Chevrolet Pickup og Chevrolet Blazer. Þaö er sama hvers konar bíl þiö eruö aö hugsa um
— fjölskyldubíl, feröa- eöa vinnubíl — þeir bíöa ykkar allir á sýningarsvæöi okkar á Auto ’84. Komiö og
skoöiö. Viö bjóöum ykkur velkomin.
H!3
3E3
HOFÐABAKKA 9 SIMI 687300 GÆÐAEFTIRLIT MEÐ GÆÐAVORUM