Tíminn - 06.04.1984, Blaðsíða 20
Opió virka daga
9-19
Laugardaga 10-16
H
HEDD
Shemmuvegi 20 Kopavogi
Simar (91)7 75 51 & 7 80 30
Varahlutir
Mikiö úrval
Sendum um land allt
Abyrgö á öllu
Kaupum nýlega
bíla til niðurrifs
5AMVINNU
TRYGGINGAR
8c ANDVAKA
ARMULA3 SIMI 81411
\?Babriel
'Q HÖGGDEYFAR
Hamarshöfða 1
y
QJvarahlutir .SSnSSf
Ritstjorn 86300 - Auglýsingar 18300 - Afgreiðsla og áskrift 86300 - Kvöldsímar 86387 og 86306
Föstudagur 6. april 1984
Tillögur Alberts til að fylla upp í „fjárlagagatið”:
1UMR ÞVOAIIM «°/o
kaupmAttarskerdingu
■ Fjármálaráðherra Albert
Guömundsson lagði á ríkis-
stjórnarfundi í gær fram tillögur
sínar um hvernig hann vill fylla í
„gatið“ margumrædda. Þær
fjalla m.a. um að hætta niður-
greiðslum búvara að mestu leyti,
sem mundi þýða um 20-30%
verðhækkun þeirra vara, og jafn-
framt að draga töluvert úr út-
flutningsuppbótum ásamt ein-
hverjum niðurskurði á ótgjöld-
um.
Ráðherrar vildu ekki leggja
mat á tillögur þessar í gær, sögðu
að fyrst þyrfti að meta hvaða
þjóðhagsleg áhrif þær liefðu,
bæði á verðbólgu, verðlag, kaup-
mátt og fleira.
Samkvæmt heimildum Tímans
mundu tillögurnar í framkvæmd
fela í sér að allt að 800 milljónir
króna fengjust upp í gatið, en að
mestu með tilfærslum á einstakl-
inga, þ.e. hækkuðu verðlagið,
þjónustugjöldum og fleiru. Álitið
er að þetta mundi þýða allt að
4-6% nýja kaupmáttarskerð-
ingu, sem ráðherrar framsókn-
armanna a.m.k. munu telja úti-
lokað að framkvæma.
Innan Framsóknarflokksins
munu menn fremur vera inn á
þeirri leið að brúa gatið með
niðurskurði útgjalda, bæði í
rekstri og framkvæmdum - telja
illgerlegt að lofa nýlega að létta
byrðum af þeim verst settu í
þjóðfélaginu og auka þær svo
nokkrum dögum síðar með nýj-
um álögum. Einnigþykirýmsum
tillögur fjármálaráðherra ill-
skiljanlegar í ljósi yfirlýsinga
hans um að hann vilji engar
nýjar álögur leggja á fólk.
- HEI
Fjármálaráðherra:
RUKKAR VÖRUGJALD-
IÐ EKKIAFTURÁBAK
■ Fjármálaráöuneytið liefur
ákveðið að leita samstarfs við
ijárveitinganefnd Alþingis um
að nauðsynlegra lagaheimilda
verði aflað til að hægt verði að
falla frá álagningu og inn-
heimtu vöru- og sölugjalds af
Svala, Jóga, Mangó-sopa og
kókómjólk fram til síðustu
mánaðarmóta.
Greiða hefur átt þessi gjöld
af fyrrnefndum vörutegundum
undanfarin ár samkvæmt
lögum, en það hefur ekki verið
gert. Kom hið’retta í fjós þegar
ráðuneytið undirbjó reglur um
samræmingu á verðlagningu
drykkjarvara sem mikið hefur
verið fjallað um í fréttum
undanfarið. Skattstjórar á við-
komandi stöðum þar sem fram-
leiðendur hafa heimilisfesti
hafa rukkað þá um vangreidd
gjöld allt að sex ár aftur í
tímann. og nemur sú upphæð
tugum ef ckki hundruðum
milljóna. Var Ijóst að ef gengið
yrði eftir þeim myndi fram-
leiðsla á velflestum þessara
vörutegunda stöðvast. Ekkert
verður því af innheimtu á
þessu gjöldum ef samkomulag
næst þar að iútandi við Iöggjaf-
analdið.'
Hins vegar er ákveðið að
innheimta þessi gjöld af fyrr-
greindum vörutegundum hér
eftir. -Kás
ARNARFLUG BÝÐ-
UR PARÍSARPAKKA
— -------------------------------
Ovenjuleg kosning í borgarstjórn:
Sjátfstædismenn kusu
Alþýðubanda-
lagsmanninn
■ Arnarflug hefur ákveðið að
bjóða íslenskum ferðamönnum
upp á svokallaðar pakkaferðir til
Parísar, í samvinnu við franska
flugfélagið Air France. Flogið er
til Amstcrdam með Arnarflugi
og þaðan áfram til Parísar með
frunska félaginu. I París verður
Vörubílastöð
Vestmannaeyja:
STARFSMAÐUR
UPPVÍS AÐ
FJÁRDRÆTTI
■ Skrifstofustjóri hjá Vöru-
bílastöð Vestmannaeyja hefur
orðið uppvís að hafa dregið að
sér í kringum hálfa miiljón króna
síðan hann hófstörf hjá fyrirtæk-
inu í september sl. Fjárdráttur-
inn uppgötvaðist skömmu og
hefur maðurinn gefið kvittun
fyrir fjárhæðinni og loforð um að
greiða upphæðina tii baka.
Fyrirtækið mun í ljósi þess
hafa ákveðið að kæra manninn
ekki að svo komnu máli.
- GSH
hægt að velja um gistingu á 11
hótelum, og er morgunverður
innifalinn í öllum tilvikum.
Ferðirnar geta staðið eina
helgi, eina viku eða lengur ef
þesseróskað. Helgarferðir kosta
frákr. 14028 ogvikuferðirfrákr.
15168. Er þá miðað við gistingu
í tveggja manna herbergi.
Þeir sem vilja kynnast báðum
borgunum geta m.a. fengið viku-
ferð með fjórum dögum í París
og þremur í Amsterdam. Slíkar
ferðir kosta frá 16173 krónum.
Arnarflug hefur einnig gert
samning um að fljúga fyrir belg-
íska flugfélagið Sobelair allar
helgar í apríl. Er þá flogið frá
Belgíu til sólarlanda. Viðræður
standa yfir um að halda því flugi
áfram í maí.
Uni mánaðamótin gekk í gildi
samningur félagsins við Tunis
Air um leigu á Boeing 727 vél
frá Arnarflugi. Samningur sá
gildir til októberloka og er flogið
frá Túnis til staða í Evrópu.
Leiguverð vélarinnar fyrir tíma-
bilið er um 84 milljónir króna.
Möguleikar eru á að þessi samn-
ingur verði framlengdur jafnvel
um eitt ár.
Leiguflug Arnarflugs fyrir ís-
lenskar ferðaskrifstofur verður
mikið í sumar. Mun félagið ann-
ast 70% þess flugs.
-GB
■ Sigurjón Pétursson, borgar-
fulltrúi Aiþýðubandalagsins, var
kosinn í stjórn Sparisjóðs
Reykjavíkur og nágrennis fyrir
tilstilli sjálfstæðismanna í borg-
arstjórn, ásamt Ágústi Bjarna-
syni, á fundi borgarstjórnar
Reykjavíkur í gærkveldi. Er
þctta í annað sinn sem þessi
fátíði atburður gerist í borgar-
stjórninni.
Kjósa átti tvo fulltrúa borgar-
innar í stjórn sparisjóðsins, og
komu fram þrjár tillögur. Sjálf-
stæðisflokkurinn bar fram Ágúst
Bjarnason, Alþýðubandalagið
Sigurjón Pétursson, en
kosningabandalag Alþýðu-
flokks, Framsóknarflokks og
Kvennaframboðsins Emanúel
Mortens. Ef allt hefði verið með
réttu hefði Ágúst fengið 12 at-
kvæði, Emanúel 5, en Sigurjón
Pétursson 4, og tveir fyrrnefndu
náð kosningu. Þegar upp var
staðið fékk Ágúst hins vegar 10
atkvæði, Sigurjón 6, en Emanúel
5. Er þar með Ijóst að tveir
borgarfulltrúarsjálfstæðismanna
hafa kosið Sigurjón, og stuðluðu
þar með að kosningu hans.
SOVETMANNI
BJARGAÐ
AF HERNUM
■ Þyrla frá Varnarliðinu flutti
48 ára gamlan vélstjóra af rúss-
neska verksmiðjutogaranum
Tlunge á Borgarspítalann í gær
en vélstjórínn mun hafa fengið
botnlangakast. Tlunge, sem er
4700 tonna skuttogari var stadd-
ur um 230-240 sjómflur SV af
Reykjanesi þegar hjálparbeiðni
barst.
Að sögn Hannesar Hafstein
hjá SVFl barst beiðnin kl. 2.00 í
fyrrinótt. Sovéska sendiráðiðvar
beðið um að leita nánari upplýs-
inga um líðan mannsins og kom
þá í ljós að hann hafði verið
veikur í nokkra daga. Þar sem
útlit var fyrir batnandi veður
með morgninum var ákveðið að
bíða birtingar og fór þyrla Varn-
arliðsins í loftið um kl. 8.00.
Litlu síðar fór eldsneytisvél með
túlk innanborðs í loftið auk Sea
King þyrlu frá breska flughern-
um sem verði hefur við æfingar
hjá björgunarsveit Varnarliðsins
undanfarið.
Sjúklingurinn var kominn um
borð í þyrluna í hendur læknis
þar kl. 12.00 og lenti hún síðan
við Borgarspítalann kl. 13.35.
-GSH
dropar
Þarf að geta
slegið frá sér!
■ „Kjaftshöggið“ hans Árna
Johnsen alþingismanns virðist
ætla að draga dilk á eftir sér á
ýmsum sviðum. Fyrir utan
undirskriftasöfnun sjómanna-
stéttarinnar og nemenda í
skólum tengdum henni, þá
segja gárungarnir að hæfnis-
skilyrðum frambjóðenda í
prófkjöri sjálfstæðismanna í
Suðuriandskjördæmi verði
' ; '
breytt í kjölfar þessa ináls.
Mun það verða gert að skilyrði
að kandídatarnir „geti slegið
frá sér“.
Litli maður-
inn fundinn?
■ Mikil leit hefur staðið yflr
af litla manninum svoncfnda
sem fjármálaráðherra nefndi á
dögunum í sjónvarpsþætti. Al-
þýðublaðið taldi á sínum tíma
að ráðherrann ætti örugglega
við Þorstein Pálsson, en hús-
mæður í Vesturbænum voru
hins vegar harðar á því í gær að
það gæti ekki átt við rök að
styðjast, heldur ættu hér í hlut
börn þeirra sem tekið hefðu
með sér kókómjólk í skólann,
en yrðu nú að láta sér nægja
kók eftir síðustu verðhækkanir
fjármálaráöherra. Litli maður-
inn með kókómjólkinni hcyrði
því fortiöinni til.
Mortefellercenter
' ■ Ein af mörgum fastcignum
fjármálagurus Alþýðuflokks-
ins Emanúels Mortens, spari-
sjóðsnefndarstjórnarmanns er
fasteignin Ármúli 7 í Reykja-
vík þar sem áður var Bílasala
Guðfinns. Dropar hafa það
eftir árciðanlcgum heimildum,
að Mortens hafl nú látið teikna
stórhýsi á framanverðri lóð-
inni, sem menn hafa nú gefið
nefnið Mortefeliercenter. Ekki
er vitað hvort skautasvell verð-
ur í húsinu eins og í Rokkerfell-
ercenter, en Mortens mun að
vanda í engu spara.
Krummi ...
....skilur vel að reflrnir vilji
hafa næði eins og aðrir.
EtBBBBBUBttBBHMBBKBBUKnBBBURKUBBBBRBBI&SBSSBSM