Tíminn - 06.04.1984, Blaðsíða 8
FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 1984
Útgefandi:.Nútíminn h.f.
Ritstjórar: Magnús Ólafsson (ábm) og
Þórarinn Þórarinsson
Ritstjórn, skrifstofur og auglýsingar:
Síöumúli 15, 105 Reykjavík.
Sími: 86300. Auglýsingasími: 18300.
Kvöldsímar: 86387 og 86306.
Verö í lausasölu 20 kr. en 22 kr. um helgar
(2 blöð). Áskrift 250 kr.
Setning og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Blaðaprent hf.
Svavar og Olafur
fá hirtingu
■ Þjóðviljinn skýrir frá því í gær, að á fundi forustu-
nefndar stjórnar Verkalýðsmálaráðs Alþýðubandalagsins,
sem haldinn var síðastliðið þriðjudagskvöld, hafi verið
samþykkt eftirfarandi tillaga frá Ásmundi Stefánssyni,
forseta Alþýðusambands Islands, með átta samhljóða
atkvæðum, en Þröstur Ólafsson hafi setið hjá:
„Verkalýðsbaráttan er í dag háð við erfiðar aðstæður.
Því skiptir öllu að sterk samstaða sé innan hreyfingarinnar
og með þeim hópum, sem styrkja vilja baráttu hennar.
Framkvæmdanefnd stjórnar Verkalýðsmálaráðs Alþýðu-
bandalagsins harmar að Þjóðviljinn skuli ekki háfa skilið
þessar einföldu staðreyndir. Framkvæmdanefndin mót-
mælir harðlega þeirri ritstjórnarstefnu blaðsins að undan-
förnu að gera heildarsamtökin og einstaka forystumenn
verkalýðshreyfingarinnar tortryggilega með rangfærslum
og óbilgjörnum árásum. Þessi skrif blaðsins eiga ekkert
skylt við frjálsa, óháða blaðamennsku og þau þjóna hvorki
hagsmunum verkalýðshreyfingarinnar né Alþýðubanda-
lagsins. Framkvæmdanefndin treystir því að málgagn
sósíalisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis skrifi í
framtíðinni á annan hátt um verkalýðsmál.“
Þessi samhljóða ályktun forustunefndar stjórnar Verka-
lýðsmálaráðs Alþýðubandalagsins þarf engum að koma á
óvart.
Meðan stóð á samningaviðræðum í vetur beitti Þjóðvilj-
inn öllum ráðum til þess að vinna gegn þeirri stefnu, sem
yfirgnæfandi meirihluti forustumanna Álþýðusambands-
ins hafði mótað og naut stuðnings mikils meirihluta þeirra
launþega, sem hafa fylgt Alþýðubandalaginu.
Þessi stefna var fólgin í því að reyna að ná sem beztum
árangri, miðað við hið erfiða efnahagsástand, án þess að
láta koma til verkfalla, sem ekki myndu leiða til neinna
kjarabóta, þar sem möguleiki atvinnuveganna til að veita
þær, var ekki fyrir hendi. Meiri kauphækkanir hefðu
aðeins leitt til aukinnar verðbólgu og atvinnuleysis.
Það var strax ljóst, að formaður Alþýðubandalagsins,
Svavar Gestsson, og hulduritstjóri Þjóðviljans, Olafur
Ragnar Grímsson, voru andvígir þessari ábyrgu afstöðu
verkalýðshreyfingarinnar. Þeir prédikuðu að nú ætti að
láta reyna á kraftana og gengu jafnvel svo langt að
fullyrða, að verkalýðshreyfingin myndi gera sig áhrifa-
lausa, ef hún léti ekki reyna á kraftana.
Með þessum fullyrðingum var beinlínis verið að hvetja
til verkfalla, þótt augljóst væri að slíkt yrði launafólki til
óhags undir þeim efnahagslegu kringumstæðum, sem
ríkjandi voru í landinu.
Um það voru þeir Svavar og Ólafur Ragnar ekki að
hugsa, heldur vakti það eitt fyrir þeim að reyna að brjóta
á bak aftur viðleitni ríkisstjórnarinnar til að ná taumhaldi
á verðbólgunni og koma þannig á ástandi, sem kynni að
geta fleytt þeim Svavari og Ólafi í ráðherrastóla. Það var
sett ofar hagsmunum launafólksins og verkalýðssamtak-
anna.
Það er ekki fyrr en búast mátti við, að þessum
vinnubrögðum þeirra Svavars og Ólafs Ragnars yrði
mótmælt af hálfu verkalýðsleiðtoga í Alþýðubandalaginu.
Ólafur Ragnar og Svavar ætla hins vegar ekki að láta
sér segjast. Forustugrein Þjóðviljans í gær benti ekki til
annars en að þeir væru enn við sama heygarðshornið og
ætli að vinna ötullega undir því herópi Péturs Tyrfingsson-
ar að hreinsa verði til í forustu Alþýðusambandsins.
Augljóst er að sú hreinsun á fyrst og fremst að ná til
Ásmundar Stefánssonar. Þ.Þ.
skrifað og skrafað
Næstum öll gjaldþrot eru á
Suðvesturhorninu:
k|ordæmunum aó Reyk|avík
undanskildu Sama viröist vera
uppi a tengingum hvað varðar
gjaldþrot einstaklinga. Utan
Reykjavikur og Reykjanesk|or-
dæmis er það nánast undan-
tekning et eintaklingur er ur-
skurðaður gialdþrota og i þeirn
fáu tilvikum sem það hefur átt
sér sað hefur oftast tekist að
semia þanmg að þrotamanni
hefur verið afhent búið aftur til
frjálsra afnota Þannig hafa
94—98% allra gialdþrota em-
staklinga á landinu átt log-
heimili i Reykjavik eða Reykja-
neskjordæmi, reyndar sker
Reykjaneskjordæmi sig algjor-
elga úr með hvorki fleiri né
færri en 15 gjaldþrot einstakl-
mg árið 1980 sem hlýtur að
kallast með allra mesta móti og
a sér eflaust ákveðnar skyrmg-
ar
Bendir til að
byggðastefnan
sjái um sína
Þegar litið er á afskráð
hlutafélog á landmu. felog sem
ekki hafa hætt rekstri vegna
gjaldþrots. litur 'dæmiö allt
oðru visi út og þar virðist hlut-
falliö vera mun nær þvi að kall-
ast eðlilegt. þar sem rumur
helmingur þeirra eru i Reykja-
vik og i Reykjaneskjordæmi
Hver er ástæðan fyrir þessari
háu tiðm gjaldþrota á Suð-
uvesturhornmu? Hvernig
Niðurstoöur konnunar a
gjaldþrotum fynrtækja og ein-
staklmga leiðir i Ijós að miklu
mali virðist skipja hvar fyrirtæki
eru rekm á landmu 75—85%
allra gjaldþrota hlutafélaga a
landínu hafa verið Skráð i
Reykjavik I Reykjavik og
' Reykjaneskjordæmi hafa venö
! skrað fra 87 5—97 3% þeirra
j hlutafélaga sem orðið hafa
! gialdþrota á sióasliðnum
I þremurárum Það vekuremmg
I athygli að 1982 eru gialdþrot
I tyrirtækja jafn morg i Reykja-
| neskjordæmi og i ollum hinum
REYKJAVIK 1980 1981 982
814'801 Auglýsmgastola — Ijolmiölun 1 1 5
804 Bilaleiga 1
805 Bilasala 4 2 4
806 Bokhald- og endurskoöunarþ|ónusta 4 5 5
807 Dansskóli 2
808 Fasteignarekstur 5 10
809 Fasteigna- og veröbretasala 4 3 9
811 Feröadiskotek 1
812 Ferðaskntstola 2 2 1
815 Flugrekstur 1
397.816 Flulningar. samgongur. flutn miölun
817 Gallerirekstur 2 1
819 Heilsuræktar-og sólbaösstota 4 3 5
825 Innheimtuþjónusta 1 1
827 Knattborósstola 1
828 Kritarkorta- og lánastartsemi 1 2
829 Kvikmyndahusrekstur 2 1
830 Kæhgeymslur
831 Leiga laxveióiar 1
832 Leiktækjarekstur 1
833 Ljósritunarþjónusla 1 1
834 Læknaþ|ónusta 1
835 Logtræöiþjonusla 1
126'836 Otilgreint. þjónusta ymis konar 5
838 Skemmtikraltar — hljómsveitarrekstur 1 1
840 Skoöanakannanir 1
841 Snjosleöaleiga 1
842 Tannlæknaþionusta 1
412/842 Tækmþ|ónusta. verktræöi. ráögjol 1 1 9
844 Tolvuþjónusta. kertisfræöi.torritun 4 8 12
845 Vélnturvarþjónusta 1
846 Videóleiga 4 11 11
847 Vmnumiölun 1 1 3
848/849 Vorudreiling — voruskoöun 1
850 Upplýsmgaþjónusta 1
523'854 Þróunarlélag 1
855 Þýómgar—textagerö 1
856 Okuskóli 1
857 Oryggisþ|ónusta — voktun — varsla 1 2 ’
Gjaldþrot og
byggðastefna
■ Frjáls verslun birti nýver-
ið niðurstöður könnunar um
gjaldþrot fyrirtækja og ein-
staklinga og komst að þeirri
niðurstöðu að gjaldþrotin
væru langflest í Reykjavík og
á Reykjanesi. Blaðið spyr
hver sé ástæðan fyrir þessari
háu tíðni gjaldþrota á Suð-
vesturhorninu og svarar sér
sjálft. Ástæðan er sú að
eitthvað í pólitíska kerfinu
haldi verndarhendi yfir at-
vinnurekstri úti á lands-
byggðinni, ef til vill í krafti
byggðastefnunnar, en fyrir-
tæki í Reykjavík og Reykja-
neskjördæmi gjaldi þess að
þar vegur hvert atkvæði að-
eins Vi-Vs á við landsbyggðar-
atkvæðin.
Blaðið telur að fyrirtæki
úti á landsbyggðinni séu ekki
betur rekín en fyrirtæki á
höfuðborgarsvæðinu, þvert
á móti séu flest meiriháttar
olnbogabörn atvinnulífisins
einmitt úti á landsbyggðinni
og séu landsfræg vandræða-
fyrirtæki. Niðurstaða: „Ef til
vill er hér komin vísbending
um það hvaða verði meiri-
hluti þjóðarinnar þarf að
greiða þá byggðastefnu sem í
því felst að halda uppi at-
vinnu, hvað sem tautar og
raular, á stöðum þar sem það
borgar sig ekki en stuðlar
jafnframt að aukinni rán-
yrkju fiskimiða".
Þessi skoðun er byggð á á
þeim gögnum sem könnunin
leiðir í Ijós, en þrjár merkar
töflur fylgja með. Það eru
upptalning á hvers konar
starfsemi þau fyrirtæki, sem
orðið hafa gjaldþrota, ráku
og nær til áranna 1980-82.
Undantekningalaust er um
að ræða þjónustufyrirtæki.
Það á jafnt við gjaldþrotin i
Reykjavík, á Reykjanesi og
annars staðar á landinu. Það
þarf hvorki skarpskyggni né
íþyngjandi þekkingu á at-
vinnulífinu til að vita að þjón-
ustufyrirtækin hrannast upp
í þéttbýlinu á suðvesturhorn-
inu en framleiðslufyrirtækin
eru úti á landi, en þjónustu-
fyrirtæki þar mun færri.
Af þessari orsök einni er
ekki óeðlilegt að fleiri þjón-
ustufyrirtæki á höfuðborgar-
svæðinu fari yfirum en sams
konar fyrirtæki úti á landi,
þar eru þau einfaldlega svo
miklum mun færri.
Ef litið er á þær töflur sem
sanna eiga þennan ljóta blett
á byggðastefnu, kemur í ljós
að þjónustufyrirtækjum í
Reykjavík og Reykjanes-
kjördæmi er síst hættara við
gjaldþrotum en svipuðum
fyrirtækjum annars staðar á
landinu.
Þjónustu-
fyrirtæki á
brauðfótum
í ljós kemur að á fyrr-
greindu tímabili hafa fyrir-
tæki, sem flokkuð eru undir
auglýsingastofa- fjölmiðlun,
orðið gjaldþrota í því hlut-
falli að 9 slík fyrirtæki í
Reykjavík og í Reykjanes-
kjördæmi hafa verið tekin til
gjaldþrotaskipta, en 1 úti á
landi. Þrjár bílaleigur á
höfuðborgarsvæðinu urðu
gjaldþrota en 7 annarstaðar
á landinu.
Annað hvort gengur bíla-
sala miklu betur úti á landi,
ef marka má tölur Frjálsrar
verslunar, eða að hún fer að
mestu leyti fram á höfuð-
borgarsvæðinu því þar fóru
11 slík fyrirtæki á hausinn en
ekkert úti á landi.
Jafnræði er meðal gjald-
þrota fyrirtækja sem annast
bókhalds- og endurskoðun-
arþjónustu. Á höfuðborgar-
svæðinu urðu 15 slík fyrirtæki
gjaldþrota og merkilegt nokk
jafnmörg annars staðar á
landinu.
Það er svo umhugsunarefni
út af fyrir sig hvernig stendur
á að jafn fróðir menn um
rekstur og þeir sem annast
bókhald og endurskoðun
skuli verða gjaldþróta í stór-
um stíl.
, Það ér ekki nema þeir sem
annast tækniþjónustu, verk-
fræði, ráðgjöf, tölvufræði,
kerfisþjónustu og forritun,
sem virðast Vera eins hrapa-
lega að sér í hvernig reka á
fyrirtæki og er jafnvel hætt-
ara við gjaldþroti en endur-
skoðendum.
Fyrirtæki sem flókkast
undir tækniþjónustu, og
verkfræði-ráðgjöf virðast
ekki byggð á traustum
grunni, því 40 slík hafa orðið
gjaldþrota í þéttbýlinu á upp-
gefnu tímabili, en aðeins tvö
úti á landi. 27 fyrirtæki sem
störfuðu að tölvuþjónustu,
kerfisfræði og forritun á þétt-
býlissvæðinu fóru á hausinn,
en ekkert úti á landi, en því
er ósvarað hvort slík fyrirtæki
séu yfirleitt til í dreifbýlinu.
6 þéttbýlisferðaskrifstofur
urðu gjaldþrota og 2 úti á
landi. Flutningar og sam-
göngumiðlun virðist vafa-
samur atvinnurekstur. 15 slík
fyrirtæki urðu gjaldþrota í
þéttbýliskjördæmum og 6 í
öðrum. 15 heilsuræktar- og
sólbaðsstofur urðu gjald-
þrota í fjölmenninu en 7
annars staðar. 29 mynd-
bandaleigur urðu gjaldþrota
í margmenni og 12 úti á landi.
3 fyrirtæki sem önnuðust
krítarkorta- og lánastarfsemi
urðu gjaldþrota í Reykjavík
en annars staðar virðast svo-
Jeiðis fyrirtæki standa sig
bærilega, séu þau á annað
borð til.
Margskyns fyrirtæki sem
orðið hafa gjaldþrota í
Reykjavík eru ekki á gjald-
þrotaskránni í Reykjanes-
kjördæmi né annars staðar
og er ekki óvarlegt að áætla
að margs konar gjaldþrota-
fyrirtæki í Reykjavik eigi sér
ekki hliðstæður annars staðar
á landinu.
Einn fyrirtækjaflokkur á
sér sérstöðu. í gjaldþrota-
skránni er hann nefndur þró-
unarfélag. Eitt þrónunarfé-
lag í Reykjavík fór á höfuðið,
ekkert í Reykjaneskjördæmi
en fjögur úti á landi.
Merkar upp-
lýsingar og vit-
lausar ályktanir
Margt má að byggðar-
stefnu finna að færa sitthvað
þar til betri vegar og flestir
eða allir viðurkenna að kjör-
dæmaskipan er ranglát og
þarfnast breytinga. En
samanburðurinn á gjald-
þrotum, sem Frjáls verslun
gerði, og ályktanirnar sem af
eru dregnar éru út í hött og
kemur hvorki byggðastefnu
eða kjördæmaskipan við.
En það er margt athyglis-
vert við þær gjaldþrotatöflur
sem blaðið tók saman. Ef
þær eru tæmandi er at-
hyglisvert að það skulu ein-
vörðungu vera þjónustufyrir-
tæki sem orðið hafa gjald-
þrota á þriggja ára tímabili,
en ekki eitt einasta fram-
leiðslufyrirtæki, hvorki í
þéttbýli né úti á landi.
Gjaldþrotum einstaklinga
eru lítil skil gerð en blaðið
segir að 94-98% allra einstak-
linga sem úrskurðaðir hafa
verið gjaldþrota séu búsettir
í Reykjavík eða í Reykjanes-
kjördæmi, og að árið 1980
hafi 15 einstaklingar orðið
gjaldþrota. Það er ekki mikið
miðað við það gjaldþrota-
hrun fyrirtækja sem talin eru
upp.
Frjáls verslun hefur dregið
þarna saman hinar merkustu
upplýsinar en dregur af þeim
snar vitlausar ályktanir.
O.Ó.
Tónleikar Nýju strengja-
sveitarinnar í Hamrahlíð
■ Sunnudaginn 8. apríl heldur Nýja
strengjasveitin tónleika á sal Mennta-
skólans í Hamrahlíð. Á efnisskránni eru
þrjú verk sem öll hafa verið samin á
þessari öld: Five variants of „Dives and
Lazarus" eftir Vaughan Williams,
Kammersinfónía eftir Shostakovich og
Fantasía Consertante (um stef eftir Cor-
elli) eftir M. Tippett. Nýja strengjasveit-
in hefur starfað sl. fjögur ár og er nú
skipuð 20 hljóðfæraleikurum, sem flestir
hafa verið með frá upphafi. Stjórnandi á
hljómleikunum er Mark Reedman, en
hann byggði upp og stjórnaði Strengja-
sveit Tónlistarskólans í Reykjavík með
ágætum árangri. Tónleikar Nýju
strengjasveitarinnar á sunnudaginn
kemur hefjast kl. 17. Aðgöngumiðar
verða seldir við innganginn.
■ Nýja strengjasveitin