Tíminn - 06.04.1984, Page 6
6______________
í spegli tímans
Wimmn FÓSTUDAGUR 6. APRIL 1984
■ „Vtðurslúlkurnar" kalla þær sig, Izora og Martha. Þarna eru þær ad æfa sig, en yfirleitt eru þær
miklu léttklæddari á sýningum.
„VEÐURSTÚLKURN-
AR“ SEGIAST VERA
r
STORAROG
FALIEGAR
■ Hér sjáum við „Veðurstúlk-
urnar“ í allri sinni dýrð. Þær
koma fram og syngja og dansa
og eru vinsælar á skemmti-
stöðum í Bandaríkjunum. - Við
erum sönnum þess, að stórar og
feitar konur eru fallegar og
„sexí“. Kjörorð okkareru: „Big
is beautiful!" segja þær Izora
Armstead og Martha Wash, en
þær vega hvor fyrir sig töiuvert
yfir 100 kíló.
Izora og Martha syngja um
það sem þcim finnst mikilsverð-
ast í lífinu: að borða vel og
mikið, elska og hafa nóga pen-
inga til að eyða. Sýningar þeirra
ganga stundum fram af siðprúðu
fólki, og er þá mikið hringt til
sjónvarpsstöðvarinnar CBS, þar
sem þær eru með þátt. Izora og
Martha segjast ekkert vera ósið-
legar. Þær séu bara léttklæddar
eins og söng- og danspíur séu
yfirleitt, og skreyti sig með
fjöðrum og giltrandi pallíettum
á viðeigandi stöðum. Áhorfandi,
sem hringdi og kærði, var beðinn
að útskýra betur kæruna, á
hverju hún byggðist. „Eg veit
það ekki almennilega, ég veit
það bara, að þetta er of mikið af
beru holdi til að sýna fyrir al-
menning. Það er ekki hægt að
horfa á þetta!“ sagði aumingja
maðurinn.
Vídcó-þáttur þeirra: Það rign-
ir karlmönnum (It’s Raining
Men) vakti mikla hneykslun í
Amcríku, en í þcirri sýningu
rigndi fáklæddum karlmönnum
yfir sviðið, og Izora og Martha
tóku vel á móti þeim.
Hvernig gat þetta orðið, að
siðprúð fyrrv. óperusöngkona og
píanókennari tóku sig til og fóru
að halda slíkar sýningar? Þær
hittust fyrst í kirkjukór, sem
sérstaklega söng negrasálma og
komust þar „í stuð saman“ og
fóru að syngja og dansa aö
gamni sínu, til að sýna söngfólk-
inu, að þær gætu dansaö þótt
þær væri stórar og feitar. Nú eru
þær hættar í kórnum og eru stórt
númer á skcmmtistööunum og
þeim er óspart klappað lof í lófa.
UFflNDI EFflRMYND-
R FOHURA SNIA
■ Eins og tvíburasystur! - Lifandi eftirmynd föður
síns! - Vasaútgáfa af mömmu sinni!
Þetta voru umsagnirnar um verðlaunamyndir,
sem birtust í bandarísku blaði nýlega. Þar hafði
verið auglýst eftir myndum af feðgum eða mæðgum,
þar sem barnið líktist sem mest foreldri sínu. Veita
átti verðlaun fyrir bestu myndina, og gekk það fljótt
og vel fyrir sig að ákveða verðlaunamynd af
föður og syni, en svo varð það seinlegra með
kvenlegginn, því að svo margar myndir komu af
líkum mæðgum, að ómögulegt var að gera upp á
milli þeirra. Taka varð þrjár myndir út úr, sem allar
fengu fyrstu verðlaun!
■ „Tvífari föður síns“ kalla vinir Chris
Conner hann.Chris cr t.v. á myndinni, en
Tom, faðir hans, gæti verið eldri bróðir.
■ Hazel Williams (t.v.) er móðirin, en
dóttir heitir Debbie Johnson. Debbic sagði
að sér þætti gaman hvað þær mæðgur væru
líkar. - En það fór í taugarnar á mér hér
áður, þegar vinurinn kom að sækja mig til
að fara í bíó eða annaö, og mamma kom til
dyra, en þá sagði hann kannski: Hæ,
Debbie, ertu tilbúin? - en þá var hann að
tala við mömmu!
■ Jennifer Miller, 6 ára, segist vera glöð
þegar fólk kallar hana „vasaútgáfu af
inömmu“,Helen Miller. „Mér finnst gott
að vera lík henni, hún er fallegust í öllum
heiminum!" sagði Jennifer litla við blaða-
manninn.
■ Mamman 42 ára, Joan Buckley (t.v.)
og dóttirin Lori Walder 23 ára gætu verið
tvíburasystur. Þær rugla sífellt við-
mælendur sína, þegar þeir spyrja: Er þetta
systir þín? Nei, þetta er móðir mín, eða
þá... dóttir mín. Stundum segjast þær
sjálfar ruglast í ríminu og þá vita þær varla
hvor er hvað...!